Morgunblaðið - 24.01.2008, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.01.2008, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2008 45 Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „FÆ ég ekki opnu í Morgunblaðinu?“ segir André Bachmann þegar blaða- maður hefur samband við hann út af plötu sem hann gaf út 22. desember sl. Blaðamaður segist efast um það en áttar sig um leið á að André er að grínast, enda þekktur fyrir ljúfa lund og hjartahlýju. Gott dæmi um það er árleg jóla- skemmtun fyrir fatlaða sem hann hef- ur staðið fyrir í 21 ár, með stuðningi Happdrættis Háskóla Íslands og SPRON styrkti André einnig með plötukaupum. Auk þess hefur André gefið út plötur fyrir Sjálfsbjörg, Styrktarfélag Barnaspítala Hringsins og Styrktarfélag vangefinna, með þeim Þorgeiri Ástvaldssyni og Árna Scheving. Um 800 mættu á jóla- skemmtunina í fyrra og fengu plötuna gefins. Platan ber titilinn Með kærri kveðju. „Þessi diskur er búinn að vera tvö ár í vinnslu og undirbúinn af Árna Scheving o.fl. Þetta eru minningar fyrir mig og fleiri,“ segir André. Lögin á disknum eru ábreiður svo- kallaðar, cover-lög, sem André hefur dálæti á. Með honum á plötunni eru Árni heitinn Scheving á bassa, Einar Valur Scheving sá um slagverk, Kjartan Valdimarsson lék á píanó og hljómborð, Sigurgeir Sigmundsson á gítar og Sigurður Flosason á saxófón og þverflautu. André syngur og upp- tökustjóri var Birgir J. Birgisson. André segir diskinn rómantískan með rauðvíns- og koníaksstemningu. „Og konfekt. Eyrnakonfekt,“ segir André og hlær. „Það vantar svona á markaðinn, svona ballöðumúsík – lyftutónlist,“ segir André og hlær aft- ur innilega. Meðal laga eru „Dagný“, „Án þín“, „Ný fyrirheit“ og „Mamma“. Íslensk og erlend í bland. Texti eins lagsins, „Brostu“, var sam- inn af Þorsteini Eggertssyni með André í huga. „Ég er alveg afskaplega sáttur og rosalega ánægður með þetta,“ segir André um plötuna, hljóðfæraleik- urinn sé alveg frábær sem og útsetn- ingarnar. „Ég er nú ekki alltaf með þetta á fóninum,“ bætir André við, það væri líka undarlegt ef söngvari væri alltaf að hlusta á sjálfan sig. Elvis, Bowie, Bachmann André segir plötuna hafa fengið góðar viðtökur, um 4.000 eintök seld og það þrátt fyrir að diskurinn hafi komið til landsins 22. des. Á sama degi lést góðvinur André, Árni Schev- ing. André segir andlát hans hafa verið mikið áfall. Árni hafi sagt hon- um fyrr í mánuðinum, eftir að hafa hlustað á master-útgáfu af plötunni, að hún „grúvaði svakalega flott“, hann væri stoltur af André. André hefur verið í tónlistarbrans- anum í 34 ár, deilir afmælisdegi með Elvis heitnum Presley og David Bo- wie, 8. janúar. „Elvis, Bowie og Bach- mann,“ undirstrikar André stoltur enda ekki amalegur hópur að til- heyra. André þakkar eiginkonu sinni að hann sé jákvæður og léttur í lund, þrátt fyrir að hafa barist við veikindi undanfarin ár. „Það eru forréttindi í lífinu að vera elskaður og fá að elska,“ segir André, gaman að fara í vinnuna og gaman að fara heim. Óskandi að allir hefðu þetta viðhorf til lífsins. Með kærri kveðju er til sölu á Olís- stöðvum um allt land. Rómantísk