Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 27

Morgunblaðið - 13.10.2007, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 27 SUÐURNES Grindavík | „Hér hefur sjaldan ver- ið jafn skelfilega rólegt og að und- anförnu,“ segir Sverrir Vilbergs- son, hafnarstjóri í Grindavík. Hann hefur unnið við höfnina í tæp tuttugu ár og man ekki eftir svona rólegheitum. „Það hefur stundum verið rólegt en núna hafa komið heilu dagarnir þar sem ekkert hefur verið um að vera,“ segir Sverrir. Stóru línubátarnir hafa allir verið fyrir austan land og norðan og landa þar. Smærri línubátarnir hafa einnig verið í burtu en þótt þeir hafi verið að tínast heim einn af öðrum hafa þeir farið í klössun eða landað ann- ars staðar. Niðurskurður þorskkvótans hefur ekki bein áhrif á útgerðina enn sem komið er en Sverrir telur að áhrifin séu óbein. Menn leggi sig enn meira fram við að veiða ýsu og aðrar teg- undir. Hins vegar er engan þorsk að hafa á hefðbundnum miðum Grinda- víkurbáta um þessar mundir, öfugt við það sem verið hefur undanfarin haust. Það kemur Sverri svo sem ekki á óvart, svona hafi þetta alltaf verið á haustin fyrr á árum. Sjaldan ver- ið jafn skelfi- lega rólegt Reykjanesbær | Bæjarráð Reykja-nesbæjar hefur samþykkt að styðja við nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar sem vilja bæta kunnáttu sína, til að sækja nám- skeið fyrir efnilega nemendur á vegum Ad Astra í Háskólanum í Reykjavík. Hver nemandi fær styrk að upphæð fimm þúsund krónur. Ad Astra býður námskeiðið nemendum í 6. til 10 bekk. Öll börn á þessum aldri eiga að hafa fengið erindi frá Ad Astra um verkefnið. Samkvæmt lauslegri at- hugun skólastjóra í Reykjanesbæ má vænta þess að 20 til 30 nem- endur þar í bæ uppfylli þau skil- yrði sem sett eru nemendum til þátttöku, að því er fram kemur á vef Reykjanesbæjar. Bærinn styður bráðger börn Grindavík | Bæjarstjórn Grindavík- ur hefur ekki veitt umsögn um til- lögur Landsnets um nýtt orkuflutn- ingakerfi fyrir Suðurnesin. Málið var á dagskrá bæj- arstjórnar sl. miðvikudag. Bókað var að afgreiðslu málsins væri frestað þar sem frekari gögn og skýringar vantaði. Forstöðumanni tæknideildar var falið að afla frek- ari gagna. Afgreiðslu línu- máls frestað Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | Stjórn Kaupfélags Suðurnesja tilkynnti í gær að félagið myndi fjármagna kaup á sneið- myndatæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Kaupfélagið leggur til sjóð að fjárhæð 30 milljónir kr. í þessum tilgangi. Yfirlæknir Heil- brigðisstofnunarinnar sagði við þetta tækifæri að sjóðurinn myndi duga til að kaupa tækið, halda því við og jafnvel endurnýja til langrar framtíðar. Sneiðmyndatæki hefur aldrei ver- ið keypt til sjúkrahúss Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja og hafa sjúk- lingar því þurft að fara til Reykjavíkur til rannsóknar. Eykur sjálfsímynd „Við fengum vitneskju um að stofnunina vantaði þetta tæki. Mér var tjáð að það myndi auka öryggi í greiningu og einnig draga úr óþæg- indum sjúklinga við flutninga til Reykjavíkur,“ segir Guðjón Stefáns- son kaupfélagsstjóri um tildrög þess að Kaupfélag Suðurnesja ákvað að gefa tækið. Hann segist sjálfur hafa reynt þetta á eigin skinni. „Ég vona að það eigi eftir að nýtast vel,“ segir hann. Gjöfin er sú stærsta sem Heil- brigðisstofnun Suðurnesja hefur borist. Kaupfélagið er með umfangs- mikinn rekstur um allt land. „Þetta eykur sjálfsímynd stofnun- arinnar út á við og eykur möguleika okkar á því að bæta þjónustuna og fækka ferðum veiks fólks,“ segir Konráð Lúðvíksson yfirlæknir. Hann segir að tækið auki möguleika starfsmanna stofnunarinnar á að greina hversu alvarlegt ástand sjúk- linga sé. Ákveðið hefur verið að kaupa svo- nefnt fjögurra sneiða tæki sem Kon- ráð segir að geti sinnt um 90% af þörf stofnunarinnar og segir hann að nú verði gengið í það að kanna mark- aðinn. Konráð og Drífa Sigfúsdóttir, sem í gær var að vinna sinn síðasta vinnu- dag sem framkvæmdastjóri Heil- brigðisstofnunarinnar í afleysingum, þökkuðu Kaupfélaginu fyrir höfðing- lega gjöf. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Tilkynning Guðjón Stefánsson segir frá gjöf Kaupfélags Suðurnesja. Kon- ráð Lúðvíksson læknir og Drífa Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri taka við. Kaupfélagið gefur sjúkra- húsinu sneiðmyndatæki Hvammstangi | Almennur fundur stofnfjáreigenda í Sparisjóði Húnaþings og Stranda, SpHún, hefur samþykkt að auka stofnfé um 1,3 milljarða króna. Aukningin er til undirbúnings sameiningu við Sparisjóðinn í Keflavík og Spari- sjóð Vestfirðinga og var samruna- áætlun kynnt á fundinum. Stofnfé SpHún er nú um 19,4 milljónir kr. en verður aukið um 1,3 milljarða kr. Er það gert í þeim tilgangi að samræma hlutfall milli eiginfjár sjóðsins og stofn- fjár, til jafns við sjóðina sem á að sameinast. Stofnfjáreigendur eiga forkaupsrétt að nýjum hlutum. Var ákvörðunin samþykkt sam- hljóða en á fundinum voru mættir fulltrúar eigenda 76% stofnfjár. Stofnfjáreigendur Sparisjóðs Húnaþings og Stranda verða með um 15% eignarhlut í sameinuðum sparisjóði og eigendur Sparisjóðs Vestfirðinga með rúmlega 16% hlut. Sameinaður sjóður mun heita Sparisjóðurinn í Keflavík og hefur lögheimili í Keflavík. Starfsemi sjóðsins á yfirteknum svæðum mun hinsvegar vísa til staðarins, til dæmis Sparisjóðurinn á Hvammstanga. Stofnfé sameinaðs sparisjóðs verður rúmlega 8,6 milljarðar kr. og eigið fé um 25,9 milljarðar. Samþykkt að auka stofnfé um 1,3 milljarða LANDIÐ Biskupstungur | Ný brú á Brúará við Spóastaði verður tekin í notkun í næsta mánuði. Framkvæmdir hafa tafist nokkuð vegna vatnavaxta í ánni. Brúin við Spóastaði er tvíbreið. Mikil umferð er um Biskupstungna- braut, ekki síst á mesta ferða- mannatímanum á sumrin. Áætlað er að verkið kosti um 100 milljónir kr. Verktaki við smíði nýju brúar- innar er verktakafyrirtækið Mikael ehf. á Höfn í Hornafirði. Smíðinni átti að vera lokið í byrjun þessa mánaðar en hefur dregist af ýmsum ástæðum. Sigurður K. Jóhannsson, umdæmisstjóri framkvæmda hjá Vegagerðinni á Selfossi, segir að vatnavextir hafi meðal annars tafið framkvæmdir. Nú sé útlit fyrir að smíði brúarinnar og lagningu vegar að henni ljúki í næsta mánuði. Hins vegar sé ekki víst að hægt verði að leggja bundið slitlag á veginn fyrr en í vor, það fari eftir veðri. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Tvíbreið Smíði brúar á Biskupstungnabraut við Spóastaði miðar vel þessa dagana og mynd fer að komast á mannvirkið. Ný brú á Brúará Flúðir | Helgi Daníelsson hefur fært Minjasafninu í Gröf í Hruna- mannahreppi að gjöf ljósmyndir af bæjum í uppsveitum Árnessýslu. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri segir til athugunar að koma upp ljósmyndasafni af þessu tilefni. Í safninu sem Helgi færði Hruna- mannahreppi eru líklega um eitt þúsund ljósmyndir sem varðveittar verða í Minjasafni Emils Ásgeirs- sonar í Gröf. Myndirnar af bæj- unum tók Helgi fyrir bækurnar Hrunamenn sem út komu fyrir nokkrum árum. Hann tók einnig myndir af bæjum í fleiri hreppum uppsveita Árnessýslu og eru þær í safninu. Þegar Helgi Daníelsson afhenti gjöfina lét hann þá ósk í ljósi að myndirnar gætu orðið vísir að ljós- myndasafni. Ísólfur Gylfi Pálmason segir að verið sé að athuga mögu- leikana á því og taldi ekki ólíklegt að hægt yrði að gera eitthvað í þá veruna. Færði Minjasafninu þúsund ljósmyndir Ljósmynd/Guðmundur Karl Afhending Ísólfur Gylfi Pálmason, Guðjón Emilsson og Sigurður Ingi Jó- hannsson oddviti tóku við gjöfinni úr hendi Helga Daníelssonar. Læs börn með léttum leik Stafabangsar 72 Stafabangsar, bæði stórir og litlir bókstafir w w w .s te in n. is - s te in n@ st ei nn .is Sí m i 8 96 6 8 24 Bangsabíll Í bangsabílnum raða stafabangsarnir sér upp og mynda orð Stafastrimlar 10 Stafastrimlar í ginið á Fúfú Stafrófið 108 Bókstafir á spjöldum til að klippa út Allt stafrófið þrisvar sinnum Stafahús 2 Stafahús. Bókstafirnir fara með lyftunni, hittast og mynda orð. Má nota sem spil Leikföng fyrir barnið – Handbók fyrir pabba og mömmu – afa og ömmu Lestrardrekinn Fúfú spýr bókstöfum og orðum út úr gininu og börnin lesa Allt í einum pakka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.