Morgunblaðið - 24.01.2008, Side 10

Morgunblaðið - 24.01.2008, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ 1 stk. flugvöll á sama stað út kjörtímabilið, 2 stk. kofaskrifli, áfram skyndifriðuð, og svo ½ borgarstjóradjobb. VEÐUR Í samtali við Morgunblaðið í gærsagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, formaður Samfylkingar, um hina nýju meirihlutamyndun í borg- arstjórn Reykjavíkur: „Það kemur manni alltaf jafn óþægilega á óvart að sjá hvað menn eru tilbúnir að leggjast lágt í valda- sókn sinni.“     Hvað á formað-ur Samfylk- ingarinnar við? Leggjast Sjálf- stæðismenn lágt með því að taka upp samstarf við Ólaf F. Magn- ússon? Ef svo er, af hverju? Mynd- aði Samfylkingin ekki meirihluta með Ólafi F. Magnússyni sl. haust? Leggst Ólafur F. Magnússon lágt með því að taka upp sam- starf við Sjálf- stæðismenn? Ef svo er, á það sama ekki við um Ingibjörgu Sól- rúnu, sem tók upp samstarf við Sjálfstæðisflokk í ríkisstjórn?     Á Ingibjörg Sólrún við eitthvaðannað? Ef svo er, er þá ekki bezt að hún segi það hreint út?     Dagur B. Eggertsson, fráfarandiborgarstjóri, segir að Sjálf- stæðismenn hafi blekkt Ólaf F. Magnússon til samstarfs. Hvað á fráfarandi borgarstjóri við? Af hverju telur hann að það sé hægt að blekkja Ólaf F. Magnússon í stjórn- málum, mann með jafnmikla reynslu og verðandi borgarstjóri býr yfir?     Hroki þessa fólks í garð verðandiborgarstjóra er ótrúlegur og jafnframt ógeðfelldur. STAKSTEINAR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Hverjir leggjast lágt? Dagur B. Eggertsson SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                      *(!  + ,- .  & / 0    + -                !   #   12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (              $ $  %$ %      :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?    %   &% '% %  %  &% % % % %' &% &% &% &%%'                               *$BC $$            ! "# $ % #"#"# "    & &        "#  '  ( )##* #+ # *! $$ B *! ( ) * $  $) $    + <2 <! <2 <! <2 (* $, " -$./   CD2 E           *  ! ,  ,    #  "#    -& # /       . / )  " 0,# & " 1# #) 2 # & # <7     *3 '  . * #3 # -# #   #      "# 1 "-,# #   ! "#) # #    ( 4 #5 # 01 $ $22  $  $3   $, " Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Baldur Kristjánsson | 23. janúar 2008 35 ár frá gosi í Eyjum! Þrjátíu og fimm ár eru frá gosinu í Heimaey. Af og til er það hlut- skipti mitt að tala yfir fólki sem flúði Eyjar gosmorguninn og ætíð upplifi ég það hvað mik- il áhrif þessar náttúruhamfarir höfðu á líf þess fólks sem var rifið upp e.t.v. á miðjum aldri og þurfti að fóta sig upp á nýtt í Þorlákshöfn, Hvolsvelli, Höfn eða á Reykjavíkursvæðinu. Og þetta leiðir auðvitað hugann að öllum þeim sem hrekjast frá heimilum sínum vegna náttúruhamfara … Meira: baldurkr.blog.is Þorsteinn Ingimarsson | 23. janúar Lækkun fasteigna- skatta er lýðskrum … Það sem er illskilj- anlegt er af hverju þarf að lækka fasteigna- skattinn í stað þess að halda honum óbreyttum til tekjujöfnunar. Hver er hvatinn að lækka skatt- inn á þann efnameiri á kostnað þess efnaminni. Nær hefði verið að halda skattinum óbreyttum og nýta þá fjár- muni sem inn koma og greiða t.d. umönnunarstéttum hærri laun svo hægt væri að manna þessi störf. … Meira: thorsteinni.blog.is Andrea Ólafsdóttir | 22. janúar 2008 Þetta lýðræði … … Það er ekki eins og þetta komi kannski á óvart … en ef fólkið rís ekki upp og reynir að gera eitthvað í því verð- ur ekki mikið eftir af því sem kalla mætti „smánarlega fátæklegt lýðræði sem við þó eigum smákeim af á Íslandi“. Ég er ekkert endilega viss um að við munum nokkurn tíma á minni stuttu