Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 10
10|Morgunblaðið
Stefanía, eða Steffí eins oghún er alltaf kölluð, var búinað stunda nám við Mennta-skólann við Sund í tvö ár
þegar það rann upp fyrir henni að
hana langaði að læra bifvélavirkjun.
Bílaáhuginn hafði aukist jafnt og þétt
síðan hún kynntist núverandi vina-
hópi sínum 14 ára gömul en hópurinn
er allur á kafi í bílum og bíla-
viðgerðum. „Fyrst hékk ég inni í
skúr með vinum mínum og fylgdist
með þeim gera við bíla,“ útskýrir
Steffí, sem síðan gerði sér grein fyrir
því að þetta væri eitthvað sem ætti
vel við hana.
Kennararnir yndislegir
Hún var hins vegar frekar rög við
að sækja um í námið við Borgarholts-
skóla en vinahópurinn hvatti hana
áfram. „Ég þorði ekki að sækja um
og umsóknarfresturinn var útrunn-
inn en vinir mínir ýttu mér áfram og
sögðu mér samt að sækja um og
heimta að fá inngöngu,“ segir Steffí.
Það gekk eftir og hún hóf nám í bif-
vélavirkjun við Borgarholtsskóla.
Námið skiptist í þrennt: grunnám
(1 ár), bifvélavirkjun (2 ár) og svo
starfsnám á verkstæði í eitt ár áður
en sveinsprófið er tekið. Steffí segir
námið vera að miklu leyti bóklegt en
þar sem efnið átti vel við hana hafði
hún mun meira gaman af því en bók-
lega náminu í MS. „Aðstaðan er mjög
góð í Borgarholtsskóla og kenn-
ararnir yndislegir,“ segir hún en
seinni hluta námsins er að miklu leyti
varið á verkstæði skólans við ýmis
verkefni.
Stelpum í bransanum fjölgar
Steffí hefur starfað á bifvélaverk-
stæði Heklu í næstum því ár og er ein
af þremur stelpum þar í vinnu. „Þeg-
ar ég byrjaði í skólanum fyrir þrem-
ur árum vissi ég ekki af neinni stelpu
í þessari vinnu,“ lýsir Steffí. „En það
hefur aukist og nú veit ég um stelpur
sem starfa á öðrum bifvélaverk-
stæðum. Ég held að stelpur séu ekki
lengur hræddar við að velja svoköll-
uð karlastörf.“
En hvað er svona skemmtilegt við
bifvélavirkjun? Steffí segir fé-
lagsskapinn vera stóran hluta af
starfinu og svo finnst henni mik-
ilvægt að sitja ekki á rassinum allan
daginn. „Ég verð að hreyfa mig og í
þessu starfi geri ég það og fæ ný
verkefni á hverjum degi. Maður er
alltaf skítugur upp fyrir haus og það
er alltaf jafngaman,“ segir hún hlæj-
andi.
Fallegasta Corolla landsins
Frítímanum eyðir Steffí einnig
mikið í bílaviðgerðir og leigir meðal
annars aðstöðu með vinum sínum þar
sem hópurinn dundar sér á kvöldin.
lýsir Steffí. Kærastinn hennar er
einnig bifvélavirki þannig að það má
með sanni segja að hún sé á kafi í
bílabransanum.
Steffí segir sér líka vel að vinna hjá
Heklu og hún læri stöðugt eitthvað
nýtt. Á verkstæðinu vinna í kringum
20 manns og alltaf er nóg að gera.
Hún segir starfið ekki bara vera fyrir
sterka karlmenn því verkfærin í dag
séu orðin mjög sérhæfð og tölvu-
vædd. „Ef eitthvert verk þarfnast
mikilla krafta eru menn fljótir að
hlaupa til og hjálpa,“ útskýrir hún,
„og reynsluboltarnir koma hlaupandi
til að hjálpa þegar maður lendir í
vandræðum.“
Að sögn Steffíar hefur tölvuvæð-
ingin bætt miklu við starfið og gert
það fjölbreyttara en áður var. Nú er
ekki einungis hamagangur ofan í vél-
arrúminu heldur sitja bifvélavirkj-
arnir stundum inni í bílum að lesa á
tölvu.
