Morgunblaðið - 13.10.2007, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.10.2007, Qupperneq 4
Orkuveita Reykjavíkur (OR), kt. 551298-3029, Reykjavík Energy In- vest (REI), kt. 500707-1350 og Geysir Green Energy (GGE), kt. 630605-1210, FL Group hf. kt. 601273-0129, Sjávarsýn ehf. kt. 460606-2820 og Atorka ehf., kt. 600390-2289, gera með sér eftirfar- andi: SAMNING um breytingar á eignarhaldi REI og samruna REI við GGE þar sem REI er yfirtökufélag. 1. Á grundvelli innborgaðs hluta- fjár og fyrirliggjandi hlutafjárlof- orða (viðauki 1 og 2) í REI að nafn- verði kr. 5.776.977.579 (söluverð 5.940.140.000 milljarðar kr.), ráðn- ingarsamninga við lykilstarfsmenn og undirritaðs samnings milli OR og REI um aðgang þess síðar- nefnda að þjónustu og þekkingar- verðmætum þess fyrrnefnda o.fl., reiknast verðmæti REI 16 milljarð- ar kr. 2. OR sem eigandi aukins meiri- hluta í REI skuldbindur sig til að auka hlutafé REI með sölu á nýjum hlutum á genginu 2,77 þannig: 3. Í framhaldinu er stefnt að því að auka hlutafé REI um allt að kr. 6.138.400.000 að nafnverði með sölu nýs hlutafjár og er samkomulag um að enginn framangreindra aðila muni taka þátt í þeirri aukningu heldur verði það selt til nýrra fjár- festa. Skuldbinda aðilar sig til þess að beita áhrifum sínum í REI á hluthafa- og stjórnarfundum á þann veg að þetta markmið náist. 4. Komi til þess að Hafnarfjarð- arbær nýti sölurétt sinn á hlutum í Hitaveitu Suðurnesja hf., skuld- bindur OR sig til að selja REI þá hluti á sama verði. 5. Stjórnir GGE og REI sam- þykkja að sameina félögin miðað við skiptihlutföllin REI 57,59% og GGE 42,41%. Hlutföllin byggjast á verð- mati REI samkvæmt 1. tl. að við- bættu nýju hlutafé samkvæmt 2. tl. annars vegar og verðmæti GGE að fjárhæð 27,5 milljarðar kr. hins veg- ar. 6. Samningur þessi byggir á sam- þykktum REI sem staðfestar voru á hluthafafundi miðvikudaginn 3. október 2007 (viðauki 3). 7. Aðilar munu leggja til að á hluthafafundi í Hitaveitu Suður- nesja hf. verði lögð fram tillaga um að starfsemi þess félags verði skipt upp í veitustarfsemi og smásölu raf- magns annars vegar og rekstur orkuvera og heildsölu rafmagns hins vegar, þar sem Reykjanesbær fari með meirihluta í fyrrnefnda hlutanum. Það félag skal halda nafninu Hitaveita Suðurnesja hf., en orkuframleiðsluhlutinn fá nýtt nafn. 8. Skjalagerð vegna einstakra at- riða í samningi þessum, svo og frá- gangi á skilmálum varðandi inn- borgun hlutafjár skal lokið eigi síðar en 31. október 2007. 9. Aðilar samnings þessa eru stærstu hluthafar REI annars veg- ar og GGE hins vegar og skuld- binda sig gagnvart hver öðrum til að vinna að framangreinum breyt- ingum innan þess ramma sem sam- þykktir félaganna og lög leyfa. 10. Aðilar skulu sameiginlega vinna að nauðsynlegum tilkynning- um til samkeppnisyfirvalda. Samn- ingur þessi er gerður með þeim fyr- irvara að samkeppnisyfirvöld setji samrunanum ekki þau skilyrði að aðilar samnings þessa geti ekki við unað. 11. Um samning þennan gilda ís- lensk lög og skal Héraðsdómur Reykjavíkur leysa úr öllum ágrein- ingi sem upp kann að koma.                !        " "#$ "%% &&& % &&& &&& &&& $# "#" '($ ) "#$ "%% *%" + &&& &&& &&& *% ('" )'' %+&       * $&' '$* ()% ("% &"% &'' %# *%$ *)" ( %(* &"$ "+" % )&+ (&+ $'$ # #*+ +)# '%"  ,-.!!, /0. . ,    , ,.% *(" %#* +#"1  , 2- !. 3 4,.    Morgunblaðið birtir tillögur sem lagðar voru fyrir eigendafund og stjórnarfund Orkuveitu Reykjavíkur 3. október, samninginn um breyt- ingar á eignarhaldi Reykjavik Energy Invest og samruna REI við Geysir Green Energy GI og 5. kafla úr þjónustusamningi OR og REI Samningur um samruna REI og GGE 4 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR REYKJAVÍK Energy Invest hefur forgangs- rétt að öllum erlendum verkefnum sem kunna að falla í skaut Orkuveitu Reykjavíkur á næstu 20 árum, samkvæmt þjónustusamningi milli fyrirtækjanna tveggja. Samkvæmt sama samningi hefur REI forgangsrétt í 20 ár að starfskröftum starfsmanna Orkuveitunnar og OR yrði væntanlega að láta REI vita ef eitt- hvert annað fyrirtæki kynni að falast eftir sér- fræðiaðstoð hjá borgarfyrirtækinu. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Hjörleif B. Kvaran, forstjóra Orkuveit- unnar í gær. (Umræddur kafli samningsins er birtur í heild hér ofar á síðunni). Eigendur og stjórn samþykktu Að sögn Hjörleifs er þjónustusamningurinn grundvöllurinn að því 10 milljarða verðmati sem lagt var á svokallaðar óefnislegar eignir sem Orkuveitan lagði inn við sameiningu REI og Geysis Green Energy. Ef miðað væri við að verðmætið dreifðist á allan samningstímann mætti segja að greiðslurnar næmu 500 millj- ónum á ári. Upphæðin væri staðgreidd og sum- um þætti sem staðið hefði verið vel að verki. Alls lagði Orkuveitan til 23 milljarða inn í sameinað félag REI og Geysis Green Energy. Að sögn Hjörleifs var þjónustusamning- urinn borinn undir stjórn og eigendur Orku- veitunnar á eigendafundi á miðvikudaginn í lið- inni viku og þvínæst undirritaður af honum og Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra REI. Á þessum sama fundi sem hinn umdeildi samn- ingur um samruna REI og GGE var sam- þykktur. Þjónustusamningurinn felur í sér að ef leitað er til Orkuveitunnar um verkefni erlendis, er þeim verkefnum beint til REI sem getur tekið þeim eða hafnað. Samningurinn mælir einnig fyrir um að REI hafi aðgang og forgangsrétt að sérfræðingum Orkuveitunnar til að nýta við verkefni REI erlendis. „Þeir hafa forgangsrétt að starfsmönnum okkar, í þessu verkefni,“ sagði Hjörleifur. Aðspurður hvað yrði gert ef annað fyrirtæki óskaði eftir sérfræðiaðstoð Orkuveitan sagði hann að OR yrði að láta REI vita af því. „Að sjálfsögðu fáum við fullt endur- gjald fyrir, leigjum [starfsmennina] á útseld- um taxta með álagi og höfum vonandi af því góðar tekjur,“ sagði Hjörleifur. Þá fæli samningurinn í sér að REI má nota Reykjavík Energy en það nafn hefur Orkuveit- an notað á erlendum vettvangi. Samningurinn tekur einungis til erlendra verkefna. Ekki getið í tilkynningu Í tilkynningu sem Orkuveitan sendi frá sér um samruna REI og GGE þann 3. október sl. kemur ekkert fram um að gerður hafi verið þjónustusamningur til 20 ára og það var Rík- isútvarpið sem fyrst fjölmiðla