Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 32
Núna þegar loksins er fariðað glitta í vor og bjartaritíð eru eflaust einhverjirfarnir að huga að ferða-
lögum yfir sumartímann. Hvert skal
haldið, hvernig skal farið og hvar á að
gista? Ótal margt mælir með ferða-
lögum innanlands og fyrir þá sem
leggja mikið upp úr ferðafrelsi þá
ætti húsbíllinn að vera ákjósanlegur
kostur. Hann sameinar bæði ferða-
máta og gistingu og getur borið
ferðalanginn nánast hvert á land sem
er.
Samkvæmt tölum Umferðarstofu
eru sífellt fleiri Íslendingar farnir að
nota húsbílinn en nú eru skráðir 2334
slíkir bílar á landinu sem eru tæplega
300 fleiri bílar en voru skráðir í árs-
byrjun 2007. Af þeim eru húsbílar
Ford flestir en fast á hæla þeirra
sækja húsbílar Mercedes-Benz. Ný
hönnun húsbíls, byggð á grunni
Mercedes Benz Sprinter frá Daimler
Chrysler kenndur við James Cook og
Westfalia, var nýverið kynnt en um
er að ræða eins konar lúxus-
hótelherbergi á hjólum. Af þessum
bíl bjóðast tvær útfærslur, „Classic“
og „Compact“ og felst munurinn
einkum í hæð og fjölda svefnplássa.
Þarfir ferðamannsins
Undirritaður prófaði fyrrnefndu
útfærsluna en hún geymir sætispláss
fyrir fjóra og jafn mörg svefnpláss.
Annars vegar er það tvíbreitt rúm
(240x150 cm), sem dregið er út á sleð-
um fyrir ofan stýrishús, og hins vegar
tvíbreitt rúm (200x130 cm) sem
leggst yfir farþega- og bílstjórasæti.
Og þegar svefnplássin eru ekki í
notkun má hæglega ganga frá þeim
svo lítið fari fyrir. Þá er hægt að nýta
sætin og koma fyrir borði og verður
þá til sæmileg setustofa.
„Classic“ útfærslan er mjög há, 3,2
m á hæð, og þar af leiðandi er mikið
pláss í bílnum og rúmt um farþega.
Mikið er um hvers kyns hirslur og
skápapláss og svo geymir bíllinn 62
lítra ísskáp með frystihólfi sem lítið
fer fyrir. Og þá erum við komin inn í
eldhúshornið en þar er prýðilegar að-
stæður til matargerðar með vaski,
gashellum, nægu skápaplássi til að
geyma hráefnið og svo er meir að
segja löng kryddhilla fyrir ofan vask-
inn. Það má því halda góða mat-
arveislu í bílnum og ef veiðifólk er í
fararhópnum þá eru kjöraðstæður til
að matreiða aflann.
James Cook húsbíllinn er hann-
aður til að mæta helstu þörfum ferða-
mannsins en auk þess að geta full-
nægt sælkeranum og boðið honum
upp á væran blund þá er þarna líka
salernisaðstæða og sturta. Og ef gott
veður og skjól bjóðast þá er hægt að
draga sturtuhausinn út fyrir bílinn og
viðkomandi getur þrifið sig undir
berum himni. Talsvert er af inn-
stungum þannig að það mætti stinga
sjónvarpi í samband eða annars kon-
ar afþreyingu. Öllu er vel komið fyrir
og nánast hver einasti flötur nýttur.
Það ætti því að vera hægt að kom-
ast í snertingu við náttúru landsins
án þess þó að þurfa að fórna helstu
lífsgæðum siðmenningarinnar.
Fjölskylduferð
Prufubíllinn er búinn þriggja lítra,
sex sýlindra dísilvél sem býður upp á
184 hestöfl við 3800 snúninga og því
sæmilega aflmikill. Hann er aft-
urhjóladifinn, með fimm hraða sjálf-
skiptingu, búinn ESP stöð-
ugleikakerfi, spólvörn og
ABS-bremsuvörn. Þá eru einnig líkn-
arbelgir fyrir ökumann og farþega í
framsæti.
Það fer vel um ökumann í bíl-
stjórasætinu enda mikilvægt fyrir
ferðalanginn að geta ekið langar
vegalengdir án óþæginda. Fyrir ofan
framrúðuna er skjár sem sýnir allar
helstu upplýsingar um starfsemi öku-
tækisins eins og vatnsstöðu, raf-
magnshleðslu, hitastig, upplýsingar
um ískáp og fleira.
James Cook Sprinterinn er vel
hannaður húsbíll sem mætir helstu
þörfum ferðamannins og ætti að
henta prýðilega í fjölskylduferðalög
um landið.
Íveruvænn Þeir sem kjósa að komast í snertingu við náttúru landsins án þess að þurfa að fórna helstu lífsgæðum nútímans í leiðinni ættu að kunna vel við þennan lúxus Sprinter-húsbíl.
Hár Bíllinn er 3,2 metrar á hæð.
Aðgengilegur Rennihurðin.
Hótelherbergi
á hjólum
Eldhúsið Vaskur og gashellur.
Húsbíllinn býður upp á mikið ferðafrelsi með því
að sameina ferðamáta og gistingu. Þormóður
Dagsson prufukeyrði á dögunum þýska lúxushús-
bílinn James Cook Sprinter Wesfalia.
32|Morgunblaðið
Vél: 318 CDI, sex sýlindra dísilvél
Aflgeta: 184 hestöfl við 3800 snún-
inga
Drif: Afturhjóladrif
Gírskipting: Fimm hraða sjálfskipt-
ing
Lengd: 5910 mm
Breidd: 1993 mm
Hæð: 3200 mm
Hjólhaf: 3665 mm
Eigin þyngd: 3140 kg
Eyðsla: 9,5 l/100km í utanbæj-
arakstri, 12 l/100km í innanbæj-
arakstri
Verð: 14.900.000 (miðað við núver-
andi gengi evrunnar)
Umboð: Askja
James Cook
Sprinter West-
falia