Morgunblaðið - 24.01.2008, Blaðsíða 40
Fæ ég ekki opnu í
Morgunblaðinu…? 45 »
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
BJÖRK Guðmundsdóttir hélt tón-
leika í Gold Coast í Ástralíu síðastlið-
inn sunnudag. Tónleikarnir voru hluti
af tónlistarhátíðinni Big Day Out, en
hún er haldin árlega á Nýja-Sjálandi
og í Ástralíu. Áheyrendur voru gríð-
arlega margir, en auk Bjarkar kom
bandaríska hljómsveitin Rage Aga-
inst the Machine fram þetta kvöld.
Í dómi sem Jónas Sen, hljómborðs-
leikari Bjarkar, vitnar í á blog-
.bjork.com, kemur fram að áhorf-
endur hafi púað á Björk á
tónleikunum.
Í dómnum sem Jónas vitnar til seg-
ir meðal annars. „Svo virðist sem
aðdáendur Rage Against the Mach-
ine hafi púað á Björk þegar söng-
konan kom fram á sama tíma og
bandarísku rokkararnir á Gold Coast
hluta Big Day Out hátíðarinnar á
sunnudaginn. Þeim hefur kannski
ekki þótt hún nógu pólitísk. Það er
auðvitað alrangt hjá þeim. Rage Aga-
inst the Machine þykist vera skipuð
stjórnleysingjum, en Björk er sjálf
byltingin.“
Púað á Björk í Ástralíu
Reuters
Umdeild Björk Guðmundsdóttir er ekki allra.
Hljómsveitin
Sprengjuhöllin
hefur lokið við
tónsmíðar á nýju
lagi sem notað
verður í leikritinu
Fló á skinni sem
LA hefur sýn-
ingar á í febrúar.
Lagið er samnefnt leikritinu og
sver sig svo sem í ætt við þann stíl
sem Sprengjuhöllin hefur markað
sér þó að hendingar í laginu minni
óneitanlega á gamla Small Faces
slagarann „Itchycoo Parc“ en þar
er ekki leiðum að líkjast. Á blogg-
síðu Wim Van Hooste (http://
icelandicmusic.blogspot.com) sem
heldur úti einskonar aðdáendasíðu
tileinkaðri íslenskri tónlist má svo
finna enska útgáfu af lagi
Sprengjuhallarinnar „Verum í sam-
bandi“ en á ensku kallast lagið
„Worry til Spring“.
Þá er bara eftir að finna enskt
nafn á sveitina sjálfa og útrásin get-
ur hafist fyrir alvöru.
Hyggur Sprengju-
höllin á útrás?
Eins og fram
kom í Fréttablað-
inu í gær hefur
vandræðagangur-
inn við fram-
leiðslu á kvik-
myndinni A
Journey Home,
sem byggist á
skáldsögunni Slóð
fiðrildanna eftir
Ólaf Jóhann
Ólafsson, verið
með ólíkindum. Kvikmyndin er nú
komin í hendur þriðja kvikmynda-
framleiðandans, True North, sem
hefur víst hafið undirbúning fyrir
sjálft tökuferlið sem hefst í apríl
hér á landi. Komið hefur fram að
leikarahjónin Jennifer Connelly og
Paul Bettany muni leika í kvik-
myndinni en nú hefur sú saga kom-
ist á kreik að tvær aðrar stór-
stjörnur muni bætast í leikara-
hópinn innan tíðar.
Stjörnubjart
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
SÝNINGARRÝMIÐ Smátíma í kjallara Hljóma-
lindarhússins á Laugavegi átti aðeins að vera
þar í smátíma eins og nafnið gefur til kynna.
Þriðja árs nemar í myndlistardeild Listahá-
skóla Íslands standa að Smátíma og eftir viku
verður því lokað. Smátíma var opnað 9. nóv-
ember síðastliðinn og þar hafa nemarnir sýnt
tveir og tveir saman viku í senn. Ný sýning hef-
ur verið sett upp hvern föstudag og á morgun
opnar síðasta parið, Logi Bjarnason og Hanna
Birna, sýningu sem stendur til 1. febrúar.
