Morgunblaðið - 14.02.2008, Side 29

Morgunblaðið - 14.02.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 29 ✝ Bára Halldórs-dóttir fæddist í Stakkholti í Ólafs- vík 8. desember 1943. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík hinn 5. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Hall- dór Friðgeir Jóns- son, útgerðarmaður í Ólafsvík, og Matt- hildur Ragnheiður Kristjánsdóttir, húsmóðir í Ólafs- vík. Systkini Báru eru: Laufey, lést í æsku, Jón Steinn, Krist- mundur, d. 1997, Pálína, Leifur, Kristín, Sigurveig Edda, tvíbura- systirin Bylgja og Víkingur. Börn Báru eru Theódór Rúnar, Stefanía, Matt- hildur Ragnheiður, Guðmundur Frið- geir og Sigurjón Þorberg, barna- börnin eru 21 og barnabarnabörn 2. Eiginmaður Báru er Lárus Fjeldsted. Bára var uppalin í Ólafsvík og bjó hún í Reykjavík frá árinu 1981. Útför Báru fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Í dag kveðjum við tengdamóður mína, Báru Halldórsdóttur, sem varð bráðkvödd þriðjudaginn 5. febrúar á heimili sínu. Ég er búinn að vera samferða Báru í hartnær tuttugu ár. Fljótlega eftir okkar fyrstu kynni komst ég að því að þarna var á ferð atorkumikil kona sem fátt lét stoppa sig þegar sá var gállinn á henni enda af miklu skipstjóra- og sjósóknarakyni en foreldrar hennar voru Halldór Jónsson, skipstjóri í Ólafsvík, og kona hans, Matthildur Ragnheiður Kristjánsdóttir. Báru varð tíðrætt um foreldra sína og æsku- og unglingsárin í Ólafsvík þegar lífið var saltfiskur og netafellingar fyrir fjölskylduútgerðina og held ég að í henni hafi leynst lítill skipstjóri og hefði hún vafalaust orðið það hefði hún verið karlmaður en bræður hennar all- ir urðu skipstjórar. Bára var mikill smekkmanneskja og fagurkeri og hafði næmt auga fyrir fatnaði og tísku, ráðlagði hún manni heilt í þeim efnum og benti jafnvel á, svona í laumi, að nú væri kominn tími til að endurnýja jakkann eða buxurnar en hún hafði stálminni á það í hverju maður kom síðast. Og stundum var henni nóg boðið þegar hún sá grútskí- tugar gallbuxurnar mínar og heimtaði að fá þær lánaðar í þvott og komu þær hvítskrúbbaðar til baka og ef hún tók skyrturna mínar þá var stífingin slík að ekki þurfti herðatré. Garðurinn hennar í Sæviðarsundinu var einstak- ur og virtist sem allt greri í höndunum á henni á meðan við hjónin vorum aða reyna að halda lífi í einum kaktus. Garðurinn var tekinn á vorin þannig hægt var að setja hallamál á öll beð og voru þau kórrétt, allt arfahreinsað og bætt mold í hvar sem þurfti og áburði þar sem við átti. Með sér í Svævið- arsundinu átti hún sinn trygga lífs- förunaut til síðustu tuttugu og sjö ára, Lárus Fjeldsted, og var hann oft betri en enginn í garðvinnunni og sá ég þá oft skipstjórataktana hjá tengdó þegar grisja þurfti tré, planta út eða bæta grjóti í steinbeðin. Bára var mikill göngugarpur og taldi ekki eftir sér að ganga úr Sævið- arsundinu í Kópavoginn til okkar þeg- ar svo bar við en hún keyrði ekki bíl og hafði engan áhuga á bílum, engu að síður hafði hún fulla skoðun á því hvað væri góður bíll og hvað væri vondur bíll og fannst henni þessi BM eitthvað bestur. En svo þvarr líkamlegur kraftur tengdamóður minnar og virtist þá sem lífsneistinn hyrfi og hafa síðustu ár verið henni erfið og mikið um lækna- heimsóknir og sjúkrahúsvistir en Lár- us hefur staðið sem klettur við hlið hennar og reynt að gera líf hennar eins bærilegt og hægt er. Bára mín, þú kenndir mér margt um lífið. Ég vil votta mína dýpstu samúð Lárusi, Rúnari, Stefaníu, Matthildi; Guðmundi og Sigurjóni. Hermann Vilmundarson. Elsku amma, okkur langar til að minnast þín með fáum orðum en þó skemmtilegum minningum og í leið- inni þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum með þér. Þegar við systkinin vorum að fara yfir það sem við vildum koma til skila var það okkur efst í huga hversu þol- inmóð, skilningsrík og umburðarlynd þú varst í okkar garð þegar við vorum börn og gerðum alls kyns prakkara- strik. Það var alltaf svo gaman þegar þú komst til okkar á sumrin og pass- aðir okkur. Það trúði því enginn á Skaganum að þú gætir verið amma okkar, því þú varst svo ungleg og mikil pæja. Svo var það hápunktur tilver- unnar þegar við fengum að heimsækja ykkur afa til Reykjavíkur, við fengum alltaf Cocoa Puffs í morgunmat og fengum að spila PacMan í tölvunni eft- ir kvöldmat. Það var algjört æði. En þó síðustu árin okkar allra hafi verið mis- jafnlega góð, þá trúðir þú því alltaf að góðu hlutirnir væru bara handan við hornið og bara að vita af því hjálpar okkur mikið í gegnum þessar stundir. Síðustu jól voru frábær og við erum þakklát og ánægð með að hafa eytt þeim með þér. Það færði þér svo mikla gleði að hafa okkur hjá þér þessi jól og það sást langar leiðir hversu mikið það gladdi þig. En nú er víst komið að því að kveðja þig. Með ástarkveðju, Freyr, Bergljót Bára og Bjarni Þór Rúnarsbörn. Bára fæddist í Stakkholti í Ólafsvík. Foreldrar hennar voru hjónin Matt- hildur Kristjánsdóttir húsmóðir og Halldór Jónsson, útgerðarmaður í Ólafsvík. Bára og Bylgja voru tvíburar og næstyngstar í stórum barnahópi þeirra hjóna. Ég kynntist Báru í gamla barna- skólanum í Ólafsvík sem var á Snoppu- nni skammt frá heimili foreldra Báru. Við Bára náðum vel saman. Hún var svolítil strákastelpa, skemmtileg og uppátektarsöm og það var alltaf eitt- hvað að gerast í kringum hana. Þetta var um miðja síðustu öld og ekki gert ráð fyrir mötuneytum í barnaskólum á þeim tíma. Ég var sveitastelpa, kom innan úr Bug sem er innan við Ólafsvík og Bára bauð mér oft í „drekkutíma“ heima hjá sér. Þar bauð Matthildur upp á kakó og „meððí“. Það voru oft mörg börn við borðið hennar Matthildar. Bára ólst upp í Ólafsvík og dvaldi þar fram á fullorðinsár. Hún var ung þegar hún fæddi elstu börnin sín en alls eignaðist hún 5 mannvænleg börn. Það næddi oft um Báru í lífinu, en það sópaði alltaf að henni og hún var glæsileg, alltaf smekklega klædd svo af bar og þrátt fyrir erfiða tíma var stutt í hláturinn og gleðina sem fyrr. Árin 28 sem hún bjó með Lárusi Fjeldsted voru gæfuárin hennar og með honum leið henni vel og hann ann- aðist hana í stuttu en snörpu stríði við manninn með ljáinn. Ég votta Lárusi og börnum Báru einlæga samúð vegna fráfalls hennar og þakka samfylgdina. Sunna Emanúelsdóttir. Okkur mæðgur langar að minnast hennar Báru með nokkrum orðum. Við kynntumst henni þegar Matthildur kom í fjölskylduna okkar og síðan höf- um við reglulega hitt hana Báru á gleði- stundum hjá Hermanni og Matthildi. Í fjölmenni leyndi sér ekki hvar Bára var, hún var stórglæsileg, hafði smitandi hlátur og mikla og skemmtilega frá- sagnargleði. Allt umhverfi hennar bar vott um mikla smekkvísi og snyrti- mennsku enda var hún mikill fagurkeri. Ævin líður árin hverfa í aldadjúpið. Öldur falla, öldur rísa yfir hafið stjörnur lýsa. (Maríus Ólafsson.) Við viljum að leiðarlokum votta Lár- usi, börnum Báru og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Báru Halldórs- dóttur. Kristín og Sigurbjörg. Þrátt fyrir mikla sorg getum við ekki annað en brosað í gegnum tárin og hugsað um hvað við erum heppin. Í 15 ár hlotnaðist okkur sá heiður að vera hluti af lífi Báru, við höfum aldrei kynnst neinni manneskju í líkingu við hana og eigum aldrei eftir að gera það. Við komum til með að viðhalda minn- ingunni um þig í huga okkar og hjarta og við erum stolt af að hafa kynnst þér. Nú er þinn tími kominn, og við verðum að reyna að sætta okkur við það, þótt það sé erfitt. Við kveðjum Báru í dag með þakk- læti fyrir margt dýrmætt sem hún gaf okkur. Eg vil lofa eina þá Eg vil lofa eina þá æðst af kvinnum nefnast má, meyjan heitir Maríá, miskunn Guðs hana gæddi og gjörvöll meinin græddi. María mær, mær, mær, María mær, mær, mær, María mær so mild og skær mann og Guð hún fæddi. Heiðurs verð er heims um rann heilög mey, sem blessan fann; treysti eg Guði og trúi á hann, þó tigni eg þig sem bæri, vel það verðugt væri. María góð, góð, góð, María góð, góð, góð, María góð so mild og rjóð, meyju hverri skærri. María drottning dygðug mest, dáðum prýdd, það auglýsist, í hennar sæði blessast bezt bæði konur og kallar um álfur heims gjörvallar. María frú, frú, frú, María frú, frú, frú, María frú so mild og trú mest yfir kvinnur allar. Blessun hlauztu, María mín, mest yfir hverja auðar lín, sólu fegri skært þú skín, skýrlega má því hrósa; þú ert ein eðla rósa. María væn, væn, væn, María væn, væn, væn, María væn, þín veitist bæn, virgo gloriosa. (Jón Þorkelsson Skálholtsrektor) Það var gæfa okkar að eiga hana fyr- ir vinkonu og njóta samvista við hana. Lífið varð okkur ríkara af kynnum okk- ar við hana. Guð styrki ástvini hennar og megi allt það góða, sem í henni bjó, lifa áfram í afkomendum hennar, sem voru henni svo kærir. Við minnumst góðrar vinkonu með söknuði. Ævar og Ásdís. Bára Halldórsdóttir ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ALBERT HÓLM ÞORKELSSON, bakarameistari, frá Siglufirði, Kveldúlfsgötu 22 Borgarnesi, andaðist þriðjudaginn 12. febrúar á Sjúkrahúsi Akraness. Sigríður Guðmundsdóttir, Ágústína Albertsdóttir, Sigurður Arason, Katrín Albertsdóttir, Loftur Jóhannsson, Kristján Þorkell Albertsson, Elín Ebba Guðjónsdóttir Annabella Albertsdóttir, Sigurgeir Óskar Erlendsson, afa- og langafabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ESTER KRATSCH, Dvalarheimilinu Seljahlíð áður til heimilis að Bólstaðarhlíð 44, Reykjavík, lést á hjartadeild Landsspítalans 5. febrúar. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Auður Auðunsdóttir Larsen, Finn Larsen, Þorbjörg Auðunsdóttir, Guðmundur Auðunsson, Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Guðlaug Auðunsdóttir, Eiríkur Finnur Greipsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, afi, sonur, bróðir og mágur, ANDRÉS SÆVAR GUÐMUNDSSON, Engjahlíð 1, Hafnarfirði, lést að morgni miðvikudagsins 13. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Leonila Hife Guðmundsson, Hanna Bára Andrésdóttir, Alexander Freyr Örvarsson, Rakel Ólöf Andrésdóttir, Erla Bára Andrésdóttir, Reynir Þorkelsson, Ólöf Björg Guðmundsdóttir, Hlöðver Smári Haraldsson, Sigurður Már Guðmundsson, Eyrún Ragnarsdóttir, Reynir Ragnarsson, Ragnar Óli Ragnarsson, Jórunn Halldórsdóttir, Gísli Þór Ragnarsson, Sæunn Siggadóttir. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, RÓSA JÓHANNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, áður til heimilis að Hvassaleiti 153, Reykjavík, lést mánudaginn 11. febrúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Skúli J. Björnsson, Anna S. Garðarsdóttir, Þórhallur Skúlason, Unnur A. Einarsdóttir, Elva Rósa Skúladóttir, Sigrún Kristín Skúladóttir, Hlynur Skúli Skúlason og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, sonar, afa og langafa, ÞORVALDAR RAGNARS GUÐMUNDSSONAR, Funalind 13, Kópavogi. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki deildar L-5 á Landspítala Landakoti. Guð veri með ykkur öllum. Aðstandendur. ✝ Þökkum innilega fyrir samúð og vinakveðjur við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÍÐAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, Hæðarbyggð 9, Garðabæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar og dvalar- heimilisins Holtsbúð, Garðabæ. Skúli Brynjólfur Steinþórsson, Ólöf Sigurðardóttir, Helgi Hólmsteinn Steinþórsson, Hrafnkell Sigurbjörn Steinþórsson, Bryndís Tryggvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.