Morgunblaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | „Það er félagsskapurinn og stemningin sem fylgir því að hafa ákveðið frelsi til að gera það sem manni dettur í hug sem gerir skátastarfið svo skemmtilegt sem raun ber vitni. Þegar skátar hittast tekur það ekki nema nokkrar mín- útur að hrista hópinn saman vegna þess að grunnurinn að skátastarfinu er sá sami í öllum löndum. En það er þekkt að þegar ólíkir hópar hitt- ast tekur það oft langan tíma fyrir fólk að ná saman,“ sagði Ármann Ingi Sigurðsson, félagsforingi í Skátafélaginu Fossbúum á Selfossi, sem kunnur er fyrir starf sitt með skátunum en hann er einn af mátt- arstólpum skátastarfsins á Selfossi. Félagið hefur starfað í 63 ár en fyrsti skátaforingi Fossbúa var Leifur Eyjólfsson, fyrrverandi skólastjóri Barnaskólans á Selfossi. Hafa áhuga á útisvæði Fossbúar hafa í 13 ár verið með skátaheimili í húsnæði við Hrísholt á Selfossi en það er nú úr sér geng- ið og búið að ganga frá því að félag- ið fær til afnota tvær lausar kennslustofur í einni lengju á lóð Sandvíkurskóla. „Þær eru í góðu standi og þetta kemur sér vel fyrir okkur en svo er verið að finna stað fyrir stofurnar sem getur hentað okkur. Aðalmálið er í okkar huga að fá lóð með góðu útisvæði til að geta unnið verkefni utanhúss svo sem tjöldun og trönubyggingar auk ým- issa annarra verkefna. Okkar mark- mið er að gera útistarfið hjá félag- inu markvissara og betra,“ sagði Ármann og bætti því við að skátar horfðu mjög til aðstöðunnar sem skátar í Kópavogi hafa. „Við erum með krakka í starfinu á aldrinum 9 til 16 ára auk nokk- urra eldri krakka en okkur vantar alltaf meira af eldra fólki. Á síðast- liðnum 15 árum hefur hópurinn ver- ið í kringum 120 í okkar hefð- bundna skátastarfi og mætir á fundi einu sinni í viku ásamt því að fara í reglulegar ferðir. Ef við náum að fá gott útisvæði þá sjáum við fyrir okkur að efla starfið og gera úti- vistina að meiri áhersluþætti. Núna erum við með sérstaka dagskrá fyrir 15 ára krakka sem felst í fyrirlestri um næstu verkefni og síðan er farið í verkefnið sem byggist á stuttum ferðum þar sem krakkarnir leysa ákveðin verkefni utanhúss. Við fórum um síðustu helgi í góða ferð á Hellisheiði þar sem við æfðum rötun eftir áttavita og kortum sem er mjög góð þjálf- un,“ sagði Ármann. Hann sagði að krakkarnir mættu vel í verkefnin en helsta vandamálið væri að fá fleiri foringja inn í starfið en reynt væri að sinna því vel sem væri á dag- skránni hverju sinni. Ávallt viðbúnir „Við tökum á móti öllum og skátastarfið er sannkölluð jafn- ingjafræðsla þar sem við ölum upp foringja. Það eru margir sem finna sig vel í þessu stafi og leggja sig alla fram en auðvitað missum við af fólki þegar það fer í nám. En gamlir skátar eru alltaf tilbúnir að koma og leggja okkur lið. Ég þarf ekki annað en hringja nokkur símtöl, þá eru þeir mættir til að aðstoða okk- ur,“ sagði Ármann Ingi sem hefur verið virkur í skátastarfinu síðan áramótin 1989-1990 en þá var starf- ið endurvakið eftir nokkurra ára lægð. Hann hefur verið fé- lagsforingi síðan 1997 og eins og oft er í æskulýðsstarfi er verið að leita að eldra