greindi frá hon- um í gær. Aðspurður hvers vegna samning- urinn hefði ekki komist upp á yfirborðið fyrr, sagðist Hjörleifur ekki vita það. „Þetta hefur kannski bara ekki komist inn í umræðuna, í öllu því sem á undan er gengið,“ sagði hann. Þeir sem hefðu verið á eigenda- og stjórn- arfundi hefðu vitað af honum. Á þeim tíma hefði samningurinn reyndar aðeins verið til á ensku en hann væri viss um að helstu efn- isþættir hans hefðu komist til skila. Í samningnum eru hefðbundin uppsagnar- og riftunarákvæði, s.s. vegna vanefnda. Að- spurður sagði Hjörleifur að yrði eigendafund- urinn í síðustu viku úrskurðaður ólögmætur myndi hið sama gilda um þjónustusamninginn og samrunasamning REI og GGE, ákvarðanir teknar á ólögmætum fundi væru væntanlega ólögmætar. Hjörleifur sagði að ýmsir aðilar kæmu til að kynna sér Orkuveituna. Þegar þjóðhöfðingjar erlendra þjóða kæmu hingað í heimsókn væri gjarnan farið með þá í skoðunarferð um virkj- anir Orkuveitunnar og þeir heilluðust gjarnan af þeim. „Þá getur eitthvað komið í framhald- inu.“  Við samruna REI og GGE var samið um að REI fengi forgangsrétt að öllum erlendum verkefnum sem kunna að berast OR  Að auki hefur REI forgangsrétt að starfskröftum sérfræðinga OR 20 ára forgangsréttur að OR Morgunblaðið/RAX Hellisheiðarvirkjun Lagnirnar liggja ofan af heiðinni að stöðvarhúsinu við Kolviðarhól. Þjónustusamningur var gerður milli Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest hf. 5. kafli samningsins er svohljóð- andi: „5. Skyldur OR 5.1. OR skuldbindur sig til að upplýsa REI og vísa til REI öllum ábendingum eða fyrirspurnum varðandi möguleika á hagnýtingu jarðhita til orkuvinnslu á Svæðinu. REI skal hafa forgangsrétt (e. right of first refusal) til að ganga til samninga við þriðja aðila á grundvelli slíkra ábendinga eða fyrirspurna í þeim tilgangi að láta í té sérfræði þjónustu á vettvangi jarðhita til orkuvinnslu. Ef slíkur samningur við þriðja aðila hefur ekki verið gerður innan 60 daga frá því REI var upplýst um ábend- ingu eða fyrirspurn hefur OR rétt til að ganga til samninga við um- ræddan þriðja aðila eða vísa slíkri fyrirspurn til annars. 5.2. OR skuldbindur sig til að hafa þá sérfræðinga sem hjá fyr- irtækinu starfa tiltæka fyrir REI á grundvelli þeirra ársfjórðungslegu áætlana eða breytinga á þeim sem kveðið er á um í ákvæði 4.2. 5.3. Á meðan samningur þessi er í gildi skuldbindur OR sig til að veita ekki öðrum en REI þjón- ustuna svo sem hún er skilgreind í Viðauka 1. 5.4. OR skal láta REI í té þau markaðssetningargögn sem til eru. 5.5. OR skal tilnefna einhvern af stjórnendum sínum til þess að sitja í stjórn REI sé þess óskað. Þetta ákvæði gengur framar ákvæði 4.4. 5.6. Að því er varðar gögn um þekkingu (e. know-how) o.s.frv. skal OR veita REI beinan aðgang að öllum gögnum sem og upplýs- ingum á tölvutæku formi sem til- tæk eru á hverjum tíma. Allar ör- yggisráðstafanir (jafnt varðandi meðferð upplýsinga og aðrar ör- yggisráðstafanir) sem samþykktar hafa verið og beitt er af OR á hverjum tíma skulu einnig gilda um REI þegar það nýtir rétt sinn samkvæmt þessu ákvæði.