Morgunblaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2007 23 „Árið hófst á viðurkenningu Rann- ís á rannsóknarstefnu Varar – sjávarrannsóknarseturs við Breiða- fjörð, en samstarfsverkefni Varar og Hafrannsóknastofnunar um vöktun á umhverfisþáttum og framvindu svifþörunga í Breiða- firði hlaut styrk úr sjóðnum. Í nærumhverfi Varar bar hins vegar hæst hversu áhugasama og dug- mikla einstaklinga er að finna á Snæfellsnesi sem vilja leggja sitt af mörkum til að rannsóknir á líf- ríki Breiðafjarðar eflist. Fremstir meðal jafningja voru Símon Sturlu- son í Stykkishólmi og Ásgeir Valdimarsson í Grundarfirði, en greiðvikni þeirra og drift er í frá- sögur færandi. Það er ekki á hverjum degi sem útgerðarmaður kaupir bát til að tryggja rannsak- endum aðgengi að báti til sýnatöku þegar þörf krefur. Ásgeir taldi það hins vegar ekki eftir sér. Svo mað- ur haldi sig við Grundarfjörð þá verður ekki hjá því litið að síld- arkoman inn á fjörðinn síðastliðinn vetur og svo aftur nú í haust er ekki það sem við höfum átt að venjast og er hugsanlega eitt margra áþreifanlegra dæma um breytingar á eðlis- og efnafræði sjávar og þar af leiðandi lífríkinu. Auknar rannsóknir og meiri skilningur Á undanförnum mánuðum hafa borist fjölmargar fréttir af rann- sókna- og menntastofnunum sem ýmist eru nýjar af nálinni og munu vinna að sjávarrannsóknum eða eru fastar í sessi og hyggjast nú efla rannsóknir á hafinu. Á sama tíma berast fréttir frá hinu op- inbera um aukið fé til styrktar rannsóknum. Má til dæmis nefna styrki sem veittir voru til rann- sóknastofnana á landsbyggðinni sem mótvægisaðgerð vegna nið- urskurðar þorskveiðiheimilda. Mig langar því að gera því skóna að framundan séu tímar efldra rann- sókna í sjávarlíffræði og haffræði með þátttöku ríkisins, en ekki síð- ur útgerðaraðila og annars at- hafnalífs. Vör hlakkar til þess að taka þátt í þeirri grósku. Aukin umfjöllun í fjölmiðlum um rann- sóknir á náttúruperlum og auðlind- um íslenskra hafsvæða mun jafn- framt auka áhuga okkar og skilning á þessari mikilvægu en viðkæmu auðlind. Alla jafna standa fjallgöngur upp úr dagsins önn, en í ár eru tvær eyjaferðir mér hugleiknar. Í sumar komst ég út í Flatey í fyrsta skipti og í haust bauð sam- starfskona mín í Færeyjum mér í skoðunarferð um Nólsoy, sem er við mynni Þórshafnar. Þó svo að náttúrufar og mannlíf á eyjunum sé um margt frábrugðið þá var einstakt að upplifa náttúrufegurð eyjanna og skoða búpeninginn, en á báðum eyjum má finna sauðfé. Áhrifamest var þó að upplifa kyrrðina og virðinguna fyrir hinu veraldlega þegar manni gefst tæki- færi til að skoða sig um og sötra kaffi í vel við höldnum húsum horf- inna kynslóða. Ekki þótti mér heldur amalegt að sjá samstarfs- konu mína og eiginmann hennar vippa barnavagninum um borð í Sómabátinn í upphafi skoð- unarferðar og þar svaf tveggja ára gutti síðdegislúrinn sinn á meðan við sigldum undir hömrum og inn í hella.“ Erla Björk Ólafsdóttir, Vör – sjávar- rannsóknarsetri við Breiðafjörð Frásagnar- verð drift Morgunblaðið/Frikki HJÓNIN Guðmundur Jón Guð- mundsson og Guðrún Egilsdóttir á Holtsseli í Eyjafjarðarsveit hófu að framleiða ís heima á bænum fyrir liðlega hálfu öðru ári og hefur hann notið mikilla vinsælda. Guðmundur segir í sjálfu sér lítið markvert hafa gerst hjá þeim hjón- um á árinu, en eitt standi þó upp úr: Þau fóru á stóra landbúnaðarsýn- ingu í Danmörku í janúar og fengu hjónin í Grænuhlíð til þess að fara með. Það var einmitt í Grænuhlíð sem aurskriður féllu í desember í fyrra og ollu miklum skemmdum, hluti útihúsa eyðilagðist, hluti bú- stofns drapst og íbúðarhúsið skemmdist þannig að hjónin