Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30,
jóga kl. 9, boccia kl. 10, útskurður og myndlist
kl. 13, Grandabíó-Vídeóstund kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Bingó kl. 13.30. Hárgreiðsla,
böðun, jóga, almenn handavinna, fótaaðgerð,
morgunkaffi/dagblöð, myndlist, hádegisverður,
bókband, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Postulínsnámskeið kl. 13-16,
leiðb/Hafdís Benedikts. Lýður og Harmonikkan
kl. 14. Guðsþjónusta kl. 15.10, sr. Bjarni Karlsson.
Félag eldri borgara í Garðabæ | Opið á skrif-
stofu í Jónshúsi við Strikið 6, kl. 13-15.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13.
Félag kennara á eftirlaunum | Bókmennta-
klúbbur í Kennarahúsinu við Laufásveg kl. 14.
Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ-kórinn æf-
ir í KHÍ kl. 17. Nýjar raddir velkomnar.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður í
handavinnustofu, málm- og silfursmíði kl. 9.30,
bókband og róleg leikfimi kl. 13, myndlist-
arhópur starfar kl. 16.30, og dönskukennsla kl.
16, og kl. 17.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl.
9, ganga kl. 10, hádegisverður kl. 11.40, brids og
handavinna kl. 13, jóga kl. 18.15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Bók-
bandsklúbbur kl. 10, gönguhópur kl. 11, vatns-
leikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi kl. 13, boccia kl.
14, handavinnuhorn kl. 13, námskeið í bútasaumi
kl. 13, námskeið í gler- og leirlist kl. 13, karla-
leikfimi kl. 9.30, boccia kl. 10.30. Óperukvöld í
Garðabergi kl. 17, Carmen, eftir Bizet, leik-
húsmiðar og skráning í ferð á Garðaholti 21. feb.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30,
umsj. sr. Svavar Stefánsson. Frá hádegi vinnu-
stofur opnar, m.a. myndlist umsj. Nanna S. Bald-
ursd. Mánud. 10. mars veitir skattstofan fram-
talsaðstoð, skráning hafin á staðnum og s.
575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9, aðst. við
böðun, smíðar og útskurður. Samverustund
með handavinnuívafi kl. 13.15. Kaffiveitingar.
Messa föstudag kl. 14. Prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson.
Hraunbær 105 | Kaffi, spjall, blöðin kl. 9, handa-
vinna og postulínsmálun kl. 9-16.30, Líkams-
rækt í Árbæjarþreki kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi
kl. 11, hádegismatur, félagsvist kl. 14, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl.11.20,
tréskurður kl.13, opið hús kl.14.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Jóhönnu kl.
9-16, boccia kl. 10, félagsvist kl. 13.30, góð verð-
laun, kaffi og meðlæti í hléi. Böðun fyrir hádegi.
Hádegisverður kl. 11.30. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Skapandi skrif, Müllersæf-
ingar, Bör Börson, Baráttuhópur um bætt veð-
urfar miðvikud. kl. 13.30, Páll Bergþórsson
mætir. Þegar amma var ung, hláturklúbbur
o.s.frv. Hvað dettur þér í hug þegar þú hugsar til
Íslendingasagnanna 22. feb., 3 skipti. Leiðbein-
andi Trausti Ólafsson. Uppl: 568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, föstudag, er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30, og
Listasmiðjan opin kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og
spjall kl. 9.45, boccia karlaflokkur kl.10.30,
handverks- og bókastofa og postulínsmálun
kl.13, boccia kvennaflokkur kl.13.30, kaffiveit-
ingar.
Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur | Leikfimi
fyrir eldri borgara mánud. og þriðjud. kl. 12,
fimmtud. kl. 11.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-16,
handavinnustofa opin kl. 9-16 m/ leiðb. kl. 9-12,
leirlist kl. 9-12, boccia kl. 10, hugmynda- og
listastofa kl. 13-16. Hárgreiðsustofa sími 588-
1288. Fótaaðgerðastofa sími 568-3838.
Sjálfsbjörg | Skák kl. 19, í félagsheimili Sjálfs-
bjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaaðgerðir og að-
stoð v/böðun. Boccia, handavinna, spænska
framhald, hádegisverður, kóræfing, leikfimi og
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bók-
band, morgunstund, boccia, upplestur kl. 12.30,
handavinnustofan opin, DVD framhalds-
myndasýning kl. 15, hárgreiðslu- og fótaað-
gerðastofur opnar alla daga, spilað kl. 13.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl.
10, leikfimi kl. 13.15. Bingó kl 14.30, kaffiveit-
ingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Söngstund með organista kl. 14 -15,
kaffisopi á eftir. Samkirkjuleg bænastund á
ensku, fylgt er bænakvverinu „True life in God“.
Kl. 16.30, klúbbur 8 og 9 ára barna kl. 17 og kl.
18, TTT-starfið. Efni beggja fundanna er „Söfn-
un“. (Allir koma með krukku með loki).
Breiðholtskirkja | Trú og stjórnmál. Biblíulestur
í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar kl. 20.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl 10-12, leik-
fimi ÍAK kl 11, bænastund kl 12. 6-9 ára starf kl.
16-17. Meme junior kl. 19.30-21.30. digra-
neskirkja.is
Dómkirkjan | Opið hús í safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a kl. 14-16, kaffi og spjall. Kvöld-
kirkjan er opin kl. 20-22. Bænastundir kl. 20.30
og 21.30, prestur á staðnum. Hægt er að
kveikja á bænarkerti.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-12,
ýmiskonar fyrirlestrar, kaffi, djús og brauð fyrir
börnin. TTT fyrir börn 10-12 ára í Víkurskóla kl.
15-16.
Grensáskirkja | Hversdagmessa með Þorvaldi
Halldórssyni kl. 18. Bænin, orð Guðs og alt-
arisganga eru uppistaða messunnar en lögð er
áhersla á að stilla töluðu máli í hóf. Hversdags-
messan einkennist af kyrrð og einfaldleika.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal
á eftir.
Háteigskirkja | Vinafundur er í Setrinu kl. 14-16.
Rifjaðar upp gamlar minningar, viðhorf og skoð-
anir, rætt um hversdaginn og trúna. Kristín sér
um kaffið. Íhugað í söng, bæn og lestur Guðs
orðs kl. 20. Máltíð Drottins er höfð um hönd,
fyrirbæn og smurning, fyrir þá sem þess óska.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bænastund í
kaffisal kirkjunnar kl. 20.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM verður kl.
20, á Holtavegi 28. Sr. Íris Kristjánsdóttir fjallar
um Nehemía. Kaffi eftir fundinn.
Laugarneskirkja | Kyrrðarstund í hádegi, að
bænastund lokinni er léttur málsverður í boði í
safnaðarheimilinu kl. 12.30. Helgistund í fé-
lagsaðstöðunni að Dalbraut 18-20 kl. 15, umsjón
hefur sóknarprestur. Adrenalín gegn rasisma.
9.-10. bekkur kl. 17, umsjón hefur sr. Hildur Eir
Bolladóttir.
Selfosskirkja | Fundur í Æskulýðsfélagi Sel-
fosskirkju kl. 20, í safnaðarheimilinu. Leiðbein-
andi er Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, BA í guð-
fræði.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 22, (ath. breyttir tímar). Tekið
er við bænarefnum af prestum og djákna. Kaffi í
lok stundarinnar, biblíulestur einu sinni í mán-
uði, auglýst sérstaklega.
75ára afmæli. Á morgun, föstudaginn 15. febrúar, verður ArnþórIngólfsson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, 75 ára. Þann sama dag
eiga þau hjónin Jóhanna Maggý Jóhannesdóttir og Arnþór gullbrúð-
kaup. Af þessu tilefni langar þau að hitta vini og vandamenn í Glað-
heimum, Álalind 3 í Kópavogi milli kl. 17 og 20 á morgun.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 14. febrúar, 45. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.)
Annar fyrirlesturinn í fyr-irlestraröð Samtakanna ’78og Háskóla Íslands, Með hin-segin augum, verður fluttur á
morgun, föstudag. Það er Björn Þor-
steinsson heimspekingur sem flytur er-
indið Valsað um valdið – Hinsegin póli-
tík og samfélagsvélin kl. 12.15 í stofu
101 í Odda.
„Í fyrirlestrinum velti ég fyrir mér
sambandi valdsins og einstaklingsins,
einkum út frá kynferði eða kynhneigð,“
útskýrir Björn. „Ég sæki m.a. í kenn-
ingar Foucaults, og velti upp þeirri
spurningu hvort einstaklingnum sé
mögulegt að rækta eigin þrá, eða hvort
hún kemur utan frá. Er kynhneigðin
eitthvað sem blundar í okkur, og við
uppgötvum í okkur sjálfum, eða er hún
eitthvað sem við lærum að iðka um leið
og við ölumst upp í samfélaginu – eða er
hún jafnvel eitthvað mitt á milli?“
Björn bendir á að samfélagið hefur á
öllum tímum viðhaldið tilteknum stað-
almyndum um kynlíf, þar sem áhersla
er lögð á æxlun innan hjónabands:
„Segja má að valdið hafi verið með kyn-
lífið á heilanum síðustu aldirnar, og
heldur Foucault því fram að kynlífið hafi
orðið að sérstöku og mikilvægu fyr-
irbæri í samfélaginu með tilkomu borg-
arastéttarinnar,“ segir Björn sem mun
taka kenningu Foucaults til gagnrýn-
innar skoðunar í fyrirlestri sínum út frá
hugsuðum á borð við Lacan og Žižek.
Andstaða innlimuð
Í erindi sínu skoðar Björn einnig
hvernig kynhneigð á skjön við ríkjandi
samfélagsviðmið aðlagast og innlimast
því sem viðtekið er: „Það er eins og sam-
félagið nái að laga sig að hvers kyns
andstöðu og koma henni fyrir innan
ramma hins leyfilega. Um leið hlýtur sú
spurning að vakna hvort þessi aðlög-
unarhæfni dragi jafnóðum úr krafti
radda sem ganga þvert á ríkjandi skipu-
lag, eða eigum við kannski frekar að líta
svo á að hún auki bara frelsi einstakling-
anna?“ segir Björn.
Fyrirlestraröðin Með hinsegin aug-
um er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Finna má nánari upplýsingar um dag-
skrá fyrirlestranna á heimasíðu Sam-
takanna ’78 á slóðinni www.sam-
tokin78.is.
Samfélag | Fyrirlestraröðin Með hinsegin augum á föstudag
Hvaðan kemur þráin?
Björn Þor-
steinsson fæddist í
Kaupmannahöfn
1967. Hann lauk
stúdentsprófi frá
MH 1986, BA-
gráðu í heimspeki
frá HÍ 1993 og
meistaragráðu frá
Ottawa-háskóla
1997. Árið 2005 lauk Björn dokt-
orsgráðu í heimspeki við Université
Paris VIII. Hann kennir nú við heim-
spekiskor Háskóla Íslands og starfar
sem ritstjóri hjá Hinu íslenska bók-
menntafélagi. Björn er kvæntur Sig-
rúnu Sigurðardóttur menningarfræð-
ingi og eiga þau tvær dætur.
Myndlist
ReykjavíkurAkademían | Samsýning á teikningum
eftir tæplega 20 listamenn verður opnuð 15. febrúar
kl. 17. Sýningunni er ætlað að veita yfirsýn yfir teikn-
inguna í dag. Það er miðillinn sjálfur sem er í for-
grunni, hin gamla aðferð að teikna á pappír. Hof-
mannsgallerí er í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut
121, 4. hæð.
Dans
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Dansað verður í Gull-
smára 13, 15. feb. kl. 20. Harmonikufélag Reykjavíkur.
