Morgunblaðið - 24.01.2008, Page 18

Morgunblaðið - 24.01.2008, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING NÝTT útvarps- leikrit, Drauga- lest, er á dagskrá Rásar 1 í kvöld, og hefst það kl. 22.20. Verkið segir frá fjórum mönnum sem koma saman í herbergi og segja sögur sínar meðan blóðið rennur niður veggina. Höfundur er Jón Atli Jónasson, leikarar Ellert A. Ingimundarson, Pétur Einarssson, Þór Tulinius og Gunnar Hansson og leikstjóri er Stefán Jónsson. Jón Atli Jónasson Útvarp Draugalest í útvarpinu AÐALFUNDUR Richard Wagner-félagsins verður hald- inn á Þingholti, Hótel Holti, á sunnudag kl. 14. Að loknum að- alfundarstörfum verður mynd- in Das Erste eftir Doris Metz sýnd, í minningu Gudrunar Wagner sem lést seint á síð- asta ári. Myndin fjallar um Bayreuth á liðnu sumri og frumraun Katharinu Wagner á sviði Festspielhaus með uppsetningu Meist- arasöngvaranna. Talað er við fjölmarga þekkta listamenn og Wagner-sérfræðinga. Þá verður einnig sýnt myndband með hljómsveitarstjór- anum sögufræga Hans Knappertsbusch þar sem hann stjórnar fyrsta þætti Valkyrjunnar. Tónlist Vinir Wagners með Wagner-bíó Richard Wagner MÁLFRÆÐINGURINN Rasmus Kristján Rask ferðað- ist um Ísland á árunum 1813- 15 og lagði stund á rannsóknir á íslensku máli. Eftir hann liggja bækur um íslenska mál- fræði og útgáfur íslenskra forntexta en einnig var hann meðal stofnenda Hins íslenska bókmenntafélags 1816. Ís- lenska málfræðifélagið boðar nú til 22. Rask-ráðstefnunnar í samvinnu við Mál- vísindastofnun Háskóla Íslands á laugardaginn kl. 9-16.30 í stofu HT-101 í Háskólatorgi Háskóla Ís- lands. Þar verða ellefu fyrirlestrar er varða ís- lenskt mál og almenna málfræði. Sjá nánar um dagskrá á www.imf.hi.is. Fræði Rask á rökstólum málfræðinga Rasmus Rask GÍTARLEIKARINN Hilmar Jensson og norski trommu- leikarinn Oyvind Skarbo halda tónleika á Gauki á Stöng í kvöld, og hefjast þeir kl. 21. Oyvind er ungur trommuleik- ari sem á undanförnum árum hefur skipað sér í flokk fremstu trommuleikara Nor- egs. Hilmar hefur um árabil verið einn afkastamesti tón- listarmaður Íslands, en hann hefur lítið komið fram á Íslandi á undanförnum árum. Þeir félagar hafa áður leikið saman, á hinni rómuðu Nattjazz tónlistarhátíð í Bergen, og fengu gríðarlegt lof fyrir þá framkomu. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. Tónlist Hilmar og Oyvind djassa á Gauknum Hilmar Jensson Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is TILKYNNT var um stofnun nýs tónlistarsjóðs í Þjóðminjasafninu í gær. Ber hann nafnið Kraumur og er sjálfstæður sjóður á vegum vel- gerðarsjóðsins Aurora sem var komið á fót snemma á síðasta ári af hjónunum Ingibjörgu Kristjáns- dóttur landslagsarkitekt og Ólafi Ólafssyni, stjórnarformanni Sam- skipa. Þórunn Sigurðardóttir, list- rænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík og stjórnarmaður í Au- rora, er stjórnarformaður Kraums og upphafsmaður verkefnisins. Með henni í stjórn eru tónlistarmaðurinn Pétur Grétarsson og Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Smekk- leysu. Framkvæmdastjóri Kraums er Eldar Ástþórsson, fram- kvæmdastjóri Hr. Örlygs. Kraumur er tilraunaverkefni til þriggja ára en samtals verður 50 milljónum króna veitt í sjóðinn á þessum þremur árum. Sjóðurinn mun hafa þann meginstarfa að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn með því að auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri. Markmiðið er að styrkja stöðu ungra tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, faglegri aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Sérstakt fagráð verður skipað sem hittist a.m.k. einu sinni á ári og unnt er að sækja um til- greind verkefni en einnig getur framkvæmdastjóri haft frumkvæði að samningum við listamenn. Gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um fyrstu styrkhafa innan tveggja mánaða frá stofnun Kraums. Að tryggja fólki laun „Það er alveg klárt að það kraum- ar mikið undir niðri í íslensku tón- listarlífi,“ segir Ingibjörg. „Hér er mikið af ungu hæfileikafólki sem er stútfullt af hugmyndum en oft vant- ar að brúa það bil sem felst í að stíga út úr bílskúrnum eða að stíga upp frá tölvunni. Og það nægir ekki að rétta fólkinu einfaldlega peninga, heldur þarf stundum að aðstoða það við ýmsa þætti. Sá þáttur í starfi Kraums, einhvers konar ráðgjöf og aðstoð, er það sem heillaði mig þeg- ar hugmyndin kom upp.“ Þórunn Sigurðardóttir segist hafa verið beðin um hugmyndir þegar hún tók sæti í stjórn Aurora og hafi þessi óðar skotið upp kolli. „Eftir að hafa kynnst aðstæðum listafólks, þá sérstaklega tónlist- arfólks, í gegnum starfa minn fannst mér að svona sjóður þyrfti eiginlega að verða að veruleika,“ segir hún. Vel var tekið í hugmynd- ina og sjóðurinn sé nú búinn að vera í smíðum í um eitt ár. „Það má segja að Eldar Ástþórsson sé nokk- urs konar listrænn stjórnandi,“ seg- ir Þórunn. „Við leggjum þetta í hendurnar á honum þó að við í stjórninni séum yfir um og í kring og sjáum um að móta ákveðna stefnu. Þá mun hann einnig njóta fulltingis fagráðsins. Við leggjum áherslu á að ná samstarfi við alla þá aðila sem hafa verið að vinna fyrir íslenskt tónlistarlíf; eins og útgáfu- fyrirtæki, aðra sjóði, Listaháskól- ann og fleira.“ Kraumur mun vinna þannig, að hver samningur verður skradd- arasniðinn að þeim listamanni sem á í hlut hverju sinni. „Þetta verður ekki þetta hefð- bundna eyðublaðaferli heldur verð- ur unnið mjög náið með þeim lista- mönnum sem styrki fá. Eldar verður þannig í góðu sambandi við viðkomandi aðila. Þetta snýst um að tryggja listamönnunum laun, svo þeir geti sinnt málum eins og tón- leikaferðalögum og öðru slíku ofan í sjálfa listsköpunina. Margir halda að úr því að listamenn eins og Mug- ison og Benni Hemm Hemm séu alltaf á ferð og flugi hljóti þeir að hafa mikið á milli handanna en því er iðulega þveröfugt farið. Oftast er það hreinn kostnaður fyrir lista- manninn að standa í slíku. Sjóðurinn mun þannig einbeita sér að því að styrkja innviðina hér á landi, enda óhætt að segja að ein sterkasta ímynd Íslands út á við sé þessi tón- listarlega gróska sem hér þrífst. Það stóð heldur ekki á fagráðs- fólkinu þegar til þess var leitað, sem sýnir að það vita allir hversu brýn þörfin er.“ Mikill akkur „Ég held að þessi sjóður eigi eftir að verða mikill akkur fyrir íslenskt tónlistarlíf,“ segir Eldar Ástþórs- son. „Verkefnið hefur þá sérstöðu að við hyggjumst fara í fá og af- mörkuð verkefni, og vinnum þá náið með þeim aðilum og þeim sam- starfsaðilum sem koma þar að. Það mætti því alveg eins kalla þetta ein- hvers konar tónlistarsmiðju eða tón- listarmiðstöð.“ Eldar segir sjóðinn þarfa viðbót, sérstaklega hvað varðar að vinna markvisst og myndarlega með þeim listamönnum sem styrktir verða, frekar en að þeim verði bara afhent fé og svo ekki söguna meir. „Ég hef orðið var við það í gegn- um mína vinnu síðustu ár að það er fullt af tækifærum sem koma upp vegna þeirrar miklu grósku sem í gangi er hér á landi,“ heldur Eldar áfram. „Því miður er það bæði kostnaðarsamt og í sumum tilfellum ógerlegt fyrir listamenn að nýta sér þau tækifæri sem við blasa. Og þar kemur Kraumur sterkur inn.“ Kraumur mun einbeita sér að fáum verkefnum sem verður fylgt rækilega eftir Öflugur tónlistarsjóður stofnaður TILKYNNT var um stofnun tónlistarsjóðsins Kraums á Þjóðminjasafninu í gær. Þórunn Sigurð- ardóttir, stjórnarformaður sjóðsins, gerði grein fyr- ir starfsemi sjóðsins og síðan flutti Eldar Ástþórs- son, framkvæmdastjóri hans, stutta tölu. Hljómsveitin Hjaltalín lék tónlist fyrir og eftir ræðu- höld og vel var veitt af mat og drykk. Margt áhrifa- manna úr íslensku menningar- og tónlistarlífi var í salnum, m.a. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra. Áhrifafólk úr menningarlífinu Árvakur/RAX FAGRÁÐ Kraums skipa þau Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður, Anna Hildur Hildibrandsdóttir framkvæmdastýra Útflutnings- skrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚT- ÓN), Árni Heimir Ingólfsson tón- listarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Árni Matthíasson blaða- maður á Morgunblaðinu, Mist Þor- kelsdóttir deildarforseti Tónlist- ardeildar Listaháskóla Íslands, Kjartan Sveinsson hljómborðsleik- ari Sigur Rósar og Sjón (Sigurjón Birgir Sigurðsson) rithöfundur. „Það sem mér líst best á er að þetta sé gert almennilega,“ segir Kjartan. „Það er, að fólk hafi ein- hverjar upphæðir til að spila úr, ekki að þetta séu einhverjir bit- lingar upp á fimmtíu þúsund kall sem dugar fyrir nokkrum gítar- snúrum.“ Kjartan fagnar því að boðið verði upp á aðstoð og tilsögn en mikilvægt sé að listamennirnir fái að haga því sjálfir hversu mikið þeir þiggi af henni. „Ég býst við að ég sé fenginn þarna inn til að miðla af einhvers konar reynslu, auk þess sem mað- ur hefur verið að gægjast inn í heim popps og klassíkur. Að mínu viti er nú hollt að ungsveitir taki út þroska og reynslu með einhverju harki en það horfir öðruvísi við fyrir lengra komna. Þá á þessi sjóður ábyggi- lega eftir að koma að góðu haldi. Nú þekkir maður nefnilega tónlistarmenn sem eiga langan feril að baki, hafa spilað mikið erlendis og hef- ur verið að ganga af- skaplega vel með sína tónlist. Bæði hvað varðar sjálfa listrænu vigtina en líka sýnileikann. Margir þessara tónlistarmanna eru samt í eilífu harki, og ná hreinlega ekki endum saman, þrátt fyrir að vinna dag sem dimma nátt að sköpun sinni og kynningu á henni. Að geta liðsinnt þessu fólki eitthvað er auðvitað bara af hinu góða.“ Björk Guðmundsdóttir Sjón Árni Matthíasson Anna Hildur Hildibrandsdóttir Árni Heimir Ingólfsson Mist Þorkelsdóttir „Gott að þetta sé gert almennilega“ Kjartan Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.