Morgunblaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ingibjörg Gísla-dóttir fæddist í
Reykjavík 25. nóv-
ember 1923. Hún
andaðist á Skóg-
arbæ í Reykjavík 12.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Grímheiður El-
ín Pálsdóttir, f. 30.
september 1895, d.
1986, og Gísli Jó-
hannsson iðn-
aðarmaður, f. 21.
maí 1891, d. 1978.
Systkini Ingibjargar
eru: Jónína Margrét, f. 6. mars
1921, maki Brandur Tómasson, d.
1995; Jóhann, f. 1. maí 1925, d.
1968, maki Vilborg Kristjáns-
dóttir; Valgerður, f. 23. feb. 1927,
maki Andrés Gilsson; Páll Garðar,
f. 28. feb. 1928, d. 1951, maki Ethel
Bjarnasen, d. 2002; og Magnús R.,
f. 19. júní 1930, maki Dóra Jó-
hannsdóttir, d. 2004. Auk systk-
inanna ólst sonur Garðars Páls,
Gísli Baldur, f. 1950, upp á heimili
þeirra.
Ingibjörg giftist 24. desember
1949 Leifi Valdimarssyni, f. í Køge
á Sjálandi 7. júlí 1921, d. 10. feb.
2004. Hann fluttist til Íslands 1948
og var skírnarnafn hans Leif Bern-
dóttir nemi, f. 8. okt. 1979. Börn
hennar eru Heiðrún Ósk, Þor-
steinn Árni og Sunna Líf. d) Ásta
Þorsteinsdóttir menntaskólanemi,
f. 26. jan. 1989. 2) Heiða Kolbrún
myndhöggvari, f. 30. nóv. 1953.
Hún á 3 börn, þau eru: a) Katrín Ýr
Kjartansdóttir gullsmiður í Ósló, f.
13. feb. 1976, gift Ernst Bjerkeseth
Poleszynski gullsmið, f. 11. jan
1970, dóttir þeirra er Kirvil Krist-
ine. b) Kjartan Ingi Kjartansson
viðskiptafræðingur, f. 6. des. 1978,
dóttir hans og Hörpu Georgsdótt-
ur er Birta. c) Karítas Sól Jóns-
dóttir, f. 4. júlí 1995. 3) Auður,
cand. mag., kennari við Kvenna-
skólann í Reykjavík, f. 7. nóv. 1958.
Börn hennar og Guðmundar Gunn-
laugssonar arkitekts, f. 19. maí
1954, eru: a) Eva Dögg há-
skólanemi, f. 6. mars 1982, gift Ein-
ari Þór Ingólfssyni verkfræðingi, f.
1.5. 1982, b) Ingi Vífill mennta-
skólanemi, f. 13. júlí 1988, og c)
Helgi Reyr grunnskólanemi, f. 22.
apríl 1992. Langafabörnin eru 8 og
verða á næstunni 9.
Eftir að hefðbundnu skyldunámi
lauk stundaði Ingibjörg nám við
Verzlunarskóla Íslands. Að námi
loknu stundaði Ingibjörg ýmis
skrifstofustörf, en lengst af starf-
aði hún hjá Morgunblaðinu við
auglýsingadeild og prófarkalestur.
Ingibjörg verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
storff Hansen, en 10.
júní 1955 fékk hann
íslenskan ríkisborg-
ararétt og tók sér
jafnframt íslenskt
nafn. Foreldrar hans
voru Jens Julius
Valdemar Hansen,
skipasmiður í Køge,
síðar í Næstved á Sjá-
landi, f. 22. des. 1891,
d. 1966, og Ingrid
Klara Kirstine Jør-
gensen, f. 12. ágúst
1890, d. 1948. Leifur
og Ingibjörg eign-
uðust þrjár dætur, þær eru: 1)
Hrefna Eleonóra, fulltrúi hjá
Vinnumiðlun Reykjavíkur, f. 10.
apríl 1950, gift Þorsteini Árnasyni
rafvirkjameistara hjá Ístak, f. 10.
nóv. 1950. Hún á 4 börn, þau eru: a)
Ingibjörg Svana Sæmundsdóttir
sálfræðingur, f. 19. mars 1968,
maki Hafsteinn Haukur Hreið-
arsson rafvirki, f. 3. sept. 1968,
börn þeirra eru Tinna Dís og Leó
Snær. b) Leifur Thorberg Sæ-
mundsson vélstjóri, f. 27. mars
1973, kvæntur Önnu Jónu Bald-
ursdóttur háskólanema, f. 5. nóv.