rauð- vínsstemning Árvakur/Frikki André Eldhress með plötuna sína í bensínstöð Olís í Garðabæ, þar sem hann vinnur meðfram tónlistinni. Rómantískar ballöður með kærri kveðju. BANDARÍSKA leikkonan Mary- Kate Olsen er komin með nýjan mann upp á arminn, en sá heppni heitir Nate Lowman og er 29 ára gamall listamaður, búsettur í New York. Sést hefur til þeirra saman á fjölmörgum næturklúbbum í borg- inni. Vinir leikkonunnar, sem sjálf er 21 árs, segja að þau séu mjög ást- fangin. Mary-Kate hefur verið á lausu að mestu frá árinu 2005 þegar hún hætti með hótelerfingjanum Stavros Niarchos, sem síðan þá hef- ur verið kenndur við Paris Hilton. Reuters Mary-Kate með nýjan Þorskur á Íslandsmiðum Ráðstefna Hafrannsóknastofnunarinnar um rannsóknir á þorski á Íslandsmiðum, 25. og 26. janúar á Hótel LOFTLEIÐUM Dagskrá: Föstudagur 25. janúar 2008 9 10 Setning ráðstefnunnar Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 9 25 Gestafyrirlestur Ghislain A. Chouinard, Kanada 10 40 Þorskur og umhverfi Fundarstj. Sólveig Ólafsdóttir, Hafrannsóknastofnunin 11 40 Lifnaðarhættir Fundarstj. Hafsteinn Guðfinnsson, Hafrannsóknastofnunin 15 10 Aðgreining stofna og stofnerfðafræði Fundarstj. Þorsteinn Sigurðsson, Hafrannsóknastofnunin 16 10 Saga þorskstofnsins Fundarstj. Þorsteinn Sigurðsson, Hafrannsóknastofnunin Laugardagur 26. janúar 2008 9 30 Aldur, vöxtur og kynþroski Fundarstj. Sigurður Snorrason, Háskóli Íslands 11 30 Stofnmat Fundarstj. Guðni Guðbergsson, Veiðimálastofnun 15 00 Samantekt um niðurstöður ráðstefnunnar Keith Brander, Danmörk 15 45 Léttar veitingar Ráðstefnustjóri; Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar Skráning þátttöku á hafro@hafro.is (merkið póstinn ÞORSKRÁÐSTEFNA) eða í síma 5752000. Nánari upplýsingar er að finna á hafro.is/radstefna. Hafrannsóknastofnunin VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Í DESEMBER Í USA. eeee „...FYRIR ALLA ÞÁ SEM ÁNÆGJU HAFA AF GÓÐRI SPENNU“ „...EIN BESTA AFÞREYING ÁRSINS.“ -S.V. MBL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI THE GAME PLAN kl. 8 - 10 LEYFÐ NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 B.i.12 ára I AM LEGEND kl. 10:20 B.i.14 ára BRÚÐGUMINN kl.8 - 10:10 B.i. 7 ára SIDNEY WHITE kl. 8 LEYFÐ NATIONAL TREASURE 2 kl. 10:10 B.i. 12 ára SÝND Í ÁLFABAKKA „Óskarsakademían mun standa á öndinni... toppmynd í alla staði.“ Dóri DNA - DV eeee „American gangster er vönduð og tilþrifamikil“ - S.V., MBL eeee ,,Virkilega vönduð glæpamynd í anda þeirra sígildu.” - LIB, TOPP5.IS Síðustu sýningar SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI eeee „...EIN SKEMMTILEGASTA GAMANMYND SEM ÉG HEF SÉÐ Í LANGAN TÍMA...“ „...HENTAR FÓLKI Á ÖLLUM ALDRI - FRÁBÆR SKEMMTUN!“ HULDA G. GEIRSDÓTTIR – RÚV/RÁS2 Leiðinlegu skólastelpurnar -sæta stelpan og 7 lúðar!SÝND Á SELFOSSI ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA ÚR BÝFLUGNABÚINU Í BULLANDI VANDRÆÐI / SELFOSSI BRÚÐGUMINN kl. 8 - 10 B.i.7 ára THE GAME PLAN kl. 8 - 10:20 LEYFÐ / KEFLAVÍK/ AKUREYRI eee "VEL SPUNNINN FARSI" "...HIN BESTA SKEMMTUN." HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.