Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 47
Morgunblaðið |47
Hinir svokölluðuWave-handlang-arar eru semóðast að ryðja
sér til rúms víða um heim,
en notkun þeirra stóreykur
öryggi starfsfólks og sparar
jafnframt tíma og vinnu að
verulegu leyti. Það er
Straumur-Hraðberg ehf í
Hafnarfirði sem flytur inn
tækin til Íslands, en fyr-
irtækið hefur einkum sér-
hæft sig í heildarlausnum
fyrir vöruhús.
Wave-handlangararnir
eru afskaplega liprir og
hentugir í notkun, sér-
staklega þegar um er að
ræða minni hluti sem
geymdir eru hátt uppi. Þetta
á sérstaklega við um þar
sem oft þarf að sækja ein-
staka vöru en erfitt eða
óhentugt er að koma við
hillulyftara eða þröngganga-
lyftara.
„Í rauninni leysa þessir
svokölluðu handlangarar
mest allan stigaútbúnað af
hólmi og allir þeir sem
þekkja til lagerstarfa vita
hversu erfitt það getur verið
að sækja þyngri kassa hátt
upp í hillur,“ segir Sigurður
Héðinn, markaðsstjóri
Straums-Hraðbergs.
„Wave-handlangarinn er
mjög hentugt tæki í lagera
og vöruhús þar sem sækja
þarf einstakar vörur upp í
hillurekka. Hann kemur í
staðinn fyrir stiga og önnur
slík tól og sparar bæði tíma
og starfsorku, svo ekki sé
minnst á hið aukna öryggi
sem fylgir notkun hans,“
segir Sigurður.
Aukið öryggi í vinnunni
Wave-handlangarinn er
þannig gerður að nánast er
ómögulegt að verða fyrir
meiðslum við notkun hans.
„Auðvitað er aldrei hægt
að koma algerlega fyrir slysahættu óháð því hvernig
aðstæður eru, en handlangarinn eykur samt öryggið
gífurlega,“ segir Sigurður.
Wave-handlangarinn er mjög stöðugur og samtímis
lipur í notkun. Hann nær 2,97 metra vinnuhæð og hægt
er að lyfta honum og stjórna bæði hratt og vel.
„Það er reyndar ekki hægt að stjórna handlang-
aranum nema öryggishlið séu lokuð og báðar hendur
starfsmanns á stjórntækjunum samtímis. Notandinn
verður líka að vera í réttri stöðu annars stöðvast tækið
af sjálfu sér,“ segir Sigurður.
Öryggisútbúnaður Wave-handlangarans gerir hann
þó hvorki fyrirferðarmikinn né þunglamalegan.
„Handlangarinn er 1,5 metra langur og 75 sentimetra
breiður, það er hægt að snúa honum auðveldlega og á
staðnum, hann kemst nánast alls staðar að og vinnur
bæði hratt og örugglega,“ segir Sigurður.
Heildarlausnir
Straumur-Hraðberg ehf varð til í upphafi árs 2006
við samruna fyrirtækjana Straums ehf og Hraðbergs
ehf. Hið sameinaða fyrirtæki rekur verslun með hillu-
kerfi fyrir vörulagera, (eða bara kompuna heima) vöru-
turna, auk gaffallyftara, lyftitækja, lagervagna, plast-
kassa, stálskápa, trappna, trillna o.fl. Fyrirtækið býður
einnig upp verkstæði og þjónustu við lyftara.
„Við fluttum inn í nýtt húsnæði hérna í nóvember í
fyrra og sameinuðum þá starfsemi beggja fyrirtækj-
anna undir einu þaki, sem er mjög hentugt fyrir okk-
ur,“ segir Jón Gunnar Baldvinsson, forstjóri Straums-
Hraðbergs ehf.
Jón Gunnar segir að fyrirtækið sérhæfi sig í alhliða
lausnum fyrir vöruhús en fyrirtækið selur bæði lyftara
af mörgum gerðum, hillur og brettakerfi og annað það
sem til þarf í starfsemi stórra sem smárra vöruhúsa.
„Við erum í stuttu máli með allar hugsanlegar
geymslulausnir og veitum auk þess þjónustu, bæði með
varahluti og viðgerðir, fyrir lyftara af öllum gerðum,
hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða úti á landi,“
segir Jón Gunnar.
Hann segir að fyrirtækið eigi alltaf mikið magn á lag-
er og geti yfirleitt sett upp 300-500 bretta kerfi beint út
af lager.
„Ef um stærri kerfi er að ræða verðum við auðvitað
að panta en við ráðum vel við allstór kerfi beint af lag-
ernum hjá okkur.
Hjá fyrirtækinu starfa tíu starfsmenn, þar á meðal
tveir rafvirkjar og bifvélavirkjar, en fyrirtækið er með
verkstæðis- og aðra þjónustu fyrir allar tegundir lyft-
ara.
Wave handlangarinn í
stað stiga og stóla
Handhægur Wave handlangarinn sparar tíma og eykur öryggi.
Morgunblaðið/Golli
Allt til rafsuðu
Þú færð allt til
rafsuðu hjá okkur
Tæki, vír og fylgihluti
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf