Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 60

Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 60
60 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is TALAÐ er um Frágang, plötu Megasar og Senuþjófanna, sem eina af plötum ársins og að hún sé með því besta sem meistarinn hafi sent frá sér á ferlinum. Ein- valalið skipar enda Senuþjófana, sveit Megasar á plötunni, en Þjófarnir eru fjórir meðlimir úr reggísveitinni Hjálmum og svo Guðmundur Pétursson, gítarleik- ari. Guðmundur Kristinn Jóns- son, eða Kiddi, upptökumaður plötunnar og einn af meðlimum sveitarinnar, rakti upphaf sam- starfsins fyrir blaðamanni í stuttri sögu. „Þetta er nokkuð skondið allt saman. Þannig var að ég var að taka upp plötuna hennar Elízu og Nisse, Hjálmatrommari, var ráðinn til að tromma plötuna. Elízu fannst samt sem það væri ekki að ganga upp, þannig að ég var allt í einu standandi fyrir ut- an Geimsteinshljóðverið að kvöldi til í Keflavík með atvinnu- lausan, sænskan trommara mér við hlið. Þannig að við förum bara í smá labbitúr til að drepa tímann. Um svipað leyti vorum við í Hjálmum að hljóðrita okkar útgáfu af lagi Megasar, „Saga úr sveitinni“, og vorum á kafi í tón- list Megasar sem við vorum að fíla alveg í botn. En ég og Nisse römbum inn á barinn Yellow og þar er Megas – okkur að óvör- um – að spila. Bara einn með kassagítarinn. Nisse hafði aldrei séð hann spila, ég var óður og uppvægur að kynna hann fyrir snilldinni og við dokum því við. Í hléi spyr ég Megas fyrir rælni hvort hann vilji syngja eina línu inn á útgáfuna okkar af laginu hans. Ég hafði aldrei hitt mann- inn áður. Mér til furðu tók hann vel í það og við förum aftur í hljóðverið eftir tónleikana, en það var þá orðið laust. Nótt var skollin á og hann hlustar á út- gáfuna okkar og er þræl- ánægður með þetta, og syngur sinn hluta í einni töku. Svo spáði ég ekkert meira í þetta fyrr en Stefán Ingólfsson, umbinn hans, hefur samband við mig og leggur það fyrir mig hvort við viljum ekki taka þátt í þessari næstu plötu. Og hvort við værum ekki til í að túra hana aðeins um landið líka. Skemmst frá að segja tókum við vel í þá bón – urðum alveg þrælánægðir líkt og meistarinn!“ Rambað á Megas Megas og Senuþjófarnir leika í Laugardalshöll í kvöld. Kiddi „Hjálmur“ segir samstarfið hafa orðið fyrir hreina tilviljun. Morgunblaðið/Sverrir Pamfíll Guðmundur Kristinn Jónsson upptökumaður og „Hjálmur“. ÞRÁTT fyrir að vera aðeins 23 ára fer As- hlee Simpson reglulega til lýtalæknis og lætur sprauta í andlitið á sér til að halda sér unglegri. Söngkonan unga lét laga á sér nefið í apríl 2006 og núna á hún tíma í hverjum mánuði hjá lýtalækninum sínum, Dr. Raj Kanodia, til að fá kollagen sprautað í and- litið á sér samkvæmt In Touch Weekly tímaritinu. „Hún er staðráðin í því að halda sér unglegri eins lengi og mögulegt er. Fyll- ingin losar hana við hverja hrukku og heldur andlitinu ungu og mjúku,“ sagði vinur söngkonunnar við tímaritið. Ashlee sagði nýlega að hún sæi ekkert athugavert við lýtalækningar. „Ég er hamingjusöm manneskja og ánægð með útlitið. Ef einhver velur lýtaaðgerðir er það fyrir hann sjálfan, ekki fyrir neinn annan,“ lét hún hafa eftir sér nýlega. Simpson Sæt, fín og grunsamlega ung? Ein sprauta í mánuði WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINAVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á / ÁLFABAKKA THE BRAVE ONE kl. 3 - 5:30 - 8D - 10:30D B.i.16.ára DIGITAL THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP STARDUST kl. 12:30D - 3D - 5:30D - 8 - 10:30 B.i.10.ára DIGITAL STARDUST kl. 12:30 - 3 - 5:30 LÚXUS VIP NO RESERVATIONS kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ SUPERBAD kl. 8 - 10:30 B.i.12.ára CHUCK AND LARRY kl. 8 B.i.12.ára MR. BROOKS kl. 10.30 B.i.16.ára BRATZ kl. 12:30 - 3 - 5:30 LEYFÐ ASTRÓPÍA kl. 1 - 3 - 5:30 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 12:30 - 3 LEYFÐ SHREK 3 m/ísl. tali kl. 1 LEYFÐ SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB THE KINGDOM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára THE BRAVE ONE kl. 5:40D - 8D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL STARDUST kl. 12:30D - 3D - 5:30D - 8 B.i. 10 ára DIGITAL NO RESERVATIONS kl. 10:30 LEYFÐ ASTRÓPÍA kl. 1 - 3:40 LEYFÐ BRATZ m/ísl. tali kl. 3 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ / KRINGLUNNI ER RÉTTLÆTANLEGT AÐ TAKA LÖGIN Í SÍNAR HENDUR ÞEGAR LÖGREGLAN STENDUR RÁÐÞROTA? FRÁ FRAMLEIÐANDANUM MICHAEL MANN OG LEIKSTJÓRANUM PETER BERG eeee “MARGNÞRUNGI SPENNUMYND MEÐ ÞRUMUENDI„ EMPIRE HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ ÓVIN SEM ER ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ DEYJA? SÝND Í KRINGLUNNI SKEMMTILEGUSTU VINKONUR Í HEIMI ERU MÆTTAR. SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI STÆRSTA MYND ÁRSINS Á ÍSLANDIeeee - JIS, FILM.IS eeee - A.S, MBL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.