Vikublaðið - 07.04.1997, Síða 12

Vikublaðið - 07.04.1997, Síða 12
T~ Skrifstofa GRÓSKU Laugavegi 103 er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13.00-17.00. Sími Grósku er 551-2990 og er þar hægt að fá allar upplýsingar um starfsemi samtakanna. Frumvarp þingmanna allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins: H [emi illáál T\Tgðum eii nsl 2l klí nga Lúðvík Bergvinsson er fyrsti flutningsmaður frumvarps sem felur í sér tilraun til að sporna við starfsemi pappírsfyrirtækja án þess að leggja hömlur á samningsfrelsi manna. Fulltrúar allra flokka nema Sjálfstæðis- flokksins hafa lagt fram frumvarp til laga, sem gerir ráð fyrir því að ein- staklingum verði óheimilt að takast á hendur per- sónulega ábyrgð á efndum fjárskuldbindinga einka- hlutafélags eða setja per- sónulegar eigur sínar að veði til tryggingar efnd- um. Flutningsmenn tillögunn- ar eru Lúðvík Bergvins- son, Jón Baldvin Hanni- balsson og Sighvatur Björgvinsson frá Þing- flokki jafnaðarmanna, Svavar Gestsson og Bryn- dís Hlöðversdóttir frá Al- þýðubandalaginu og óháð- um, Kristín Halldórsdótt- ir frá Kvennalistanum og Hjálmar Arnason frá Framsóknarflokknum. Flutningsmenn segja markmið frumvarpsins vera að leggja bann við því að einstaklingar, hvort heldur er persónulega eða fyrir hönd einka- firma síns, geti svo gilt sé að lögum tekist á hendur ábyrgð á efndum fjár- skuldbindinga einkahlutafélags. Við- semjandi geti ekki byggt rétt á slíkum yfirlýsingum. „Að baki þessari breytingu á gild- andi lögum hvfla einkum sjónarmið um neytendavernd vegna yfirburða- aðstöðu ýmissa aðila, svo sem banka- og lánastofnana. Auk þess telja flutn- ingsmenn að núverandi ástand leiði til mismununar milli viðsemjenda fé- Iagsins og jafnframt að bann það sem hér er lagt til muni hafa jákvæð áhrif á viðskiptalífið, því að ábyrgðaryfirlýs- ingar af því tagi sem hér um ræðir eru ein helsta meinsemd íslensks við- skiptalífs,” segir í greinargerð með frumvarpinu. Þá segir: „f einkahlutafélögum ber enginn hluthafa persónulega ábyrgð á efndum þeirra skuldbindinga sem fé- lagið tekst á hendur. Abyrgð þeirra takmarkast við það fé sem þeir hafa lagt fram til félagsins í formi hluta- fjár. Þrátt fyrir þetta er algengt hér- lendis að viðsemjendur hlutafélaga og einkahlutafélaga, einkum lánastofn- anir, geri þá kröfu í samningum við félögin að einstaklingar gangist í per- sónulega ábyrgð fyrir efndum. Hugs- unin að baki einkahlutafélagaforminu er sú að fjárfestar geti takmarkað áhættu sína af atvinnurekstri; áhættan verði ekki meiri en sem nemur fram- lögðu hlutafé. Með þessu móti geta fjárfestar takmarkað áhættu sína fyrir fram. Það fær því ekki samrýmst hugsuninni að baki rekstri hlutafélaga og einkahlutafélaga að einstaklingar áþyrgist jafnframt efndir félaganna með sérstakri yfirlýsingu.” Flutningsmenn segja að á meðan löggjöfin heimilar slíkar ábyrgðaryf- irlýsingar sé hætta á því að öðrum viðsemjendum félagsins sé mismun- að. A meðan aðstaða sumra viðsemj- enda er slík að þeir geta krafist ábýrgðaryfirlýsinga er staða annarra ekki nándar nærri eins sterk. „Lánardrottinn sem hefur undir höndum yfirlýsingu um persónulega ábyrgð stendur ólíkt betur að vígi en aðrir ef rekstur félagsins fer að ganga illa, því að þá er líklegt að forsvars- menn félagsins reyni fyrst að gera upp við þá aðila sem þeir eða venslamenn þeirra eru í ábyrgðum gagnvart, áður en kemur að uppgjöri við aðra. Mý- mörg dæmi eru um þetta í íslensku viðskiptalífi. Markmiðið með þessari lagasetningu er því öðrum þræði að reyna að koma í veg fyrir mismunun lánardrottna félagsins. Þá er rétt að benda á að sjaldnast er hægt að jafna saman aðstöðu banka- og lánastofn- ana með sérfræðingahópa sína annars vegar og lántakenda hins vegar. Þar er sjaldnast nokkurt jafnræði með aðil- um. Það er því æskilegt að löggjafinn reyni að koma í veg fyrir að sú að- staða komi upp að stofnanir fái nýtt sér þennan aðstöðumun umfram það sem eðlilegt má telja. Með því að heimila viðsemjendum að krefjast ábyrgðaryfirlýsinga einstaklinga er að mati flutningsmanna verið að ýta und- ir óeðlilega viðskiptahætti. Það eru óeðlilegir viðskiptahættir að viðsemj- andi félags geti komist hjá því að þurfa að kynna sér raunverulega fjár- hagsstöðu félags, með því einu að tryggja sér yfirlýsingu þriðja aðila. Það hljóta að teljist eðlilegri vinnu- brögð að viðsemjandinn kynni sér fjárhagsstöðu gagnaðilans og taki ákvörðun um viðskiptin á grundvelli þeirrar skoðunar, í stað þess að óska eftir veðbókarvottorði og ábyrgð þriðja aðila. Núverandi skipan mála hefur að mati flutningsmanna til- hneigingu til þess að grafa undan ábyrgðartilfmningu aðila í viðskipt- um. Verði þetta frumvarp að lögum leggst sú kvöð á viðsemjendur einka- hlutafélags í meira mæli en áður að þeir kynni sér raunverulega fjárhags- stöðu félagsins. Þannig færist eftirlit með fjárhagsstöðu félaga yfir til við- skiptalífsins, sem er til mikilla bóta, því að hið opinbera hefur því miður einungis haft eftirlit að nafninu til með hlutafélögum, einkahlutafélög- um og innborguðu hlutafé og í litlu sem engu sinnt þeim skyldum sem á því hefur hvílt. Með þessari breytingu er gerð til- raun til að spoma gegn starfsemi svo- kallaðra pappírshlutafélaga, þar sem ætlunin er aldrei að greiða inn hlutafé. Markmiðið með stofnun slflcra félaga er oft það eitt að komast yfir verðmæti með samningum án þess að ætlunin sé nokkum tíma að efna jþá, en jaffamt að notfæra sér ábyrgðarléýsi híútafé- lagaformsins. Slík félög komast sjaldnast af stað í nokkum rekstur án þess að þau geti opnað reikning hjá lánastofnun, en til þess að svo geti orðið þurfa einstaklingar yfírleitt að ganga í ábyrgð hjá viðkomandi lána- stofnun. Bann við slíkum ábyrgðaryf- irlýsingum gerði slíkum félögum erf- itt um vik.” Enn benda flutningsmenn á þá stað- reynd að einstaklingar eiga örðugt um vik með að gera sér grein fyrir raun- verulegri fjárhagsstöðu einkahlutafé- lags eða hlutafélags, og meta áhættu sem fólgin er í útgáfu ábyrgðaryfir- lýsingar, sérstaklega þegar um utan- aðkomandi aðila er að ræða, t.d. ætt- ingja forsvarsmanna félagsins. Dæmi um hörmungar sem dunið hafa yfir fjölskyldur og einstaklinga vegna slíkra yfirlýsinga þekkir hvert manns- bam. Það er mat flutningsmanna að með fmmvarpinu sé ekki vegið að eðlilegu samningsfrelsi í landinu. Hjálparstdhim kii'kjuniiar safiiar fötum Hjálparstofnun kirkjunnar stend- ur fyrir fatasöfnun fyrir flóttamenn í aprílmánuði. Fjöldi flóttamanna hefur varið hríðvaxandi hin síðustu ár og að sögn Hjálparstofnunar kirkjunnar er neyðin mikil í fjölda landa og víða vantar allt til alls. fs- lendingar hafa lagt flóttamönnum lið með fatasendingum og hefur ís- lenskur fatnaður þótt mjög góður og því hefur nú sérstaklega óskað eftir því að fá hann héðan. Af þessum sökum hefur Hjálpar- stofnun kirkjunnar ákveðið að standa fyrir fatasöfnun í fjórum bæjum landsins, á Akureyri, Egils- stöðum, ísaftrði og í Reykjavík dag- ana 10.-12. aprfl 1997. Gámum verður komið fyrir við kirkjur á við- komandi stöðum og starfsfólk kirknanna mun taka við fötunum. Þeim verður svo vélpakkað í Reykjavík til þess að minnka rúm- mál og spara sendingarkostnað. Það er von Hjálparstofnunarinnar að fólk taki vel í þetta átak en stofn- unin leggur jafnframt áherslu á að fötunum sé skilað hreinum, helst flokkuðum og í merktum pokum. I fyrsta kasti er gert ráð fyrir að fötin verði send til fyrrum Júgóslav- íu, Tjetjeníu og Angóla. I fyrrum Júgóslavíu vantar aðallega bamaföt og skó, einnig skólapakka, sápu og snyrtipakka, þá vantar bosníska flóttamenn í Ungveijalandi föt. Frá Tjetjeníu og Angóla hafa borist beiðnir um föt en einnig vantar Angólabúa heilsupakka, skóla- og saumapakka, teppi, tjöld, rúm, sápu og matvæli. En það eru fleiri lönd, þar á með- al Líbería, Malaví og Sambía, sem þurfa á aðstoð að halda og munu sendingar fara til þeirra landa eftir því hve mikið safnast en farið er eft- ir beiðnalista frá Lútherska heims- sambandinu fyrir árið í ár.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.