gátu ekki flutt aftur heim fyrr en í maí. „Mér finnst það standa upp úr hvernig þessi ferð tókst og svo það að þau Óskar og Rósa skuli vera komin heim í Grænuhlíð heilu og höldnu eftir hamfarirnar í fyrra,“ sagði Guðmundur Jón við Morg- unblaðið. Mikil eftirspurn Hvað reksturinn í Holtsseli varð- ar segir Guðmundur Jón það standa upp úr að hjónin opnuðu þar kaffi- stofuna Kerlingu. Fjöldi fólks gerði sér ferð þangað og reksturinn gekk mjög vel. Um ísframleiðsluna, sem þau hófu í mars 2006, segir Guðmundur Jón að hún hafi átt að vera þægilegt „hobbí“ með kúabúskapnum: „við ætluðum að selja ís á tvo eða þrjá veitingastaði og í eina búð. En það ævintýri entist ekki nema í viku.“ Slík var eftirspurnin og þau gætu framleitt mun meira en þau gera í dag. „Við sinnum ísframleiðslunni ekki eins mikið og við gætum miðað við þann markað sem virðist vera fyrir hendi. Það sama virðist að gerast hér á Íslandi og annars staðar að fólk sæki í vöru sem það veit hvar er framleidd; það vill þekkja upprun- ann en síður en áður kaupa vöru sem flutt hefur verið hundruð kíló- metra.“ Hann segir slíkt auðvitað gert hér og landbúnaðarkerfið bjóða upp á það: „Ég veit ekki betur en að nautgripum sé hvergi slátrað á svæðinu frá Selfossi og austur um alla leið til Akureyrar.“ Guðmundur telur þá þróun já- kvæða að bændur fullvinni vöru sjálfir. „Nú er búið að ryðja braut- ina. Við erum búin að sýna fram á að það er ekkert í þessum reglu- gerðum sem stoppar okkur þó menn hafi sagt það; síðasta hálmstráið sem átti að stoppa okkur af var ger- ilsneyðingin á mjólkinni en skv. mjólkurreglugerðinni telst það mjólkurbú þar sem gerilsneyðingin fer fram.“ Þegar hann rýnir inn í framtíðina segist Guðmundur Jón sumt já- kvætt en annað verulega heimsku- legt, sem er að gerast. „Við höfum tvö dæmi með stuttu millibili; stór hluti geitastofnsins var skorinn nið- ur vegna þess að dýralæknir heim- ilaði ekki flutninga yfir í aðra sýslu og bóndi á Suðurlandi fékk ekki að flytja holdakýrnar sínar á milli bæja,“ segir hann. Og nefnir eitt enn. „Í haust voru hænsni hér á næsta bæ elt uppi og úr þeim tekin blóðsýni til þess að athuga hvort þau væru með fuglaflensu. En við getum gengið inn í Hagkaup og keypt bringur af innfluttum dönsk- um villiöndum. Ég er ekki að segja að þær hafi verið með fuglaflensu en möguleikinn er fyrir hendi.“ Það sem Guðmundur bóndi vill benda á er sú skoðun að eftirlits- kerfið sé orðið mjög mikið, „en kerf- ið er hins vegar orðið svo innhverft að menn sjá ekki hvað er að gerast þar fyrir utan.“ Björt framtíð Þegar spurt er um hvernig Guð- mundur Jón telur að íslenskur land- búnaður eigi eftir að þróast segir hann það að sumu leyti óljóst en framtíðin eigi að geta verið björt. „Á stóru svæði hér í sveitinni eru í raun bara eftir tveir sjálfstætt starfandi bændur. Hinar jarðirnar eru reknar af fasteignafélögum og jarðakaupafélögum. Það er mikil breyting frá því sem var – fyrir tíu árum voru hér um það bil tíu bú. Með þessari breytingu koma ný við- horf en ég veit svo sem ekkert hvort þau eru góð eða slæm.“ Hann telur að heilt yfir sé engin ástæða til þess fyrir bændur að barma sér meira en aðrir, þótt ein- hvern tíma væri sagt að enginn væri búmaður nema hann kynni að barma sér. „Framtíðin á að geta verið björt og ég held hún hljóti að vera það. Það er góð þróun að bændur fullvinni vöru og standi og falli með henni. Þeir eiga að geta haft það betra og þetta er betra fyr- ir neytandann. Hann á að vera tryggari með þá vöru sem hann fær.“ Guðmundur Jón Guðmundsson bóndi í Holtsseli Búið að ryðja brautina Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.