Morgunblaðið - 31.12.2007, Side 10

Morgunblaðið - 31.12.2007, Side 10
10 MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þ að vita allir sem stunda íþróttir og þá sérstaklega flokkaíþróttir, að menn koma og fara – geta ekki verið öruggir um sinn samastað. Einn daginn eru leikmenn hetjur, en annan daginn skúrkar – ekkert þar á milli. Peningarnir eru orðnir miklir til dæmis í knattspyrnunni, að leikmenn eru með um 17 millj. ísl. kr. í vikulaun. Þegar peningarnir eru orðnir svona miklir er ekki nema eðlilegt að eigendur félaga, stuðningsmenn og allur al- menningur geri meiri kröfur til íþróttamanna – að þeir sýni að þeir séu að vinna fyrir laun- unum sínum. Sýni og sanni að þeir séu skemmtikraftar, sem almenningur komi til að sjá leika listir sínar. Þegar peningarnir eru orðnir svona miklir, þá eru kröfurnar að sjálf- sögðu miklu meiri. Það eru gerðar miklar kröfur hjá almenningi til landsliðs Íslands í knattspyrnu. Menn láta ekki bjóða sér upp á allt. Þess vegna mættu ekki nema um sex þús. áhorfendur á Evrópu- leik gegn Lettlandi á Laugardalsvellinum, þrátt fyrir að sigur hafi unnist á Norður-Írum í Laugardal mánuði áður. Áhugalaust landslið Ísland tapaði fyrir Lettum og fékk síðan skell í Liechtenstein fjórum dögum síðar, 3:0. Það voru ein verstu úrslit Íslands frá upphafi. Ótrúlegt var að sjá hvað íslenska landsliðið var agalaust í leiknum gegn Liechtenstein – leikmenn voru áhugalausir og það kom í ljós að eitthvað mikið var að. Að vísu hafði það komið fram áður, að öll umgjörð í kringum liðið var ekki eðlileg. Það var eitthvað meira en lítið að og ekki voru það skemmtilegar fréttir þegar ljóst var að nokkrir leikmenn liðsins hafi brotið útivistareglur og verið á ferðinni á börum í miðbæ Reykjavíkur nóttina eftir tapið fyrir Lettlandi, nóttina áður en landsliðið hélt síðan til Liechtenstein snemma dags. Þannig uppákomur eru ekki boðlegar – ekki almenningi og heldur ekki félögum leikmann- anna, sem voru í fastasvefni þegar aðrir skeið- uðu um á dansskónum í miðbæ Reykjavíkur. Það var ekki nema eðlilegt að sundrung hafi verið komin í landsliðshópinn. Eyjólfur Sverrisson, fyrrverandi landsliðs- þjálfari Íslands, sem er mjög agaður maður – enda skólaður í Þýskalandi – réði greinilega ekki við hugsunarhátt manna sem voru í lands- liðinu. Það varð honum að falli. Það var ljóst að tími Eyjólfs var ekki kominn þegar hann var ráðinn sem landsliðsþjálfari 2005. Hann lagði landsliðsskóna á hilluna fjórum árum áður og lék landsleiki með níu leikmönnum sem hann valdi í sitt fyrsta lið. Það kunni ekki góðri lukku að stýra. Það er alltaf erfitt fyrir þjálfara sem eru svo nátengdir leikmönnum sínum, að ná upp þeim aga sem þarf. Það hefur oft komið fram í knattspyrnusögunni – á fleiri stöðum en á Íslandi. Þegar formaður KSÍ var spurður um næt- urbrölt landsliðsmanna – hvort að það væri ekki óeðlilegt að leikmenn væru úti á næturlíf- inu á milli landsleikja. Hann reyndi að verja uppákomuna með því að segja að landsliðs- mennirnir væru ungir og kraftmiklir. Lands- liðsþjálfari Íslands og stjórnarmenn KSÍ gátu ekki höndlað óregluna. Það var mikill skaði fyrir knattspyrnuna á Íslandi. Þegar svona uppákoma átti sér stað hjá sænska landsliðinu fyrir nokkrum árum, voru þeir leikmenn sem brutu útivistarreglur lands- liðsins settir í leikbann og var einn þeirra ekki óþekktari leikmaður en Zlatan Ibrahimovic, einn fræknasti knattspyrnumaður heims. Þjálfarar í aðalhlutverki Afar einkennileg uppákoma átti sér stað í nóvember – eftir kvennaleik Fram og Stjörn- unnar í handknattleik, þar sem ungt lið Fram lagði Íslandsmeistara Stjörnunnar að velli. Það muna fáir eftir úrslitum leiksins, en fleiri eftir hvernig þjálfarar liðanna hömuðust á dóm- urum leiksins að leik loknum. Þjálfari Stjörnunnar gekk öllu lengra í ásök- unum sínum og vændi Handknattleiks- samband Íslands og dómaranefnd sambands- ins um spillingu, sem væri að skaða handknattleikinn á Íslandi. Þá sagði hann um dómara leiksins að þeir hefðu hreinlega dæmt Fram-liðinu í hag þar sem þeir væru vinir þjálfara Fram-liðsins og þeir væru á ferðinni á ölstofum í miðbæ Reykjavíkur um hverja helgi. Þjálfari Fram bað dómarana afsökunar á ummælum sínum, en þjálfari Stjörnunnar, sem var skotfastari, var ekki á þeim buxunum að biðja einn eða neinn afsökunar. Mál þjálfaranna var tekið fyrir hjá aganefnd HSÍ, sem úrskurðaði þjálfara Stjörnunnar í bann til 1. febrúar 2008. Þjálfari Stjörnunnar fór langt yfir strikið og órökstuddar dylgjur um dómara og stjórn- endur handknattleikshreyfingarinnar gerðu lítið annað en skaða handknattleikinn á Ís- landi. Það vakti þó nokkra athygli að þjálfari Stjörnunnar myndi vega að hinum þjálf- aranum á þann hátt að skilja mátti að hann væri á fullri ferð úti á lífinu um hverja helgi. Þjálfari Fram er í sambúð með einni af stúlk- unum úr Stjörnunni sem urðu Íslandsmeist- arar á glæsilegan hátt sl. keppnistímabil. Var þjálfari Stjörnunnar að gefa í skyn að einn leik- maður hans væri á næturbrölti með sambýlis- manni sínum og dómurum í miðbæ Reykjavík- ur um hverja helgi? Það er ljóst að ef þjálfari Stjörnunnar biðst afsökunar á framkomu sinni eftir leik Fram og Stjörnunnar, eru það fleiri en dómararnir tveir sem eiga þá að fá senda af- sökun. Framkoma þjálfaranna gegnvart dóm- urunum var fyrir neðan allar hellur og ekki neinum bjóðandi – leikmönnum beggja liða, dómurum, áhorfendum, handknattleikshreyf- ingunni og handknattleiksunnendum. Stjórn HSÍ sendi frá sér yfirlýsingu eftir at- burðinn, sem sagði: „Í kjölfarið á leik Fram og Stjörnunnar í N1-deild kvenna og þeirra at- burða og umræðu sem hafa átt sér stað hefur stjórn HSÍ bókað á fundi sínum tilmæli til dómaranefndar HSÍ að eftirlit verði komið á í m.fl kvenna hjá Fram og Stjörnunni um óákveðinn tíma.“ Þetta voru eðlileg viðbrögð, því að það verð- ur að hafa þá þátttakendur sem fara ekki eftir settum reglum og háttvísi, undir ströngu eft- irliti þannig að uppákomur eins og sú sem átti sér stað í leik Fram og Stjörnunnar, endurtaki sig ekki. Ég hef áður bent á, að það fari enginn kapp- leikur fram án dómara og það eru félögin sjálf sem eiga að ala upp og leggja til dómara. Mörg félög sem hafa hagað sér hvað verst gagnvart dómurum, hafa aldrei lagt fram dómara til að dæma leiki í efstu deildum. Hættið að nöldra í dómurum Ég vil hér nota tækifærið og endurbirta það sem ég skrifaði áður en keppnin í úrvalsdeild hófst 2006: Það verður einnig að taka hart á óþolandi framkomu áhorfenda, þjálfara og leikmenna í tíma og ótíma – við dómara. Þjálfarar og leik- menn verða að sýna fyrirmynd í þeim málum og ef þeir gera það ekki, á að taka hart á óþol- andi framkomu manna á íþróttaleikjum. Dóm- arar, eins og aðrir þátttakendur leiksins, mæta til leiks til að gera sitt besta. Það gerir leikinn ekki skemmtilegan að horfa upp á fullorðna menn eyða kröftum í að nöldra í dómurum. Þannig framkoma smitar aðeins út frá sér, til áhorfenda. Þjálfarar verða að vera til fyr- irmyndar – ef þeir eru ekki menn til þess, verð- ur að taka hart á þeim. Dómarar verða að taka strax föstum tökum á nöldri. Það er í þeirra höndum að útrýma leiðindaframkomu, sem hefur verið svartur blettur á handknattleik á Íslandi undanfarin ár. Dómarar í aðalhlutverki Önnur óvænt uppákoma átti sér stað eftir UEFA-leik Everton og rússneska liðsins Zenit á Goodison Park. Þá voru það ekki þjálfarar sem kom fram í sviðsljósið, heldur íslenskir dómarar – Kristinn Jakobsson og Gunnar Gylfason, sem var annar aðstoðardómari hans í leiknum. Kristinn dæmdi vítaspyrnu á Zenit í fyrri hálfleik og rak leikmann liðsins af velli í kjölfarið, en ekki var annað að sjá af sjónvarps- myndum en að Kristni hefðu orðið á mistök. Nicolas Lombaerts, varnarmaður Zenit, hand- lék knöttinn ekki. Það sást greinilega á sjón- varpsmyndum. „Við Gunnar vorum báðir sammála um að leikmaðurinn hefði sett höndina fyrir skotið og þannig varið með hendi á marklínunni og því ekki um annað að ræða en að dæma víta spyrnu og vísa leikmanninum út af,“ sagði Kristinn Jakobsson í samtali við Morgunblaðið stuttu eftir leikinn. „Svona ákvörðun er tekin á sekúndubroti en við Gunnar vorum alveg sam- mála um þennan dóm og við stöndum og föllum með því,“ sagði Kristinn. Síðan tók málið óvænta stefnu í viðtali Krist- ins við Fréttablaðið, að vítaspyrnudómurinn hafi verið ákvörðun Gunnars, að hann „þurfti að elta Gunnar, þar sem þeir væri teymi.“ Þarna var Kristinn greinilega búinn að koma sökinni á Gunnar. Gunnar var ekki sáttur við þessi ummæli og sendi í kjölfarið frá sér þessa yfirlýsingu: ,,Samkvæmt reglum UEFA er dómurum óheimilt að tjá sig við fjölmiðla um þá leiki sem þeir dæma á vegum þeirra. Ég tel mig hins vegar knúinn til þess að leiðrétta misskilning sem hefur orðið vegna ummæla Kristins Jak- obssonar í fjölmiðlum eftir leik Everton og Ze- nit Petersburg 5. desember sl. Á 30. mínútu leiksins tók Kristinn þá ákvörðun að dæma vítaspyrnu á Zenit þegar undirritaður gaf merki um hornspyrnu. Virðingarfyllst Gunnar Gylfason FIFA aðstoðardómari.“ Það er óskiljanlegt að jafnhæfur og reyndur dómari og Kristinn er, hafi látið málið falla í þennan farveg. Var ekki óþarfi að fara að rifja atburðinn upp á þennan hátt, þegar allir sáu að það voru gerð mistök á Goodison Park, eins og eiga sér stað í mörgum leikjum víðs vegar um heim. Menn eru bara stærri ef þeir viðurkenna mistök sín. Markakóngur á HM Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik, skaut öllum bestu handknatt- leiksmönnum heims ref fyrir rass á HM í Þýskalandi, þegar hann var markahæstur með 66 mörk, níu mörkum meira en næsti maður – Tékkinn Filip Jicha. Þegar úrslitaleikur HM var leikinn var hann kallaður fram á gólfið fyr- ir framan 20 þús. áhorfendur í Köln Arena, þar sem hann var hylltur fyrir afrek sitt. „Það var mjög gaman að þessu og ekki síst þar sem ég er fyrsti Íslendingurinn til þess að verða markakóngur á HM,“ sagði Guðjón Val- ur í samtali við Morgunblaðið og bætti síðan við; „Þó að það sé vissulega gaman að verða markahæstur á HM er alveg ljóst að ég væri alveg tilbúinn að skipta á þeirri nafnbót fyrir verðlaunapening með landsliðinu mínu á HM, hann hefði verið mér hjartfólgnari.“ Að mínu mati er þetta mesta afrekið sem ís- lenskur íþróttamaður vann á árinu 2007. Flest- ir félagsmenn Samtaka íþóttafréttamanna eru greinilega á annarri skoðun, því að Guðjón Val- ur hafnaði aðeins í sjötta sæti í kjöri íþrótta- manns ársins með aðeins 159 atkvæði, eða 337 atkvæðum minna en efsti maðurinn á listanum. Það er eitthvað að, þegar afreksmaður eins og Guðjón Valur, íþróttamaður ársins 2006, fær svona fá atkvæði. Guðjón Valur var ekki eini handknattleiks- maðurinn sem var settur út í kuldann á árinu. Það varð Jón Hjaltalín Magnússon, fyrrver- andi formaður HSÍ og kraftaverkamaður í 50 ára sögu HSÍ, einnig að sætta sig við þegar stjórn sambandsins – á óskiljanlegan hátt – ýtti honum til hliðar þegar heiðursformaður sambandsins var útnefndur Vörumerkið farið Einn af eftirminnilegustu endasprettum á árinu, að lokaþáttur West Ham undir stjórn Eggerts Magnússonar, fyrrverandi stjórn- arformanns Lundúnarliðsins. Það var ótrúlegt að sjá hvernig West Ham náði að koma sér út vonlausri stöðu og bjarga sér frá falli með sigri á sjálfum Englandsmeisturunum Manchester United á Old Trafford í síðasta leiknum, 1:0. West Ham vann sjö af síðustu leikjum sínum. „Þetta var stórkostlegt upplifun fyrir mig og stuðningsmenn okkar, að sjá leikmenn okkar ná takmarkinu á Old Trafford. Ég hafði alltaf trú á að við myndum bjarga okkur, þó svo að fyrir aðeins tveimur mánuðum værum við í fallsæti. Já, trúin flytur fjöll! Það kom í ljós hjá okkur – þegar á reyndi. Það er stórkostleg upplifun að sjá þetta fornfræga félag frá Lond- on gulltryggja sæti sitt í úrvalsdeildinni á Old Trafford. Það var tvöfaldur fögnuður á Old Trafford – tvær fylkingar fögnuðu. Leikmenn Manchester United og stuðningsmenn þeirra Englandsmeistaratitlinum og leikmenn West Ham sæti sínu í úrvalsdeildinni. Með okkur kom hingað stór hópur af frábærum stuðnings- mönnum liðsins, en ég hef oft sagt að West Ham á bestu stuðningsmennina á Bretlands- eyjum,“ sagði Eggert Magnússon við Morg- unblaðið að leik loknum og sagði að framtíðin væri björt hjá West Ham. En skjótt skipast verður í lofti í ensku knatt- spyrnunni. Eggert, sem var orðinn vörumerki West Ham – Eggið, eins og hann var kallaður, yfirgaf stjórnvölin á Upton Park í nóvember. Maðurinn, sem Englendingar kunnu svo sann- arlega að meta vegna þess hvað hann lifði sit svo innilega inn í leikinn á áhorfendapöllunum, hvarf af braut. Vörumerkið var farið. Þannig eru íþróttirnar, menn koma og fara – geta ekki verið öruggir um sinn samastað. Menn koma og fara Morgunblaðið/Árni Sæberg Áhorfendur Landsliðið í knattspyrnu veittu áhorfendum stundum ekki mikla skemmtun. Reuters Marki fagnað Guðjón Valur Sigurðsson fagnar marki í frækilegum sigurleik á Frökkum í HM. » Það verður að taka hart áóþolandi framkomu áhorf- enda, þjálfara og leikmenna í tíma og ótíma við dómara. Þjálfarar og leikmenn verða að sýna fyrirmynd og ef þeir gera það ekki, á að taka hart á óþol- andi framkomu manna á íþróttaleikjum. ÍÞRÓTTIR Sigmundur Ó. Steinarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.