Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 15 MENNING Árið 1947 tóku meðlimir í Fé-lagi íslenskra frístundamál-ara (FÍF) sig til og stofnuðu Málaraskóla FÍF. Réðu þeir til sín skoskan listamann, Waistel Cooper að nafni, til að kenna þeim mód- elteikningu. Þriðjudaginn 9. des- ember, þetta sama ár, var fyrsti teiknitíminn í skólanum og sóttu 15 manns námskeiðið. Ári síðar bættist við kennsla í högg- myndagerð undir leiðsögn Ás- mundar Sveinssonar og stofnaðar voru barna- og unglingadeildir við skólann sem þau Unnur Briem og Ragnar Kjartansson sinntu af mikl- um dugnaði. Árið 1950 höfðu Þorvaldur Skúlason, Karl Kvaran og Kjartan Guðjónsson bæst við kenn- arateymið og óx skólinn svo hratt að FÍF gaf hann frá sér og var skólinn gerður að sjálfseign- arstofnun sem nú nefnist Mynd- listaskólinn í Reykjavík.    Myndlistarskólinn hefur við-haldið þeirri stefnu að fá starfandi myndlistarmenn til að sinna kennslu og gegnum tíðina hafa fjölmargir þjóðkunnir lista- menn miðlað þekkingu sinni til nemenda. Má þar nefna, Hörð Ágústsson, Eirík Smith, Guðmundu Andrésdóttur, Hring Jóhannesson, Jón Gunnar Árnason, Baltasar Samper, Ingólf Örn Arnarson, Hrafnkel Sigurðsson, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Hildi Bjarnadótt- ur, Margréti Blöndal og Ragnar Kjartansson (yngri). Í dag hefur skólinn um 700 nemendur, en auk stakra námskeiða er kennt fullt nám í keramik í samvinnu við Iðn- skólann í Reykjavík og fornám myndlistar- og hönnunarsviðs, fyr- ir nemendur sem hyggja á há- skólanám í myndlist, hönnun eða arkitektúr. Þetta er jafnframt eini myndlistarskólinn sem er til húsa í höfuðborginni, samanborið t.d. við 23 tónlistarskóla.    Samkvæmt gögnum sem ég fékkfrá myndlistarskólanum hafa föst framlög til hans haldist óbreytt síðan um aldamótin þrátt fyrir mikla hækkun á launavísitölu. Og framlög til fornáms hækkað rétt um 8%. En heildarframlög til skólans í fyrra voru tæpar 42 millj- ónir króna. Námskeið í Myndlista- skólanum í Reykjavík eru metin til eininga jafnt á við hvert annað fag í framhaldsskólum. Fær myndlista- skólinn 7.500 króna framlag, að meðaltali, á einingu sem er þrefalt minna en listgreinar í framhalds- skóla. Hér er augljóst misræmi og útreikningar sýna að ef framlög til skólans haldast óbreytt safnar hann skuldum sem hann ræður ekki við, nema gjöld verði hækkuð upp úr öllu valdi, sem eru nú þegar of há til að eitthvert samræmi sé á milli útgjalda nemenda til eininga í myndlistarskólanum og í fram- haldsskólum.    Á hvorn veginn sem er tórirskólinn vart lengi í þessari mynd. Væntanlega yrði það for- námið sem þyrfti að hverfa og yrði undirbúningsnámi fyrir listhá- skólanám þá eingöngu sinnt í mennta- og fjölbrautaskólum. Án þess að kasta rýrð á það ágæta starf sem kennarar á listmennta- brautum sinna, gefur fornám MÍR fólki færi á að einbeita sér að list- náminu í eitt ár, ótruflað, og njóta leiðsagnar frá listamönnum sem eru sjálfir starfandi í framlínunni og gefa sér eina til þrjár vikur til að sinna kennslu. Árangur fornáms MÍR er að á milli 80 og 90% nem- enda skila sér í listháskólanám. Í keðjuverkandi mæli kæmi það sér illa fyrir Listaháskóla Íslands og þá framtíð myndlistar á Íslandi ef fornám MÍR legðist niður sökum fjárskorts.    Menntamálaráðuneytið leikuróneitanlega lykilhlutverk í framtíð skólans. Þess vegna þótti mér forvitnilegt að hlýða á viðtal við Þorgerði Katrínu mennta- málaráðherra, í heimildarmynd um Feneyjaferð Steingríms Eyfjörðs (fyrrverandi kennara við Mynd- listaskólann í Reykjavík), sem nú er til sýnis í Listasafni Reykjavík- ur. En þar lýsir ráðherra því hve myndlist er mikilvæg fyrir sam- félagið „Hún opnar nýjar víddir og kennir manni að horfa á hlutina upp á nýtt. Það er svo heilbrigt fyrir allar þjóðarsálir.