Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 30
lifun
30 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
V
ið fluttum hingað árið
1988,“ segir Edda þegar
tekið er á henni hús í
þeim tilgangi að fá að
líta í kringum sig og
bragða á frábærri grænmetisböku
sem á rætur að rekja í uppskriftasafn
móður hennar. „Húsið, sem var byggt
árið 1939, var hriplekt og við þurftum
strax að hefjast handa við að lagfæra
það og höfum eiginlega verið að síð-
an,“ bætir hún við, „og nú síðast var
verið að ljúka við viðbyggingu.“
Kennaraháskólanum. „Ég fór í náms-
leyfi fyrir rúmum tveimur árum,“
segir Edda og hlær þegar hún er
spurð hvort hún sé enni í leyfi.
„Reyndar ekki.“ Í eitt og hálft ár hef-
ur hún verið verkefnastjóri hjá SRR,
Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf
Kennaraháskóla Íslands.
Flest verið endurnýjað
„Hér í húsinu hefur maðurinn
minn, sem er smiður, gert allt með
eigin hendi. Hann vinnur og ég sit og
horfi á! Húsið var forskalað og lekt í
byrjun og við þurftum að taka klæðn-
inguna utan af, setja nýja, skipta um
Morgunblaðið/RAX
Skandínavíst yfirbragð Segja má að svolítið skandinavískur svipur sé yfir heimilinu, bæði eldhúsinu og öðrum vistarverum.
Hann vinnur og ég sit og horfi á
Bjart og rúmt Í nýju viðbyggingunni er stofa sem ætlunin er að hafa fyrir vinnustofu. Á veggnum er hilla
sem húsbóndinn smíðaði, en hann hefur sinnt flestum endurbótum á húsinu.
Húsin í nánd við heimili
Eddu Kjartansdóttur
og Sigurjóns Gunnars-
sonar á Seltjarnarnesi
bera nöfn á borð við
Höfn, Helgafell, Sæfell,
Lambastaðir og
Dvergasteinn. Þeirra
hús heitir Þrúðvangur.
Nöfnin gáfu Fríðu
Björnsdóttur til kynna
að byggðin væri trú-
lega frá fyrri dögum
þegar Seltjarnarnesið
var enn ekki orðið jafn-
þéttbýlt og nú er.
Kirkjuglugginn Út úr nýju stofunni er gengið út á veröndina. Í glugganum er gamli
kirkjuglugginn úr kirkjunni sem Sigurjón vann við að endurnýja.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
0
13
6
Ingvar Helgason, Sævarhöfða 2, sími 525 8000, www.ih.is
MÖGNUÐ STEMMNIN
Við bökum vöfflur, kleinur og flatkökur að íslenskum sið um
helgina, tökum vel á móti þér og kynnum glænýjan bíl sem
gæti svo sannarlega hentað þér.
Áður en lengra er haldið er rétt að
kynnast Eddu svolítið nánar. Hún fór
í bókmenntafræði og síðan textíldeild
KHÍ og varð grunnskólakennari en
það nægði henni ekki svo hún lærði á
tölvur og byrjaði að kenna á þær. Eft-
ir að hafa unnið sem deildarstjóri í
Vesturbæjarskóla fór hún í stjórnun í