Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 36
Ég var mjög hrædd við úlfana í Rússlandi og kuldann í Alaska … 39 » reykjavíkreykjavík VERSLUNIN Ósóma hefur undanfarin fjögur ár selt föt og fylgihluti með íslenskri grafík og kannast flestir við bolina með Ósóma-kindinni. Í lok mánaðarins verður versluninni lokað fyrir fullt og allt og eigendur hennar, Þórdís Claessen og Gunnlaugur Grétarsson snúa sér að öðrum verkefnum. „Það eru ákveðin kaflaskil í lífi okkar beggja, ég er að láta mig dreyma um að fara í meistaranám og Gulli er að fara að fjölga mannkyninu,“ segir Þórdís. Hún segir að blendnar tilfinningar fylgi þessum tíma- mótum, en þau kunni vel að meta árin sem verslunin starfaði. „Við höfum lært mikið á fjórum árum og erum stolt af því sem við höfum uppskorið. Það eru svo margir sem þekkja Ósóma-kindina og vörumerkið miðað við það að við auglýsum varla neitt, kindin hefur hlaupið um og auglýst sig sjálf.“ Þórdís og Gulli hafa hug á að halda áfram með vöru- merkið þó að verslunin verði ekki lengur til staðar. „Við erum alls ekki að hætta þótt við leggjum yfirbygginguna niður. Við ætlum að halda áfram í annarri mynd, ann- aðhvort að selja á netinu eða koma vörunum inn í aðrar verslanir, það hafa nokkrar sýnt áhuga. Við höfum líka áhuga á því að vinna með einhverjum sem hefur hug- myndir um það hvernig á að keyra áfram íslenska hönn- un og kynna hana, einhvern með viðskiptavit. Okkur hef- ur kannski vantað það, við höfum fullt af hugmyndum og kunnum að gera grafík.“ Ósóma hættir Árvakur/Ásdís Ósóma Gulli og Þórdís ætla að hætta í verslunarrekstr- inum en Ósóma-kindin gæti átt sér framhaldslíf.  Hinn íslenzki Þursaflokkur fagnar 30 ára starfsafmæli á þessu ári og af því tilefni verða haldnir tónleikar ásamt Caput-flokknum í Laug- ardalshöll laugardaginn 23. febr- úar, eins og margoft hefur komið fram. Fimm dögum áður mun Sena gefa út heildarsafn með Þursa- flokknum sem inniheldur allar fjór- ar plötur sveitarinnar ásamt auka- plötu með fimm lögum af plötunni sem aldrei kom Ókomin forneskjan. Allar plöturnar hafa verið settar í nýjan búning í tilefni útgáfunnar, endurhljóðblandaðar og bæklingar og kápa innihalda áður óbirtar myndir og sögu Þursaflokksins. Þess má geta að forsíðu plötu- umslagsins Ókomin forneskjan teiknaði Hallgrímur Helgason á sínu 19. ári en hann var þá nemandi í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Teiknaði Þursa-umslag 19 ára gamall  Seinni útgáfutónleikar Hjalta- líns fara fram á NASA í kvöld en þeir fyrri fóru fram á Græna hatt- inum á Akureyri 25. janúar síðast- liðinn. Af því tilefni hefur verið fjölgað lítillega í sveitinni og telur hún nú um 13 hljóðfæraleikara og söngvara. Hin nýbakaða móðir Ólöf Arnalds mun hita upp tónleikagesti og raftónlistarmaðurinn Borko kemur einnig fram en hann und- irbýr nú útgáfu á sinni fyrstu plötu. Fyrstu plötu Hjaltalíns Sleepdrunk Seasons var einkar vel tekið fyrir síðustu jól og hana var víða að finna á vinsældalistum í lok árs. Miðar fást á www.midi.is. Útgáfu fagnað Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is BORKO er listamannsnafn Björns Kristjáns- sonar. Þó að hann stígi nú fram með sína fyrstu breiðskífu hefur hann verið lengi að í listinni og er rækilega innviklaður í hóp þann er við krútt er kenndur. Þá liggur