„Smátíma hefur gengið vonum framar, verið
skemmtileg og gefandi lífsreynsla. Allt hefur
gengið eins og smurt og við náðum að skipta um
sýningu á hverjum föstudegi eins og við lögðum
upp með,“ segir Páll Haukur Björnsson einn
myndlistarnemanna. „Auðvitað var þetta nokk-
ur keyrsla og aðsóknin upp og ofan. Sýning-
arnar urðu líka mjög fjölbreyttar, allt frá nánast
tómu galleríi upp í troðfullt af dóti.“
Páll segir að þau stefni ekki á að færa Smá-
tíma annað en partur af hópnum gæti samt hald-
ið áfram með svipaða starfsemi undir öðru
nafni. „Þetta kveikti áhuga meðal okkar á að
starfa saman. T.d. að taka að sér tímabundið
verkefni eins og þetta, sem sér fyrir lokin á,
frekar en að vera að henda sér út í gall-
erísrekstur.“
Bók á teikniborðinu
Páll segir Smátíma ekki alveg líða undir lok
þó sýningarrýmið loki. „Ég er að vinna í því
ásamt fleirum að gefa út bók um þetta sýning-
arhald okkar. Þó þetta hafi verið tólf sýningar
sáum við þær líka sem eitt verk, verkið Smátíma
sem verður gert betri skil í bókinni. Við vorum
með þessa bókaútgáfu í huga frá upphafi og
fengum til liðs við okkur ljósmyndarann Gunn-
laug Arnar Sigurðsson sem skráði sýningarnar
vel niður. Bókin er aðeins á teikniborðinu en við
sjáum fyrir okkur að í henni verði þrjár myndir
af hverri sýningu. Við vonumst svo til að hún
komi út í vor eftir útskrift. Með henni stendur
eitthvað eftir sýninguna sem okkur finnst mik-
ilvægt. Það er meira spennandi þegar staðið er
að svona tímabundnu verkefni að það gleymist
ekki,“ segir Páll en þau gefa bókina út sjálf.
„Við erum að reyna að fá einhverja styrki en
ætlum að finna sem hagkvæmasta lausn á útgáf-
unni svo við verðum ekki upp á aðra komin með
mikla peninga. Skólinn styrkti okkur nú aðeins
með Smátíma enda vantaði nemendagallerí eftir
að því sem við höfðum fyrir ofan Klink og Bank
á Laugaveginum var lokað síðastliðinn vetur.“
Smátíma í smátíma
Myndlistarnemendur í LHÍ stóðu í gallerísrekstri í vetur og gefa út bók í vor
Árvakur/Árni Sæberg
Í kjallara Hljómalindar „Allt hefur gengið eins og smurt og við náðum að skipta um sýningu á hverjum föstudegi eins og við lögðum upp með,“ segir Páll.
■ Í kvöld kl. 20.00
Tónleikar á Ísafirði í tilefni af 60 ára afmæli tónlistar-
skólans. Verk eftir Shostakovitsj, Poulenc, Chopin og Jónas
Tómasson. Listamenn á Ísafirði eru áberandi á tónleikunum.
Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Einleikari á píanó: Anna Áslaug
Ragnarsdóttir. Einsöngur: Ingunn Ósk Sturludóttir. Kór: Hátíðarkór
Tónlistarskólans á Ísafirði. Kórstjóri: Beáta Joó
■ Fim. 31. janúar kl. 19.30
Ættgeng snilligáfa
Natasha Korsakova, ungur rússneskur fiðlusnillingur, flytur hinn
rómaða fiðlukonsert Brahms.
■ Fim. 7. febrúar kl. 19.30
Myrkir músíkdagar
Einstakur viðburður, frumflutningur tveggja íslenskra sinfónía, eftir
Atla Heimi Sveinsson og John Speight.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is