Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 23 sar þar til og bygg- nn er mjög snúið að ið þannig keið eftir ótt öll þau mestan ég að Ragnar veiktist alvarlega við upphaf háskólanámsins. Vegna önd- unarerfiðleika hafði með tímanum safnast mikið koltvíoxíð fyrir í blóði hans. Súrefnisskorturinn hafði auk- ist smám saman en að lokum missti Ragnar meðvitund og var hætt kominn. „Koltvíoxíðið var orðið svo hátt að ég held að það sé það mesta sem hefur mælst í lifandi manni!“ rifjar Ragnar upp. Í veikindunum byrjaði hann að nota öndunarvél, fyrst aðeins á nótt- unni en nokkrum árum síðar allan sólarhringinn. Ragnar hefur ekki þurft að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi vegna þessa en var lengst af með öndunarvél sem þurfti stöðugt að vera í sambandi við raf- magn. Ferðafrelsið fékkst ekki fyrr en í nóvember árið 2006 þegar hann fékk nýja færanlega öndunarvél sem gengur fyrir rafhlöðum. Í því fólst mikil bylting að sögn Ragnars og foreldra hans. „Það var mikið frelsi að fá nýju vélina, hún breytti mjög miklu fyrir mig,“ segir Ragn- ar. „Áður hafði það verið mikið stress að fara eitthvað, jafnvel á milli herbergja. Því fylgdi óöryggi.“ Sveigjanleg þjónusta Í dag þarf Ragnar aðstoð við nán- ast alla þætti daglegs lífs. Kvölds og morgna fær hann aðstoð á vegum heimahjúkrunar við að fara í og úr rúminu. Þá þarf stöðugt að fylgjast með öndunarvélinni og er Ragnar því aldrei einn. „Ég fæ alla þjónustu hingað heim,“ segir Ragnar. Frá því í febr- úar í fyrra hefur hann fengið þjón- ustu hjá Heilsuverndarstöðinni (áð- ur Impro) í tengslum við tilraunaverkefnið. Ragnar segir helsta kost þessarar þjónustu þann að hún er mjög sveigjanleg og ein- staklingsmiðuð. Hjúkrunarfræð- ingur eða sjúkraliði aðstoðar Ragn- ar yfir daginn eftir þörfum t.d. við að matast. Hann segir verkefnið hafa gengið vel. Talsverðan tíma taki að þjálfa starfsfólkið, það hafi þurft að kynnast hans þörfum og að- stæðum. Að þeim aðlögunartíma liðnum hafi allt gengið að óskum. „Ég er mjög ánægður með þessa þjónustu, allir sem sinna henni eru orðnir vanir. Það er mikið ábyrgð- arstarf að sinna mér,“ segir hann brosandi. Áhugamálin tölvur og íþróttir Ragnar hefur mikinn áhuga á tölvum og íþróttum og lætur fáa íþróttaviðburði sem sýndir eru í sjónvarpi fram hjá sér fara. „Það skiptir nánast ekki máli hver íþrótt- in er, ég hef áhuga,“ segir Ragnar brosandi. „Tölvan er lífæðin hans,“ segir Ragna móðir hans. Í tölvunni gerir Ragnar m.a. krossgátur og les sér til gagns og gamans. Þá aðstoðar hann móður sína m.a. við yfirlestur o.fl. „Svo er ég fjármálastjóri fjöl- skyldunnar,“ segir Ragnar. Hann nýtir sér nýjustu tækni við notkun tölvunnar, hann getur enn notað tölvumús en á orðið erfitt með það og er sífellt að leita að betri tækni. „Ég fylgist vel með tækni- nýjungum á þessu sviði,“ segir Ragnar. Hann er nú að taka í gagnið búnað sem hann getur notað hökuna við að stjórna. Nýi búnaðurinn gerir honum kleift að stjórna ýmsu í sínu umhverfi, t.d. að kveikja og slökkva á sjónvarpinu og opna og loka dyr- um og gluggum ef því er að skipta. „Ég get varla ímyndað mér hvernig líf Ragnars væri ef hann hefði ekki tölvuna,“ segir Bjarni faðir hans. reytt miklu ra mína“ Árvakur/Árni Sæberg ldrum sínum, Rögnu Marinósdóttur og Bjarna rir rafhlöðu. okallaður ótein sem búið til eðli- s vöðva- i sem þýðir ill áhugi á róun- enn stutt á Háskóla Íslands MD sem það þarf á að halda,“ segir Þór. ann segir misjafnt hversu mikla aðstoð ð þurfi í tengslum við öndunarvélaþjón- na. „Þjónustan er notendastýrð sem r að notendurnir stjórna ferðinni að legu leyti. Getur þjónustan því verið breytileg frá einum tíma til annars.“ Sú þjónusta sem nú er boðið upp á er byggð upp að danskri fyrirmynd. Fulltrúar félags- og heilbrigðisráðuneytis, félagsþjón- ustunnar í Hafnarfirði, Svæðisskrifstofu fatlaðra á Reykjanesi og hagsmunasamtaka kynntu sér málið í Danmörku árið 2006 og í kjölfarið ákvað ríkisstjórnin að hleypa til- raunaverkefninu af stokkunum. „Það tekur tíma að byggja upp svona þjónustu,“ segir Þór. „Þetta kostar peninga en á móti má velta fyrir sér þeim sparnaði sem verður hjá stofnunum sem annars hefðu þurft að veita þjónustuna. En einnig snýst þetta um aukin lífsgæði fólks. Slíkt má vel meta til fjármuna í nútíma heilsuhagfræði.“ lífsgæði fólks imahúsum áður en árið er úti si þeirra sem þurfa á öndunarvél að halda HNOTSKURN »Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherraveitti Landspítalanum sex milljónir á ðasta ári til að þjálfa starfsfólk vegna ndunarvélameðferðar í heimahúsum. »Sama ár fór af stað tilraunaverkefni tiltveggja ára um slíka þjónustu. ert Ragnari Bjarnasyni og fjölskyldu hans lífið léttara. „Þetta streng. Hann þjáist af sjaldgæfum vöðvarýrnunarsjúkdómi dri og þurft á öndunarvél að halda í rúman áratug. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Það er einfaldlega ekkikostur að taka einhliðaupp evru. Slíkt er ekkitrúverðugt og því fylgir margs konar óhagræði og auka- kostnaður,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra á Viðskiptaþingi á vegum Viðskiptaráðs Íslands á Hilton Nordica hótelinu í gær. Yf- irskrift þingsins var „Íslenska krónan – byrði eða blóraböggull?“ Geir vísaði í þessu samhengi til ræðu fulltrúa stjórnar Evrópska seðlabankans á þinginu, sem sagði einhliða upptöku evru einungis gerða á eigin ábyrgð og áhættu ís- lenskra stjórnvalda, ekki væri sér- stakra aðgerða að vænta hinum megin frá, til að styðja við bakið á þeim sem slíkt gera. Gjaldmiðlar eru verkfæri en þeim fylgja ekki trúarbrögð „Eins og margoft hefur komið fram er aðild að Evrópusamband- inu ekki á dagskrá núverandi rík- isstjórnar og þar með ekki heldur upptaka evru. Við þurfum því að einbeita okkur að því að koma hér á meira jafnvægi í efnahagslífinu eftir uppsveiflu síðustu ára. Ná verðbólgunni niður og draga úr viðskiptahallanum. Þetta tvennt, ásamt því að halda áfram að treysta og fjölga stoðunum undir okkar atvinnulífi, eru stóru verk- efnin framundan,“ sagði hann og ítrekaði að krónan væri verkfæri og að henni fylgdu engar sérstakar trúarsetningar eða trúarbrögð. Forsætisráðherra talaði einnig um áhrif versnandi aðstæðna á al- þjóðlegum fjármálamörkuðum. Kvað hann nauðsynlegt að allir áttuðu sig á því að lækkandi hluta- bréfaverð, ekki síst á bréfum í fjár- málafyrirtækjum, hefði nákvæm- lega ekkert með stöðu íslensku krónunnar að gera. Þar væru aðrir kraftar að verki. Ríkisstjórnin fundar með að- ilum á fjármálamarkaði í dag „Á síðustu vikum hefur skulda- tryggingarálag íslensku bankanna einnig hækkað töluvert en líklegt má telja að það stafi að hluta til af upplýsingaskorti alþjóðlegra fjár- festa um raunverulega stöðu bank- anna. Sérfræðingar greiningarfyr- irtækisins Credit Sights hafa til að mynda sagt að áhættan í tengslum við íslensku viðskiptabankana sé ofmetin og að skuldatryggingar- álagið gefi ekki rétta mynd af raunstöðu þeirra. Hins vegar er þetta álag eitt og sér grafalvarlegt mál og torveldar bönkunum eðli- lega lánsfjáröflun á mörkuðum sem eru erfiðir fyrir vegna láns- með erlendri lántöku ríkissjóðs sem endurlánaði svo Seðlabankan- um fé. Þá sagði ráðherrann mikilvægt að íslensk fyrirtæki hefðu höfuð- stöðvar sínar hér á landi jafnvel þótt þau störfuðu einnig á alþjóða- markaði. Stefna ríkisstjórnarinnar væri að skapa þeim samkeppnis- hæft rekstrarumhverfi hér á landi, m.a. með því að heimila þeim að færa bókhald sitt og ársreikninga í erlendri mynt, að uppfylltum laga- skilyrðum. „Sá misskilningur virð- ist vera uppi að fjármálafyrirtæki búi við lakari aðstöðu í þessu tilliti en önnur fyrirtæki, en svo er ekki.“ Geir tiltók að fyrirtæki kysu ekki einvörðungu að gera upp í krónum eða evrum, heldur gerðu í dag 112, af þeim 219 íslensku fyr- irtækjum sem ekki gera upp í ís- lenskum krónum, upp í banda- ríkjadollurum. 77 fyrirtæki gerðu upp í evrum og 21 í sterlingspund- um. Enn önnur gerðu svo upp í norskum krónum, kanadískum dollurum og japönskum jenum. Bindur vonir við jákvæð áhrif kjarasamninga á efnahagslíf „Margt bendir til að kjarasamn- ingar á almenna markaðnum séu nú að komast á lokastig. Ég geri mér vonir um að niðurstaða þeirra muni hafa jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf og stuðla að auknu jafnvægi með lægri verðbólgu og minni viðskiptahalla,“ sagði Geir. Hann ítrekaði að ríkisstjórnin væri tilbúin að greiða fyrir samningun- um og vísaði í því sambandi sér- staklega til stefnuyfirlýsingar hennar um lækkun á sköttum ein- staklinga og fyrirtækja. Í lok ræðu sinnar sagði Geir það óumdeilt að grundvallarstoðir ís- lenska hagkerfisins væru traustar. „Þar ber hvað hæst afar sterka stöðu ríkissjóðs með afgang sem nemur um 2,5% af landsfram- leiðslu og hreinar skuldir sem nema rétt um 5% af landsfram- leiðslu. Þessi staða er nær eins- dæmi í Evrópu og ber vott um öfl- uga og aðhaldssama ríkisfjármála- stefnu. Jafnframt er eiginfjárstaða bankanna sterk og það sýnir trausta stöðu þeirra að þeir skuli hafa skilað miklum hagnaði á síð- asta ári þrátt fyrir þann mótbyr sem verið hefur á alþjóðafjármála- mörkuðum frá síðasta hausti,“ sagði hann. Hvatti Geir til einlægrar um- ræðu um gjaldeyrismálin á næstu misserum, en varaði við því að þau mál yrðu sett á það sem hann nefndi „pólitískt bögglauppboð“. Hann sagði Íslendinga að öllu virtu hafa góð spil á hendi, en mestu skipti að spila vel úr þeim, bæði til skemmri og lengri tíma. fjárskorts,“ sagði Geir. Hann kvað eðlilegt að ríkis- stjórnin væri í viðbragðsstöðu og undirbyggi ráðstafanir í því skyni að draga úr neikvæðum afleiðing- um hugsanlegrar lánsfjárkreppu á alþjóðamörkuðum. Tilkynnti hann þá að í dag myndi ríkisstjórnin funda með aðilum á fjármálamark- aði, þar sem lögð yrðu á ráðin um þessi mál. Vill leiðrétta rangfærslurnar um efnahags- og atvinnulífið Hann rakti einnig nýlegar um- sagnir matsfyrirtækisins Moody’s um íslensku bankana og úttekt Fjármálaeftirlitsins á stöðu þeirra. Þrátt fyrir þær jákvæðu niður- stöður gætti enn neikvæðrar um- fjöllunar hjá einstaka greiningar- aðilum og fjölmiðlum. Þar sagði hann að iðulega væri farið með hreinar staðreyndavillur og staða íslenska hagkerfisins ýkt mjög. „Ríkisstjórnin er reiðubúin til samstarfs við hin ýmsu samtök at- vinnulífsins, hvort sem það er á vettvangi Viðskiptaráðsins, Sam- taka fjármálafyrirtækja eða ann- arra samtaka með það að megin- markmiði að miðla upplýsingum og greiningum um íslenskt efna- hags- og atvinnulíf til erlendra greiningaraðila, fjárfesta og fjöl- miðla.“ Auk þess sagði Geir ráð- herra ríkisstjórnarinnar áfram til- búna að sækja fundi erlendis til að gera grein fyrir stöðu íslensks efnahags- og atvinnulífs og leið- rétta þær rangfærslur sem kunna að vera á ferðinni. Geri upp í mynt að eigin vali en hafi höfuðstöðvar á Íslandi Ríkisstjórnin hefur að sögn for- sætisráðherra fylgst grannt með framvindu mála á alþjóðafjármála- markaði með það fyrir augum að styrkja eiginfjárstöðu Seðlabank- ans enn fremur en þegar hefur verið gert, þyki ástæða til og leyfi aðstæður það. Árið 2006 var ákveðið að auka gjaldeyrisforðann Árvakur/Golli Viðskipti Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, og Geir Haarde forsætisráðherra ræðast við á Viðskiptaþingi. Fleiri ráðherrar voru á þinginu, auk frammámanna í viðskiptalífi og opinberum geira. Ekki kostur að taka evruna upp einhliða Í HNOTSKURN »Geir kveðst reiðubúinn aðmiðla upplýsingum um ís- lenskt efnahags- og atvinnulíf til erlendra greiningaraðila, fjárfesta og fjölmiðla. »Hann vill að fyrirtæki fáiað gera upp í gjaldmiðli að eigin vali. »Hann telur komandi kjara-samninga geta haft jákvæð áhrif á efnahaginn og stuðlað að jafnvægi með lægri verð- bólgu og minni viðskiptahalla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.