Morgunblaðið - 24.01.2008, Síða 43

Morgunblaðið - 24.01.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2008 43 Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is LÁTÍÐ í bæ er yfirskrift á tónleika- veislu sem fer fram á skemmtistaðn- um Sirkus við Klapparstíg um kom- andi helgi. Þá ætla íslenskir tónlistarmenn að rísa upp og mót- mæla þeirri þróun sem á sér stað í miðbæ Reykjavíkur með tónleikum gegn niðurrifi húsa í miðbænum. Vilja þeir koma þeim skilaboðum til borgaryfirvalda og verktaka að þeir verndi og viðhaldi húseignum í stað þess að rífa þær niður. Í tilkynningu frá tónleikahöld- urum segir að Sirkus og reyndar all- ur sá reitur sem húsnæði barsins stendur á tákngeri vel þá „allsherj- artiltekt“ sem fara á fram í mið- bænum þar sem sérstöðu miðbæj- arins og fjölskrúðugu mannlífi hans er fórnað en í staðinn reynt að líkja betur eftir verslunarkjörnum út- hverfanna. Með því að skera á þessa slagæð í hjarta Reykjavíkur er því styrkur miðbæjarins í að fá að vaxa og dafna á eigin forsendum gjör- samlega hunsaður. „Hugmyndin að þessari tónleika- veislu kviknaði eiginlega eftir fund Torfusamtakanna á Boston í desem- ber. Þá ákváðum við, nokkrir skap- andi einstaklingar sem dvelja mikið í miðbænum, að gera eitthvað í mál- unum í staðinn fyrir að tala enda- laust um þau. Við viljum vekja at- hygli á vandanum og ná árangri og athygli borgaryfirvalda,“ segir Egill Tómasson einn þeirra sem standa að Látíð í bæ. Langur listi listamanna Egill segir að allir þeir tónlist- armenn sem þau höfðu samband við hafi tekið afskaplega vel í hugmynd- ina og endilega viljað vera með. Ekki hafi samt allir haft tök á því að koma fram á Sirkus um helgina en endi- lega viljað leggja nafn sitt við mál- staðinn. „Flestir á listanum koma fram en nokkrir, eins og Sigur Rós, styðja okkur og leggja nafn sitt við þessi mótmæli en spila ekki á tónleik- unum.“ Sama er upp á teningnum með Botnleðju, Egill telur ekki lík- legt að hún komi fram enda þónokk- ur ár síðan bandið hætti, hann segir samt aldrei að vita. Þeir listamenn sem taka þátt í tónlistarhátíðinni Látíð í bæ á einn eða annan hátt eru: 1985!, Amiina, Ampop, Barði Jóhannsson, Berglind Ágústsdsóttir, Bob Justman, Benni Hemm Hemm, Bloodgroup, Bogo- mil Font, Borkó, Botnleðja, Cocktail Vomit, Curver, Dr. Gunni, Flís, Gho- stigital, Gusgus DJ-set, Hjaltalín, Hjálmar, Hudson Wayne, Jagúar, Jakóbínarína, Jan Mayen, Kira Kira, K.K., Megas, Motion Boys, Mr. Silla & Mongoose, Mugison, Music Zoo, múm, My Summer as a Salvation Soldier, Orgelkvartettinn Ananas, Páll Óskar, Pétur Ben, Rass, Trabant Experience, Retro Stefson, Reykjavík!, Seabear, Singa- pore Sling, Sigur Rós, Skátar, Skak- kamanage, Slowblow, Sometime, Sprengjuhöllin, Valgeir Sigurðsson, XXX Rotweiler, Æla og Ölvis. Síkvikt tónlistarlíf Látíð í bæ hefst um kl. 17 á morg- un á Sirkus og stendur alla helgina fram á sunnudagskvöld. Egill segir að það verði engin skipulögð dag- skrá heldur taki bara hver tónlist- armaðurinn við af öðrum. „Hug- myndin er að fólk getir komið við á Sirkus á rölti sínu um miðbæinn, hlustað á góða tónlist, og þannig sýnt málstaðnum stuðning.