Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 20
daglegt líf
20 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Fríðu Björnsdóttur
VALENTÍNUSARDAGURINN
hefur til skamms tíma ekki verið
hátíðisdagur meðal okkar Íslend-
inga þótt eitthvað sé það að breytast
og sumir farnir að notfæra sér tæki-
færið til að gleðja elskuna sína á
einn eða annan hátt. Þessu er öðru-
vísi farið í henni Ameríku. Þar
skreyta menn jafnvel hús og lóðir í
tilefni dagsins.
Uppruni Valentínusardagsins er
ekki alveg ljós. Sumir segja að hann
sé haldinn í minningu Rómverjans
heilags Valentínusar. Hann var tek-
inn í heilagra manna tölu vegna þess
að hann varð að líða píslarvætti þeg-
ar hann neitaði að afneita kristninni.
Valentínus dó 14. febrúar árið 269.
Sagan segir að Valentínus hafi skilið
eftir kveðjubréf til dóttur fangavarð-
arins, en dóttirin hafði vingast við
Valentínus á meðan hann var í fang-
elsinu. Undir bréfið skrifaði hann
„frá þínum Valentínusi“.
Aðrar sögur segja að heilagur
Valentínus hafi verið prestur í Róm
á dögum Claudiusar keisara og hafi
lent í fangelsi fyrir að storka keis-
aranum. Árið 496 á Gelasius páfi svo
að hafa tekið hann í heilagra manna
tölu og ákveðið að hans skyldi upp
frá því minnst 14. febrúar ár hvert.
Fallegar gjafir til ástvinarins
Á Valentínusardag senda menn
þeim sem þeim þykir vænst um sér-
stök kort, konfektkassa, blóm og
ótalmargt annað, allt skreyt með
rauðum valentínusarhjörtum. Í
Bandaríkjunum er dagurinn orðinn
mikilvægur öllum þeim sem stunda
einhverja sölumennsku því salan á
valentínusartengdum gjöfum er gíf-
urleg og gróðinn eftir því. Í borginni
Loveland (Ástarlandi) í Colorado er
að sjálfsögðu mikið um að vera á
þessum degi og pósthús staðarins
sópar að sér peningum því allir vilja
senda póstkort á Valentínusardag-
inn stimplað í Ástarlandi.
Skreyta hús og garða
á Valentínusardaginn
Ljósmynd/Fríða
Valentínusarskreyting Það er margt skrítið í henni Ameríku. Í bænum
Pass-a-Grille sunnan við St. Petersburg í Flórída voru menn búnir að
skreyta lóðir sínar með hjörtum, slaufum og ýmsu öðru í janúarlok.
Margbreytilegir siðir
ÓLÍKIR siðir á Valentínusardegi tíðkast víða um lönd. Í Wales skáru
menn gjarnan út skeiðar úr tré og skreyttu með lyklum og skráargötum og
gáfu á Valentínusardaginn. Þetta átti að þýða: „Þú ert með lykilinn að
hjarta mínu.“ Á miðöldum drógu ungir menn og konur hjartalaga miða
með nafni á úr skál og komust þannig að raun um hver væri þeirra Valent-
ínus. Miðinn var svo festur á ermi viðkomandi og borinn í eina viku. Að
bera hjartað á erminni þýðir nú víða að auðvelt sé að sjá hvern hug við-
komandi ber til ákveðinnar persónu. Í sumum löndum er við hæfi að ungar
stúlkur þiggi eitthvert fataplagg frá karlmanni á þessum degi. Ef stúlkan
hafnar ekki gjöfinni þýðir það að hún vilji giftast manninum. Sæi stúlka
hér áður fyrr rauðbrysting fljúga yfir á Valentínusardegi þýddi það að hún
myndi giftast sjómanni. Sæi hún hins vegar spörfugl táknaði það að hún
ætti eftir að giftast fátækum manni en myndi þó verða hamingjusöm alla
ævi. Gullfinka táknaði að stúlkan giftist milljónamæringi.
Spurning: Mig langar til að leigja sumarhús eða íbúð erlendis. Hvernig fer ég að?
Á NETINU eru ótal vefir sem
bjóða þúsundir íbúða og húsa í
mismunandi löndum. Sumar vef-
síður eru n.k. miðlæg umboðsfyr-
irtæki fyrir eigendur húsa þar sem
fyrirtækin sjá alfarið um útleig-
una, t.d. interhome.com og e-
domizil.com. Aðrar síður bjóða
samskipti beint við eigendur eins
og homeaway.com, vrbo.com eða
craigslist.org (undir „vacation ren-
tals“). Ekki er óalgengt að festa
þurfi húsið með 20-30% af heild-
arverði og greiða svo afganginn
nokkrum vikum áður en leigutími
hefst.
Á hverju þarf
helst að gæta sín?
Hafið á hreinu hvar húsið eða
íbúðin er staðsett og finnið það á
korti, t.d. á vefnum viamichel-
in.com. Ef fjölskyldan er á bíla-
leigubíl skiptir kannski ekki máli
hvort nokkrir kílómetrar eru í
næstu matvöruverslun. Ef enginn
er bíllinn gegnir öðru máli. Einnig
getur skipt suma máli að húsið sé í
rólegu hverfi. Skoðið líka vel allar
myndir sem fylgja húsinu á vefn-
um.
Lesið vandlega smáa letrið. Nær
leigan yfir öll gjöld eða þarf að
borga rafmagn, sængurfatnað og
þrif sér? Í sumum tilvikum þarf að
reiða fram tryggingu við komuna
sem fæst endurgreidd við brottför
ef allt er í lagi.
Alla jafnan er best að láta
greiðslur fara í gegnum kred-
itkort, ekki að millifæra gegnum
banka. Ef skipt er beint við eig-
endur þarf að tryggja sérstaklega
að engin brögð séu í tafli. Það ætti
aldrei að senda peninga í gegnum
Western Union eða á annan hátt
þar sem ekki er hægt að rekja slóð
viðtakandans.
Ekki gleyma íbúðaskiptum, þar
sem tveir aðilar sameinast um að
skipta á húsnæði í ákveðinn tíma.
Homeexchange.com er ein best
þekkta vefsíðan. Einnig má nefna
www.ihen.com og intervacus.com.
Síðurnar taka hóflegt gjald fyrir
milligöngu, en það kostar ekkert
að skoða myndirnar.
En hvert skal halda og til hvaða
héraðs? Það má finna kosti við alla
staðsetningu. Fyrir barnafólk get-
ur verið þægilegt að leigja hús
með sundlaug eða hús við sjó/vatn
þegar heitt er í veðri. Á sama hátt
getur verið mjög heillandi að
leigja hús lengst uppi í sveit eða í
fámennu fjallaþorpi þar sem færi
gefst á að kynnast aðeins þorps-
búum og umhverfi þeirra. Í fjalla-
héruðum er sumarhitinn oft minni
en á láglendinu.
Það er oft gott að velja svæði
rétt fyrir utan þau vinsælustu. Ef
stefnan er tekin á Ítalíu má reikna
með að leigan sé almennt hærri í
Toskana en í nágrannahéruðunum
Umbria og Marche eða í suðurhér-
uðunum Campania, Puglia og Ca-
labria. Gleymið ekki Tékklandi og
Ungverjalandi, Króatíu og Slóven-
íu þar sem oft er mun ódýrara að
leigja og „lifa“.
Venjulega er skýrt tekið fram
hvort húsinu eða íbúðinni fylgi
sundlaug, sjónvarp o.fl. en fyrir
sundlaugina er auðvitað borgað
mun meira. Hugsanlega geta 2-3
fjölskyldur sameinast um að leigja
stórt og fallegt hús með sundlaug
– það ætti að vera viðráðanlegt,
sjá t.d. vefsíðuna thebigdomain-
.com.
Að velja hús fyrir fríið
Árvakur/Ómar
Áfangastaður Hafið staðsetningu sumarhússins á hreinu og verið búin að finna það á korti áður en lagt er af stað.
www.interhome.com
www.e-domizil.com.
www.homeaway.com
www.vrbo.com
www.craigslist.org
www.ihen.com
www.intervacus.com
www.thebigdomain.com
www.homeexchange.com
Þau svara
Ian Watson
hefur langa
reynslu sem
ferðahand-
bókahöf-
undur og fararstjóri. Margrét
Gunnarsdóttir er ritstjóri vefj-
arins ferdalangur.net.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
„EKTA súkkulaði veitir vissa
unaðstilfinningu í munni og það
er líka mikið af lesitíni í því sem
hefur góð áhrif á taugarnar.
Kryddið í Rococo-súkkulaðinu er
gott fyrir kynlífið, til dæmis ræsir
chillipipar út allar æðar og pípur.
Ofsa gott og skemmtilegt. Það er
unaðsleg tilfinning að setjast nið-
ur með tvo eða þrjá eðalmola,
kveikja á kertaljósi og skreyta
með rós. Það þarf ekki að vera
mikið til að skapa rómantíska
stemningu, hvort sem það er á
Valentínusardeginum í dag eða
einhverjum öðrum degi,“ segir
Edda Heiðrún Backman um Ro-
coco-súkkulaðið sem er það nýj-
asta sem hún býður upp á í búð-
inni sinni Súkkulaði og rósir á
Hverfisgötu.
„Þetta er eðalnammi frá Bret-
landi, lífrænt, fair trade, til-
raunakennt og skemmtilegt. Það
eru allskonar krydd í súkkulaðinu
sem gerir þetta svo spennandi. Til
dæmis engifer, persneskt lime,
basilíka, lavander, rósaolía, chilli-
pipar og fleira,“ segir Edda Heið-
rún en hjá henni er líka hægt að
leigja súkkulaðigosbrunna, en þá
rennur bráðið súkkulaði líkt og
vatn um gosbrunninn og svo er
hægt að dýfa jarðarberjum,
mangói eða hverju sem er ofan í
súkkulaðið og gæða sér á. Ekki
amalegt fyrir elskendur sem vilja
gleðjast saman. Einnig er tilvalið
að búa til heitt súkkulaði úr 100%
kakói, til að bjóða elskunni sinni
að súpa á.
„Við erum líka með súkkulaði
fyrir sykursjúka og þá sem vilja
borða eðalnammi án þess að bæta
miklu á sig. Þá er vanilla eða mal-
tósa í stað sykurs.“
Það er ekkert nýtt að súkkulaði
og unaður fari saman því upp-
haflega var súkkulaði fórnargjöf
og fórnardrykkur, sem guðirnir
drukku til að komast í algleymis-
ástand.
Rósirnar hjá Eddu Heiðrúnu
eru sérstakar því að hún ætlar að
endurskíra þær allar. „Við ætlum
að setja á þær íslensk nöfn. Sú
ljósfjólubláa hefur fengið nafnið
Sigurrós og við erum að hugsa
um að skíra bláu rósina Hallgerði
langbrók.“
Kynþokkafullt og krydd-
að súkkulaði fyrir ástina
Árvakur/Golli
Ást Rautt og seiðandi nammi í fögrum umbúðum.
Árvakur/Golli
Bleikt Fyrir geirvörtur og varir.