1972. Dóttir Leifs er Kristjana og
börn Önnu Jónu eru Bjarki og
Yngvi. c) Inga Lára Sæmunds-
Það er svo sannarlega sjónar-
sviptir að henni móður minni, Ingi-
björgu Gísladóttur, þegar hún nú
kveður lífið, södd lífdaga. Það að
segja að móðir mín hafi verið „södd
lífdaga“ er reyndar svolítið tvíbent
því fáar manneskjur held ég að hafi
átt jafn mikið af því sem á dönsku
kallast „livsappetit“ áður en veikindi
fóru að taka af henni toll. Eins og ég
man móður mína í blóma lífsins var
hún brosmild, hress, afar „co-
quette“, sem og áræðin og fljót að
svara fyrir sig. Enda vissi hún sinn
vilja og hafði oftar en ekki skýra
sýn á það hvernig hlutum yrði best
hagrætt. Þessi persónueinkenni
nutu sín vel þegar hún sem ung tók
virkan þátt í starfi Sjálfstæðis-
flokksins. Við, dæturnar þrjár erum
börn þeirrar kynslóðar sem hafði
hlutverkaskipti kynjanna kirfilega
afmörkuð og sáum húsmóðurina
ekki fyrir okkur annars staðar en
heima, urðum vægast sagt agndofa
þegar einn frændinn sagði okkur að
hún mamma hefði átt góða mögu-
leika á að öðlast frama í stjórn-
málum. En þannig var hún mamma
í essinu sínu; að segja frá félagsand-
anum á „Mogganum“ þar sem hún
starfaði um árabil, ásamt kosninga-
vökunum og starfinu innan vébanda
Sjálfstæðisflokksins. Var enda eins
og henni hefði verið flutt véfrétt
þegar ég sagði henni að ég væri
ekki flokksbundin sjálfstæðismann-
eskja og spurði fyrir hverjar einustu
kosningar hvort ég ætlaði virkilega
ekki að „kjósa sjálfstæðið“! „Þú ætl-
ar þó ekki að kjósa kommana, Auð-
ur mín?“ Og ekki tók hún mig trú-
anlega þegar ég sagði henni að í dag
væru ekki einu sinni til kommúnist-
ar í Rússlandi; enda nógu erfitt fyr-
ir okkur sem fengum hryllingssögur
af kommúnistaríkjunum með móð-
urmjólkinni að skilja hrun Berlínar-
múrsins, hvað þá kynslóðina sem
var upp á sitt besta þegar „blessað
stríðið“ kom og færði Ísland inn í
nútímann og velmegunina. Mömmu
þótti alla tíð mjög óviðeigandi og í
raun móðgandi fyrir alþjóðasam-
félagið að verið væri að gagnrýna
„Ameríku“ þó svo að henni þætti
Bush forseti óttaleg hjáræna og vit-
leysislegur í þokkabót. Í huga þeirr-
ar kynslóðar, sem nú svo óðum er
að týna tölunni, var Ameríka með
Hollywood, Frelsisstyttuna, ísskáp-
ana og sjálfvirku þvottavélarnar,
land tækifæranna og nýrra tíma.
Tímar sem einkenndust af svart-
hvítri heimsmynd sem leiddi af sér
áræði og einhug um að sigra „óvin-
inn“; hvort sem hann nú var fátækt-
in, gamli tíminn og sauðalitirnir eða
kommarnir. Hún móðir mín var svo
einlæglega mikil „Reykjavíkurdótt-
ir“ þess tíma. Fædd „á mölinni“,
lærði kvenlegar dyggðir í hús-
mæðraskóla í Danmörku, þó svo að
hún seinna meir hefði sagt barna-
börnunum frá því frelsi sem fólst í
því að fá tækifæri til að dvelja er-
lendis; að fara með vinkonunum á
„Valencia“; dansa og púa „Lucky
strike“! En að tala um mömmu án
þess að minnast á systur hennar
tvær væri bara hálf saga. Ég, ásamt
frændsystkinum mínum, börnum
Jónínu og Valgerðar, átti því láni að
fagna að alast upp í skjóli „mæðra-
veldis“ systranna þriggja. Það er
einstakt veganesti út í lífið að hafa
upplifað þá ríku samkennd, vináttu
og væntumþykju sem þær systur
áttu. En það væri efni, ekki bara í
aðra grein, heldur heila bók, en ætla
samt að þakka þeim Völu og Nínu
alla þeirra elsku og umhyggju fyrir
mömmu eftir að veikindi hennar
ágerðust.
Blessuð sé minningin um Ingi-
björgu Gísladóttur.
Auður.
Það er með söknuði, en líka sátt
að ég kveð í dag tengdamóður mína
til nær 30 ára, Ingibjörgu Gísladótt-
ur. Ekki bara tengdó, heldur líka
kæran og náinn vin, því samband
okkar var ætíð innilegt og kærleiks-
ríkt. Ég hef oft sagt að ég hafi eign-
ast bestu tengdamóður norðan
Alpafjalla og aldrei varð okkur
sundurorða. Ingibjörg var persóna,
sem auðvelt var að eiga samskipti
við, lífsglöð og brosandi alla tíð. En
hún var samt kona, sem vissi sinn
vilja, hafði í sér drottningareðli, sem
sumir áttu erfitt með að skilja.
Sagðist oft í gríni hafa blátt blóð í
æðum og naut þess að vera fögur og
fín og því varð margt á efri árum
henni þyngra að umbera en okkur
almúganum. Og vissulega urðu síð-
ustu mánuðir henni mjög erfiðir og
það var henni þungbær sorg að
finna mátt sinn dofna eftir byltur og
brot í glímunni við elli kerlingu. En
lífið er lærdómur og ég trúi því að
hún hafi þrátt fyrir mikinn lífsvilja
innst inni verið hvíldinni fegin.
Við tvö ræddum oft rök tilver-
unnar og trúðum einlæglega á tilvist
sálarinnar eftir líkamsdauðann.
Þannig er ég fullviss um að hópur
látinna ættingja og vina hafi fagnað
henni við heimkomuna, með Leif
hennar í broddi fylkingar. Og að
hann; eiginmaður til rúmlega 50 ára
og sem ekta Dani hafi slegið upp
góðum „frokost“ til að fagna Imbu
sinni. Leifur var mér líka mjög kær
sem tengdafaðir og vinur og minn-
isstæðar margar stundir með þeim
hjónum, með mat og drykk en líka
geislandi lífsgleði, hlátur og húmor
við borðið. Þau tvö, sem deildu lífi
sínu, voru þó um margt svo ólík,
hún opin og félagslynd, hann meira
fyrir bara sinn innsta hring og að
grúska í listinni, en þau bættu hvort
annað upp. Og oft fann maður að
Imba saknaði félagsskapar Leifs,
fannst hún oft verða vör við sinn eft-
ir að hann lést fyrir 4 árum, að-
allega að hún fyndi lykt af Old spice,
pípu eða sígarettum. Og þá gönt-
uðumst við með að ekki hefði hann
nú blessaður hætt að reykja við
vistaskiptin!.
Imba var mikil veisludama, naut
þess að vera fínust af öllum og skála
við góða vini, glitrandi í skarti og
breiðu brosi. Áhugamál hennar var
mjög velferð afkomendanna, en svo
sannarlega líka vinir og veislur, Bil-
ledbladet og að komast á Jómfrúna
og í flottar búðir. Leikhús með
elskulegum systkinum var hennar
líf og yndi og einstakt samband
þeirra á milli, eru þeim færðar mín-
ar samúðarkveðjur. Glaðvær rödd
og hlátur hennar Imbu okkar er nú
þagnaður og tilveran er svo sann-
arlega litlausari við burtför hennar.
Ég vil af alhug þakka tengdamóður
minni fyrir samfylgdina og er sér-
lega þakklátur fyrir þær dýrmætu
og nánu stundir sem við tvö áttum
saman um jólin síðustu. Ég trúi því
að nú gangi hún hnarreist, glöð og
frísk um hin andlegu svið og að
hvell rödd hennar, glettni, bros og
hlátur gleðji í himnaríki.
Guð blessi sálu Ingibjargar Gísla-
dóttur og gefi henni líkn og frið.
Guðmundur Gunnlaugsson.
Elsku amma.
Nú ertu farin yfir móðuna miklu,
haldin í ferðalag sem bíður okkar
allra en enginn veit hvert leið ligg-
ur.
Samverustundir okkar hafa verið
ómetanlegar og óborganlegar í
gegnum árin. Gleði, sorg og auðvit-
að glettni. Þín glettni.
