Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ EFTIR frekar rólega tíð virðist nú sem allt sé komið á fullt á íslenskum tónlistarmarkaði. Gömlu kemp- urnar í Eagles falla um heil fimm- tán sæti, úr því þriðja í það átjánda og nýja plötu er að finna í efsta sæt- inu þessa vikuna. Þar er að sjálf- sögðu um að ræða tónlistarkonuna Lay Low en á plötunni hennar Öku- tímum er að finna lög sem stúlkan samdi fyrir uppsetningu á sam- nefndu leikriti. Einnig – og ekki síður – er þar að finna gamlar kántríperlur sem söngkonan barm- mikla Dolly Parton gerði fræg á sínum tíma. Lög á borð við „Jolene“ og „I Will Always Love You“. Safnplatan með lögum Villa Vill, Myndin af þér fellur niður um eitt sæti á milli vikna en það má allt eins gera ráð fyrir að platan sveimi um efstu sætin í nokkrar vikur í viðbót. Með fyrsta sætið í huga vek- ur það athygli hversu margar leik- ritaplötur er að finna á Tónlist- anum þessar vikuna. Dýrin í Hálsaskógi, Gosi, Lína Langsokkur og Kardemommubærinn kæta víst marga krakkana þessar vikurnar enda um stórskemmtilegar tón- smíðar að ræða í hverju tilviki fyrir sig. Þá ber að bjóða rólyndistapp- ann Jack Johnson velkominn á lista með nýja plötu sem og plötuna Femin 2008 sem allir alvöru karl- menn verða að eiga!                              !                  "  # $ $% %& %'() *+ , % '#  %'-./)%()            ! "  # ! "  # $ %$ &     ! "  # ! "  # ' ( )   *" *   + ,, *" #"  * , ## & -   . /# ,"( 01( 2 , " +3",4  ! "  #      ! "#$ " %&   & & ' () * +%&& ,)   -.& /012 .)22/ 3 4 5&, 4   6 6 )&.  7 !.'8 ,5 .)' /) '(  &() 5   9  90 0 1:) & %.)& ); 6. )<.!.."=! 1 .  7 &.)> &?/)5 &( ):           01,  313  4  "   !5 6       7  )    8   *9 "              $%6.'(  ',:;<'=>    .5# 5   2  .,6# $ %$ +  * " " 7 - " - 8,  2  .,6#9+#"/&   :""9  7-,"    ;< 8  ; ,# 2 , "   =8%; - => "" 86,"/ ") ? #@ =-" " @ A.  = %&   &:) B"B2!=& 6.:/. ) A )&C4 ) .93 1292 3 2 +:5 5.  / D&.1  > " : &  E. D-.+.E 2.F. 4&6 1. )2 >&' )4'.& G# ) 12 & &26 " 6.: &6..& )- 7 &,5 BD'E  ) H2& )9: &                 %  *+ 01, & 8+ "  (,4 =! ,* & 8+ " 313 02 "  (,4 " 01, " " ,+ " =!   Allt að gerast á Tónlistanum! Árvakur/G.Rúnar Lay Low Ökutímar velta Myndinni af þér úr fyrsta sæti tónlistans. SVEITABALLAKEMPURNAR í Á móti sól halda toppsæti Lagalistans þessa 6. viku ársins með laginu „Ár- in“ en þar fyrir neðan er að finna lagið „Jolene“ í flutningi Lay Low sem situr á toppi Tónlistans hérna hinum megin. Einar Ágúst er enn á rómantísku nótunum í í „Ef ást er annars vegar“ sem situr í þriðja sæti en lagið hífir sig upp um fimm sæti frá því í síðustu viku. Brim- brettastrákurinn Jack Johnson sit- ur í fjórða sæti með lagið „If I had Eyes“ en það virðist engu skipta hvað þessi drengur gefur út; fólk fær ekki nóg af rólyndistaktinum sem bæði sefar og svæfir. „Jigsaw Falling into Place“ með snilling- unum í Radiohead kemur nýtt inn á Lagalistann þessa vikuna en marg- ir tónlistarspekúlantar halda því fram að nýjasta platan, In Rain- bows, sé með því besta sem sveitin hefur sent frá sér en svo verður einnig áhugavert að fylgjast með því hvaða áhrif nýstárleg útgáfu- taktík sveitarinnar mun hafa á hljómplötuiðnaðinn um allan heim. Sómi Súðavíkur og lagið „The Pathetic Anthem“ situr í sætinu þar fyrir ofan og svo virðist sem mikill og sterkur