eftir hann þónokkuð af út- gefnu efni, mestmegnis á hinum ýmsu safn- plötum en þó kom út fjögurra laga stuttskífa undir merkjum bresku útgáfunnar Resonant, Trees And Limbo, árið 2001. „Ég hef þá samið nokkuð fyrir dansverk og leikhús en ekkert af því hefur komið út,“ segir í Björn í samtali við blaðamann. Klár Breiðskífan ber hinn bjartsýnislega titil Cele- brating Life en það er akureyrska útgáfan Kimi Records sem gefur út hér á landi en Morr Music erlendis. Morr Music þykir mikil gæðaútgáfa, gerir út frá Berlín, og hefur gert þónokkuð af því að gefa út íslenska tónlist; m.a. með múm, Seabear og Benna Hemm Hemm. „Já, loksins er hún klár,“ segir Björn. „Þetta er búið að vera lengi í farvatninu. Thomas (Morr, eigandi Morr Music) er búin að bíða eftir plöt- unni síðan hann heyrði demó hjá mér árið 2001.“ Björn segir elsta lagið á henni sex ára gamalt en það nýjasta hafi orðið til í fyrrasumar. „Ég fór síðan að safna þessu saman í sumar og útsetti þetta allt saman upp á nýtt. Ég vildi fá heildarhljóm í plötuna auk þess sem þetta hjálp- aði mér að átta mig á því í hvaða stefnu ég vildi taka hana. Eftir það fór ég að hleypa öðrum í þau.“ Þeir sem koma að plötunni auk Björns eru Helgi Svavar Helgason trommuleikari, Róbert Sturla Reynisson gítarleikari, þeir Örvar og Ei- ríkur Orri úr múm, Áki Ásgeirson og Guð- mundur Óskar, bassaleikari úr Hjaltalín. Borko hefur átt fremur lágstemmdan feril til þessa, en það hefur ekkert verið sérstaklega meðvitað. „Maður er einfaldlega alltaf upptekinn við eitthvað annað og þetta hefur bara æxlast svona. Maður hefur verið í námi og vinnu og ég sjálfur hef t.d. verið að bíða ansi lengi eftir þessari plötu. Ég fékk svo tveggja mánaða frí síðasta sumar frá kennslu og þá gat ég loksins einbeitt mér að plötunni.“ Tónleikar Platan kemur út í byrjun mars erlendis en 13. mars hér á landi. Borko fer í Evróputúr með múm 27. febrúar og hyggst svo fylgja plötunni frekar eftir með spilamennsku hér og hvar næstu mánuði. Á fimmtudaginn leikur hann svo á útgáfutónleikum Hjaltalín á NASA en þá kem- ur Ólöf Arnalds fram einnig. Sjálfur hyggst hann svo halda útgáfutónleika í apríl. Lífinu fagnað Fyrsta breiðskífa raftónlistarmannsins Borko kemur út í næsta mánuði Morgunblaðið/Valdís Thor Borko „Já, loksins er hún klár,“ segir Björn Kristjánsson um fyrstu breiðskífuna sína. Hún heitir Celebrating Life og hefur verið í undirbúningi í talsvert langan tíma. www.myspace.com/borkoborko ■ Lau. 16. febrúar kl. 17 Kristallinn – kammertónleikaröð Þjóðmenningarhúsinu Fransk rússneskur kammersirkus. Litrík verk með fjölbreyttri hljóðfæraskipan. Claude Debussy: Sónata fyrir flautu, víólu og hörpu. Sergei Prókofíev: Kvintett fyrir óbó, klarinett, fiðlu, víólu og kontrabassa. Maurice Ravel: Inngangur og allegró fyrir hörpu, flautu, klarinett og strengjakvartett. ■ Fim. 21. febrúar kl. 19.30 – Nokkur sæti laus Sellósnillingur í toppformi Daniel Müller-Schott, ein skærasta stjarna sellóheimsins í dag, leikur einleik í byltingarkenndum konsert Haydns. Einnig eru á dagskrá forleikur eftir Mozart og Sveitasinfónía Beethovens. ■ Fim. 28. febrúar kl. 19.30 Liszt og Bruckner Tveir stórmeistarar hvor á sínu sviði. Flutt verða píanókonsert eftir Liszt og sinfónía eftir Bruckner. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.