Ég hugsa til baka til Gullteigsins
góða, ykkar hlýlega heimili, þar sem
alltaf var boðið upp á pylsur, suðu-
súkkulaði og teiknimyndir. Þar var
sjóræningjamyndin í miklu uppá-
haldi hjá mér. Já, þú manst „hæhó
og reiagó“.
Í gegnum árin varst þú mikil
matrósa og góður gestgjafi, alltaf
við eldhúsið að stússast. Vöfflur og
nýbökuð, ísfrosin hafraterta, beint
upp úr frystinum. Það var best. Al-
veg eins og það átti að vera.
Eftir að afi dó, árið 2004 sýndir
þú á þér nýja hlið sem barnabörnin
höfðu ekki áður séð.
Afi hafði alltaf séð um það að nóg
væri af bröndurum, með sínum ein-
staklega laumulega hætti og þú sást
um að selskapið hefði það gott mat-
arlega séð.
Þessi nýja hlið var glettnin þín og
alveg einstök hreinskilni sem gat
haldið uppi heilu selskapsveislunum.
Elsku amma, þú varst sannkall-
aður gleðigjafi, það sagði ég þér, þó
svo að þú tryðir því ekki. Þegar ég
fór og hitti vinkonur mínar núna á
seinni árum var það alltaf ég sem sá
um að segja ömmu-sögur, þ.e. sögur
af þér og þínum óborganlega húm-
or.
Margt af þínum húmor er nú
komið inn í orðaforða fjölskyldunn-
ar og mun þannig áfram lifa með
okkur, þó svo að þú sért farin. Og
þannig munum við áfram minnast
þín.
Elsku amma mín, ég veit svo vel
að það var kominn tími til að sleppa
þér. Þú varst búin að standa við lof-
orðið sem þú gafst mér í haust.
Þetta er allt í lagi núna, við munum
klára okkur.
Þú sagðir við mig í janúar að þú
„myndir ekki lifa það af“ að verða
upp á aðra komin. Þú reyndist
sannspá.
Elsku amma, ég kveð þig nú, far
þú í friði, við sjáumst síðar. En
þangað til lifir í hjarta mér yndisleg
minning um þig.
Þín ömmustelpa,
Eva.
Ingibjörg Gísladóttir
✝
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
MÓEIÐUR HELGADÓTTIR
frá Selfossi,
sem lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á
Hellu miðvikudaginn 12. mars, verður jarðsungin
frá Selfosskirkju föstudaginn 28. mars kl. 13.30.
Helgi Garðarsson, Kristín Ólafsdóttir,
Haukur Garðarsson, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir,
Þorvarður Örnólfsson.
✝
Innilegar þakkir sendum við til allra sem sýndu
okkur samúð og vináttu vegna andláts eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞÓRS ÞORSTEINSSONAR,
Jakaseli 25,
Reykjavík.
Anna Hulda Sveinsdóttir,
Guðrún Þórsdóttir, Ólafur Stefánsson,
Einar Þór Þórsson, Anna Karlsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður, ömmu, langömmu og langalangömmu,
MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hveragerði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Ási fyrir góða umönnun.
Sigmundur Bergur Magnússon,
Guðbjörg D. Sigmundsdóttir,
Kristjana M. Sigmundsdóttir, Þorlákur Helgason,
Sigurveig Sigmundsdóttir, Sveinn Guðmundsson,
Guðmundur Ingi Sigmundsson, Sigríður Á. Pálmadóttir
og afkomendur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra vina, ættingja og
annarra sem sýndu okkur hlýhug, samúð og
heiðruðu minningu föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
ÁRNA HELGASONAR
fyrrverandi stöðvarstjóra Pósts og síma.
Gunnlaugur A. Árnason, Sigrún Valtýsdóttir,
Halldór Árnason, Anna Björg Eyjólfsdóttir,
Helgi Árnason, Aðalbjörg Jónasdóttir,
Vilborg Anna Árnadóttir, Jón Trausti Jónsson,
afa- og langafabörn.
✝
Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn,
JAKOB ÖRN SIGURÐARSON,
Dynsölum 10,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 19. mars kl. 13.00.
Herdís Þorláksdóttir, Sigurður M. Jónsson,
Rafnar Örn Sigurðarson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Þorlákur Jóhannsson,
Eyrún Hafsteinsdóttir, Jón Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.