Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 31
Morgunblaðið |31 verði óvirk á þessari leið í sumar en þá einungis í stuttan tíma (1-3 daga) hverju sinni. Til framtíðar býður nýja kerfið upp á miðlæga stýringu umferð- arljósa og gagnasöfnun (t.d. um- ferðartalningu) ásamt sjálfvirkri eftirlits- og bilanavakt. Frekari viðbætur opna möguleika á sjálf- virkri stillingu umferðarljósa með tilliti til umferðar. Háskólinn í Reykjavík Gatnaframkvæmdir vegna nýs háskólasvæðis Háskólans í Reykjavík í Vatnsmýrinni fara á fullt í sumar. Framkvæmdir á ný- byggingum eru komnar vel í gang en samkvæmt heimasíðu Háskól- ans í Reykjavík er gert ráð fyrir að fyrsti áfangi byggingarinnar verði tekinn í notkun í ágúst 2009. Gatnaframkvæmdirnar eru hins vegar á vegum Reykjavíkurborgar en áætlaður kostnaður við þær eru 300 milljónir og áætluð verk- lok eru síðla haust á þessu ári. Umferðaröryggismál Áframhaldandi vinna við upp- byggingu á svokölluðum 30 km hverfum, með áherslu á aðgerðir innan þeirra, er einnig á dagskrá í sumar hjá Reykjavíkurborg. Þau hverfi sem unnið verður að í ár eru m.a. Norðlingaholt, Skugga- hverfið, Kvosin og Fellsmúli. Áætlun um endurbætur á gönguleiðum skólabarna og aldr- aðra hljóðar upp á 35 milljónir en síðastliðin sex ár hefur 25 millj- ónum króna verið varið árlega í þennan málaflokk. Meðal þeirra staða þar sem gerðar verða úr- bætur á gönguleiðum skólabarna má nefna: Steinlagðar hraðahindr- anir í Engihlíð, við Flúðasel, Háa- gerði og Laufengi. Einnig má nefna upphitaða gönguleið aldr- aðra frá Grund meðfram Hring- braut og niður á Tjarnargötu. Þá verða 50 milljónir lagðar í end- urbætur á hinum ýmsu vástöðum í gatnakerfi borgarinnar. Stekkjarbrekkur Unnið er að breikkun gatna vegna aðkomu að nýju versl- unarhúsnæði við Stekkjarbrekkur, vestan Vesturlandsvegar. Að verk- inu standa Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar, Orkuveita Reykjavíkur, Gagna- veita Reykjavíkur ehf. og Míla ehf. Í verkinu felst allt það sem þarf að vinna við gatnagerð en einnig verður gerð settjörn á svæðinu. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 120 milljónir og eru verklok áætluð 1. ágúst næstkomandi. Vegavinna Unnið er að breikkun gatna vegna aðkomu nýju verslunarhúsnæði við Stekkjarbrekkur, vestan Vesturlandsvegar. »Kristján segir þessaraðgerðir vera lið í þeirri viðleitni borg- arinnar að auka vægi al- menningssamgangna í borginni. Sérstakar strætóreinar flýti mjög fyrir ferðum vagnanna, sérstaklega á álags- tímum í upphafi og lok vinnudags. • Vélin má bera 14 til 15 tonn á vegi. • Vélin getur sturtað í 180°frá sér. • Vélin er með veltibremsu og fjöðrun á lið. • Vélin er útbúin fyrir snjótönn, sóp, krana, saltara og sandara ofl. ofl. • Vélin útheimtir aðeins vinnuvélaréttindi til stjórnunar. • Vélin hefur allstaðar slegið í gegn. Forskot til framtíðar! Hydrema hönnun og hátækni Til afgreiðslu strax Hydrema 912D flutningstæki/fjölnotatæki Vélin er á litaðri olíu og má vera á öllum götum og vegum Vélin er skráð sem vinnuvél í IF flokki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.