Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 36
36|Morgunblaðið
Þetta hafa allmargir ís-lenskir bifreiðaeigendurreynt á eigin skinni, entalið er að árlega lendi að
minnsta kosti 800 manns í því að
dæla röngu eldsneyti á bifreiðar
sínar og að árlegt tjón af slíku geti
numið um 20 milljónum króna.
„Við fáum fréttir af slíkum mistök-
um í hverri viku og því miður fer
þeim stöðugt fjölgandi,“ segir
Stefán Ásgrímsson, ritstjóri hjá
FÍB, Félagi íslenskra bifreiðaeig-
enda. En hvers vegna gerir fólk
slík mistök, hvaða afleiðingar hef-
ur það og hvað er til ráða?
„Yfirleitt er þetta á þann veginn
að fólk dælir bensíni á tankinn á
dísilbílum. Það kemur sjaldnast
fyrir að því sé öfugt farið, að dísil-
olía fari á bensínbíl. Ástæðan er
einfaldlega sú að stútarnir ofan í
eldsneytistankana eru mismunandi
sverir, dælustúturinn á dísildæl-
unni er sverari en á bensíndælunni
og kemst því
ekki ofan í áfyll-
ingarstútinn á
bensínbílnum.
Það er því voða-
lega erfitt að
troða dísilstút
ofan í bens-
íntank en því
miður er ansi
mikið um þetta á
hinn veginn,“
segir Stefán.
Sjálfsafgreiðsla hefur aukist á
bensínstöðvum sem þýðir að fleiri
dæla sjálfir á bíla sína. Stefán seg-
ir þó aðalástæðuna fyrir þessari
aukningu á mistökum í dælingu
vera fjölgun dísilbifreiða, að þau
haldist í hendur við hana.
Ekki setja í gang!
– Hvað á fólk að taka til bragðs
þegar það uppgötvar mistökin á
staðnum með dælustútinn í hönd-
unum og hvað gerist ef fólk gerir
sér ekki grein fyrir mistökunum
strax?
„Fyrir alla muni, alls ekki
starta bílnum! Það sem þarf að
gera er að tæma tankinn á bílnum
og setja dísilolíu í staðinn. Þá þarf
að kalla til dráttarbíl og flytja bíl-
inn á verkstæði en eftir því sem
ég best veit eru allavega sum hver
olíufélaganna með slíka þjónustu,
að minnsta kosti á virkum dögum.
Þá er bíllinn sóttur og tappað af
honum.“ Stefán segir alveg bráð-
nauðsynlegt að fólk átti sig á mis-
tökunum strax og helst áður en
það setur bílinn í gang. Ef ekki
geti farið svo að bifreiðin hætti að
ganga. „Íkveikjumarkið eða
blossamarkið á olíu og bensíni er
svo ólíkt þannig að fólk byrjar á
því að finna fyrir því að bíllinn fer
að ganga leiðinlega og gefa frá sér
hávaða og skrýtin hljóð, oft alls
konar aukahljóð. Svo gerist það
oft að bifreiðin drepur á sér og
hættir hreinlega að geta gengið.“
Stórtjón fylgir
misgáningi við dælingu
„Allt kostar þetta sitt,“ segir
Stefán. „Það að fá dráttarbíl,
greiða fyrir vinnustundir á verk-
stæði, fyrir utan allt bensínið sem
sett var á bílinn og fer til spillis
þar sem það verður að fara í eyð-
ingu. Þessi aðgerð getur hæglega
kostað í kringum 50 þúsund krón-
ur. Þannig að þetta er heilmikið
tjón og það án þess að nokkuð
hafi skemmst í bílnum,“ segir
Stefán.
– Hvað er það sem getur
skemmst eða eyðilagst í bifreið-
inni þegar mistök við dælingu eiga
sér stað og hversu mikill kostn-
aður getur hlotist þar af?
„Það að dæla röngu eldsneyti á
bifreið getur eyðilagt í henni mót-
orinn og ef það gerist ekki getur
það hæglega valdið skemmdum
sem geta komið fram seinna.
