Morgunblaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 37
GRÍÐARLEGIR hitar í Grikklandi í sumar ollu því að
þegar eldar kviknuðu – líklega af mannavöldum –
brutust út verstu skógareldar í manna minnum í Evr-
ópu og dreifðust hratt um stór svæði. Tugir manna
týndu lífi í eldunum og mikið ræktarland skemmdist,
akrar og ólífulundir, sem og hús og híbýli. Hundruð
slökkviliðsmanna og hermanna stóðu í ströngu við að
reyna að ná tökum á vandanum. Venjulegir borgarar
reyndu að verja heimili sín með garðslöngum og
vatnsfötum, aðrir reyndu í örvæntingu að stöðva loga-
tungurnar með trjágreinum. Slíkar aðfarir dugðu
skammt og ástandinu var líkt við „stríð“.
Koma tókst í veg fyrir að eldarnir næðu til höf-
uðborgarinnar Aþenu en logatungur náðu þó að
sleikja úthverfi. Aðeins naumlega tókst að koma í veg
fyrir að eldar tortímdu rústum Ólympíu suðvestarlega
í Grikklandi – staðurinn er á heimsminjaskrá yfir
helstu menningarverðmæti jarðarbúa – en þar eru
m.a. um 2.800 ára gamlar rústir upprunalega íþrótta-
leikvangsins og forns Seifs-musteris, einnig Altis þar
sem ólympíueldurinn er kveiktur. Eldarnir komust þó
býsna nálægt þessum menningarverðmætum, eins og
sjá má á myndinni, en þar leika eldtungur í nágrenni
við styttu sigursins sem stendur nærri Ólympíu. AP
Grikkir háðu „stríð“
við skógarelda
ÞRIGGJA ára gömul bresk stúlka,
Madeleine McCann, hvarf af hóteli
sínu á ferðamannastað í Portúgal 3.
maí á þessu ári en hvarf hennar átti
eftir að verða eitt helsta fréttamál
ársins, a.m.k. í Bretlandi.
Foreldrar hennar, Kate og Gerry,
höfðu skilið Madeleine og tvö yngri
systkini hennar eftir sofandi á hót-
elherberginu á meðan þau snæddu
kvöldverð ásamt vinum annars stað-
ar á hótelsvæðinu. McCann-hjónin
nutu mikillar samúðar vegna at-
burðarins og hófst þegar mikil leit
að stúlkunni. Málið tók hins vegar
óvænta stefnu þegar portúgalska
lögreglan ákvað að veita McCann-
hjónunum stöðu grunaðra manna á
haustdögum. Ýmsar kenningar voru
þá uppi um hvað hefði orðið um litlu
Madeleine, en sú lífseigasta að því
er varðaði mögulega aðkomu
McCann-hjónanna var sú, að þau
hjón – sem bæði eru læknar – hefðu
gefið börnum sínum svefnlyf til að
geta borðað sinn kvöldverð áhyggju-
laus. Madeleine hefði hins vegar
óvart verið gefinn of stór skammtur
og dáið, en foreldrarnir hefðu síðan
falið lík hennar.
Kate og Gerry McCann hafa stað-
fastlega neitað öllum slíkum ásök-
unum og berjast áfram fyrir því að
fá Madeleine heim til Bretlands.
Ekkert hefur hins vegar til hennar
spurst síðan þennan örlagaríka dag
í maí.
AP
Hörmulegt
barnshvarf
TONY Blair kvaddi Downing-stræti 10 í júní eftir áratug á stóli for-
sætisráðherra Bretlands. Við embættinu tók Gordon Brown fjár-
málaráðherra. Blair er þó ekki sestur í helgan stein, hann tók að sér að
verða sáttasemjari „kvartettsins“ svokallaða – Evrópusambandsins,
Sameinuðu þjóðanna, Bandaríkjanna og Rússlands – í Palestínu.
AP
Blair kvaddi Downing-stræti
AP
BÚDDAMUNKAR í Búrma stóðu fyrir mótmælum gegn herforingjastjórninni í landinu í ágúst og september en þau voru að mestu brotin á bak aftur
af öryggissveitum sem beittu jafnan byssum, bareflum og táragasi gegn þeim sem þátt tóku í mótmælagöngum. Nokkrir tugir manna eru taldir hafa
fallið í valinn. Talið er að 3.000 manns hafi legið í valnum árið 1988 eftir að öryggissveitir herforingjastjórnarinnar brutu á bak aftur svipuð mótmæli.
Búddamunkar mótmæltu í Búrma
STÓRTENÓRINN Luciano Pavarotti lést 6. september 2007 í Modena á
Ítalíu, á sjötugasta og öðru aldursári. Banameinið var krabbamein í
brisi. Pavarotti var dýrkaður hvarvetna í heimi hér, sennilega dáðasti
óperusöngvari sinnar samtíðar. Ferill hans var samfelld sigurganga,
vegna einstakra hæfileika hans og óvenjumikillar raddfegurðar.
Pavarotti allur
AP