fólki til að koma inn í starf- ið. „Það er gaman að vera í skáta- starfinu en þátttaka í þessu stafi á Íslandi býður upp á að maður sé í alþjóðlegu starfi. Ég var með í hópi 430 skáta á alheimsmóti skáta í Englandi í sumar. Þar voru 330 skátar, 40 foringjar 16 fararstjórar, auk starfsmanna. Þetta var mjög gefandi og gaman að vera með þessum hópi en það voru bara Finn- ar sem voru fjölmennari en við. Það má vel geta þess að á þessu móti voru fleiri þjóðir en eru á Ólympíu- leikunum,“ sagði Ármann. „Ég er mjög bjartsýnn á skáta- starfið hér í Árborg, við erum á uppleið og það er vaxandi áhugi hjá krökkum og unglingum að vera með. Við erum með marga góða krakka í starfinu sem hafa mikinn áhuga og þegar svo er þá er bjart framundan. Ég er líka viss um að okkur tekst að virkja fleiri eldri skáta með okkur í forystuna. Skáta- starfið eflir einstaklinginn til að leita lausna á verkefnum sem fyrir liggja og gerir hann hæfari til að taka þátt í samfélaginu,“ sagði Ár- mann Ingi Sigurðsson, félagsforingi Skátafélagsins Fossbúa á Selfossi. Eflir einstaklinginn til að leita lausna Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Skátaheimili Ármann Ingi Sigurðsson og nokkrir grunnskólanemendur við stofurnar sem Fossbúar fá til afnota. Ármann Ingi Sig- urðsson hefur verið skátaforingi í 10 ár ÁRBORGARSVÆÐIÐ TIL að bregðast við mikilli aðsókn á Óvita eftir Guðrúnu Helgadóttur hafa forráðamenn Leik- félags Akureyrar ákveðið að lengja sýningar- tímabilið um tæpan mánuð og verður frumsýn- ingu gamanleiksins Flóar á skinni seinkað sem því nemur, til loka janúar. Óvitar, í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar, voru frumsýndir á aðalsviði LA 15. september og hefur verið uppselt á allar sýningar, en þær eru orðnar 25 auk forsýninga. Uppselt var orðið út októbermánuð en bætt hefur verið við nokkrum aukasýningum þar sem enn eru nokkur sæti laus og sýningar í nóvember eru óðum að fyllast, að sögn Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra. Mest sótta sýning LA frá upphafi er Fullkomið brúðkaup sem frumsýnd var árið 2005 en þá sýn- ingu sáu 12.000 gestir á Akureyri auk fjölda gesta sem sáu sýninguna í Reykjavík. Þess má geta að tveir af leikurunum í Óvitum tóku þátt í Full- komnu brúðkaupi; Þráinn Karlsson og Guðjón Davíð Karlsson. Spennandi verður að sjá hvort fleiri sjái Óvita norðan heiða en Brúðkaupið á sín- um tíma, en að gefnu tilefni segir Magnús Geir að ekki standi til að Óvitar verði sýndir í höfuðborg- inni. Föstudaginn 2. desember frumsýnir LA Ökutíma í Rýminu og þegar er uppselt á 12 sýn- ingar. Í haust var áætlað að Fló á skinni yrði frumsýnd í Samkomuhúsinu 29. desember en það verður ekki fyrr en 26. janúar. Flónni frestað vegna Óvitanna Nú þegar er nánast orðið uppselt á allar sýningar á Óvitum út nóvembermánuð LANDSBANKINN leggur eina milljón króna á ári næstu fimm árin í rannsóknarsjóð Háskólans á Akur- eyri (HA). Samningur þar að lútandi var undirritaður í vikunni. Markmið samningsins er að efla og treysta fjarhagslega getu HA til stuðnings við rannsóknarstarfsemi kennara og sérfræðinga við HA. „… að auki er