Morgunblaðið - 24.01.2008, Side 19

Morgunblaðið - 24.01.2008, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2008 19 MENNING ÞAÐ er eitthvað óvenjulega lifandi og ferskt við málverk Davíðs Arnar Halldórssonar sem nú sýnir í Gallerí Ágúst. Hann málar myndir á tré- plötur eða fundið efni og vinnur veggverk jafnt í anda hefðar og sam- tíma. Í myndum hans má sjá þætti sem minna á listamenn liðins tíma eins og Gustav Klimt, Klee eða Hundert- wasser og er þá átt við uppbyggingu á myndfleti og notkun skrautlegs mynsturs sem minnir jafnvel á handavinnu, heklaðar dúllur. Sjá má áhrif frá flúri barokk listar en slíkt var vinsælt meðal listamanna fyrir nokkrum árum. Lífrænir þættir minna á smásjármyndir af frumum eða myndir af líffærum. Landslags- myndir ástralskra frumbyggja koma líka upp í hugann og til að halda áfram með þá vísun þá má líkja vinnuaðferð Davíðs Arnar, þegar hann leitast við að draga á óbeinan hátt fram þætti í umhverfi okkar, allt frá tölvuleikjum og graffitiverk- um til sígildra málverka, við aðferð frumbyggjanna við að draga upp myndir af draumtímanum svokall- aða sem innfelur heimsmynd þeirra. Nú er ekki fréttnæmt að lista- menn innlimi á einhvern hátt graffit- ilist í verk sín, eða noti margvísleg efni á myndflötinn. Og hvað er svo sem hefðbundnara en málverk á vegg, ef út í það er farið, hvernig sem það er nú unnið, með tússi, stensli, klippimyndum eða einhverju enn öðru? Slíkar vinnuaðferðir eru ekki nýjar af nálinni og það má velta því fyrir sér hvort verkin skorti ein- hvern samtímalegan brodd. En það sem mestu skiptir er að Davíð tekst listilega að blása óvæntu lífi í hefð- bundið form, í myndum hans er að finna marglaga, persónulegan og áhugaverðan heim sem vísar til margra átta. Listamenn af eldri kynslóðinni nota stundum orðið bomba um eitt- hvað sem slær í gegn, segja að eitt- hvað sé eða hafi verið algjör bomba. Það má með sanni segja um vegg- verkið sem hér má sjá, sem er svo ferskt að það stekkur á mann. Nafn Davíðs Arnar liggur í loftinu nú um stundir og ég hlakka til að fylgjast með þróun verka hans á næstunni. Myndir úr draumtíma MYNDLIST Gallerí Ágúst Sýningin stendur til 23. febrúar. Opið miðvikudaga til laugardaga frá 12-17 og eftir samkomulagi. Absolut gamall kastale, málverk, Davíð Örn Halldórsson Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Valdís Thor Skrautlegt „Sjá má áhrif frá flúri barokk listar en slíkt var vinsælt meðal listamanna fyrir nokkrum árum,“ segir meðal annars í dómi. ELÍN Helena Evertsdóttir heitir ung listakona sem nýlega lauk framhaldsnámi í myndlist í Glas- gow og heldur nú fyrstu einkasýn- ingu sína eftir nám á efri hæð Startart-listamannahúss. Sýningin nefnist Pong og er hljóðskúlptúr. Uppistaða sýning- arinnar er hljóðið þegar borðtenn- iskúla er slegin. Sex hátalarar sjá um að flytja hljóðið á milli ólíkra staða í rýminu og er áhorfandinn staddur þar á milli. Sýningin er þá ósýnileg, hlutlægt séð, en óneit- anlega kalla hljóðin fram myndir í huganum og hreyfa athygli manns frá einum stað til annars, fylla þannig í rýmið. Að því leytinu snýst verkið um skynjun manns á líkama í rými, líkt og hlutföll í teikningu Leonardos da Vincis af Vitruvian-manninum, án hlutlægra forma. Þetta er vel útfært verk og til- raunin spennandi. En ég get ekki sagt að ég hafi upplifað sjálfan mig á risastóru borðtennisborði, eins og listakonan spyr í sýning- arskrá. Og satt að segja þótti mér spurningin dálítið ruglandi þar sem ég vænti þess í dágóðan tíma á meðan ég stóð í rýminu að hljóð- rásin færi að breytast í leik á milli tveggja keppenda, eins og venju- lega gerist á borðtennisborði (að einleik Forrests Gumps undan- skildum). Þess í stað færðist hljóð- ið eftir ritma sem á meira skylt við tónverk en ófyrirséðar fléttur sem kunna að gerast í leik. Sýnir það vissa fagurfræðilega afstöðu lista- konunnar en ég átta mig samt ekki alveg á hvort markmið henn- ar er að gestir upplifi sig í borð- tennisborði eða fylgi fallegum ritma í rými. Fyrir mitt leyti er það annaðhvort/eða. Ósýnileg hlutföll MYNDLIST Listamannahúsið Startart Opið þriðjudaga til laugardaga frá 13:00 til 17:00. Sýningu lýkur 6. febrúar. Aðgangur ókeypis. Elín Helena Evertsdóttir Jón B.K. Ransu GLATT var á hjalla í listamiðstöð Hafnfirðinga á nýárstónleikum Tríós Reykjavíkur á sunnudag með þátttöku tveggja þjóðsælla söngv- ara. Víða var slegið á það létta strengi að minnt gat á vel heppnað óperusprell ÍÓ sl. nóvember, enda hugmyndin e.t.v. þaðan fengin. S.s. eins konar „nýárssprell“ með glað- værri tónlist úr söngleikjum, þýzk- um óperettum og Vínarlögum frá hrunadansárum Habsborgaraveld- isins við ískrandi serpentínur, borðbombusmelli og fjúkandi kampavínstappa. Fín hugmynd í sjálfri sér – nema hvað hér naut ekki sömu leiktjalda og einkum sömu hnitmiðuðu leik- stjórnar er gerði gæfumuninn í Gamla bíói. Svo maður sleppi alveg þeim möguleika að sumir óperu- gesta hafi forbrynnt sér á nær- liggjandi veitingahúsum sem mið- bær Hafnarfjarðar flíkar ekki í sama mæli. Alltjent sá nú ekki á einum einasta hlustanda, og stemmningin því nær þeirri sem gerist á öllu „absólútari“ tónhelg- istundum Kammermúsíkklúbbsins. En hafi grínið ekki allt komizt jafnmarkvisst til skila og að var stefnt, þá var ánægja að mörgu. Mesta gleðihlassið dró Sigrún Hjálmtýsdóttir í oft glimrandi góð- um einsöngsatriðum og dúettum á móti Bergþóri Pálssyni, þó að söngtúlkun þeirra félaga, saman eða hvors í sínu lagi, verkaði stundum líkt og vandræðafull tví- stígandi milli gamans og alvöru í stað sannfærandi samtvinnunar hvors tveggja. Söngstíll Bergþórs kom að mínu viti fullgroddalega fyrir og saknaði maður iðulega jafnari og fínstilltari blæbrigða, auk þess sem hann átti stundum til að lafa ögn í tónstöðu. Miðað við yfirlýstan gleðskapartilgang var leikur TR oft frekar skaplaus, þó að einleikur Guðnýjar Guðmunds- dóttur, að vísu við heldur ófylginn samleik Peters Máté, skartaði pallíettuglitrandi bogfimi í Sígaunavísum Sarasates við mikinn fögnuð áheyrenda. Nýárssprell í Hafnarborg TÓNLIST Hafnarborg Óperettu-, söngleikja- og Vínartónlist. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Bergþór Pálsson barýton og Tríó Reykjavíkur. Sunnudaginn 20. janúar kl. 20. Kammertónleikarbbmnn Ríkarður Ö. Pálsson SÝNING Sigrid Valtingojer, „Ferð án endurkomu“ í Listamannahúsi Startart, er tileinkuð ferð listakon- unnar til Fyrirheitna landsins. Á þessum helgistað þrennra ólíkra trúarbragða, þ.e. kristni, íslam og gyðingdóms, er viðvarandi stríðs- ástand og þjóð haldið í fjötrum. Sigrid er þekkt fyrir grafíklist og í ætingum útfærir hún heiti borga í Ísrael og Palestínu í eigin stafagerð byggðri á tilfinningu fyrir borgum sem hún heimsótti. Þeim við hlið hanga lýsingar listakonunnar á ferð- inni í aðgengilegu lesmáli og á borð- inu liggja greinar fengnar af netinu sem sýningargestir geta lesið og fræðst um ástandið. Í fyrstu þótti mér myndirnar full- einfaldur og settlegur förunautur persónulegra lýsinganna og hrárra fréttalega upplýsinga netsins. Enda gripu lýsingarnar áhuga minn undir- eins. En þegar ég gáði betur leynd- ust líka tákn og teikningar á bak við borgarheitin sem höfðu skírskotun í textana og samhljómur skapaðist sem lyfti sýningunni á annað fagur- fræðilegt plan. Jafnframt reyndist hægfara ferli ætinganna ánægjuleg þverstæða við ofsahraða netsins og ofsaðningu upplýsinga sem þar er að finna. Að þessu leyti fetar Sigrid nýjar slóðir í list sinni, mér vitandi. Sýningin er rammpólitísk og upp- lýsandi, en jafnframt er þetta einlæg úrvinnsla einstaklings sem stendur ekki á sama. Letur og gaddavír „Sýningin er rammpólitísk og upplýsandi, en jafnframt er þetta einlæg úrvinnsla einstaklings sem stendur ekki á sama.“ Rammpólitísk einlægni MYNDLIST Listamannahúsið Startart Opið þriðjudaga til laugardaga frá 13-17. Sýningu lýkur 6. febrúar. Aðgangur ókeypis. Sigrid Valtingojer Jón B.K. Ransu FYRSTU tónleikar síðvetrar af sex í 15:15-röð Caputs frá 2002 buðu upp á fjóra klassíska kvart- etta í meðförum hins rúmlega árs- gamla Íslenzka saxófónkvartetts. Allir voru þeir frá 4. áratug síð- ustu aldar og venju fremur frum- samdir fyrir þessa þá nýju grein, er enn mun nokkuð háð umrit- unum á verkum fyrir aðra áhöfn, líkt og með brasskvintettinn er festist fyrst í sessi um miðja öld- ina. En ólíkt þeim síðartalda, er óx úr grasi vestan hafs, munu einkum Frakkar hafa tekið ást- fóstri við saxófónkvartettinn, eins og dagskráin bar líka með sér. Þrjú fyrstu verkin voru frönsk, og rússneska lokaverkið var samið fyrir nafntogaðan spilarahóp í París. Klassíska auknefningin er kannski heldur afstæð úr því tón- söguskeiðið þykir venjulega enda um 1900. En miðað við framsækið markmið 15:15-raðarinnar á hún vel við, einkum m.t.t. hins háróm- antíska Glazunovs. Né heldur voru frönsku verkin ýkja fram- úrstefnuleg og í mesta lagi lituð þeim impressjónisma er taka mætti öðrum þræði sem sér- franska útgáfu af síðrómantík. Hins vegar voru öll verk dagsins afar áheyrileg og oft gáskafull, ekki sízt í hrynrænu tilliti sem ÍS skilaði yfirleitt vel burtséð frá ein- staka stirðleikavotti og varla óvæntum miðað við ungan starfs- aldur. Tónstaðan var hins vegar óað- finnanleg og styrksamvægið sömu- leiðis. Helzt væri út í fettandi hvað hópnum gekk illa að komast öllu neðar í styrk en mp þegar það átti við, fyrir utan hvað stuttir áherzlutónar á efsta sviði vildu stundum verða eilítið skrækir eða allt að því eins og æst gæsaköll. Að vísu gæti þar sumpart verið við salarkynnin að sakast. Í jafn- litlu rými og í Norræna húsinu, þar sem spilarar eru nánast ofan í hlustendum, er lúðrasveit- arhljóðfærum óhjákvæmilega örð- ugra um styrkvik en ella, og sam- hljómurinn að sama skapi hranalegri en í hagstæðari ómvist. Allt um það lofaði þessi uppákoma góðu um framhaldsferilinn, enda bar heildarsvipur tónleikanna tví- mælalaust með sér að Íslenzki saxófónkvartettinn sé kominn til að vera. Ríkarður Ö. Pálsson Kominn til að vera TÓNLIST Norræna húsið Saxófónkvartettar eftir Pierné, Françaix, Rivier og Glazunov. Íslenzki saxófón- kvartettinn (Vigdís Klara Aradóttir S, Sigurður Flosason A, Peter Tompkins T og Guido Bäumer Bar.). Laugardaginn 19. janúar kl. 15:15. Kammertónleikarbbbmn Borgin er full af Vildarpunktum safnaðu þeim með því að setja fasteignagjöldin á VISA Þeir korthafar sem hafa áhuga á að greiða fasteignagjöld sín hjá Reykjavíkurborg með VISA Boðgreiðslum geta skráð sig í Rafrænni Reykjavík á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is, hringt í síma 4 11 11 11 og einnig er hægt að skrá fasteignagjöldin á www.valitor.is/visabod

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.