Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
VARAFORMAÐUR Sjálfstæð-
isflokksins lýsti því yfir á fundi í
Valhöll á dögunum, að framsókn-
armenn væru á góðri leið með að
kála eigin flokki. Það má vel vera
og ekki skal ég gráta það. Hitt
þykir mér öllu verra;
ég sé ekki betur en
sjálfstæðismenn hafi
sett á sömu stefnu og
framsóknarmenn.
Fylgið saxast jafnt og
þétt af flokknum, sam-
kvæmt skoðanakönn-
unum, en enginn gerir
tilraun til að leiðrétta
kúrsinn. Flokkurinn
hrekst um eins og
stefnulaust rekald og
steytir á hverju
skerinu á eftir öðru,
oftast vegna klaufa-
skapar áhafnarinnar.
Ef slíkt gerðist á sjó
yrðu fyrstu viðbrögðin
að skipta um mann-
skapinn í brúnni.
Það má rekja þessar
hrakfarir langt aftur í
tímann, en við skulum
láta nægja að rifja upp
hvað hefur gerst frá
því um síðustu kosn-
ingar. Eftir þær tók
formaður Sjálfstæð-
isflokksins þann kost-
inn, að draga Ingi-
björgu Sólrúnu undir
ríkisstjórnarsængina,
þótt ýmsir aðrir kostir væru í stöð-
unni. Hann gat til dæmis endurnýj-
að ríkisstjórnarsamstarf með
Framsóknarflokknum. Það var að
vísu naumur meirihluti, en hann
gat styrkt stöðuna með því að taka
frjálslynda með. Guðjón Arnar og
Jón Magnússon eru sjálfstæð-
ismenn í hjarta sínu og ég tel
næsta víst, að þeir hafi verið til í
dansinn með sínum gömlu félögum.
En á það var ekki látið reyna.
Geir H. Haarde valdi þann kost-
inn að stíga í vænginn við Ingi-
björgu Sólrúnu og þar var frjór ak-
ur. Ingibjörg og hennar fólk vissi
sem var, að það var Samfylking-
unni lífsnauðsyn að komast í rík-
isstjórn. Ef það hefði ekki gengið
voru dagar Ingibjargar taldir í póli-
tíkinni og Samfylkingin hefði orðið
eyðingaröflum geðvonsku vonsvik-
inna ráðherraefna að bráð. Þetta
vissi Geir, en engu að síður tók
hann þann kost að semja við Sam-
fylkinguna og semja af sér að auki.
Vandræðagangurinn hélt áfram,
en þó tók fyrst steininn úr þegar
meirihluti Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins í borg-
arstjórn Reykjavíkur sprakk með
látum. Þá var Haukur bróðir minn
Leósson, þáverandi stjórn-
arformaður Orkuveitunnar, gerður
að blóraböggli, þótt allir vissu að
hann var að framkvæma vilja þá-
verandi borgarstjóra og oddvita
sjálfstæðismanna í borginni, Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar. Vil-
hjálmur varð margsaga og gleym-
inn í þeirri umræðu og fyrir
einstakan klaufaskap lét hann
vinstrimenn komast upp með að
stela völdum í borginni. Það var
hlegið að borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins, sem sátu í huggu-
legheitum við kræs-
ingar í Höfða og
spiluðu lönguvitleysu á
meðan borgarstjóra-
stóllinn brann undan
Vilhjálmi! Þeir höfðu
ekki einu sinni „kúlt-
úr“ á við rómverska
keisarann Neró, sem
spilaði á fiðlu meðan
Róm brann, en sam-
kvæmt sögunni kveikti
hann eldana sjálfur!
Það sama gerðu borg-
arfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í Reykja-
vík, en Geir H.
Haarde fann ekki einu
sinni brunalykt!
Þetta var vissulega
sárt, því það hefur
verið styrkur Sjálf-
stæðisflokksins að
hafa völdin í Reykja-
vík. Í þessari stöðu
áttu borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins að
játa sig sigraða, bíta í
skjaldarrendur og
hefja nýja sókn. Það
var gert að hluta til á
yfirborðinu, en í stað
þess að hefja mál-
efnalega sókn ákvað Vilhjálmur að
ná borginni aftur með bak-
tjaldamakki; með sömu aðferðinni
og vinstrimenn höfðu notað og
sjálfstæðismenn fordæmt. Þetta
tókst, það má segja að nýi Reykja-
víkurlistinn hafi fallið á eigin
bragði. Sjálfstæðismenn komust
aftur í meirihluta með því að selja
borgarstjórastólinn, en sá meiri-
hluti er veikur og ekki séð fyrir
endann á þeim skollaleik. Ég tel
næsta víst, að ónefndur bankastjóri
hafi sagt eftir þennan hráskinna-
leik: Svona gera menn ekki!
Stuðningsmönnum Sjálfstæð-
isflokksins í borginni fækkar jafnt
og þétt, en „karlinn í brúnni“, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
ekki orð. Það er látið reka. Hann
stingur hausnum í sandinn og
hugsar sem svo; þetta hlýtur að
reddast. Ég hef verið stuðnings-
maður Sjálfstæðisflokksins frá
unga aldri og sætti mig ekki við
þessa stöðu.
Björn Ingi, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, var komin í „djúp-
an skít“ eins og sagt er. Það má
deila um hvernig hann komst í það
fen, en hann hafði þó karlmennsku
til að axla sín skinn og hverfa frá
borði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
oddviti sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, á að gera það sama. Jafnvel
einhverjir skósveinar hans líka.
Það er eina leiðin til að Sjálf-
stæðisflokkurinn nái aftur tiltrú
kjósenda.
Nú gefst Geir H. Haarde tæki-
færi til að sýna hvað í honum býr.
Hann þarf að opna heimleið fyrir
þá sjálfstæðismenn, sem hrakist
hafa frá borði Sjálfstæðisflokksins
á undanförnum árum. Hann þarf að
hreinsa orðspor baktjaldamakks og
óheilinda af flokknum. Hann þarf
einnig að efna til vinafagnaðar með
öðrum en Samfylkingunni við
stjórn landsins. Þannig getur Sjálf-
stæðisflokkurinn aftur komist í
fyrri styrkleika. Láti Geir áfram
reka á reiðanum verður að skipta
um karlinn í brúnni, því ella endar
flokkurinn í sömu stöðu og Fram-
sóknarflokkurinn. Sá flokkur hefur
tekið eigin gröf. Það er bara spurn-
ing, hvenær rekunum verður kast-
að.
Vilhjálmur á
að segja af sér
Sverrir Leósson skrifar
um stjórnmál
» Framsókn-
arflokk-
urinn hefur
grafið eigin gröf
og sjálfstæð-
ismenn stefna í
það sama ef for-
maðurinn gríp-
ur ekki í taum-
ana fyrr en
síðar
Sverrir Leósson
Höfundur er útgerðarmaður
á Akureyri.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
LEIÐARI Mbl. 30. janúar sl. er
tvískiptur. Seinni hlutinn ber yf-
irskriftina „Umgengnin við söguna“.
Tilefni hans er að um þessar mundir
eru 75 ár liðin frá valda-
ráni nasista í Þýska-
landi eða eins og segir í
leiðaranum „frá því að
fyrrverandi auðnuleys-
ingi frá Austurríki,
Adolf Hitler, komst til
valda.“ Leiðarahöf-
undur fjallar svo um
það sem hann kallar
uppgjör Þjóðverja við
valdatíma nasista sem
staðið hafi frá lokum
heimsstyrjaldarinnar.
Þetta uppgjör, segir
leiðarahöfundur, hafi
verið erfitt og ugglaust
megi gagnrýna hvernig
Þjóðverjar hafi um-
gengist sögu sína „en
þegar á heildina er litið
er það sennilega eins-
dæmi.“ Í framhaldinu
segir svo m.a. að heim-
inum væri hollt „ef slíkt
uppgjör færi fram víð-
ar.“ Auðvitað finnst
leiðarahöfundi ástæða
til að benda á að Rússar og Kínverjar
ættu margt ógert í þeim efnum.
Bandaríkjamenn nefnir hann ekki.
Sá sem þetta ritar telur sig þurfa
að setja fram nokkrar athugasemdir
við þennan litla leiðara Morgunblaðs-
ins. Í fyrsta lagi er ástæða til að und-
irstrika að það sem gerðist í Þýska-
landi 30. janúar 1933 var ekki
einhvers konar uppákoma sem fyrr-
verandi auðnuleysingi frá Austurríki
stóð fyrir. Það sem gerðist var að Hit-
ler og nasistaflokkur hans frömdu
valdarán. Þetta valdarán var gert í
samráði við þýska auðvaldið. Senni-
lega var valdaránið endanlega afráðið
á fundi sem Hitler átti með fulltrúum
banka, iðjuhöldum, stórjarðeigendum
og efnahagsráðgjöfum hinn 4. janúar
1933 í Köln. Um þátt þýska auðvalds-
ins í valdaráninu vilja
margir sem minnst tala.
Tilgangur valdaránsins
var sá m.a. að ganga milli
bols og höfuðs á sam-
tökum kommúnista, sósí-
aldemókrata og verka-
manna – og hefja
undirbúning að því að
leggja önnur lönd undir
Þýskaland. Á fundi með
forustumönnum þýska
hersins aðeins fimm dög-
um eftir valdaránið (hinn
5. febrúar) lét Hitler þá
vita hvað til stæði. Og
herforingjarnir, sem
svarið höfðu Weimar-
lýðveldinu hollustueiða,
samþykktu með þögninni
að lýðveldinu skyldi kom-
ið fyrir kattarnef.
Í annan stað er ástæða
til að draga í efa að sú
skoðun leiðarahöfundar
fái staðist að umgengni
Þjóðverja við söguna sé
sennilega einsdæmi (þeg-
ar á heildina sé litið) og öðrum þjóð-
um til fyrirmyndar. Hvernig hefur
þessi lofsverða umgengni við söguna
komið fram? Hvað um uppvöðslu ný-
nasista síðustu áratugina?
Þýska þjóðin hefur vissulega staðið í
uppgjöri við valdatíma nasista allt frá
lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Þetta uppgjör hefur verið á ýmsa vegu
og ljóst að þjóðin hefur litið fortíðina
misjöfnum augum. Í Austur-
Þýskalandi var fasisminn fordæmdur
einarðlega í ræðu og riti. Í bókum,
blöðum, tímaritum, kvikmyndum,
sjónvarpsþáttum og í listum yfirleitt
voru honum gerð skil. Í skólum voru
nemendur fræddir um eðli og
grimmdarverk nasismans. Í Vestur-
Þýskalandi var fasisminn líka for-
dæmdur af almenningi og alla tíð af
vinstrisinnum. En íhaldsöflin komust
þar fljótlega til valda og afstaða þeirra
til fasismans var önnur. Umfjöllun um
ódæðisverk nasista átti ekki upp á
pallborðið hjá þeim. Uppgjör við nas-
ismann var ekki þeirra kappsmál. Þau
voru nefnilega samsek og gátu ekki
státað af andspyrnu við Hitler né bar-
áttu gegn ofsóknum nasista á hendur
gyðingum og vinstrisinnum. Gömlum
nasistum var hleypt í áhrifastöður.
Dómarar sem höfðu starfað undir Hit-
ler fengu aftur tækifæri til að dæma
vinstrisinna til fangelsisvistar. Gamlir
nasistar voru vel séðir hjá vestur-
þýska hernum eftir að honum var
komið á fót. Engin furða að þýski her-
inn skuli enn í dag hafa gamla nasista í
hávegum. Meðal þeirra er Claus
Stauffenberg sem var einn af þeim
sem stóðu að tilræði við Hitler hinn 20.
júlí 1944 en hafði áður verið dyggur
stuðningsmaður hans. Litið er á hann
sem fyrirmynd þýskra hermanna.
Þegar þýska þjóðin hafði seinni
heimsstyrjöldina að baki vildi hún
frið. „Aldrei framar stríð“ var krafa
hennar. Um tíu árum síðar heimtaði
Konrad Adenauer, þáverandi kansl-
ari V-Þjóðverja, að kjarnorkuvopnum
yrði komið fyrir á vestur-þýskri
grund. Árið 1999 létu þýskar flug-
vélar sprengjum rigna yfir Belgrad. Í
dag er Þýskaland helsti vopnasali
Evrópu og í fremstu röð í framleiðslu
vopna af bestu gerð. Yfirvöld landsins
hreykja sér af veru þýskra hermanna
í Afganistan. Kallast þetta að hafa
gert upp söguna sína? Er þetta sú
umgengni við söguna sem aðrar þjóð-
ir ættu að taka sér til fyrirmyndar?
Að gera upp söguna
Ingimar Jónsson gerir
athugasemd við leiðara
Morgunblaðsins
Ingimar Jónsson
Höfundur er rithöfundur
og íþróttafræðingur.
»Þegar þýska
þjóðin hafði
seinni heims-
styrjöldina að
baki vildi hún
frið. Aldrei
framar stríð var
krafa hennar.
Berglind Hólm
Sölufulltrúi
berglind@remax.is
694 4000
Hafdís Rafnsdóttir
Sölufulltrúi
hafdis@remax.is
895 6107
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur
Fasteignasali
Eignin er samtals 380 fmr skv fmr en að sögn eiganda er um 30 fm að auki sem er ekki
inni í fermetratölu hússins og eignin því 410 fm. Húsið er teiknað af Halldóri Gíslasyni
arkitekt. Form hússins er einkar glæsilegt og nær arkitektinn fram fallegum og einstökum
línum á hinum ýmsu stöðum hússins. Innanhúshönnun er samræmd í öllu húsinu.
Gólfefni er náttúrusteinn og fallegt suðurríkja eikarparket. Loftaklæðningin í húsinu er
Brasilísk fura og mikið lagt í lagningu þess. Garðurinn er hannaður af Pétri Jónssyni og er
mjög fallegur með sérvöldum plöntum, lágreistum skjólveggjum og verönd með heitum
potti, falleg lýsing er í garði. Lofthæð er mjög góð í húsinu og að hluta allt að 8 metrar.
Útgengt er á 7 stöðum út úr húsinu. Fullkomið þjófavarnarkerfi er í húsinu.
Þetta er stórglæsileg eign í algjörum sérflokki sem á enga sér líka á Íslandi.
EINSTAKT OG GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS MEÐ
STÓRKOSTLEGU ÚTSÝNI Á ÞESSUM EFTIRSÓTTASTAÐ
Í GARÐABÆ
Eskiholt 7, 210 Garðabær
EIG
N
FY
RIR
VAN
DLÁ
TA