“ Þjónustusamningur 1. Lagt er til að Orkuveita Reykjavík- ur (OR) kaupi nýtt hlutafé í Reykja- vík Energy Invest hf. (REI) að fjár- hæð kr. 2.600.000.000 á genginu 1,00 sem staðgreiðist fyrir 1. febrúar 2008. 2. Lagt er til að Orkuveita Reykja- víkur samþykki að hlutir félagsins í Hitaveitu Suðurnesja hf. að bókfærðu verði kr. 8.674.611, verði lagður inn sem hlutafé í Reykjavík Energy In- vest hf. á genginu 2,7 og fái hlutafé í Reykjavík Energy Invest að nafn- verði kr. 3.209.276 sem undanfari samruna Reykjavík Energy Invest hf. og Geysir Green Energy. 3. Lagt er til að Orkuveita Reykja- víkur samþykki fyrirliggjandi samn- ing við Reykjavík Energy Invest hf. um aðgang að tækniþjónustu o.fl. og forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur verði veitt heimild til undirritunar hans f.h. félagsins. 4. Lagt er til að Orkuveita Reykja- víkur samþykki samruna Reykjavík Energy Invest hf. við Geysir Green Energy hf. skv. fyrirliggjandi samn- ingi um breytingar á eignarhaldi REI og samruna REI við GGE, þar sem REI verður yfirtökufélag dags. í dag. Stjórnarformanni og forstjóra heim- ilað að undirrita samninginn og önnur samrunagögn þegar þar að kemur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tillögur fyrir eigendafund og stjórnarfund OR 3. október 2007 „OKKAR meg- inmarkmið sem sveitarfélags er að tryggja til framtíðar að íbú- ar hafi allan for- gang að bæði heitu og köldu vatni og rafmagni á því sem við get- um kallað gegn- sæju verði,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, um sjö- undu grein samningsins um breyt- ingar á eignarhaldi REI og samruna REI við Geysi Green Energy. Árni segir að þetta sé hægt að gera í þeirri samningagerð sem framundan sé, auk þess sem iðn- aðarráðherrann Össur Skarphéð- insson hafi lagt áherslu á mikilvægi þess að samkeppnisrekstur sé að- skilinn frá nauðsynlegri almanna- þjónustu í starfsemi orkuveitna. Árni segir orðalag sjöundu grein- arinnar í samræmi við afstöðu meiri- hluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, en hún hafi komið skýrt fram á bæj- arstjórnarfundi nýverið, nefnilega að það sé vilji manna að dreifikerfin séu í samfélagslegri meirihlutaeigu. Árni segir að vissulega séu fólgnir miklir hagsmunir í seinni þættinum, rekstri orkuvera og heildsölu raf- magns og að Reykjanesbær ætli sér að eiga í þeim hluta einnig. Hann bendir í þessu samhengi á að Reykjanesbær hefur ekki meirihluta í Hitaveitu Suðurnesja. Hlutur hans sé 34%. Hafnarfjörður eigi svo 15%. Skv. gildandi samkomulagi hafi allir aðilar ígildi ráðandi hlutar, þ.e.a.s. ekki sé hægt að breyta samþykktum eða taka meiriháttar ákvarðanir nema allir séu sammála, þ. á m. aðili sem á 15%. Hjá Reykjanesbæ telji menn hægt, á grundvelli þeirra samninga sem fyrir hendi séu, að tryggja hagsmuni sína á þessum grunni. Hitt beri að ítreka að fyrirvari sé í samningnum um samþykki bæj- arráðs Reykjanesbæjar. „Þar hefur málið ekki enn verið tekið fyrir og menn munu gefa sér góðan tíma til að skoða það,“ sagði Árni. Almanna- þjónusta sé tryggð Árni Sigfússon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.