Morgunblaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 27
✝ Hulda Jóns-dóttir fæddist í
Reykjavík 16. októ-
ber 1937. Hún lést á
heimili sínu, Lág-
holti 19 í Mos-
fellsbæ, 9. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Svanlaug Kristjáns-
dóttir húsfreyja, f.
16.12. 1898, d. 30.6.
1966, og Jón Þor-
björnsson netagerð-
armaður, f. 23.6.
1909, d. 1.5. 1981.
Systkini Huldu eru: 1) Gylfi vél-
virki, f. 13.7. 1941, d. 21.10. 2005,
gift Árna V. Sólonssyni, f. 10.10.
1966, börn þeirra eru Sólon Krist-
inn, f. 14.4. 1991, Hilmar, f. 20.5.
2004, og Guðrún Ida, f. 23.3. 2006.
3) Berglind Jóna, f. 3.3. 1969, í
sambúð með Jóni Emil Magn-
ússyni, f. 15.9. 1964, börn þeirra
eru Halla Berglind, f. 7.5. 1993, og
Hulda Bryndís, f. 5.3. 2000.
Hulda ólst upp á Framnesvegi í
Vesturbænum, einnig í Austur-
bænum svo og í Fagranesi á Álfs-
nesi á Kjalarnesi. Hún gekk í Mela-
skólann og Austurbæjarskólann.
Hún lærði hárgreiðslu og starfaði
við hana um 10 ára skeið. Hún fór
síðan í sjúkraliðanám og starfaði
sem sjúkraliði á Reykjalundi til
ársins 2005.
Hulda verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
maki Sigurlaug Ein-
arsdóttir, f. 21.8.
1946, og 2) Dagmar
Lind, f. 9.11. 1942.
Hulda giftist árið
1960 Þráni Þorsteins-
syni húsgagnasmið, f.
á Akureyri 19.11.
1935. Foreldrar hans
voru Óla Sveins-
dóttir, f. 27.8. 1906, d.
9.6. 1994, og Þor-
steinn Stefánsson, f.
4.11. 1902, d. 28.10.
1964. Hulda og Þrá-
inn eignuðust þrjú
börn, þau eru: 1) Fjalar, f. 25.8.
1960. 2) Svanlaug Ida, f. 1.6. 1966,
Mig langar að kveðja elskulega
mágkonu mína með þessu ljóði.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hvíl í friði elsku Hulda mín.
Þín mágkona,
Sigurlaug.
Það eina sem liggur ljóst fyrir
þegar við fæðumst í þennan heim er
að lífi okkar lýkur á einhverjum
tímapunkti. Allt þar á milli er
óskrifað blað.
Leiðin er óvörðuð og það er hlut-
verk okkar flestra að varða sína
leið. Það leggur enginn upp í þenn-
an leiðangur með loforðapakka frá
almættinu. Öll fáum við sitt lítið af
hverju, gleði og gæfu, erfiðleikum
og sorg, hæfileikum og hamingju.
Við tökum öll þátt í að skapa heim-
inn; sumir skapa þó betri heim en
aðrir. Hulda var í þeim hópi.
Við sem unnum með Huldu Jóns
lítum á það sem hluta af okkar gæfu
í lífinu að hafa kynnst henni. Fengið
að njóta nærveru hennar bæði í
vinnunni og eins utan vinnu þegar
tækifæri gáfust. Fráfall Huldu bar
afar brátt að, við vissum jú að hún
var veik en … hún hafði svo mikið
að gefa og þá komum við aftur að
því að enginn veit sína ævina fyrr
en öll hún er.
Hulda lét af störfum á Reykja-
lundi árið 2005, 67 ára gömul, eftir
farsælan feril í starfi sem sjúkraliði
í tuttugu og fjögur ár. Hún var sér-
lega trúr og traustur starfsmaður. Í
deildarsamfélagi þar sem vinnan
gengur út á að hjúkra og veita um-
hyggju þeim sem á þurfa að halda
var Hulda máttarstólpi. Var sam-
nefnari fyrir þá sem veita góða
umönnun. Hún var afar góður
sjúkraliði. Hlý, kærleiksrík, og eins
og sagt er í biblíunni um kærleik-
ann, hann hreykir sér ekki af verk-
um sínum, má segja það sama um
Huldu. Hún fór hægt og hljótt, var
umburðarlynd, gefandi og
hjartahlý. Við vinnufélagar hennar
eigum minningarnar um góðan fé-
laga. Félaga sem var jákvæð og
skemmtileg, sem sagði aldrei mis-
jafnt orð um nokkurn mann og sá
fegurðina allt um kring og alls stað-
ar.
Dúnmjúkum höndum strauk kulið um
krónu og ax,
og kvöldið stóð álengdar, hikandi, feimið
og beið.
(Steinn Steinar.)
Elsku Þráinn, Fjalar, Svanlaug,
Berglind, tengdabörn og barnabörn
við sendum ykkur öllum innilegar
samúðarkveðjur. Góður Guð gefi
ykkur styrk í sorginni.
Samstarfsfólk og
vinir á Reykjalundi.
Hulda Jónsdóttir
Fleiri minningargreinar um Huldu
Jónsdóttur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SIGURLAUG SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR,
áður til heimilis á Sólvallagötu 41,
Reykjavík,
lést á dvalarheimilinu Borgarnesi, laugardaginn
15. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Stefanía Drew, Arnold Drew, Elín Kristinsdóttir og aðrir
aðstandendur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN KVARAN,
Sóleyjargötu 9,
Reykjavík,
lést laugardaginn 15. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún Kvaran, Jakob Yngvason,
Vilhjálmur B. Kvaran, Helga Pála Elíasdóttir,
Einar B. Kvaran,
Böðvar B. Kvaran, Ásta Árnadóttir,
Hjörleifur B. Kvaran, Anna Kristín Ólafsdóttir,
Gísli B. Kvaran, Anna Alfreðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR PÁLSSON
fyrrverandi sveitarstjóri,
Laufskógum 31,
Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 14. mars.
Útför verður auglýst síðar.
Sigrún Sigfúsdóttir,
Ingvar Sigurðsson,
Sævar Sigurðsson, Fay Robina Castle,
Sigmar Sigurðsson, Jónína Dagmar Ásgeirsdóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGA S. KRISTJÁNSDÓTTIR,
áður Fagrabæ 1,
lést á Grund föstudaginn 14. mars.
Þórir Guðmundsson, Sigurbirna Oliversdóttir,
Jóhanna S. Guðmundsdóttir, Guðmundur Örn Einarsson,
Sigurjón Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURJÓN GÍSLASON
gúmmíviðgerðamaður,
áður til heimilis á
Laugarásvegi 67,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn 14. mars.
Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 25. mars
kl.15.00.
Gísli Sigurjónsson, Lidia Sigurjónsson,
Jón Sigurjónsson, Sjöfn Hákonardóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGFÚS ÞÓRHALLUR BORGÞÓRSSON,
Suðurgötu 17,
Sandgerði,
lést sunnudaginn 9. mars.
Útförin fór fram þann 15. mars í kyrrþey að ósk
hins látna.
Gunnar Borgþór Sigfússon, Sigurbjörg Eiríksdóttir,
Sigríður Sigfúsdóttir, Friðrik Þór Sigmundsson,
Sveinn Kristinsson, Hallbjörg Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SKARPHÉÐINN M. PÁLSSON,
Hátúni 12,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 15. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Herdís Skarphéðinsdóttir, Gunnar Gunnarsson,
Borgar Skarphéðinsson, Sesselja Svavarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Lækjarsmára 6,
Kópavogi,
áður búsett á Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 14. mars.
Útför hennar verður gerð frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 25. mars kl. 15.00.
Sigríður Dóra Jóhannsdóttir, Ólafur H. Torfason,
Egill T. Jóhannsson, Kristín Gunnarsdóttir,
Örn Jóhannsson, Ane Mette Sørensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birtist
valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU,
5-15 línur, og votta þeim sem
kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein.
Ekki er unnt að tengja viðhengi
við síðuna.
Undirskrift | | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á mynda-
móttöku: pix@mbl.is og láta um-
sjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar