Morgunblaðið - 15.09.2007, Blaðsíða 56
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 258. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
HB Grandi um kyrrt
Stjórn HB Granda hefur horfið
frá áformum um byggingu fisk-
iðjuvers á Akranesi. Bæjarstjórinn
þar á bæ harmar ákvörðun stjórn-
arinnar og segir hana hafa komið sér
að óvörum. »4
Blikur á lofti vestanhafs
Nýjar smásölutölur sem eru undir
væntingum hafa ýtt á ótta banda-
rískra fjárfesta. Vaxtaákvörð-
unarfundur Seðlabankans þar í landi
fer fram í næstu viku og ljóst er að
atburðir liðinnar viku hafa aukið
þrýsting á að bankinn lækki stýri-
vexti. »14
Drukknuðu í hrönnum
Rúmlega 100 kindur drukknuðu
þegar verið var að reka fé yfir Kálfá
í gærmorgun. Mikið var í ánni og
ærnar sem ekki komust upp á bakk-
ann tróðust fljótt undir. »Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Serbía og Kosovo
Forystugreinar: Mengaður
jarðvegur | Hæstiréttur og
kynferðisbrot
UMRÆÐAN»
Nýjar víddir
Bréf til kölska
Þunglyndi og lífsgæðaskerðing
Fánaberinn í Skaftafelli fertugur
Á meðal vor geisar stríð
Við viljum trúa í blindni
Syngja og dansa
Fjör í sunnudagaskólanum
LESBÓK | BÖRN »
0 0
01 10
011
0 0 2 "'3 +&'
4 .
"+
01
0
0
0 1 011 0
)5$. 0
0 0 0 1 01 01
67889:;
<=:8;>4?@>6
59>96967889:;
6A>55:B>9
>7:55:B>9
C>55:B>9
/;>D:9>5;
E9?9>5<E=>
6:
=/:9
4=>4;/&;<989
Heitast 10°C | Kaldast 1°C
Austan og norð-
austan 10-18 m/s.
Hvassast syðst. Rign-
ing fyrir sunnan. Þurrt
að kalla fyrir norðan. » 10
Árni Matthíasson
fjallar um ummæli
Páls Baldvins Bald-
vinssonar í nýjum ís-
lenskum bók-
menntaþætti. »47
AF LISTUM»
Kiljur í
Sjónvarpinu
KVIKMYND»
Tékkneskur leikstjóri á
kvikmyndahátíð. »51
Útvarpsþátturinn
Orð skulu standa
hefst á ný í dag og
nú á að botna fyrri-
part um símakunn-
áttu Júdasar. » 53
ÚTVARP»
Orð skulu
standa á ný
TÓNLIST»
Finnsku tröllin komin til
byggða. »46
TÓNLIST»
Budam fær fimm stjörn-
ur fyrir nýja plötu. »50
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Um hundrað kindur drukknuðu
2. Varað við nöktum börnum
3. Demi Moore … of falleg …
4. Fær að halda ofgreiddum launum
KYNNINGARBLAÐ LEIKHÚSANNA
FYLGIR MORGUNBLAÐINU Í DAG.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„VIÐ FENGUM tilkynningu um að fundist hefðu manna-
bein hérna undir gólfinu í kirkjunni. Þegar við höfðum
hreinsað upp kom í ljós að um nokkra einstaklinga var að
ræða, að minnsta kosti þrjá og örugglega fleiri,“ segir
Agnes Stefánsdóttir, deildarstjóri hjá Fornleifavernd rík-
isins, um fund iðnaðarmanna í Útskálakirkju í Garði á
fimmtudag.
Fyrst var talið að um fjöldagröf frá seinni hluta
sautjándu aldar væri að ræða, en vitað er af slíkri í kirkju-
garðinum sem umlykur Útskálakirkju. „Það fórust tíu
bátar hér fyrir utan í mannskaðaveðri og 89 menn rak að
landi á tveimur dögum. Þeim var komið fyrir í fjöldagröf í
garðinum en staðsetning hennar er ókunn. Við komumst
líklega ekki að henni nema grafa upp allan garðinn.“
Framkvæmdir standa yfir í kirkjunni og felast m.a. í
endurnýjun gólfefna. Því þurfti að fjarlægja gólfið og
fundust beinin þegar verið var að færa altaristöfluna til,
innst í kirkjuhúsinu. Beinin, sem eru allmörg, lágu í lausri
mold, og nánast á yfirborðinu. Bæði fundust bein barna og
fullorðinna manna, m.a. afar heillegt kjálkabein úr ungu
barni. Telja má víst að frágangur þeirra sé til kominn
vegna stækkunar kirkjunar árið 1895. Þá hafi verið grafið
fyrir undirstoðum og greinilega komið niður á grafir. „Svo
virðist sem tínd hafi verið saman stærri bein, s.s. lærleggir
og hauskúpur, en minni beinin orðið útundan og dreifst
hérna undir gólfinu,“ segir Agnes og bætir við að einnig
móti á sama svæði fyrir tveimur gröfum en ákveðið var að
láta þær eiga sig.
Beinin verða rannsökuð frekar á næstunni og segist
Agnes að svo komnu máli ekki geta sagt til um aldur
þeirra og alls óvíst hvort það komi yfirleitt í ljós. Út-
skálakirkja var byggð í kringum árið 1860 en önnur kirkja
stóð þar áður.
Mannabein undir gólfinu
Morgunblaðið/Ómar
Kjálkabein Agnes heldur á kjálkabeini úr ungu barni
sem fannst undir gólfi Útskálakirkju í Garði.
Mannabein fundust undir gólfi Útskálakirkju
VEFVARP mbl.is
Ólafsvík | Þegar kólguþokan leggst á
Folahnjúkinn stendur gamla ærin
upp. Lömbin hennar þjóta fram fyrir
hana, snúa og ryðjast á spenann. Þau
eru væn og hnippa svo kröftuglega,
að afturfætur ærinnar lyftast á víxl.
Svo er fetuð aldagömul fjárgata
niður Austurkinnina, allt niður á dal.
Fleiri kindur koma í humáttina.
Við ána liggur slóðin um háan bakka.
Laxahjón styggjast í hylnum. Í kjaft-
viki hængsins er lítil veiðifluga, minj-
ar frá sumrinu.
Hópurinn silast áfram og nemur
ekki staðar fyrr en á melnum ofan
við árgljúfrið. Þar leggst gamla ærin
og horfir jórtrandi í vindinn norður
yfir fjörðinn. Það er farið að hvína í
grastoppunum. Úfin ský berast yfir
hafflötinn og hvítt er í báru. Það er
komið haust.
Þegar kólgu-
þokan leggst á
Folahnjúkinn
HALLDÓR Har-
aldsson píanóleik-
ari varð sjötugur
fyrr á árinu og af
því tilefni hefur
gamall nemandi
hans, Þórarinn
Stefánsson á Ak-
ureyri, ákveðið að
ráðast í útgáfu
þriggja geisla-
diska með göml-
um upptökum með leik Halldórs,
honum til heiðurs. Þórarinn, sem er
listrænn stjórnandi og fram-
kvæmdastjóri Tónlistarhússins
Laugarborgar í Eyjafjarðarsveit,
rekur eigið útgáfufyrirtæki, Polar-
fonia Classics, og fékk hugmyndina
að útgáfu diskanna þriggja eftir að
hafa hringt í Halldór til þess að óska
honum til hamingju með afmælið.
Upptökurnar eru fengnar úr safni
Ríkisútvarpsins; á einum diskinum
leikur Halldór sólóverk, á öðrum
kammerverk og á þeim þriðja verða
upptökur þar sem Halldór leikur
konserta á tónleikum með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. | 18
Þrír diskar
með Halldóri
Halldór
Haraldsson
♦♦♦