vindur sé kominn í segl Mugisons sem tryggði sér dreifingu á plötunni á öllum helstu markaðs- svæðum heims á tónlistar- kaupstefnunni Midem í Frakklandi. Bland í poka Lagalistans! ÞAÐ er nú alveg magnað hvað hann Lenny okkar Kravitz er déskoti staðfastur. Nú er hann búinn að gefa út sömu plötuna átta sinnum eins og ekkert sé sjálfsagðara; laga- og plötutitlar, ímynd og já … tónlist er ná- kvæmlega eins hér og á öllum fyrri skíf- unum. Ekki að það sé endilega slæmt. Bítla- og hipparokkið er nú sem endranær það sem myndar strigann en mér finnst eins og Kravitz máli af talsvert meiri ástríðu og krafti en oft áður (nema ég sé endanlega búinn að missa það). En ekki vera of kröfuharður þú hefur örugglega heyrt þetta allt saman áður. Já, Kravitzinn maður … Alltaf eins Lenny Kravitz – It Is Time For … bbbnn Arnar Eggert Thoroddsen „RETRO Stefson?“ var það fyrsta sem kom upp í hugann þegar ég heyrði þessa fyrstu plötu bandarísku sveitarinnar Vampire Weekend. Eins og hjá Retro er hljómur V.W. suðrænn í bland við hefðbundnara 21. aldar indírokk/popp og alls kyns orgel og mellótrona. Ástin er oft fjarri í textum þess- ara háskólastráka sem syngja fremur af alúð og áhuga um kommusetningu og arkitektúr. Skífan byltir tæpast nokkru en þessi lög eru ótrúlega skemmtileg, þægilega áhyggjulaus og sólrík; kjörið veganesti inn í vorið. Virkar vel ef halda á storm- inum úti, svona eins hvítlaukur heldur vampírunum frá. Heldur storminum úti Vampire Weekend – Vampire Weekend bbbbn Atli Bollason MANNI fallast nánast alltaf hendur þegar tónlist The Mars Volta er annars vegar. Sköpunargleðin er á við ofvirkan ungsnilling og tilraunamennskan hæðist að óreiðukenn- ingunni. Plötur The Mars Volta krefjast þess að maður hlusti á þær þúsund sinnum en það getur enginn heilbrigður maður gert sjálfum sér – eða öðrum. Śjálfur gat ég ekki rennt henni í gegn oftar en fimm sinnum. The Bedlam in Goliath er hins vegar platan sem ég mun hlusta á þegar mér verður skotið út í geim- inn í ryðgaðri rússneskri geimferju. Því eitthvað segir mér að hún hljómi rökrétt í algjöru myrkri, kulda og þyngdarleysi. Óreiðukennd ofvirkni The Mars Volta – The Bedlam in Goliath bbbnn Höskuldur Ólafsson / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA O S C A R ® T I L N E F N I N G A R ÞAR Á MEÐAL NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i.16 ára P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ SWEENEY TODD kl. 10D B.i.16 ára DIGITAL UNTRACEABLE kl. 8 B.i.16 ára THE GAME PLAN kl. 5:40 LEYFÐ SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI eeee „ Charlie Wilson’s War er stórskemmtileg og vönduð kvikmynd - V.J.V., TOPP5.IS „Myndin er meinfyndin“ „Philip Seymour Hoffman fer á kostum í frábærri mynd“ - T.S.K. 24 STUNDIR eeee „Sérlega vel heppnað og meinfyndið bandarískt sjálfsháð...“ Ó.H.T., RÚV/Rás 2 SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSISÝND Á AKUREYRI OG KEFLAVÍK VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 SWEENEY TODD kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára UNTRACEABLE kl. 10:30 B.i.16 ára CHARLIE WILSON'S WAR kl. 8 B.i.12 ára DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 B.i.7 ára TÖFRAPRINSESSAN m/ísl tali kl. 5:30 LEYFÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.