Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is RAGNAR Sverrisson, kaupmaður á Akureyri, hefur yfirleitt í nógu að snúast. Síðustu tvær og hálfa viku hefur hann þó haft óvenju hægt um sig en það kom ekki til af góðu: Við lok fjallgöngu rann hann á svelli og skall svo harkalega á bakið að bein neðarlega í hryggn- um brotnaði. Hann var rúmfastur fyrstu vik- una og hefur verið heima við síðan, en nýtti tímann vel; skipulagði ýmsar fjallgöngur í sumar! Ragnar, sem hugðist mæta aftur í vinnuna síðdegis í gær, á og rekur Herradeild JMJ og er formaður Kaupmannafélags Akureyrar. Hann er með munninn fyrir neðan nefið, eins og sagt er. „Strákarnir sögðu að það hefði orð- ið mér til lífs að ég kinnbeinsbrotnaði ekki og gæti því talað,“ sagði hann skælbrosandi og skellihlæjandi í gær. „Strákarnir“ eru sam- starfsmennirnir í versluninni. Þeir Ragnar voru að koma ofan úr Krossa- fjalli sunnan Dalvíkur sunnudaginn 27. janúar. „Við vorum komnir niður brattann og vorum rétt búnir að taka af okkur mannbroddana þegar ég steinlá,“ sagði Ragnar þegar blaða- maður spurði um óhappið. „Ég lá stífur í rúm- inu fyrstu vikuna, gat ekki einu sinni farið á klósettið. En nú er þetta allt að koma. Þegar maður sagðist hafa brotið bein í hryggnum varð fólki mjög illt við, en þetta er ekkert al- varlegt.“ Ragnar fékk fjallgöngubakteríuna fyrir nokkrum árum – á gamals aldri. „Ég var 54 ára, hafði lengt haft áhuga á þessu en byrjaði loksins og þá varð ekki aftur snúið. Ég er stundum talinn dálítið aktívur!“ Hann fer á fjöll flesta sunnudaga ásamt fleira fólki og hefur gaman af, og sem betur fer hefur aldrei neinn slasast fyrr en nú. „Það má segja að þegar maður klífur fjöll, er með ísaxir og mannbrodda geti það verið hættulegt og þess vegna passar fólk sig mjög vel. En þarna var ég nánast kominn niður á jafnsléttu og orð- inn of kærulaus.“ Ragnar hefur haft nóg fyrir stafni heima í Áshlíðinni, aðallega við að skipuleggja ferðir sumarsins, t.d. 24 x 24 gönguna í byrjun júlí, þegar farið verður fjórða árið í röð á 24 tinda í Eyjafirði á jafnmörgum klukkustundum. Þá hugmynd fékk Ragnar fyrir nokkrum árum, lét hana verða að veruleika og í fyrra voru tug- ir manna með í för. Þessi merkilega ganga verður farin laug- ardaginn 12. júlí í sumar. Hugmyndin kviknaði þegar Ragnar gekk á Hvannadalshnjúk. „Þá var fararstjóri Þorvaldur Þórsson, Olli. Hundrað tinda maðurinn. Það var hann sem gerði mér grein fyrir því hve Eyjafjarð- arsvæðið væri flott; hve fjöllin hér í kring væru glæsilegt útivistarsvæði. Olli hafði farið þenn- an hring, hafði reynt tvisvar en þurft að snúa við í fyrra skiptið því hann lenti í grenjandi stórhríð í júlí!“ Frásögn Þorvaldar kveikti í Ragnari, hann talaði við mann og annan og fyrsta 24 tinda gangan var farin 2005. „Sumum leist satt að segja ekkert á að ég færi að standa í þessu og héldu hreinlega að ég væri orðinn klikkaður. En ég lét ekki segjast, fékk unga og ferska stráka með mér í þetta og Olla til að vera far- arstjóri, og nú er þessi ferð orðin hefð.“ Á síðasta ári fóru 49 á alla tindana 24 en 75 manns tóku þátt í hluta göngunnar. Framtakið hefur vakið töluverða athygli, eins og nærri má geta. „Þeir hjá Ungmenna- félagi Íslands eru búnir að hafa samband og við ætlum í samstarf við þá sumarið 2009, þeg- ar Landsmótið verður haldið hér á Akureyri. Þá verður 24 tinda gangan okkar þáttur í Landsmótinu.“ Um næstu helgi fer hópur Ragnars á Blá- mannshatt en hann verður auðvitað illa fjarri góðu gamni og missir af ferð í fyrsta skipti. Hann er ákveðinn í að fara á fjöll á ný um páskana en er í augnablikinu aðallega með hugann við gönguferð sem er á dagskrá á Jónsmessunni. „Það verður flott ferð; við byrj- um á Grenivík, förum á Kaldbak og síðan á alla toppa eins langt og hægt er. Þetta eru einir 40 kílómetrar og við ætlum okkur 20 tíma í þetta.“ Hann segist ekki vita til þess að þess háttar ferð hafi verið farin og til stendur að fljúga yfir svæðið bráðlega til að skoða aðstæður. Ragnar hlakkaði til, þegar blaðamaður kom í heimsókn, að komast aftur í búðina. „Ég hef saknað þess mikið að vera í vinnunni. Sem bet- ur fer er ég að byrja aftur. Og ég hlakka líka mikið til þess að komast aftur á fjöll.“ „Hlakka til að komast aftur á fjöll“ Árvakur/Skapti Hallgrímsson Tilhlökkun Ekki var aftur snúið eftir að Ragnar Sverrisson gekk á fjöll í fyrsta skipti. Hann fékk heiftarlega fjallgöngubakteríu og fer ásamt félögum sínum flesta sunnudaga ársins. Í HNOTSKURN »Glerárdalshringurinn 24 x 24 er fé-lag sem stofnað var um göngu í júlí ár hvert. Gengið er fjallahringinn sem myndar Glerárdal í Eyjafirði. Heild- arvegalengd leiðarinnar er rétt tæpir 50 km. Fjöllin í hringnum eru í réttri röð: Hlíðarfjall, Hrossahnjúkur, Jökulborg, Þríklakkar, Blátindur, Tröllafjall, Kistu- fjall, Bóndi, Bunga, Tröllahyrna, Hrúta- fjall, Litli-Krummi, Strýta, Tröllatindur, Stóristallur, Stóri-Krummi, Kista, Steinsfell, Glerárdalshnjúkur, Syðri- Súlur, Kambsfjall, Snorragnúpur, Kerl- ing og Ytri-Súlur. Datt og braut bein en planaði fjallgöngur í sumar á sjúkrabeði TENGLAR ........................................................... www.glerardalur.is HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ ALLT að níu háhýsi sem eru sam- bærileg turninum sem risinn er við Smáratorg í Kópavogi gætu risið þar, gangi tillögur sem nú eru í skipulags- ferli og aðrar, sem enn eru á teikni- borðinu, eftir, að sögn Guðríðar Arn- ardóttur, bæjarfulltrúa Samfylking- arinnar í Kópavogi. Áhyggjur vegna þeirra snúa fyrst og fremst að umferðarmálum. „Ef allar þessar áætlanir ganga eft- ir verður þetta langþéttasta byggð á landinu,“ segir Guðríður. 25. febrúar næstkomandi tekur samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgar- svæðisins ákvörðun um svæðisskipu- lag vegna Glaðheimasvæðis, en þar stendur til að byggingamagn verði 195.000 fermetrar. Samfylkingunni finnist ekki rétt að taka aðeins af- stöðu til þessa einstaka reits enda liggi fyrir skipulag á tugum þúsunda fermetra í viðbót. „Svo vitum við að miklu meira er í farvatninu á Smára- svæðinu,“ segir Guðríður. Sem dæmi séu hugmyndir um 140.000 fermetra byggingarmagn sunnan Smáralindar. Reynt að stöðva skipulagsslys Hún bendir á að nú sé verið að ljúka við tvöföldun Reykjanesbraut- ar. Umferðarspá sem Kópavogsbær hafi lagt fram fyrir samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgar- svæðisins geri ráð fyrir að þegar þurfi að ráðast í þreföldun Reykjanes- brautar til hvorrar áttar. Það þýðir áttföld Reykjanesbraut,“ segir Guð- ríður. Markmiðið með því að vekja at- hygli á málinu meðan það er enn á svæðisskipulagsstigi sé að reyna að koma í veg fyrir skipulagsslys. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segir að ekki sé enn búið að vinna skipulagið, aðeins sé búið að setja niður hugmyndir á blað. Þarna verði ekki það magn sem Samfylkingin tali um. „Þetta eru ýtr- ustu kröfur byggingaraðila. Það er ekki einu sinni byrjað að vinna skipu- lag á svæðinu. “ Hvað Glaðheimasvæðið varði sé það í vinnslu í svæðisskipulagi. Ekki sé búið að auglýsa aðal- eða deili- skipulag. „Það er ekki búið að ákveða hvort þetta verða tveir, átta eða átta- tíu turnar.“ Gunnar segir að nýleg tvöföldun Reykjanesbrautar hafi komið allt of seint og umferðarkerfið í kring hafi verið löngu sprungið. Nú þurfi að bæa við einni akrein á hvorri hlið. Gunnar segir vel koma til greina að reisa nokkra turna til viðbótar á svæðinu við Smárann, þótt hann geti ekki sagt til um það eins og er hver verði endanleg tala þeirra. „Þetta er mjög verðmætt land sem er nálægt stofnbrautum og er í miðju bæjar- félaga.“ Bæjarstjóri Kópavogs segir koma til greina að reisa nokkra turna til viðbótar í nágrenni Smárans Gagnrýna áhrif háhýsa á umferð við Smárann Morgunblaðið/ÞÖK Glaðheimasvæðið Fyrir samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins liggur tillaga um að reisa byggingar sem alls verða 195.000 fermetrar á Glaðheimasvæðinu. Nefndin ræðir tillöguna í lok febrúar. Í HNOTSKURN »Meðal framkvæmda sem fyr-irhugaðar eru í Kópavogi er 28.000 fermetra verslunar- og skrifstofuhúsnæði við Lindir 4. »13 hæða turn hefur veriðsamþykktur við Bæjarlind og 9.300 fermetra atvinnuhúsnæði við Dalveg 32, að sögn Guðríðar Arnardóttur. »Framkvæmdir við 18.000 fer-metra turn norðan Smára- lindar standa yfir. SAMKVÆMT heimildum Morg- unblaðsins eru uppi hugmyndir um að rífa verslunarkjarnann við Smáratorg í Kópavogi og reisa háhýsi í hans stað. Ekki er talið líklegt að þetta verði gert í nán- ustu framtíð. Verslunarkjarninn við Smáratorg hefur verið starf- ræktur í áratug. Gunnar I. Birgisson, bæj- arstjóri í Kópavogi segir, spurður um þetta, að manna á millum hafi verið rætt að rífa torgið og byggja háhýsi í nágrenni turnsins sem nýlega er risinn við Smára- torgið. Ekki hafi þó komið fram tillaga frá eiganda um þetta og málið því ekki til meðferðar hjá bæj- aryfirvöldum. Smáratorg rifið og háhýsi byggt í staðinn?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.