Skemmtanir
Salur Borgarhólsskóla á Húsavík | Valentínusardiskó
á föstudag. Krakkar í 8.-10.bekk velkomnir í Kelduna.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Röð erinda um ástina hefst kl.
17.15. Vikulega er nýr fyrirlesari, hver með sitt sjón-
arhorn til 13. mars. Í dag talar Sólveig Anna Bóasdótt-
ir um „Hinar ýmsu myndir ástarinnar.“ Fyrirspurnir og
umræður. Ókeypis aðgangur.
Mannfagnaður
Húnvetningafélagið í Reykjavík | Í tilefni 70 ára af-
mælis félagsins, sunnud. 17. febr. er boðið til fagnaðar
kl. 14, í Húnabúð Skeifunni 11, 3. hæð (lyfta). Hátíð-
ardagskrá og veitingar.
Fyrirlestrar og fundir
Höndin | Fundur í safnaðarheimili Háteigskirkju kl. 20.
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslands-
deildarAmnesty International, flytur erindi um stöðu
mannréttindamála. Fundarstjóri er Ólafía Ragn-
arsdóttir. Kaffi og umræður.
HUNDURINN Uno sleikti diskinn vandlega eftir að hafa hesthúsað
fyrsta flokks steik á Sardi’s veitingahúsinu í New York í gær. Fáir af
hans kyni smakka nokkurntíma þessháttar krásir.
Ferfætlingum er yfirleitt ekki vísað til borðs á staðnum, en einu sinni á
ári er gerð undantekning fyrir sigurvegarann á Westminster hundasýn-
ingunni sem lauk í gær.
Ekki arða eftir á disknum
Reuters
FRÉTTIR
NORÐMAÐURINN Arve
Evensen hannaði Zpey-
tvíhenduna sem kom á
markað á liðnu ári.
Í fréttatilkynningu seg-
ir að hér sé án efa um að
ræða einhverja mestu
byltingu í flugustöngum
frá því farið var að nota
koltrefjar.
Arve Evensen kynnir
Zpey-tvíhenduna og
frumsýnir Zpey Switch-einhenduna í eftirtöldum verslunum
fimmtudaginn 14. febrúar:
Veiðimaðurinn, Hafnarstræti 5, kl. 12–14, Veiðihornið, Síðumúla
8, kl. 16–18, Sportbúðin, Krókhálsi 5, kl. 19–21.
Veiðimönnum gefst færi á að prófa Zpey-tvíhendur og Zpey
Switch-einhendur á kynningu í Sportbúðinni á fimmtudagskvöld ef
veður leyfir.
Kynnir nýja tvíhendu
NÁMSKEIÐ fyrir stelpur í
sjálfstyrkingu á aldrinum 13-15
ára og 16-20 ára verður haldið
frá 23. febrúar til 31. mars í
heilsufyrirtækinu Maður lifandi,
Borgartúni 24, neðri hæð.
Fjallað verður um: Fram-
komu, sjálfsmynd, heilsu, nær-
ingu, hreyfingu, förðun, fjármál,
kynlíf, áfengi og vímuefni, leik-
ræna tjáningu, að sigrast á
feimni, að setja sér markmið,
ákvarðanatöku, að nýta tækifæri
sín og að láta drauma sína ræt-
ast.
Námskeiðið fer fram á neðri
hæð fyrirtækisins Maður lifandi,
Borgartúni 24, og verður tvisvar
sinnum í viku, á mánudögum og
laugardögum, frá 23. febrúar til
31. mars. Fullt verð fyrir nám-
skeiðið er 29.900 kr.
Allir þátttakendur fá frían
prufutíma í World Class, máltíð
á matstað Maður lifandi og dag-
bók, ásamt öllum þeim gögnum
sem fylgja námskeiðinu, segir
m.a. í fréttatilkynningu. Skrán-
ing er hafin á www.namskeid-
.com.
Sjálfstyrkingarnám-
skeið fyrir stúlkur