Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 32
Núna þegar loksins er fariðað glitta í vor og bjartaritíð eru eflaust einhverjirfarnir að huga að ferða- lögum yfir sumartímann. Hvert skal haldið, hvernig skal farið og hvar á að gista? Ótal margt mælir með ferða- lögum innanlands og fyrir þá sem leggja mikið upp úr ferðafrelsi þá ætti húsbíllinn að vera ákjósanlegur kostur. Hann sameinar bæði ferða- máta og gistingu og getur borið ferðalanginn nánast hvert á land sem er. Samkvæmt tölum Umferðarstofu eru sífellt fleiri Íslendingar farnir að nota húsbílinn en nú eru skráðir 2334 slíkir bílar á landinu sem eru tæplega 300 fleiri bílar en voru skráðir í árs- byrjun 2007. Af þeim eru húsbílar Ford flestir en fast á hæla þeirra sækja húsbílar Mercedes-Benz. Ný hönnun húsbíls, byggð á grunni Mercedes Benz Sprinter frá Daimler Chrysler kenndur við James Cook og Westfalia, var nýverið kynnt en um er að ræða eins konar lúxus- hótelherbergi á hjólum. Af þessum bíl bjóðast tvær útfærslur, „Classic“ og „Compact“ og felst munurinn einkum í hæð og fjölda svefnplássa. Þarfir ferðamannsins Undirritaður prófaði fyrrnefndu útfærsluna en hún geymir sætispláss fyrir fjóra og jafn mörg svefnpláss. Annars vegar er það tvíbreitt rúm (240x150 cm), sem dregið er út á sleð- um fyrir ofan stýrishús, og hins vegar tvíbreitt rúm (200x130 cm) sem leggst yfir farþega- og bílstjórasæti. Og þegar svefnplássin eru ekki í notkun má hæglega ganga frá þeim svo lítið fari fyrir. Þá er hægt að nýta sætin og koma fyrir borði og verður þá til sæmileg setustofa. „Classic“ útfærslan er mjög há, 3,2 m á hæð, og þar af leiðandi er mikið pláss í bílnum og rúmt um farþega. Mikið er um hvers kyns hirslur og skápapláss og svo geymir bíllinn 62 lítra ísskáp með frystihólfi sem lítið fer fyrir. Og þá erum við komin inn í eldhúshornið en þar er prýðilegar að- stæður til matargerðar með vaski, gashellum, nægu skápaplássi til að geyma hráefnið og svo er meir að segja löng kryddhilla fyrir ofan vask- inn. Það má því halda góða mat- arveislu í bílnum og ef veiðifólk er í fararhópnum þá eru kjöraðstæður til að matreiða aflann. James Cook húsbíllinn er hann- aður til að mæta helstu þörfum ferða- mannsins en auk þess að geta full- nægt sælkeranum og boðið honum upp á væran blund þá er þarna líka salernisaðstæða og sturta. Og ef gott veður og skjól bjóðast þá er hægt að draga sturtuhausinn út fyrir bílinn og viðkomandi getur þrifið sig undir berum himni. Talsvert er af inn- stungum þannig að það mætti stinga sjónvarpi í samband eða annars kon- ar afþreyingu. Öllu er vel komið fyrir og nánast hver einasti flötur nýttur. Það ætti því að vera hægt að kom- ast í snertingu við náttúru landsins án þess þó að þurfa að fórna helstu lífsgæðum siðmenningarinnar. Fjölskylduferð Prufubíllinn er búinn þriggja lítra, sex sýlindra dísilvél sem býður upp á 184 hestöfl við 3800 snúninga og því sæmilega aflmikill. Hann er aft- urhjóladifinn, með fimm hraða sjálf- skiptingu, búinn ESP stöð- ugleikakerfi, spólvörn og ABS-bremsuvörn. Þá eru einnig líkn- arbelgir fyrir ökumann og farþega í framsæti. Það fer vel um ökumann í bíl- stjórasætinu enda mikilvægt fyrir ferðalanginn að geta ekið langar vegalengdir án óþæginda. Fyrir ofan framrúðuna er skjár sem sýnir allar helstu upplýsingar um starfsemi öku- tækisins eins og vatnsstöðu, raf- magnshleðslu, hitastig, upplýsingar um ískáp og fleira. James Cook Sprinterinn er vel hannaður húsbíll sem mætir helstu þörfum ferðamannins og ætti að henta prýðilega í fjölskylduferðalög um landið. Íveruvænn Þeir sem kjósa að komast í snertingu við náttúru landsins án þess að þurfa að fórna helstu lífsgæðum nútímans í leiðinni ættu að kunna vel við þennan lúxus Sprinter-húsbíl. Hár Bíllinn er 3,2 metrar á hæð. Aðgengilegur Rennihurðin. Hótelherbergi á hjólum Eldhúsið Vaskur og gashellur. Húsbíllinn býður upp á mikið ferðafrelsi með því að sameina ferðamáta og gistingu. Þormóður Dagsson prufukeyrði á dögunum þýska lúxushús- bílinn James Cook Sprinter Wesfalia. 32|Morgunblaðið Vél: 318 CDI, sex sýlindra dísilvél Aflgeta: 184 hestöfl við 3800 snún- inga Drif: Afturhjóladrif Gírskipting: Fimm hraða sjálfskipt- ing Lengd: 5910 mm Breidd: 1993 mm Hæð: 3200 mm Hjólhaf: 3665 mm Eigin þyngd: 3140 kg Eyðsla: 9,5 l/100km í utanbæj- arakstri, 12 l/100km í innanbæj- arakstri Verð: 14.900.000 (miðað við núver- andi gengi evrunnar) Umboð: Askja James Cook Sprinter West- falia

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.