Eiga ekkert í okkur
Það er ljóst að Steffí og samstarfs-
konur hennar á bifvélaverkstæðum
landsins gefa öðrum ungum stelpum
gott fordæmi og sýna það að bifvéla-
virkjun er starf fyrir alla, konur jafnt
sem karla. „Strákarnir eiga ekkert í
okkur og við stríðum þeim ekkert
minna en þeir okkur,“ lýsir hún. „Ég
var reyndar hrædd fyrst og þorði
ekki að sækja um á verkstæði,“ segir
Steffí. En aftur hvöttu vinirnir hana
áfram og hún sér ekki eftir því að
hafa valið þennan starfsvettvang.
„Það er alltaf nóg að gera, það vantar
ekki. Þetta er ósköp venjulegur
vinnustaður og góður mórall meðal
starfsmannana, engin karlremba
eins og sumir halda.“
valaosk@gmail.com
Alltaf jafngaman að vera
skítugur upp fyrir haus
Morgunblaðið/RAX
Bifvélavirki Stefanía Gunnarsdóttir finnst starfið fjölbreytt og gaman að fá ný verkefni á hverjum degi.
Það er eiginlega bara
kjánalegt að halda að
bifvélavirkjun sé ennþá
algjört karlastarf. Stef-
anía Gunnarsdóttir,
sem starfar á bifvéla-
verkstæði Heklu, sagði
Völu Ósk Bergsveins-
dóttur frá því hversu
skemmtilegt það er að
vera skítugur upp fyrir
haus alla daga.
» „Ég á 30 ára gamla
Toyota Corolla GT
sem ég hef gert upp frá
grunni og segi að bíll-
inn sé fallegasta Co-
rolla á landinu,“
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Gufudælur
Afkastamiklir vinnuþjarkar
HDS 13/24 PE Cage
■ Þrýstingur: 60-240 bör
■ Vatnsmagn: 680-1250 ltr/klstHDS 79 8 C Eco
■ Þrýstingur: 30-180 bör
■ Vatnsmagn: 350-750 ltr/klst
HDS 895 S
■ Þrýstingur: 30-180 bör
■ Vatnsmagn: 470-1000 ltr/klst
Vélar og þjónusta hafa markaðssett
nýja trukka, eða búkollur, af gerð-
inni Hydrema, og hafa þeir notið
mikilla vinsælda hjá verktökum hér
á landi. Trukkurinn er léttur, eða um
sjö og hálft tonn. Hann ber fjórtán
til fimmtán tonn og er með 180
gráðu sturtun frá sér. Vélin er lið-
stýrð með veltibremsu og fjöðrun á
liðinn.
Vélin er búin dekkjum sem eru
600 mm að breidd frá Trelleborg og
allur undirvaginn er plötuklæddur.
100 prósent læsing er á afturhásingu
og tregðulæsingar eru að framan.
Miklu máli skiptir að vélin er skráð
sem vinnuvél í IF flokki hjá Vinnu-
eftirlitinu og er því á litaðri olíu.
Litlar, snöggar og hentugar
innan vinnusvæða
Verktakafyrirtækið Ásberg hefur
nýverið eignast tvo nýja Hydrema
912D trukka. Að sögn Hrannars
Magnússonar hjá Ásberg eru þeir
mjög ánægðir með kaupin. Þessir
trukkar séu minni útfærsla af þeim
stærri en uppbyggingin sú sama.
,,Þetta er algjör nýjung,“ segir
Hrannar. ,,Trukkarnir eru á breið-
um dekkjum og af þeim sökum fljóta
þeir mjög vel. Hægt er að snúa pall-
inum í 180 gráður og snúa honum á
báðar hliðar sem er mjög hentugt, til
dæmis þegar unnið er meðfram
göngustígum. Það er hægt að vinna í
þröngum aðstæðum vegna þess
hversu beygjuradíusinn er mikill.“
Hrannar segir að Hydrena sé
bylting í þess konar vélum.
,,Þessar vélar eru litlar, hrikalega
fljótar á milli staða. Þær eru mun
fljótari í förum en stóru vélarnar og
geta því farið miklu fleiri ferðir á
styttri tíma. Sá eiginleiki gerir þær
mjög hentugar innan vinnusvæða.“
Nýr og
lipur Hy-
drema
trukkur
Afhending Ásberg verktakar fengur afhentar 2 nýjar Hydrema 912D
trukka nú nýlega. Frá vinstri, Ágúst Markússon frá Ásberg ehf, Gísli Ólafs-
son, sölustjóri Vélar og Þjónusta, Markús Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Ásberg og Hrannar Markússon Ásberg ehf.