Morgunblaðið - 13.01.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.01.2008, Blaðsíða 32
32 B SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Kennsla Study Medicine and Dentistry In Hungary 2008 Interviews will be held in Reykjavik in May/July. For further details contact: Tel.:+ 36 209 430 492. Fax:+ 36 52 324 031 E-mail: omer@hu.inter.net internet: http://www.meddenpha.com Píanókennsla Get bætt við nokkrum nemendum, byrjendum og fullorðnum, bý í Fossvoginum nálægt Grensásvegi. Sími : 895 9395. Til sölu Tilboð óskast Tilboð óskast í Scania R470 6 x 4 dráttar- bíl, árgerð 2005, skemmdan eftir umferðaróhapp; gangsettur af umboði. Tilboð skilist inn á uppboðssíðu Króks bílastöðvar ehf. www.bilauppbod.is í síðasta lagi kl. 12.00 þann 15. janúar 2008 Bifreiðin er til sýnis á athafnasvæði Heklu hf., Klettagörðum. Suðurhrauni 3, 210 Garðabæ. Sími: 522 4600. Þjónusta Fagmannleg skrif Textaskrif á ensku fyrir fyrirtæki á uppleið; viðskiptabréf, auglýsingar, almannatengslatexti og nákvæmur prófarkalestur. Fagmannleg og skjót vinnubrögð. Padraig Mara s. 846 5804. Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Janúarráðstefna Félag bókhaldsstofa heldur árlega janúarráðstefnu sína föstudaginn 18. janúar á Hótel Sögu í Reykjavík Dagskrá ráðstefnunnar og skráningareyðublað er að finna á heimasíðu félagsins www.fbo.is Móttaka skráningareyðublaða er hjá Guðmundi Loga Lárussyni logi@beggjahagur.is Frekari upplýsingar gefur formaður félagsins Jóhanna Rögnvaldsdóttir í síma 847 9007. Stjórn Félags bókhaldsstofa. Húsnæði í boði Raðhús til leigu Um er að ræða 4-5 herbergja raðhúsahæð. Mjög skemmtileg og með frábæru útsýni á besta stað í Kópavogi. Stutt í allar þjónustur, strætósamgöngur og skóla. Skilvísi og reykleysi skilyrði. Leigan er 175 þús á mán. + bankaábyrgð. Laus frá 1. feb. eða fyrr. uppl. í síma 8675837. Raðauglýsingar sími 569 1100 Þjónustuaðili, sem aðstoðar atvinnu- rekendur við áhættumat og áætlun um forvarnir, skal starfa sem óháður, sérfróður aðili við að greina og meta hættur í vinnuumhverfinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Vinnueftirlitsins. Skylda til að gera áhættumat Þá segir í fréttatilkynningunni að þjónustuaðilinn skuli vera atvinnu- rekendum, fulltrúum þeirra og starfs- mönnum til ráðuneytis og ráðgjafar, svo og öryggistrúnaðarmönnum, ör- yggisvörðum og öðrum, sem málið varðar, við að skapa sem öruggast og heilsusamlegast vinnuumhverfi, sam- anber greinargerð með reglugerð nr. 1000/2004 og reglugerð nr. 920/2006. Í reglugerðunum er lögð höfuð- áhersla á forvarnir og skyldur at- vinnurekanda til að gera áhættumat á vinnustað. „Þegar atvinnurekandi leitar að- stoðar eða úttektar þjónustuaðila vegna fyrirmæla frá Vinnueftirlitinu tengt kvörtunum um einelti skal þjón- ustuaðilinn vinna í samræmi við fyrr- nefndar reglugerðir sem kveða skýrt á um skyldu atvinnurekanda til að gera áhættumat og áætlun um for- varnir. Við áhættumatið skal meta að- stæður í vinnuumhverfinu sem geta leitt til eineltis í nútíð eða framtíð.“ Forvarnir eru nauðsynlegar Ennfremur segir að atvinnurek- anda beri að grípa til viðeigandi að- gerða í samræmi við niðurstöður áhættumatsins til að draga úr eða koma í veg fyrir slíkar aðstæður. Ef áhættumat liggi þegar fyrir gæti þurft að endurskoða það. „Þótt atvinnurekandi leiti sérfræði- þjónustu að eigin frumkvæði til þess að fá úr því skorið hvort um einelti sé að ræða eða ekki leysir það hann ekki undan þeirri skyldu að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar um forvarn- ir, þ.e. að gert sé áhættumat og að settar séu skýrar reglur um viðbrögð við einelti ásamt viðbragðsáætlun ef slíkt kemur upp. Breytingar á starfsemi þjónustuaðila Að gefnu tilefni skal einnig undir- strikað að ef breytingar verða hjá við- urkenndum þjónustuaðila svo sem að fyrirtæki sameinast eða að starfs- kraftur, sem viðurkenningunni tengdist, fer til annarra starfa, skal það tilkynnt Vinnueftirlitinu,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni. Þjónustuaðilar verða að vera óháðir Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd. Forvarnir Starfsmenn Hunnebek Polska og GT verktaka við Hraun- aveitu voru hlunnfarnir í fyrra. Gistinóttum á hótelum í nóvember fjölgaði um tæp 4% milli ára, að því er fram kemur á vef Hagstofu Ís- lands. Mest aukning fyrir norðan Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 75.100 en voru 72.400 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 2.700 nætur eða tæp- lega 4%. Gistinóttum fjölgaði á höf- uðborgarsvæðinu, Norðurlandi og Suðurlandi. Hlutfallslega varð fjölg- un mest á Norðurlandi, þar nam hún rúmum 9%, en gistinóttum fjölgaði þar úr 3.100 í 3.400 milli ára. Á höf- uðborgarsvæðinu var aukning gisti- nátta um 8%, þar fóru gistinætur úr 55.000 í 59.600. Aukning gistinátta á Suðurlandi nam 4% og fóru þær úr 5.000 í 5.300 milli ára. Samdráttur fyrir austan Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum á hótelum í nóvember milli ára. Samdrátturinn var mestur á Austurlandi en gistinóttum fækk- aði úr 2.700 í 1.200, eða 58%. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða var fækk- un gistinátta um 13%, þar fækkaði gistinóttum úr 6.500 í 5.600. Fjölgun gistinátta á hótelum í nóvember má rekja til Íslendinga, 15%, en gistinóttum útlendinga fækkað lítillega. Gistinóttum á hótelum fyrstu ell- efu mánuði ársins fjölgaði um 13% milli ára. Gistinætur á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins voru 1.254.866 en voru 1.112.331 sama tímabil árið 2006. Fjölgun varð á öllum landsvæðum nema á Austurlandi, mest fjölgaði á Suðurlandi, 16%, og á höfuðborg- arsvæðinu, 14%. Aukningin nam 13% á Norðurlandi, 4% á Suð- urnesjum, Vesturlandi og Vest- fjörðum. Á Austurlandi helst óbreytt á milli ára. Fjölgun gistinátta fyrstu ellefu mánuði ársins nær bæði til Ís- lendinga, 19% og útlendinga, 11%. Hagstofan vekur athygli á því að eingöngu sé átt við gistinætur á hót- elum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem ein- göngu eru opin yfir sumartímann. Fleiri gistinætur í nóvember Morgunblaðið/Golli Gestagangur Fjölgun gistinátta á hótelum í nóvember var 4%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.