framlag Landsbankans til þess hugsað að treysta ennfrekar grund- völl Landsbankans sem eins af bak- hjörlum HA og þeirrar starfsemi, í sinni víðustu mynd, sem fram fer á hans vegum,“ segir í fréttatilkynn- ingu. Undir samninginn rituðu f.v. Þorsteinn Gunnarsson rektor, Birgir Björn Svavarsson, útibússtjóri Landsbankans á Akureyri, og Sig- rún Stefánsdóttir, formaður sjóðs- stjórnar rannsóknarsjóðs HA. 5 millj. kr í rannsókn- arsjóð HA FEGURÐ haustsins er viðbrugðið, en hún er tímabundin; litadýrðin varir því miður ekki mjög lengi. Umhverfi styttunnar af Jóni Sveinssyni, Nonna, í Inn- bænum var ægifagurt fyrir tæpum hálfum mánuði – eins og sýnt var fram á með mynd hér í blaðinu – en hversdagsgráminn hafði aftur tekið völdin í gær. Skærgulu og rauðu laufblöðin á trénu voru horfin og það eina sem lífg- aði upp á tilveruna voru fáein reyniber sem fuglarnir hafa ekki enn étið. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Haustfölur dagur STARFSMENN og stjórnendur Heilsugæslustöðavinnar á Akureyri (HAK) hlutu í vikunni viðurkenn- ingu fyrir góðan árangur í starfi, sem framkvæmdastjórn Akureyrar- bæjar veitir árlega einhverri af stofnunum bæjarins. „Rekstur HAK hefur verið innan ramma fjárveitinga frá ráðuneytinu undanfarin ár og með því móti hefur verið sýnd ábyrg fjármálastjórn og gott eftirlit með allri starfseminni. Gott aðhald hefur verið á rekstri án þess þó að það hafi bitnað á þjónustu við íbúa. Öll vinna og skil á gögnum vegna fjárhagsáætlunargerðar hefur líka verið til fyrirmyndar. Heilsu- gæslustöðin hefur á landsvísu skarað fram úr sambærilegum stofnunum hvað varðar nýjungar í starfseminni ásamt því að hafa lagt sig fram um að vinna með öðrum deildum bæjarins að verkefnum sem horfa til framfara fyrir bæjarbúa í lýðheilsu,“ segir í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ. Meðal annars er nefnt samstarf heimahjúkrunar og heimaþjónustu, unglingamóttöku, fjölskylduráðgjöf, heilsueflandi heimsóknir, rafrænir lyfseðlar og fleiri verkefni. „Þetta sýnir frumkvæði, framsýni, kjark og samstarfsvilja stjórnenda og starfsmanna sem hefur skilað sér til bæjarbúa með ýmsu móti. Að öllu samanlögðu telur framkvæmda- stjórnin starfsfólk heilsugæslustöðv- arinnar vel að viðurkenningunni komið og er þess fullviss að áfram- hald verður á þessu góða starfi,“ seg- ir í tilkynningunni. Heilsugæslan fær viðurkenningu Í HNOTSKURN »Akureyrarbær hefur und-anfarin 10 ár rekið Heilsu- gæslustöðina samkvæmt samn- ingum við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Til lukku Sigrún Björk Jakobs- dóttir bæjarstjóri afhendir forráða- mönnum HAK viðurkenninguna. HEFUR þú séð hvernig kindahaus- ar og lappir eru sviðin? Hefur þú fylgst með alvöru sláturgerð? Hef- ur þú smakkað heimagerða kæfu, slátur, brauð eða geitamjólk? Starfsdagur verður í Gamla bænum í Laufási í dag, laugardag, milli kl. 14 og 16. Aðgangseyrir fyrir full- orðna er 500 kr. Starfsdagurinn er að þessu sinni hluti sýningarinnar MATUR-INN sem verður um helgina í húsnæði Verkmenntaskól- ans á Akureyri. Starfsdagur í Laufási ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.