Morgunblaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. KÍNA OG NÁGRANNAR Umheimurinn horfir til Kína umþessar mundir, sem vettvangefnahagslegra kraftaverka. Í Kína er allt að gerast. Allra leiðir liggja til Kína. Uppgangur í efnahags- málum er ótrúlegur. Í Kína er gífur- leg framleiðsluaukning. Í Kína er gíf- urleg aukning í neyzlu og svo mætti lengi telja. En það eru til fleiri hliðar á Kína. Það er Kína vinnuþrælkunar. Þótt í Kína ríki stjórn alþýðunnar að nafn- inu til er alþýðunni þrælkað út á vinnustöðum fyrir alger lágmarks- laun en ótrúlegan vinnutíma. Jafnvel forseti Íslands hefur farið til Kína og dásamað uppganginn þar án þess að líta til hægri eða vinstri og hafa orð á vinnuþrælkuninni, sem þar við- gengst. Kína er líka ríki, sem kúgar fólk. Þar ríkir einræðisstjórn í nafni kommúnismans. Og eins og í ríkjum kommúnismans er fólk kúgað í Kína. Það nýtur ekki frelsis. Það nýtur ekki skoðanafrelsis og tjáningarfrelsis. Og Kínverjar kúga nágranna sína. Kúg- un Kínverja á Tíbetum er einn ljótasti bletturinn á okkar samtíma. Það hef- ur að langmestu leyti ríkt þögnin um þá kúgun, sem Tíbetar hafa búið við í meira en hálfa öld. Hvers vegna hefur ríkt svo mikil þögn um kúgunina í Tíbet? Vegna þess, að það hefur ekki hentað hags- munum Vesturlanda að halda uppi mótmælum gegn kúgun Tíbeta. Það hefur hentað hagsmunum Vestur- landa að horfa framhjá Tíbet. Eftir að Bandaríkjamenn og aðrar þjóðir viðurkenndu Pekingstjórnina hefur heldur ekki hentað hagsmunum Vesturlanda að hafa orð á löngun íbúa Taívan til sjálfstæðis. Það er horft fram hjá Taívan. Í grein hér í Morg- unblaðinu í gær á Charles Liu, fulltrúi á sendiskrifstofu Taívan í Danmörku, greinilega erfitt með að skilja viður- kenningu Íslendinga á sjálfstæði Kos- ovo (sem að vísu tók langan tíma að gefa yfirlýsingu um, ótrúlega langan) á sama tíma og Íslendingar eru ekki tilbúnir til að viðurkenna sjálfstæði Taívan og styðja umsókn íbúanna þar um aðild að Sameinuðu þjóðunum. Hvers vegna erum við ekki tilbúin til að styðja sjálfstæði Taívan? Vegna þess, að það hentar ekki hagsmunum okkar. Það hentar bara hagsmunum okkar að mati íslenzkra stjórnvalda að hylla ástandið á meginlandi Kína, þótt við mundum fordæma slíkt ástand hjá smærri þjóðum. Ný ríkisstjórn er augljóslega í leit að nýrri utanríkisstefnu og á erfitt með að finna hana en ríkisstjórnina langar til að vera með stóru strákun- um í sandkassaleiknum mikla. Kjarninn í nýrri utanríkisstefnu okkar Íslendinga gæti verið að reka utanríkispólitík á siðferðilegum grundvelli. Að byggja utanríkispólitík á því, sem við teljum rétt en ekki á því, sem einhverjir telja þrönga hagsmuni okkar. Slík utanríkispólitík er hvergi rek- in. Þess vegna mundi hún vekja at- hygli. ÍSRAELAR OG NÁGRANNAR Miryam Shomrat, sendiherra Ísr-aels á Íslandi skrifar grein í Morgunblaðið í gær, þar sem hún lýs- ir afstöðu Ísraela til þeirra átaka, sem staðið hafa að undanförnu m.a. á Gazasvæðinu. Sendiherrann segir m.a. í grein sinni: „Dag eftir dag eru Íslendingar mataðir á fréttum í sjónvarpi eða öðr- um fréttastofufréttum um það, sem kallað er „hefndaraðgerðir“ eða „vítahringur ofbeldis“. Þeim eru hins vegar ekki sýndar daglegar eld- flaugaárásir á Sderot, Askelon og aðrar byggðir, sem Hamas-liðar eða aðrir hryðjuverkamenn standa fyrir. Þeim eru aðeins sýnd viðbrögð ísr- aelska hersins við hryðjuverkaárás- um, árásir hans á hryðjuverkamenn- ina og aðstöðu þeirra. Það er rangt og villandi að lýsa ástandinu sem „víta- hring“ og selja alla undir sömu sök. Þannig eru þó fréttirnar matreiddar í íslenzkum fjölmiðlum, þótt í raun sé um að ræða hryðjuverkaárásir á aðra hönd en tilraunir til að hrinda þeim á hina.“ Og sendiherrann segir ennfremur: „Ísraelar beina ekki spjótum sínum af ásettu ráði gegn óbreyttum borg- urum, skólum, heimilum og sjúkra- húsum. Þeir vilja ekki skaða friðsama Palestínumenn en neyðast til að verj- ast hryðjuverkamönnum og aðeins þeim. Ísraelar ráðast ekki gegn skólum, moskum eða sjúkrahúsum, jafnvel þótt hryðjuverkamenn skjóti eld- flaugum frá þessum húsum. Útsend- arar Hamas eru hins vegar innan um fólkið og því kemur það fyrir, því mið- ur, að óbreyttir borgarar falli í átök- um milli Hamas og Ísraela. Hamas notar síðan fréttastofur og fréttarit- ara til að tryggja, að Íslendingar fái mjög einhliða mynd af ástandinu.“ Auðvitað er það svo, að Ísraelar eiga sinn málstað ekkert síður en Pal- estínumenn. Þeir geta fært ákveðin rök fyrir sinni háttsemi við þær erf- iðu aðstæður, sem til staðar eru á þessum umdeildu svæðum. En það er eitt sem Ísraelar geta ekki gert. Þeir geta ekki höfðað til fólks með þeim málflutningi að þeir séu minnimáttar í þessum átökum. Þeir geta ekki höfðað til fólks með því, að þeir séu einungis að verja hendur sínar. Ísrael er eitt öflugasta herveldi í heimi og langöflugasta herveldið í Miðausturlöndum nær. Þeir geta leikið sér að Palestínumönnum eins og köttur að mús og gera. Þess vegna eiga Ísraelsmenn ekki að reyna að verja stöðu sína og að- gerðir með því að leita eftir samúð fólks. Sýni þeir hins vegar í verki vilja til þess að hjálpa Palestínumönnum til þess að bjarga sér sjálfir mundu þeir uppskera stuðning umheimsins og þá samúð, sem þeir sækjast eftir. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is Vímuefnavandi Íslendingahefur aldrei verið meirien nú. Vandi ungs fólkshefur vaxið gríðarlega síðasta áratug og það ánetjast örvandi vímuefnum í vaxandi mæli. Sjúkrahúsið Vogur hefur ekki undan eins og er og þar hef- ur aldrei verið meira að gera en á fyrstu mánuðum þessa árs. Þetta kom fram í máli Þórarins Tyrf- ingssonar, yfirlæknis á Vogi, þeg- ar hann kynnti umfang og starf- semi SÁÁ í gær. Þórarinn gerði það á Akureyri þegar nýtt hús- næði göngudeildar SÁÁ þar í bæ var tekið í notkun. „Notkun örvandi vímuefna er gríðarlega mikið vandamál á með- al ungs fólks í dag, það hefur farið vaxandi og er ekki að réna þegar horft er til nokkurra ára,“ sagði Þórarinn í gær. „Hrikalegt“ Yfirlæknirinn sagði að 70% þeirra sem koma á Vog frá tvítugu til þrítugs væru háð örvandi vím- efnum. „10% þeirra eru komin með lifrarbólgu C og 25% þeirra sprauta sig í æð,“ sagði Þórarinn. Skv. tölum úr gagnagrunni Vogs komu um 20 manns til með- ferðar vegna notkunar kókaíns árið 1996, en í fyrra komu hátt í 300 manns á Vog sömu erinda. Aukningin er einfaldlega „hrika- leg“ eins og Þórarinn orðaði það. „Ástandið versnaði mest frá 1996 og fram að 2000, það hefur nokk- urn veginn staðið í stað síðan – heldur aukist reyndar – en það er greinilega ekki að lagast.“ Góðu fréttirnar þetta árið, segir Þórarinn, eru þær að morfínfíkl- um virðist vera að fækka. Ástæð- ur þess segir hann aðgerðir land- læknisembættisins og viðhaldsmeðferð á Vogi. „Við sjáum líka að þeim fækkar sem eru að fikta við að sprauta sig mjög ungir.“ Áhyggjur af eldra fólki Áfengisneysla fólks yfir fimmtugu er sífellt meira áhyggjuefni, segir Þórarinn. „Fólk hefur kannski drukkið daglega lengi en þegar það er komið yfir fimmtugt og lendir jafnvel í einhverjum áföll- um leitar það til SÁÁ vegna dag- drykkju og meðferðarinngrip skila mjög góðum árangri hjá þessu fullorðna fólki.“ Árið 2001 komu um 200 manns, 50 ára og eldri, á Vog en í fyrra 250 á aldrinum 50 til 59 ára. Á sama tíma fjölgaði þeim í aldurs- flokknum 60-69 ára, sem komu á Vog, úr 60 í 130. Drykkjuvandamál fólks í elstu aldursflokkunum er því meira en margan grunar. „Við sjáum hér, eins og bent verður það fyrst og frems fólk sem eykur neysluna, unglingarnir. Þeir sem au áfengisneysluna verða þei eiga erfiðara með hreyfing erfitt með að koma sér á s Unga fólkið á ekki í vandr með það. Það hefur alltaf rösklega og mætt samt í s mánudögum; jafnvel staði plikt fram yfir tvítugt. Það eftir að breytast mikið.“ Vandinn eykst hjá stúl Ástandið hjá ungum stúlk konum hefur einkum vers hefur verið á annars staðar í Evr- ópu, að fullorðna fólkið sækir í vaxandi mæli inn á heilbrigð- isstofnanir vegna sídrykkju og af- leiðinga hennar sem eru fyrst og fremst greindarskerðing og minn- istap, og aðrir fylgikvillar frá lif- ur, brisi, meltingarvegi og vöðva- kerfi. Þetta eru gríðarlega mikil heilbrigðisvandamál.“ Og það er einmitt gamla fólkið, ekki unglingarnir eins og gjarnan er nefnt, sem Þórarinn hefur mestar áhyggjur af verði farið að selja áfengi í matvöruverslunum. „Ef áfengi verður sett í verslanir, „Notkun örvandi ví gríðarlega mikið va „ÞETTA er mikill gleðidagur,“ sagði Þórarinn Tyrfingsson, yf- irlæknir SÁÁ á Vogi, þegar tekið var í notkun nýtt húsnæði fyrir göngudeild SÁÁ á Akureyri í gær. Starfsemin hefur verið á hrakhólum undanfarið en sam- tökin keyptu húsnæðið í Hofsbót 4 þangað sem deildin hefur nú verið flutt. SÁÁ er ekki með þjónustu- samning við hið opinbera vegna göngudeildarinnar, hvorki á Ak- ureyri né í Reykjavík. „Rekst- urinn er því í nokkurri óvissu,“ sagði Þórarinn í gær. Hann lýsti samt mikilli ánægju með að starf- semin væri komin í nýtt hús. „Við vorum heppin að geta keypt þetta húsnæði. Það er engin áhætta tekin með því vegna þess að við getum alltaf selt það aftur. En það vantar vissulega rekstrarfé vegna þess að Akureyrarbær hef- ur ekki komið inn í reksturinn og auðvitað er ekki hægt að búa við þá óvissu mjög lengi. En við fögn- um í dag og vonum að þetta ist – eins og Íslendingar seg gjarnan.“ Starfsmaður göngudeild á Akureyri er Ásgrímur G. undsson áfengis- og vímuef gjafi og hann sinnir einnig Húsavík og Sauðárkróki. Þórarinn segir mikla þör göngudeild á Akureyri. „Þö gríðarlega mikil fyrir þessa semi hér vegna þess að fólk langt frá spítalanum og okk þjónustumiðstöðvum. Það e ilvægt að fólkið þurfi ekki a suður og það fær mikinn st hér eftir að það hefur verið ferð.“ Þá segir Þórarinn Tyrfin það skipta miklu máli að fo arstarfi sé sinnt, t.d. gagnv börnum sjúklinga, vegna þ þau séu áhættuhópur. „Við að þjónusta þetta fólk og æ okkur að gera það í framtíð fremi við fáum tækifæri til sagði Þórarinn. Morgunblaðið/Skapti Hallgr Göngudeild í nýju húsnæði Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vo gerður Rúnarsdóttir læknir hjá SÁÁ og Ásgrímur G. Jörundsson á og vímuefnaráðgjafi og dagskrárstjóri göngudeildar SÁÁ á Akure Gríðarlega mikil þörf fy göngudeildina á Akurey

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.