ævi sjá alvörulýðræði eins og mig dreymir um … en okkur ber þó að gera allt sem við getum til að bæta það litla lýðræði sem fyrir er … Meira: andreaolafs.blog.is Sveinn Ingi Lýðsson | 23. janúar 2008 Álftnesingar sýna samtakamátt Sl. föstudag var sent dreifibréf í hvert einasta hús á Álftanesi þar sem vakin var athygli íbúa á mjög alvarlegum ágalla í auglýstri deiliskipulag- stillögu. Ágalla sem kannski varðar til framtíðar litið börn bæjarins hvað mestu. Búið var að breyta vinningstillögu í arkitektasam- keppni svo mikið að hún var ekki leng- ur ásættanleg. Umferðarskipulaginu hafði verið kollvarpað með lokun Breiðumýrar og lagningu Skólavegar sem gegnumakstursgötu. Götu sem liggur að hluta til um jaðar skólalóða Grunnskólans og Krakkakots. Í sam- ræðum manna á milli kom fram mjög eindregin andstaða við þessa hug- mynd og í framhaldi af því leiddu þær Gerður Björk Sveinsdóttir og Brynja Guðmundsdóttir saman hóp fólks sem tilbúið var að leggja málinu lið. Þessi hópur samanstendur af fólki af öllum stigum, stéttum, flokkum og ekki flokkum. Hópurinn gekk hús úr húsi síðustu þrjú kvöld og tók við at- hugasemdum íbúa. Mér sem þátttak- anda í hópnum kom þægilega á óvart hve gífurleg andstaða var við þennan gjörning og svo var áhuginn mikill að Álftnesingar sem staddir voru í fjar- lægum heimsálfum höfðu samband og óskuðu eftir að fá að vera með. Þetta var stórkostleg upplifun fyrir mig sem er búinn að vera að hamra á þessu, í bloggi, blaðagreinum og við- tölum við íbúa. Kynning bæjarstjórnar á málinu hefur öll verið í skötulíki og ekkert tillit hefur verið tekið til sjón- armiða íbúa sem hafa verið að tjá sig í ræðu og riti sem og á íbúafundum. Sem sagt, veruleikafirringin virðist al- gjör hjá meirihluta bæjarstjórnar. Kannski verður þeim veruleiki hins al- menna bæjarbúa ljós kl. 14.15 í dag þegar bæjarstjóra verða afhentar formlega mótmæli tæplega 600 kosningabærra Álftnesinga. Einnig er mér kunnugt um að fjöldi fólks hefur sjálfur skilað inn athugasemdum við skipulagið og skipta þær athuga- semdir mörgum tugum. Líklega má reikna með allt að 700 athugasemd- um við skipulagstillöguna og flestar þeirra snúa að lokun Breiðumýrar og Skólavegi. … Skyldi það fá þessa bæjarstjórn til að átta sig á að þeir eru kosnir til að þjóna íbúum en ekki öfugt? Meira: sveinni.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR DAGUR B. Eggertsson, fráfarandi borgarstjóri, og fjármálaráðu- neytið hafa undirritað viljayfirlýs- ingu þess efnis að bjarga Kolaport- inu. Dagur og forsvarsmenn Kolaportsins kynntu þetta í gær. Stefnt er að því að tryggja framtíð- arstaðsetningu Kolaportsins í Toll- húsinu næstu 10 árin með því að breyta fyrirliggjandi hugmyndum um bílastæði þar sem Kolaportið hefur aðstöðu nú. Dagur sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að þó þetta væri eitt af síðustu verkum hans sem borg- arstjóri væri þetta eitt það ánægju- legasta. Hann segir tollstjórann eiga allan heiður skilinn þar sem hann hafi reynst tilbúinn til að gera afar róttækar breytingar á þeim hugmyndum sem fyrir lágu. „Kola- portið er tákn fyrir það að mið- borgin og Reykjavík er borg fyrir alla,“ segir hann. „Kolaportið er nefnilega ekki bara skemmtilegur og stundum skrýtinn staður til að versla heldur í raun svolítil fé- lagsmiðstöð og staður sem allir sækja, líka fólk sem finnur sig ekki í verslunarmiðstöðvunum. Þar er bara gamall og góður heim- ilisbragur í bland við forvitnilega hluti og undarleg uppátæki sem krydda lífið.“ Kolaportið óhult Árvakur/Frikki Opið Dagur B. Eggertsson ánægður með björgun Kolaportsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.