“ Spurning er hvort eitthvað raunverulegt liggi að baki þessari yfirlýsingu eða hvort þetta séu bara orðin tóm. Framtíð myndlistarskóla AF LISTUM Jón B. K. Ransu » Árangur fornámsMÍR er að milli 80 og 90% nemenda skila sér í listháskólanám. Einum kennt Þorvaldur Skúlason kennir nemendum Myndlistaskólans í Reykjavík réttu handtökin á fyrstu árum skólans. ransu@mbl.is VARÐ bezta skíðafæri í áraraðir til að margir gengu á svig við blás- aratónleika Myrkra músíkdaga á laugardag? Svo mætti halda eftir varla 20 manna aðsókn að dæma. Alltjent fór vönduð vinna fyrir óþarflega litla eftirtekt, að ógleymdum ljómandi góðum flutn- ingi. Þar á ofan voru tónverkin fimm af fjölbreyttara tagi en al- gengt er á MM. E.t.v. sumpart að þakka víðum aldursramma höfunda, auk þess sem viðkunnanlegur brúk- unarblær sveif yfir verki Jónasar Tómassonar og gerði sitt til að efla því hlustvænleika. Aðeins eitt verk féll að ráði í klissjusligaða gryfju hins staðlaða módernisma, því þrátt fyrir að sögn þjóðleg og búddísk áhrif skáru Til- brigði [13’] Hokosöwu sig að hverf- andi leyti úr þeim grúa hægferðugt líðandi verka (með „smágosum“ á hæfilegu stangli) er virðast nærri „sine qua non“ meðal miðaldra vestrænna framúrstefnuhöfunda. Allavega gat ég ekki í fljótu bragði greint teljandi mun á litbrigða- meðferð Japanans og sams konar nálgun kollega hans í okkar heims- hluta. Áður en varði var framvindu- rýrt stykkið því orðið gizka fyrir- sjáanlegt og að sama skapi lang- dregið. Hið dimmradda Andar [11’] Önnu Þorvaldsdóttur hófst að vísu með svipuðum hætti, í samræmi við yf- irlýst áhrif andardráttar og öldu- gangs. En þá fór hins vegar eitt- hvað að gerast. Verkið varð melódískara, m.a.s. lét skynj- anlegur endurómur íslenzkra þjóð- laga á sér kræla, og stemmningin færðist á snöggtum innblásnara pó- etískt plan með tilhöfðandi draum- farakenndri angurværð, áður það fjaraði út á andvörpum soghljóða. Merkjanleg melódík var til stað- ar þegar í upphafi Concertinos [13’] hins ísfirzka Jónasar Tómassonar fyrir tvær fiðlur, blásarasextett (2 horn) og kontrabassa, einkum í þétt samlægu fiðluröddunum er Hlíf Sigurjónsdóttir og Sigurlaug Eð- valdsdóttir struku af fínlegri natni. Sprúðlandi scherzókenndur mið- hluti jók enn á aðgengileika verks- ins – aukinheldur með til skamms tíma forboðnum púlsrytma. Gaman til þess að vita að fleiri en yngstu höfundar þori að hunza akademísk nýlistalögmál með jafnfrískandi léttúð. Hlutfallslega klassísk verk þeirra landa Herberts Hriberschek Ágústssonar og Páls Pampichlers frá 1984, Scherzo [4’] og Nonett [6’] settu í lokin klæðilega viðbótarvídd á tónleikana með glimrandi tromp- etblæstri Eiríks Arnar Pálssonar í forgrunni. Hvort tveggja upplífg- andi og fagmannlega skrifað dí- vertímentó í beztu merkingu orðs- ins. Fjölbreytt og frískandi Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Salurinn Anna S. Þorvaldsdóttir: Andar* (frumfl.). Hosokawa: Variations* (frfl. á Ísl.). Jón- as Tómasson: Concertino (frfl.). Herbert H. Ágústsson: Scherzo (1984). Páll P. Pálsson: Nonett (1984). Blásaraoktett- inn Hnúkaþeyr ásamt félögum úr m.a. strengjahópnum Aþenu. Stjórnandi: Hall- fríður Ólafsdóttir*. Laugardaginn 9. febr- úar kl. 14. Myrkir músíkdagar – Kammertónleikar bbbbn Sími 551 3010 Stefán Óskar Þorgeir Söngsýning til heiðurs Stefáni Islandi Endursýning vegna fjölda áskorana Laugardaginn 23. febrúar í Langholtskirkju, kl. 15.00 Forsala aðgöngumiða: Eymundsson Austurstræti 540 2130 Eymundsson Kringlunni 540 2150 Laugardaginn 23. febrúar í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi, kl. 20:00 Miðasala við innganginn. Flytjendur tónlistar auk Karlakórsins: Þorgeir Andrésson og Óskar Pétursson, Sigfús Pétursson og Pétur Pétursson. Hljóðfæraleikur: Thomas R. Higgerson, píanóleikari. Stjórnandi: Stefán R. Gíslason. Flytjendur texta: Agnar H. Gunnarsson og Hannes Örn Blandon. Handrit: Gunnar Rögnvaldsson, Myndsýning: Sigríður Sigurðardóttir og Unnar Ingvarsson, Sýningarstjórn: Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson. KARLAKÓRINN HEIMIR, SKAGAFIRÐI Ný pr en t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.