Morgunblaðið - 14.02.2008, Side 4

Morgunblaðið - 14.02.2008, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UPPLÝST verður um hádegi í dag um efnisatriði sameiginlegs útgangspunkts aðila fyrir kjaravið- ræður Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Sam- taka atvinnulífsins (SA) sem samkomulag náðist um í gærkvöldi. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, kvaðst vera ánægð með gang viðræðna í gær og bjartsýn á framhaldið. „Við náðum sameiginleg- um útgangspunkti við atvinnurekendur og getum unnið út frá honum,“ sagði Ingibjörg. Hún kvaðst ekki geta greint frá efnisatriðum en reiknaði með að það yrði gert í hádeginu í dag. Ingibjörg sagði að eftir væri að kynna málið í baklandi samnings- aðila og fyrr en það hefði verið gert væri ekki hægt að greina nánar frá því. Mikil fundahöld hafa verið ákveðin í dag og munu m.a. forystumenn sambanda innan ASÍ hitta fulltrúa SA. Ingibjörg sagði ýmislegt eftir áður en samningar tækjust en það væri mikilvægt að sameiginlegur útgangspunktur fyrir áfram- haldandi viðræður væri fundinn. „Þetta gengur áfram en ekki aftur á bak,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og taldi að málin yrðu mikið farin að skýrast um hádegið í dag. Mikil fundahöld voru í kjaraviðræðunum í gær, bæði á formlegum og óformlegum fundum sem haldnir voru í hús- næði ríkissáttasemjara og víðar. Rætt var um sameiginlegar kröfur, launaramma og ýmis sér- mál. Samningsaðilar öfluðu m.a. nýrra upplýsinga frá Hagstofunni og reiknuðu út þýðingu þeirra til- lagna sem ræddar voru við samningaborðið. Tals- verður ágreiningur var um heildarkostnað við þær launabreytingar sem ræddar voru á grund- velli tilboðs Samtaka atvinnulífsins. Framkvæmdastjórn SA kom saman til fundar fyrir hádegi í gær og eftir hádegi áttu formenn landssambanda og stærstu félaga ASÍ fund með SA, m.a. um sameiginleg mál sem reynt er að ganga frá samhliða viðræðum um launaliði samn- inga. Engar nýjar upplýsingar höfðu borist frá stjórnvöldum til samningsaðila um hvað þau væru tilbúin að gera til að greiða fyrir gerð samninga en verkalýðsforystan reiknar með að hún muni óska eftir fundi með ráðherrum þegar ljóst verð- ur hvort líklegt sé að kjarasamningar náist. Flestir forystumenn sem rætt var við í gær sögðu óvarlegt að ætla að hægt yrði að ljúka samningum fyrr en í fyrsta lagi um eða upp úr næstu helgi. Hafa fundið sameigin- legan útgangspunkt Árvakur/RAX Kjaraviðræður Mikil fundahöld voru um kjara- samninga í gær, bæði hjá ríkissáttasemjara og víðar, og verður þeim haldið áfram í dag. ASÍ og SA kynna sameiginlegan viðræðugrundvöll í dag Í ótíðinni undanfarið hefur mikið mætt á starfsmönnum Reykjavík- urborgar og verktökum sem vinna MÖRGUM hefur orðið fótaskortur á svellinu undanfarna daga, enda víða flughált á gangstéttum, göngustígum, bílastæðum og víðar þar sem gangandi fólk er á ferli. Undanfarna daga hafa nokkrir leitað á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hafa beinbrotnað í hálkuslysi og enn fleiri hafa marist, tognað og meitt sig með öðrum hætti, að sögn læknis á slysadeild- inni. Ástandið sé hvorki betra né verra en áður í svipuðu árferði. Í gær var sandi dreift á gang- stéttir höfuðborgarinnar á alls 13 litlum traktorum. Sigurður Geirs- son, yfirverkstjóri hjá framkvæmdasviði Reykjavík- urborgar, telur að alls hafi verið notuð um 60-70 tonn af sandi til verksins. „Þetta er óhemju magn,“ sagði hann en magnið sem dreift var í gær jafngildir því sem kemst í tvo fulllestaða tengivagna. við að skafa snjó af gönguleiðum, ekki síður en þeim sem moka götur. „Við höfum verið að fara af stað klukkan fjögur á nóttinni nánast óslitið frá því í byrjun janúar,“ sagði Sigurður. Árvakur/RAX 60-70 tonn af sandi á gönguleiðir Á hverjum degi brotna nokkrir í hálkuslysum á höfuðborgarsvæðinu Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ALLT síðastliðið ár og það sem af er þessu ári hefur ekki verið óalgengt að eigendur bíla hafi þurft að bíða í tvær til fimm vikur eftir því að koma bílum sínum inn á réttinga- og sprautu- verkstæði, að sögn Özurar Lárussonar, fram- kvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. „Það hefur bara verið brjálað að gera, þrátt fyrir að menn hafa verið að bæta þjónustuna hjá sér og stækka verkstæðin,“ segir hann. Skýringin á örtröðinni á verkstæðunum er margþætt. Bílafloti landsmanna hefur stækk- að mjög auk þess sem bílar eru nýrri og af dýr- ari gerðum en áður. Menn sætta sig því e.t.v. verr við smárispur og dældir. Ekki tekist að fá fram hækkanir Þrátt fyrir að eftirspurnin eftir viðgerðum hafi verið meiri en framboðið, hefur verð á út- seldum tíma á verkstæði ekki hækkað umfram hækkun á vísitölu neysluverðs, að sögn Öz- urar. Raunar hái það greininni að verkstæð- iseigendum hafi ekki tekist að knýja fram þær hækkanir sem þeir þurfi á að halda. Þetta eigi fyrst og fremst við um viðskipti verkstæðanna við tryggingafélögin. Özur segir að eftir því sem hann viti best hafi enginn verkstæðiseigandi hækkað verð- skrána umfram almennar verðlagshækkanir í landinu að undanförnu. Mönnum beri saman um að þeir hafi hreinlega ekki haft tíma til að sinna þessum málum, hvorki til að þrýsta á tryggingafélög til að geta hækkað taxtann né til að ná fram lækkun á varahlutum frá inn- flytjendunum. „Það er svo ásett plássið og mikil vinna. Þeir sem eiga og reka þessi verk- stæði eru sjálfir úti á gólfi og hafa minni tíma í bókhaldsvinnuna,“ segir hann. Hætta eða eru keyptir Özur segir borðleggjandi að hækka þurfi verð á verkstæðisvinnu, um það vitni m.a. sú þróun að mörg verkstæði hafi lagt upp laupana eða verið keypt af öðrum. Á síðastliðnu ári hafi a.m.k. fimm verkstæði hætt rekstri, tveimur þeirra hafi einfaldlega verið lokað en í hinum tilfellunum voru verkstæðin keypt og sam- einuð öðrum stærri. „Það er dálítið um það að smærri verkstæðin eru að detta út. Þetta eru að verða stærri einingar og þá er það yfirleitt þannig að það eru bílaumboðin sjálf sem eru að stækka við sig,“ segir hann. Toyota hafi t.d. nýlega keypt stórt verkstæði og fjárfestinga- félag sem tengt er Sjóvá hafi keypt um þriðj- ungshlut í Bílstjörnunni sem einnig er stórt verkstæði. Annar þriðjungur í Bílstjörnunni hafi verið keyptur af félagi sem tengist N1 og þriðjungur sé í eigu sömu aðila og fyrr. Flóknari og dýrari búnaður Einn þeirra þátta sem stuðla að sameiningu verkstæða er aukinn og flóknari tæknibúnaður í bílum sem gerir það að verkum að til þess að gera við bílana þarf vel þjálfaða bifvélavirkja og dýran og sérhæfðan tækjabúnað. Kaup á slíkum búnaði eru mörgum ofviða. „Þessi smærri verkstæði hafa ekki veltu sem stendur undir þessum kostnaði. Þannig að það er ein- sýnt hvað þeir þurfa að gera,“ segir Özur Lár- usson. Mörg smærri verkstæði hafa hætt eða bifreiðaumboð og tryggingafélög hafa keypt þau Langar biðraðir á bifreiðaverkstæði Árvakur/Júlíus Klessa Mikið er að gera á bifreiðaverk- stæðum og 2-5 vikna biðtími er algengur. SKIPULAGÐRI leit að bandarísku flugvélinni, sem hvarf af ratsjá þeg- ar hún var um 50 sjómílur vestur af Keflavík á mánudag, var hætt í gær. Flugmaðurinn er talinn af þótt ekki hafi verið gefin út formleg til- kynning þess efnis. Í tilkynningu frá Landhelgis- gæslunni kemur fram að leitað hafi verið á öllu því svæði sem gera má ráð fyrir að björgunarbátur flugvél- arinnar fyndist á, miðað við veður og sjólag. Eftirgrennslan heldur áfram og hefur tilmælum verið beint til skipa og báta, sem eiga leið um svæðið, að skipverjar litist gaumgæfilega um eftir hverju því sem gæti gefið vísbendingar um afdrif flugmanns- ins. Skipulagðri leit hætt MARKÚS Örn Antonsson verð- ur forstöðumað- ur Þjóðmenning- arhúss frá og með 1. septem- ber næstkom- andi. Forsætis- ráðherra hefur veitt Guðríði Sigurðardóttur lausn frá emb- ætti forstöðumanns Þjóðmenning- arhússins frá 1. maí nk. að eigin ósk og flutt Markús Örn úr starfi sendiherra í Kanada með sam- þykki utanríkisráðuneytisins og skipað hann í embættið. Guðrún Garðarsdóttir, skrif- stofustjóri og staðgengill forstöðu- manns Þjóðmenningarhúss, mun gegna forstöðumannsstarfinu til 1. september nk. Markús Örn hefur verið sendi- herra Íslands í Kanada frá 1. sept- ember 2005. Hann á fjölbreyttan starfsferil að baki og var m.a. út- varpsstjóri Ríkisútvarpsins 1985- 1991 og 1998-2005, borgarstjóri í Reykjavík 1991-1994, borgar- fulltrúi í Reykjavík 1970-1985, rit- stjóri tímaritsins Frjálsrar verzl- unar og fleiri tímarita hjá útgáfufélaginu Frjálsu framtaki hf. 1972-1983 og fréttamaður og dagskrárgerðarmaður við Sjón- varpið í árdaga þess. Nýr for- stöðumaður Þjóðmenn- ingarhúss Markús Örn Antonsson ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.