Bensín hefur allt aðra eiginleika
en dísilolía en fyrir utan íkveikj-
umarkið hefur það meðal annars
miklu minni smureiginleika og
getur valdið skemmdum á inn-
sprautunarkerfinu í dísilbílum og
á spíssum og olíuverki eða há-
þrýstidælu. Ef einhverjar slíkar
skemmdir verða getur sú viðgerð
hæglega kostað frá 300-600 þús-
und krónur þannig að þetta er
stórtjón.“
Nýr útbúnaður með
fjölgun dísilbifreiða
Stefán telur ekki sérstaka þörf
á að aðgreina frekar eldsneyt-
isdælurnar til að koma í veg fyrir
slík mistök þar sem þessi sver-
leikamunur á stútunum sé til stað-
ar. Hann bendir á að ein ný bif-
reið, Ford Mondeo, sé þannig
útbúin að ekki sé hægt að koma
mjóa bensínstútnum ofan í tank-
inn á henni og það sé það albesta.
„Ég hef ekki orðið var við þennan
útbúnað í öðrum bílum, en mér
finnst afskaplega líklegt að fleiri
bílaframleiðendur taki upp þennan
búnað því dísilbílum hefur fjölgað
mikið í Evrópu þó að við sjáum
ekki þessa sömu aukningu hér.“
– Hvert er hlutfall dísilbifreiða
og hver er ástæðan fyrir þessari
fjölgun úti í Evrópu og hvers
vegna erum við eftirbátar þeirra
hér á landi?
„Dísilolían er ekki eins dýr úti í
Evrópu eins og hérna á Íslandi.
Það er ekki vegna þess að hún sé
ódýrari í framleiðslu heldur er
hún skattlögð lægra vegna þess að
mengunin er minni. Dísilbílar
eyða um 25% minna magni, sem
hæfir betur markmiðum um að
draga úr útblæstri frá bílum, en
þeir hafa áttað sig á þessu úti í
Evrópu en við erum ekki alveg
búin að ná því hér heima. Hlutfall
dísilbíla er hér á landi í kringum
20%, þegar allt er talið, en í Evr-
ópu eru dísilbílar orðnir rúmlega
helmingur allra seldra nýrra
fólksbíla.“
Dokaðu við
áður en þú
dælir!
Það getur kostað þig dágóðan skilding að dæla
röngu eldsneyti á bifreiðina þína. Að þessu komst
Sigríður Dóra Gísladóttir í samtali við Stefán Ás-
grímsson, ritstjóra hjá FÍB, en árlegt tjón gæti
numið 20 milljónum króna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dýrkeypt Það getur verið dýrkeypt að dæla bensíni á díselbíl og tjónið numið tugum eða hundruðum þúsunda.
» „Yfirleitt er þetta á
þann veginn að fólk
dælir bensíni á tankinn
á dísilbílum. Það kemur
sjaldnast fyrir að því sé
öfugt farið, að dísilolía
fari á bensínbíl.
Stefán
Ásgrímsson
Gúmmívinnslan á Akureyri tók nýverið yfir allan
rekstur Alorku í Reykjavík, sem er ört vaxandi fyrir-
tæki sem hefur sérhæft sig í sölu á hjólbörðum og
flutningatækjum. Í kjölfarið var ákveðið að sameina
alla hjólbarðasölu og hjólbarðaþjónustu félagsins
undir nafni og vörumerki Alorku.
Með þessum breytingum verður til eitt öflugasta
félag landsins á sviði hjólbarðaþjónustu. Alorka er
með starfsstöðvar á Akureyri og í Reykjavík og
býður breiða vörulínu af hjólbörðum fyrir flestar
gerðir farartækja. Hjólbarðaverkstæði Alorku að Rétt-
arhvammi 1 á Akureyri og Tangarhöfða 15 í Reykja-
vík hafa á að skipa traustum fagmönnum með mikla
reynslu.
Gúmmívinnslan verður áfram í fullum rekstri en mun
fyrst og fremst sjá um framleiðslu á sóluðum hjól-
börðum og ýmsum vörum úr endurunnu gúmmíi.
Þessar breytingar gera okkur kleift að veita enn betri
þjónustu og meira vöruúrval á samkeppnishæfu
verði. Þannig viljum við styrkja tengsl okkar við
núverandi viðskiptavini ásamt því sem við bjóðum
nýja viðskiptavini velkomna í hópinn.
Réttarhvammi 1 • Akureyri • Sími 464 7900
Tangarhöfða 15 • Reykjavík • Sími 577 3080
Vagnhöfða 6 • Reykjavík • Sími 577 3080www.alorka.is
Alorka er nafnið á sameinuðum félögum Gúmmívinnslunnar
og Alorku á sviði hjólbarðaþjónustu
Alorka er umboðsaðili á Íslandi fyrir: