Morgunblaðið - 24.01.2008, Page 27
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2008 27
Það gerist fátt merkilegt í höf-
uðstað Norðurlands þessa daga.
Ekki einu sinni skipt um meirihluta í
bæjarstjórn; hér hefur sami meiri-
hlutinn setið við völd allt frá kosn-
ingunum 2006. Er það ekki dálítið
gamaldags?
Þess verður að vísu að geta að borg-
arstjórar á Akureyri verða að
minnsta kosti þrír á kjörtímabilinu;
Kristján Þór byrjaði en fór svo á
þing, Sigrún Björk er í embætti
núna og Hermann Jón Tómasson
tekur við á næsta ári. Þetta er allt í
áttina. Og rétt að taka fram að orðið
borgarstjóri var ekki notað fyrir
mistök í annarri línu þessarar
klausu. Akureyri er auðvitað borg.
Ástæða er til að vekja athygli á
fundi um Palestínudeiluna sem Sam-
tök hernaðarandstæðinga standa
fyrir í Gamla Húsmæðraskólanum
við Þórunnarstræti á laugardaginn
kl. 14. Sveinn Rúnar Hauksson
læknir og formaður Félagsins Ís-
land-Palestína sýnir þar myndir og
flytur ræðu undir yfirskriftinni Ætl-
ar Bush að sjá um málið?
Hljómsveitin KA-bandið kom saman
í annað skipti á 80 ára afmælisfagn-
aði Knattspyrnufélags Akureyrar á
dögunum, og sló í gegn. Trommu-
leikari sveitarinnar er blakkempan
Hannes Karlsson, formaður Akur-
eyrar – handboltafélags, en félagar
hans í bandinu eru bræður; Árni Jó-
hannsson formaður KA leikur á
bassa, Stefán Jóhannsson á gítar og
hljómborðsleikari er Eiríkur Jó-
hannsson, fyrrverandi forstjóri
KEA.
Friðrik fimmti og hans fólk á sam-
nefndum veitingastað mætir til
starfa á ný á morgun eftir hefð-
bundið frí meirihluta janúarmán-
aðar. Þetta er sannkallaður fjöl-
skylduveitingastaður og nú bætist
gamall vinur í hópinn; Sigmar Örn
Ingólfsson, sem verður yfirþjónn, en
hann hefur undanfarið verið kennd-
ur við Hótel Holt.
Sigmundur þessi, kallaður Simmi,
„er héðan að norðan og var hann
æskuvinur og bekkjarbróðir Öddu
auk þess sem við Friðrik, Adda og
hann vorum saman á matvælabraut
Verkmenntaskólanns árin 1987-
1988,“ segir í pósti frá veitinga-
staðnum. Adda er Arnrún Magn-
úsdóttir, eiginkona Friðriks V.
Hannes Sigurðsson, forstöðumaður
Listasafnsins á Akureyri, bauð gesti
velkomna á óvenjulegan hátt þeg-
ar sýningin Búdda er á Akureyri
var opnuð í safninu á laugardaginn
var. Í stað þess að halda ræðu stóð
Hannes kyrr og þagði í þrjár mín-
útur. Og flestir aðrir þögðu líka,
Hannesi til samlætis.
Það vakti athygli að þegar Hannes
hóf þögnina í Listasafninu kraup
þar maður við kertaljós og reyk-
elsi og íhugaði. Ég tók ekki tímann
en var sagt að hann hefði verið
þarna grafkyrr í 45 mínútur við
íhugun. Sumir héldu að þarna
hefði verið sett upp stytta, en svo
var ekki. En það verður að segjast
eins og er að maðurinn lét ekki
trufla sig og hreyfðist ekki allan
tímann.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Alvöru maður? Ekki voru allir vissir um það hvort maðurinn sem íhugaði
langa stund í Listasafninu á Akureyri á laugardag væri maður eða stytta.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Túnfiskur með chili og
hvítlauk
Ora hefur
sett á markað
túnfisk í
þremur
bragðteg-
undum – í
vatni, í sætri
chilisósu og
með ólífuolíu, hvítlauk og sólþurrk-
uðum tómötum. Túnfiskurinn er í
nýjum og handhægum lofttæmdum
umbúðum í 120 g bréfi. Á bakhlið
hverrar pakkningar má finna fram-
reiðsluhugmyndir og gómsætar upp-
skriftir sem ættu að henta flestum.
Auk þess er túnfiskur hollur, fitulít-
ill og hentar vel í marga létta rétti.
Hollusta frá Ávaxtabílnum
Kaupás og Ávaxtabíllinn gerðu
nýlega samning um sölu á holl-
ustuvörum Ávaxtabílsins í versl-
unum Nóatúns og 11-11. Er samn-
ingurinn í anda stefnu Kaupáss um
að auka framboð af hollum kosti í
verslunum sínum. Meðal þess sem
boðið er upp á eru glös með ávaxta-
salati eða melónubitum auk græn-
metissnakks í glasi með ídýfu. Einn-
ig má finna heilhveitilanglokur með
túnfiski og rækjum og vitaskuld án
majóness, sem og þrjár tegundir
heilhveitipastarétta og ávaxtaskyr-
drykki sem gerðir eru úr hreinu
skyri og ávöxtum.
nýtt
Njóttu dagsins
- taktu flugið
Aðeins nokkur skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem
þú finnur ódýrustu fargjöldin og að
auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið
og smelltu þér á flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
4
06
35
0
1/
08
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
REYKJAVÍK