Morgunblaðið - 31.12.2007, Page 31
VATNSBERI
Árið 2008 verður ákaflega gleðiríkt fyrir
vatnsberann. Sérstaklega taka ástamálin kipp,
einkum hjá konum í merki vatnsberans en
þar verður einfættur maður úr fortíðinni í
aðalhlutverki. Atvinnumálin taka kipp um mitt
ár. Í desember lítur vatnsberinn yfir farinn veg og
sér að hann hefur aldrei farið jafn oft í Listasafn
Reykjavíkur áður. Kannski það hafi haft áhrif að
aðgangur að Listasafni Reykjavíkur er ókeypis frá
1. janúar 2008.
FISKUR
Það er gott að vera stór fiskur í lítilli tjörn árið
2008. Strax í janúar verður aðgangur að Listasafni
Reykjavíkur ókeypis og munu fjölmargar
heimsóknir þangað auðga líf þitt verulega. Eftir
að hafa í mars gert upp við nákominn ættingja
í lok mars er eins og losni um einhver listræn
höft og fiskurinn fer að skapa. Ástarsambönd
styrkjast mjög eða kvikna á árinu og tengist sterkt
keramíknámskeiðum.
HRÚTUR
Hrúturinn verður nær ær af gleði í byrjun árs
þegar hann fer á Kjarvalsstaði og þarf ekki að
borga inn því aðgangur að Listasafni Reykjavíkur
er ókeypis frá 1. janúar 2008. Atvinnumál eru
mjög í brennideplinum hjá hrútnum þetta ár
og skapast það meðal annars af því að stór hluti
dagsins mest alla vikuna fer í vinnu. Þar fyrir utan
helgar hrúturinn sig fjölskyldu og vinum. 16. maí
fær hrúturinn símtal frá frænku sinni sem segir
honum að hún sé á leiðinni til Benidorm
í sumarfrí.
NAUT
Nautið byrjar árið með höfuðverk og er þar
fyrir utan hundóánægt með skaupið. Í janúar og
febrúar gerist lítið hjá nautinu. Það reynir að rífa
sig upp úr hversdagsleikanum með því að leggja
mikla áherslu á líkamsrækt. 9. mars á það leið um
miðbæinn og rekst inn í Listasafn Reykjavíkur
í Hafnarhúsi og þarf ekki að greiða aðgangseyri
þar sem aðgangur að Listasafni Reykjavíkur er
ókeypis frá 1. janúar 2008. Fyrir peningana sem
nautið ætlaði að greiða fyrir aðganginn kaupir
það sér lottómiða og fær nokkra rétta.
TVÍBURI
Tvíburinn áttar sig í kringum afmælið sitt að hann
er í raun ekki tvíburi, það er: hann fæddist einn.
Tvíburinn er samt ekki af baki dottinn og heldur
veglega afmælisveislu. Gleðst hann sérstaklega
yfir gjöf frá frænda sínum sem er ársmiði í
Listasafn Reykjavíkur. Gleðin verður blandin
þegar hann uppgötvar að frá 1. janúar 2008 hefur
aðgangur að Listasafni Reykjavíkur verið ókeypis.
Upp úr miðju ári verða nokkrar væringar í ættinni
sem lýkur með sáttum 10. september þegar
frændinn og tvíburinn hittast við eitt af þekktustu
verkum Kjarvals á Kjarvalsstöðum.
KRABBI
Krabbinn kann vel við sig í sundi enda getur
maður þekkt krabbann á krónískum rúsínutám.
Árið 2008 heldur velgengni krabbans áfram en
hann hefur verið á mikilli siglingu undanfarin
ár. Velgengnin verður ekki minni á tilfinninga-
sviðinu því eftir að krabbinn fer á Listasafn
Reykjavíkur þar sem hann fær frían aðgang eins
og aðrir frá 1. janúar 2008 og verður fyrir vitrun
fyrir framan eitt af verkum Errós þá gengur hann
frá sér numinn og innblásinn í flasið á þeim sem á
eftir að hafa mikil áhrif á líf hans næstu misserin.
Nýja þulan í Sjónvarpinu mun ekki muna eftir
þessum atburði, enda er hún ekki krabbi.
LJÓN
Ljónið er í essinu sínu árið 2008. Hann mun
einbeita sér að umhverfisvernd á róttækari hátt
en hingað til og skilar öllum dagblöðunum í
endurvinnslugáma. Ljónið verður frekar grimmt
fyrstu vikuna í febrúar en það rjátlast af því þegar
það fær tölvupóst þar sem því er tilkynnt að það
hafi unnið 2 milljónir evra í suður–þýsku lottói. Sú
gleði er skammvinn því þegar ljónið bankar upp á
í tilkynntu heimilisfangi í München kemur gömul
heyrnarlaus kona til dyra og kannast ekki við
neitt og þá meina ég: ekki neitt. Á heimleiðinni
tekur ljónið þó gleði sína þegar það situr við
hliðina á Steingrími Eyfjörð sem segir honum frá
því að lóan sé komin frá Feneyjatvíæringnum á
Listasafn Reykjavíkur og það kosti ekkert inn því
aðgangur sé ókeypis frá 1. janúar 2008.
MEYJA
Meyjan er skipulögð. Það gerir þó ekkert til því
árið 2008 slakar hún aðeins á og finnur aftur
barnið í sjálfri sér. Barnið hafði verið í gamalli
barnabók eftir Ármann Kr. Einarsson og var bara
í góðu stuði. Tilfinningalíf meyjunnar hefur lengi
einkennst af mikilli skipulagningu en fundur
barnsins kemur róti á tilfinningarnar sem leiðir til
þess að ný sambönd myndast eða eldri styrkjast.
Við sögu koma smámæltur maður með dökkt
hár og rauðhærð söngkona. 15. september er
meyjunni boðið í kaffi á Kjarvalsstöðum og á eftir
skoðar hún sýningarnar því aðgangur að Lista-
safni Reykjavíkur er ókeypis frá 1. janúar 2008.
VOG
Vogin er stemningsmanneskja fram í fingurgóma.
Því er hætt við því að hún fari líka í nýárspartí
þótt hún sé ekki alveg búin að jafna sig eftir
áramótapartíið. Hvað um það þá gerist ekkert
í nýárspartíinu sem breytir lífi hennar. Hins
vegar hittir hún manneskju í ræktinni daginn
eftir sem er með ótrúlega lágan púls miðað við
hvað hún er í ömurlegu formi. Meyjan heillast af
þessari týpu og býður henni í listamaraþon þar
sem hún þræðir söfn Listasafns Reykjavíkur,
byrjar í Hafnarhúsinu, fer á Ásmundarsafn og
endar á Kjarvalsstöðum. Þú þarft ekkert að borga,
segir Vogin sem þarf heldur ekkert að borga því
aðgangur að Listasafni Reykjavíkur er ókeypis frá
1. janúar 2008.
SPORÐDREKI
Sporðdrekinn er yndislegur. Ekki aðeins er
hann fallegur og greindur heldur hefur hann
líka góðan smekk. Allan fyrri hluta ársins heldur
hann að miklu leyti til á Listasafni Reykjavíkur
þar sem aðgangur að safninu er ókeypis frá 1.
janúar 2008. Ástalífið tekur kipp um miðjan júlí
þegar sporðdrekinn stendur á sundfötunum
í Laugardalslauginni og ókunnug manneskja
ávarpar hann og spyr hvar salernið sé. Að öðru
leyti verður ástalífið dauft árið 2008.
BOGMAÐUR
Bogmaðurinn hefur átt við líkamleg vandræði
að stríða sem stafa af því að hann er bogmaður.
Því verður ekki breytt þar sem hann er bogmaður
og líkamsstaðan er sérstök ef ekki undarleg.
Bogmaðurinn er listrænn og skapandi í sér
og leitar því huggunar í listinni. Hann gleðst
því mikið yfir því að aðgangur að Listasafni
Reykjavíkur er ókeypis frá 1. janúar 2008. Þar
fær hann innblástur til góðra verka enda verða
atvinnumál bogmannsins í góðu standi allt árið,
sérstaklega eftir að yfirmaður hans kynnist
smámæltum manni með dökkt hár, en yfirmaður
hans er meyja.
STEINGEIT
Frægasta steingeitin er eflaust Jesús en hann
fæddist í merki steingeitarinnar árið 1. Steingeitin
byrjar árið með miklum látum þegar hún
tilkynnir fjölskyldu sinni að hún sé ástfangin, ætli
að flytja til framandi landa og breyta um lífsstíl.
Skömmu síðar uppgötvar hún að manneskjan
sem hún hafði kynnst er ekkert sérstök, það er
dýrt að fara til útlanda og lífsstílinn allt í lagi. Í
uppbyggingarskyni tekur vinur steingeitarinnar
hana með sér á sýningu á Kjarvalsstöðum sem
kostar ekkert inn á enda hefur verið ókeypis
aðgangur að Listasafni Reykjavíkur frá 1. janúar
2008. Steingeitin heldur smá stund að hún sé
ástfangin af vininum en finnur svo að það er bara
botnlaust svartnætti ástarsorgarinnar sem hafði
þessi áhrif. Eftir það líður henni betur.
Þeir sem eru í stjörnumerki
fá ókeypis aðgang
að Listasafni Reykjavíkur
frá og með áramótum.
Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum
og Ásmundarsafni.
Listasafn Reykjavíkur
Reykjavik Art Museum
www.listasafnreykjavikur.is listasafn@reykjavik.is S 590 1200 F 590 1201