Vikublaðið - 07.04.1997, Side 7
7. apríl 1997
ÍUlLíMJQiD
//
yuxse...
Er heiti á danssýningu sem verður frumsýnd
í Tjamarbíói síðasta vetrardag, 23. apríl næstkomandi.
Á dagskránni verða tvö verk, hið fyrra
„Hér og nú” er nýsmíð Ólafar Ingólfs-
dóttur og hið síðara er þýsk-íslenskt sma-
vinnuverkefni Ólafar og Wiebke Brink-
mann og það verk heitir „Hvar varst þú
þegar ég var að elta þig”.
Höfundurinn Ólöf Ingólfsdóttir hefur
komið víða við og má þar nefna „Hilling-
ar” (94) sem hún setti upp ásamt Önnu E.
Borg árið 1994. f framhaldi af því var
þeim boðið með sýninguna til Nordisk
Scenekunst Festival í Danmörku (1995).
Ólöf hefur einnig dansað í sýningu
Hvunndagsleikhússins „Trójudætrum”
ásamt því að semja dansa fyrir „Jötuninn”
sem var sett upp af sama leikhúsi.
Margt hefur drifið á daga Ólafar í list-
inni en hún hóf nám seint. Þá nam hún
málaralist um tíma og hún segir sjálf að
myndlistin sé stór hluti í hönnun sinni á
hreyfingum. Ólöf var um skeið við nám í
nútímadansi, spuna og danssköpun í Eur-
opean Dance Development Center í Hol-
landi.
„Hvar varst þú þegar ég var að elta
þig” varð eins og fyrr segir til við sam-
vinnu Ólafar og Wiebke Brinkmann, en
æfingar fóru fram til skiptis í Reykjavík
og Köln. Verkið var frumsýnt í Köln árið
1996 og nú í fyrsta skipti sett upp hér á
landi.
Höfundar dansa sjálfir í verkinu við
frumsamda tónlist sellóleikarans Thorsten
Kohlóff sem er með þeim á sviðinu. Þar
skiptast á næstum kyrrar myndir og leik-
andi dans þar sem samspilið milli dansar-
anna tekur stöðugum breytingum.
Sólódansar breytast í tvídansa, sem síðan
leysast upp og dansarnir fara í hvora átt-
ina til þess að mætast við nýjar og breytt-
ar aðstæður.
Nýjasta ýerk Ólafar „Hér og nú” er
samið fyrir fjórar könur. Kveikjan að
verkinu varð til fyrir nokkrum árum þeg-
ar hún var við nám í Hollandi og er
hugleiðing um sterkar konur og
hvað styrkur væri almennt. Mýkt,
blíða, tilfinningarhiti, líkamlegt at-
gervi, samstaða og sjálfstæði eru
hugtök sem eru hugsanlega af sama
meiði, en geta haft ólík birtingar-
form. „Eg valdi dansara tildurlega
af handahófi, þær eru mjög ólíkar
og þess vegna reyni ég að leyfa
þeim að njóta sín (styrkur) þess
vegna er í verkinu bæði mínar
hreyfingar og þeirra, reyni að vinna
út frá því,” segir Ólöf. Dansararar í
verkinu eru Guðbjörg Arnardóttir,
Helena Jónsdóttir, Hlíf Þorgeirsdótt-
ir og Lilja Ivarsdóttir.
Tónlistin er sérstaklega frumsam-
in fyrir þetta verk í samráði við
danshöfund og hennar hönnun og er
eftir Hall Ingólfsson. Búningar sem
eru litríkir og líflegir eru hannaðir af
Áslaugu Leifsdóttur. Lýsingu í báð-
um verkum annast Jóhann Pálma-
son.
Alls verða þrjár sýningar, þann
23., 24. og 25. apríl næstkomandi.
Sýnt er í Tjamarbíói og hefjast sýn-
ingamar klukkan 20.30.
hj
Guðbjörg Arnardóttir,
Helena Jónsdóttir,
Hlíf Þorgeirsdóttir
og Lilja Ivarsdóttir.
Allar þrautþjálfaðir
dansarar með spenn-
andi sýningu í
Tjarnarbíói
Verð frá:
19.550,-
...þar sem þú vilt.
Þú siglir með þína fjölskyldu og þinn bíl til Danmerkur á tveimur
sólarhringum með Norrænu á ótrúlegu verði. Síðan hefur þú
ótakmarkað frelsi til að velja ferðamöguleika. Þú skoðar Norðurlöndin
og Evrópu á eigin hraða og siglir svo aftur heim í rólegheitum
með Norrænu frá Bergen. Þetta er hið eina sanna
frelsi i ferðalögum.
Börn yngri en 3 ára ferðast ókeypis.
*Verð á mann miðað við fjögurra manna fjölskyldu á eigin bíl til Evrópu í 2 vikur. Siglt frá Seyðisfirði þann 05.06. Siglt heim 18.06.
vm
y.
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTD FAN
Laugavegur 3, sími: 562 6362
Austfar ehf. Seyðisfirði, sími: 472 I I I I og umboðsmenn.
til