Morgunblaðið - 13.01.2008, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2008 B 25
Starf
heilbrigðisfulltrúa
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands auglýsir
laust starf heilbrigðisfulltrúa
Starfsmaðurinn hefur aðsetur á Akranesi. Starf-
ið er mjög fjölbreytilegt og starfssvæðið er allt
Vesturland. Meðal verkefna eru eftirlitsstörf, út-
tektir, undirbúningur funda og skýrslugerð.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. febrúar
nk. eða eftir samkomulagi.
Æskilegt er að umsækjandi hafi réttindi skv.
lögum nr. 7/1998 og reglugerð nr. 571/2002 um
menntun og skyldur heilbrigðisfulltrúa.
Leitað er að starfsmanni sem getur unnið
sjálfstætt og er lipur í samskiptum. Viðkomandi
þarf ekki að hafa bíl til umráða.
Umsóknarfrestur er til 28. janúar nk.
Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í
síma 433 7117.
Orkustofnun óskar eftir að ráða vefstjóra og kynningarfulltrúa.
Helstu verkefni:
● Umsjón með vef stofnunarinnar.
● Umsjón með útgáfu- og kynningarmálum og þ.m. samskipti við
hönnuði og prentsmiðjur.
● Umsjón og skipulagning á ráðstefnum og fræðslufundum.
● Ritstjórn á ársskýrslu stofnunarinnar.
Menntun og hæfniskröfur:
● Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
● Reynsla af vefmálum og vefumsjónarkerfum.
● Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli.
● Færni í ensku og einu norðurlandamáli.
● Skipulögð vinnubrögð.
● Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
● Lipurð í samskiptum og hæfileiki til að vinna í hóp.
Laun greiðast samkvæmt samningum fjármálaráðuneytisins við viðkomandi
stéttarfélög svo og stofnanasamningum stofnunarinnar við þau.
Orkustofnun stefnir að því að hækka hlutfall kvenna í starfsliði sínu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðni Jóhannesson, sími 569-6000, netfang
gudni.a.johannesson@os.is.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist starfsmannastjóra
Orkustofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík, eða á netfang gd@os.is,
eigi síðar en 28. janúar 2008.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Orkumálastjóri
Vefstjóri og kynningarfulltrúi á Orkustofnun
Aðstoðarskólastjóri
við Sunnulækjarskóla
Staða aðstoðarskólastjóra við
Sunnulækjarskóla á Selfossi
er laus til umsóknar
Umsækjandi þarf að hafa kennarapróf, góða stjórnunar- og skipu-
lagshæfileika, mikla hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í
starfi. Þekking og færni á sviði stjórnunar, reynsla af teymisvinnu og
áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar.
Umsókn fylgi greinargerð þar sem fram komi hver er reynsla og
menntun umsækjanda, hvaða sýn hann hefur á skólastarf, nýbreytni
og hlutverk skólastjórnenda í skólastarfi.
Við Sunnulækjarskóla eru 340 nemendur í 1. – 7. bekk veturinn 2007–
8 en einn árgangur mun bætast við skólann næstu þrjú árin. Frekari
upplýsingar má finna á vef skólans http://www.sunnulaekjarskoli.is
og hjá skólastjóra, Birgi Edwald, í síma 480 5400 eða tölvupósti:
birgir@sunnulaek.is.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2008.
Laun fara eftir kjarasamningi LN og KÍ.
Umsókn sendist til skólastjóra Sunnulækjarskóla, Norðurhólum 1,
800 Selfossi.