“ Skemmtistaðnum Sirkus verður lokað um næstu mánaðamót og er í hyggju að rífa húsnæðið. Þeir tón- listarmenn sem taka þátt á Látíðinni og leggja nafn sitt við verkefnið hafa reglulega leikið eða lagt leið sína á Sirkus og bera þannig vitni því sí- kvika tónlistarlífi sem fram hefur farið á staðnum. Egill segir að þó að tónleikarnir séu haldnir á Sirkus og eigi vissulega að vekja athygli á nið- urrifi hússins séu þetta baráttu- tónleikar gegn öllu niðurrifi í mið- bænum. „Það er sál í 101 en ef fram fer sem horfir verður hún ekki leng- ur til staðar. Það eiga engir gler- kassar heima þar.“ Það er sál í 101 Látíð í bæ á Sirkus um helgina Árvakur/Ásdís Mótmæla Botnleðja hætti fyrir nokkrum árum en bandið leggur nafn sitt við tónlistarhátíðina Látíð í bæ þó litlar líkur séu á að það komi fram. Árvakur/ÞÖK Vinsælt Oft hefur verið stappað í Sirkusportinu þegar hljómsveitir troða þar upp á sumrin, gestum og gangandi til mikillar gleði og ánægju. Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum EITT STÓRFENGLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. SÝND Í SMÁRABÍÓI í Háskólabíói 11. - 24. Janúar EITT STÓRFENGLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. Sýnd kl. 6, 8 og 10 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Sýnd kl. 6 m/ísl. tali NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST! Sýnd kl. 8 og 10 HILMIR SNÆR GUÐNASON MARGRÉT VILHJÁLMSDÓTTIR LAUFEY ELÍASDÓTTIR JÓHANN SIGURÐARSON ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR ÞRÖSTUR LEÓ GUNNARSSON ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON ÓLAFUR EGILL EGILSSON ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR Nú mætast þau aftur! Tvö hættulegustu skrímsli kvikmyndasögunnar í tvöfalt betri mynd! Missið ekki af einum flottasta spennutrylli ársins!! -bara lúxus Sími 553 2075 MÖGNUÐ SPENNUMYND EFTIR FRÁBÆRRI SÖGU STEPHEN KING ÓTTINN BREYTIR ÖLLU! “... trúlega besta Stephen King mynd í tæpan áratug.” T.V. - Kvikmyndir.is MISTRIÐ FRÁ FRANK DARABONT, HANDRITSHÖFUNDI OG LEIKSTJÓRA „THE GREEN MILE“ OG „THE SHAWSHANK REDEMPTION“ MÖGNUÐ SPENNUMYND EFTIR FRÁBÆRRI SÖGU STEPHEN KING ÓTTINN BREYTIR ÖLLU! “... trúlega besta Stephen King mynd í tæpan áratug.” T.V. - Kvikmyndir.is MISTRIÐ FRÁ FRANK DARABONT, HANDRITSHÖFUNDI OG LEIKSTJÓRA „THE GREEN MILE“ OG „THE SHAWSHANK REDEMPTION“ Sýnd kl. 5 FRÁBÆR NÝ GAMANMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK! LANDSLIÐ LEIKARA FER Á KOSTUM Í MYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF! Besta íslenska fíl-gúdd myndin fyrr og síðar “ - .ss , X-ið FM 9.77 eeee Frábær mynd. Hún er falleg, sár og fyndin. Allt gekk upp, leikur, leikmynd, saga, hljóð, mynd og allt sem þarf til að gera fína bíómynd. -S.M.E., Mannlíf eeeee Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó www.laugarasbio.is Sýnd kl. 10 Allar myndir eru með enskum texta Dagskrá og miðasala á midi.is Allt um myndirnar á graenaljosid.is og af.is “Brúðguminn er skemmtileg mynd sem lætur áhorfendur hljæja og líða vel“ - G. H., FBL eeee SÍÐASTI SÝNINGARDAGUR! PERSEPOLIS eeeee - H.J. MBL MOLIÈRE 2 DAGAR Í PARÍS Brúðguminn kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára The Nanny diaries kl. 8 - 10:20 Duggholufólkið kl. 6 B.i. 7 ára Atonement FORSÝNING kl. 8 B.i. 7 ára Viðskiptavinir, sem greiða með korti frá SPRON, fá 20% afslátt af miðaverði á myndina SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI FORSÝNING Í HÁSKÓLABÍÓI 2 dagar í París kl. 6 - 10:20 Hell kl. 10:40 Persepolis kl. 6 Moliére kl. 8 HELVÍTI Stærsta kvikmyndahús landsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.