Morgunblaðið - 13.10.2007, Qupperneq 47
Daníelsdóttir. Nytjamarkaður á Eyjarslóð
7 (á Granda) opnaður mánudag kl. 13 og
verður opinn virka daga kl. 13-18. Heim-
ilasamband fyrir konur mánudag kl. 15.
„Góð spurning“, námskeið um Hjálpræð-
isherinn, þriðjudag kl. 19.
HÓLADÓMKIRKJA | Prestsvígsla verður á
morgun, sunnudag, kl. 14. Jón Aðalsteinn
Baldvinsson, vígslubiskup Hólastiftis, víg-
ir Hildi Ingu Rúnarsdóttur til afleys-
ingaþjónustu í Fáskrúðsfjarðarprestakalli.
Félagar úr kór Hóladómkirkju leiða söng
undir stjórn Jóhanns Bjarnasonar org-
anista.
HVÍTASUNNUKIRKJAN FÍLADELFÍA: |
English service at 12.30 pm. Alm. sam-
koma kl. 16.30, ræðum. Jón Þ. Eyjólfs-
son, Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng.
Barnakirkja fyrir 1-13 ára. Bein úts. á Lind-
inni og www.gospel.is. Samkoma á
Omega í Fíladelfíu kl. 20. filadelfia@go-
spel.is.
ÍSLENSKA KIRKJAN Í SVÍÞJÓÐ: | Guðs-
þjónusta í finnsku kirkjunni í Gamla Stan
14. okt. kl. 14.30. Kór Árbæjarkirkju syng-
ur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár. ÍS-
ÍS-kórinn syngur, Brynja Guðmundsdóttir
leikur á píanó, Krisztina Kalló á orgel og
Einar Sveinbjörnsson á fiðlu. Kirkjukaffi.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Barnastarf
kl. 11 og fræðsla á sama tíma fyrir full-
orðna. Böðvar Björgvinsson kennir. Sam-
koma kl. 20 með lofgjörð og fyrirbænum.
Edda M. Swan predikar. Myndbrot sýnt frá
ráðstefnu Bills Johnsons í Bergen. Einnig
heilög kvöldmáltíð. Samkoma á Eyjólfs-
stöðum á Héraði kl. 20.
KEFLAVÍKURKIRKJA: | Guðsþjónusta kl.
11 á morgun, sunnudag. Kvenfélagskonur
koma í heimsókn og velja sálma, undirbúa
predikun með presti, taka á móti kirkju-
gestum og lesa texta. Kór Keflavíkurkirkju
syngur undir stjórn Hákonar Leifssonar
organista, prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
KFUM og KFUK: | Bænavaka með Taizé
verður í KFUM og KFUK, Holtav. 28, kl. 20.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 13, um-
sjón hafa María Rut Baldursdóttir og Lilja
Dögg Bjarnadóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta fellur
niður vegna lagfæringar á hitakerfi. Barna-
starf kl. 12.30, verður að þessu sinni í
safnaðarheimilinu Borgum, umsjón hafa
Sigríður, Þorkell Helgi og Örn Ýmir. Kyrrð-
ar- og bænastund þriðjudag kl. 12.10.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Hring-
braut kl. 10.30, sr. Kjartan Örn Sig-
urbjörnsson, organisti Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Kammerkór Langholtskirkju
syngur, prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson,
organisti Jón Stefánsson, messuhópur
annast lestra. Messunni er útvarpað.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara
börnin með Rut og Steinunni í safn-
aðarheimilið.
LAUGARNESKIRKJA: | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11, sunnudagaskólaleiðtog-
arnir leiða stundina. Guðsþjónusta í sal
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu kl.
13. Kvöldmessa kl. 20. Halldór Gylfason
leikari segir ögursögu og frumfl. eigið lag
og ljóð. Kór og starfsfólk kirkjunnar þjóna.
LÁGAFELLSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl.
11. Kvenfélagskonur lesa ritningartexta,
félagar úr kór Lágafellskirkju og Vorboð-
arnir, kór eldri borgara syngja, organisti
Guðmundur Ómar Óskarsson, meðhjálp-
ari Arndís Linn, prestur sr. Þórhildur Ólafs.
LINDASÓKN í Kópavogi: | Messa og
sunnudagaskóli í Salaskóla kl. 11. Lof-
sveit Lindakirkju leiðir safnaðarsönginn.
Prestur: Guðmundur Karl Brynjarsson.
NESKIRKJA: | Messa og barnastarf kl. 11.
Félagar úr Vox academica leiða safn-
aðarsöng, organisti Elías Davíðsson, sr.
Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en
fara síðan í safnaðarheimilið. Leikir, sögur
og söngur. Kaffi og spjall á Torginu.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): |
Sunnudagaskóli kl. 11, umsjón hafa
Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, Dagmar
Kunákova og Jenný Þórkatla Magn-
úsdóttir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: | Kirkjudagurinn
verður haldinn hátíðlegur í dag kl. 14 og
árleg kaffisala kvenfélagsins verður að
lokinni messu. Safnaðarpresturinn verður
með töfrabrögð og/eða sjónhverfingar fyr-
ir börn á öllum aldri þar sem þetta er fjöl-
skyldumessa.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Hlíðardalsskóla Ölfusi. „Hvern segja
menn mannssoninn vera?“ Ræðumaður:
Hermann Bjarnasson. Lofgjörð og fyr-
irbæn. Barnastarf. Ath. breyttan stað og
samkomutíma.
SELFOSSKIRKJA: | Messa kl. 11.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra. Ólafía Sverrisdóttir og
Markús Sigurðsson lesa ritning-
arlestra. Barnasamkoma kl. 11.15.
Tíðagjörð í kirkjunni þriðjudaga til föstu-
daga kl. 10. Kaffisopi í safnaðarheim-
ilinu á eftir.
SELJAKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl.
11, söngur, saga, ný mynd. Almenn
guðsþjónusta kl. 14, sr. Ólafur Jóhann
Borgþórsson prédikar. Kirkjukórinn leið-
ir sönginn, organisti Jón Bjarnason.
SELTJARNARNESKIRKJA: | Messa kl.
11, Kammerkór kirkjunnar leiðir tónlist-
arflutning undir stjórn Friðriks Vignis
Stefánssonar organista. Sunnudaga-
skólinn er á sama tíma. Prestur er Sig-
urður Grétar Helgason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta á
morgun, sunnudag, kl. 14, sr. Birgir
Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar,
organisti er Ester Ólafsdóttir. Ester,
ásamt bandarískum háskólanemum á
Sólheimum, sér um tónlistaratriði. Með-
hjálparar eru Erla Thomsen og Eyþór Jó-
hannsson.
VEGURINN kirkja fyrir þig | Smiðjuvegi 5.
Samkoma kl. 11. Kennsla fyrir alla aldurs-
hópa, Hafsteinn Einarsson kennir. Máltíð
að samkomu lokinni. Samkoma kl. 19,
Jón G. Sigurjónsson prédikar. Lofgjörð, fyr-
irbænir og samfélag í kaffisal á eftir.
VÍDALÍNSKIRKJA: | Messa kl. 11, sr. Frið-
rik J. Hjartar þjónar, fermingarbörn lesa
ritningarlestra. Barn borið til skírnar, fé-
lagar úr Kór Vídalínskirkju leiða safn-
aðarsönginn, organisti Bjartur Logi Guðna-
son. Sunnudagaskólinn er á sama tíma.
Eftir messu er boðið upp á molasopa í
safnaðarheimilinu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Sunnu-
dagaskóli kl. 11, stund fyrir börn á öllum
aldri. Messa kl. 13, kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í umsj. Hönnu Vilhjálmsdóttur,
Ástríðar H. Sigurðardóttur, Gunnhildar H.
Baldursdóttur og María R. Baldursdóttur.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 47
Kveðjumessa
í Grafarvogskirkju
Kveðjumessa séra Önnu Sigríðar
Pálsdóttur verður á morgun, 14.
október, kl. 14, ath. breyttan messu-
tíma. Allir kórar kirkjunnar syngja
og prestar safnaðarins séra Vigfús
Þór Árnason, séra Bjarni Þór
Bjarnason, séra Lena Rós Matthías-
dóttir þjóna fyrir altari og séra
Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar.
Organistar: Hörður Bragason og
Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Kontra-
bassi Birgir Bragason, trommur
Gunnar Einar Steingrímsson.
Stjórnendur barnakóra: Gróa
Hreinsdóttir og Svava Kristín Ing-
ólfsdóttir Kaffiveitingar eftir
messu.
Kirkjudagur
Bessastaðasóknar
Árlegur kirkjudagur Bessa-
staðasóknar verður haldinn hátíð-
legur á morgun, sunnudag. Dagskrá
hefst með sunnudagaskóla í sal
Álftanesskóla kl. 11, í umsjón Bolla
Más, Matthildar, Snædísar og Sunnu
Dóru. Hátíðarmessa verður í Bessa-
staðakirkju kl. 14. Ólafur G. Ein-
arsson, fyrrverandi alþingismaður
og ráðherra, prédikar en sr. Friðrik
J. Hjartar og sr. Hans Guðberg Al-
freðsson annast altarisþjónustuna.
Gospelkór Jóns Vídalíns syngur
undir stjórn Þóru Gísladóttur og
Álftaneskórinn syngur. Söngstjóri
og organisti er Bjartur Logi Guðna-
son. Þeim fermingarbörnum sem
fermdust í Bessastaðakirkju fyrir 50
árum er jafnan boðið sérstaklega til
kirkjudagsmessunnar en í ár er það
aðeins einn einstaklingur, Úlfar Ár-
mannsson, en hann hefur búið alla
sína tíð á Álftanesi.
Að lokinni messu er kirkjukaffi
Kvenfélags Álftaness í Hátíðarsal
Íþróttamiðstöðvarinnar. Þar munu
yngri Skólakór Álftaness syngja
undir stjórn Lindu Margrétar Sig-
fúsdóttur og Álftaneskórinn undir
stjórn Bjarts Loga Guðnasonar. All-
ur ágóði kaffisölunnar rennur til
líknarmála á Álftanesi.
MIRALE
Síðumúla 33
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið
mán.–föstud. 11–18
laugardag 11–16
www.mirale.is
Fegraðu
þitt heimili!
40% afsláttur
af þessum
vinsælu kertastjökum
aðeins í dag
áður kr. 3.900,-
nú kr. 2.340,-
takmarkað magn