Morgunblaðið - 08.04.2008, Page 6

Morgunblaðið - 08.04.2008, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÉG er djúpt snortinn og mikill sómi sýndur með þessum verðlaunum og það er með mikilli auðmýkt sem ég veiti þeim viðtöku,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, eftir að sendiherra Indlands á Íslandi skýrði frá því á Bessastöðum í gær að forsetinn hefði hlotið Jawaharlal Nehru-verðlaunin á árinu 2007, ein þau æðstu sem indverska rík- isstjórnin veitir einstaklingum. „Ég er þakklátur fyrir þann vin- áttu- og virðingarvott sem mér er sýndur persónulega með þessum verðlaunum og eins vona ég að þessi einstæða viðurkenning komi til með að nýtast Íslendingum og íslensku þjóðinni um langa framtíð.“ Ólafur rakti því næst mikilvægi verðlaunanna og sagði það svo hafa verið „mikil forréttindi fyrir sig að hafa átt vináttu margra Indverja“. Sá lærdómur sem hann hefði num- ið af Indverjum og reynsla hans af indversku þjóðinni hefði mótað hann sem manneskju og þjón íslensku þjóðarinnar. Hann stæði í mikilli þakkarskuld við Indverja. Verðlaunin hétu í höfuðið á merkum stjórnmála- manni sem hefði verið „ein af sínum hetjum“ sem ungur maður á Íslandi, ásamt Mahatma Gandhi. Verða afhent í Nýju-Delhí Pratibha Patil Indlandsforseti mun afhenda Ólafi Ragnari verðlaunin í forsetahöllinni í Nýju-Delhí að við- staddri ríkisstjórn landsins, tíma- setningin liggur ekki fyrir. Verðlaun- unum fylgir viðurkenningarskjal, verðlaunagripur og ríflega níu millj- ónir íslenskra króna. Verðlaunin eiga sér langa sögu (sjá ramma). Margir sögufrægir ein- staklingar eru í hópi verðlaunahafa og má þar nefna Martin Luther King og Nelson Mandela. Að loknum blaðamannafundinum í gær sagði Mahesh Sachdev, sendi- herra Indlands á Íslandi, það hafa verið tilfinningaríka reynslu fyrir sig persónulega að fá að skýra frá ákvörðun indversku ríkisstjórn- arinnar. Samskipti Indverja og Ís- lendinga hefðu eflst stöðugt og for- setinn átt þar stóran hlut að máli. Spurður um aðdraganda þeirrar ákvörðunar að veita Ólafi verðlaunin sagði Sachdev að þáttur forsetans í að stofna til Friðarfrumkvæðis sex þjóð- arleiðtoga á árunum 1984 til 1989 hefði vegið þungt. Kalda stríðið hefði verið í algleymingi og með því að stofna slíkt frumkvæði hefði heims- byggðinni verið send sterk skilaboð um að menntamenn og leiðtogar fjöl- margra ríkja vildu binda enda á víg- búnaðarkapphlaupið og stíga skref í átt til afvopnunar. Náin tengsl forsetans Á þeim rúma aldarfjórðungi sem Ólafur Ragnar hefði beitt sér fyrir samvinnu ríkjanna hefði hann kynnst flestum leiðtogum Indlands og verið vinur margra þeirra. (Má nefna að Indira Gandhi, dóttir Nehru, og sonur hennar, Rajiv Gandhi, voru bæði þátt- takendur í því frumkvæði, samkvæmt tilkynningu frá skrifstofu forsetans). Inntur eftir tengslum Ólafs Ragn- ars við áhrifafólk í indversku þjóðlífi sagði Sachdev að forsetinn hefði í ald- arfjórðung unnið í þágu samskipta ríkjanna, sem hefðu styrkst og eflst með árunum, einkum eftir heimsókn Indlandsforseta til Íslands fyrr á þessum áratug. Indverjar hefðu einnig tekið eftir framlagi forsetans til umræðna um kenninguna um hlýnun jarðar af mannavöldum og hann átt í góðu sam- starfi við Rajendra Pachauri, formann alþjóðlegrar vísindanefndar Samein- uðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, IPCC, sem væri af indversku bergi brotinn. Þá hefði forseti Íslands tekið þátt í að miðla þekkingu Íslendinga á sviði endurnýjanlegrar orku á síðustu árum. Djúpt snortinn og mikill sómi sýndur með verðlaununum Skýrt var frá því í gær að forseti Íslands hefði hlotið eina æðstu við- urkenningu sem Ind- verjar veita einstak- lingum. Baldur Arnar- son var á Bessastöðum. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Viðurkenning Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tekur við bókargjöf úr hendi Mahesh Sachdev, sendiherra Indlands á Íslandi, eftir að skýrt var frá því að forsetinn hefði hlotið Jawaharlal Nehru-verðlaunin á árinu 2007. Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „ÞVÍ miður kemur það stundum fyrir að kettir eru skildir eftir í reiðileysi,“ segir Sigríður Heiðberg í Kattholti en í Morgunblaðinu á laugardag kom fram að aflífa þurfti kött á Akranesi sem skilinn hafði verið eftir í íbúð í marga daga eftir að leigjendurnir fluttu út. Í Kattholti eru á hverjum tíma yfir 60 kettir sem finnast á víðavangi eða er komið fyrir þar af öðrum ástæðum. „Ég var einmitt að sækja læðu sem hafði verið skilin eftir í bíl fyrir utan BSÍ í marga daga,“ segir Sigríður. Starfsmenn Kynnisferða höfðu komið læðunni, sem er af persnesku kyni, til bjargar og komu henni í öruggar hendur Sigríðar í Kattholti. Læðan hafði gert stykki sín í bílinn og var aðkoman að sögn Sigríðar ömurleg. Feldurinn er mjög flók- inn og læðan skítug og horuð. Þó hafði verið skilinn eftir matur hjá henni í bílnum. „En það er auðvitað hrikalegt að loka kött inni í bíl, sólin er farin að skína og hitinn getur verið mikill.“ Hryggbrotin eftir illa meðferð Samkvæmt upplýsingum sem Sigríður fékk hjá lögreglunni er skráður eigandi bílsins lát- inn. „En kisan hefur engu að síður verið á ein- hvers vegum,“ segir Sigríður. Tveir dýralækn- ar voru kallaðir til í gær til að meta ástand læðunnar og komust að því að hún var illa hirt en líklega mun hún þó ná sér að fullu. „Hún er mögur en ekki mjög horuð,“ segir Hrund Lár- usdóttir dýralæknir. „Hún var greinilega ekki hirt, skítug og flókin. Hún hefur búið við öm- urlegar aðstæður.“ En dæmi um vanrækslu eru mun fleiri. Ný- verið fékk Sigríður t.d. í sína umsjá læðu sem reyndist við læknisskoðun vera hryggbrotin eftir slæma meðferð. Aflífun var eini kosturinn í stöðunni. „Þetta er auðvitað alveg skelfilegt en svona kemur alltaf fyrir öðru hvoru.“ Sigríður segir að dæmi séu um að fólk hafi verið dæmt til fésekta vegna brota á dýra- verndunarlögum. Vissulega sé það jákvætt en betur þyrfti að gera í málaflokknum. „Mörgum finnast upphæðirnar vera lágar en ég er þeirr- ar skoðunar að þetta hafi fordæmisgildi og er bjartsýn á að þetta muni breytast. Það hefur alltaf verið mín skoðun að reglurnar þurfi að vera strangari,“ segir Sigríður og nefnir sem dæmi að hún hafi oft þurft að afhenda dýraníð- ingum aftur dýr sín og þau hafi síðar endað á ný í hennar umsjá. „Það þarf því margt að breytast og nauðsynlegt að taka á þessum mál- um af meiri alvöru.“ Læða lokuð inni í bíl í marga daga Taka þarf dýravernd- unarmál fastari tökum, segir Sigríður Heiðberg Morgunblaðið/Árni Sæberg Á batavegi Læðan sem fannst í bíl við BSÍ var skoðuð af dýralæknunum Hrund Lárusdóttur (t.v.) og Ragnhildi Ástu Jónsdóttur í Kattholti í gær. Læðan er mögur, skítug og flókin. Í HNOTSKURN »Árið 2006 var karlmaður dæmdur íHéraðsdómi Vesturlands til greiðslu 40 þúsund króna vegna brots á dýravernd- arlögum. »Hann var dæmdur fyrir að hafa í umfimm vikur skilið kött, er hann hafði í sinni vörslu, eftir án nokkurs eftirlits eða umönnunar og eigi tryggt viðunandi vist- arverur, fullnægjandi fóður, drykk og um- hirðu og hafa á engan hátt fylgst með heilsu kattarins né gert nokkrar ráðstaf- anir til að koma í veg fyrir vanlíðan hans. »Lögreglan fann köttinn í íbúð manns-ins en þá hafði hann verið yfirgefinn í um fimm vikur og var beinhoraður og í slæmu ástandi. JAWAHARLAL Nehru-verðlaunin eru veitt einstaklingum „fyrir framúrskarandi framlag til gagn- kvæms skilnings, velvilja og vin- áttu á meðal jarðarbúa“, eins og það er orðað á vefsíðu indverskra stjórnvalda um sögu verðlaunanna. Stofnað var til verðlaunanna árið 1965 í minningu Jawaharlal Nehru, fyrsta forsætisráðherra Indlands eftir að landið öðlaðist sjálfstæði frá Bretum 1947 og hefur þeim all- ar götur síðan verið ætlað að heiðra einstaklinga í anda hins ævi- langa starfs leið- togans í þágu friðar. Nehru var ná- inn vinur frið- arsinnans Ma- hatma Gandhi og samherji í frið- samlegri sjálf- stæðisbaráttu Indverja. Nehru öðlaðist líkt og Gandhi heimsfrægð og þótti ötull tals- maður hagsmuna þriðja heimsins í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Á þriðja áratugnum hrifust margir indverskir menntamenn af hug- myndum kommúnista og átti Gandhi þátt í að Nehru tók sér póli- tíska vígstöðu á miðjunni, á tíma þegar ófá ungmenni vildu fara rót- tækari leiðir í átt til sjálfstæðis. Congress-flokkurinn fór fyrir sjálfstæðisbaráttu Indverja og var- Nehru á meðal helstu leiðtoga hans á tuttugustu öld. Nehru fæddist ár- ið 1889 og lést 1964, árið áður en stofnað var til verðlaunanna. Veitt fyrir „framúrskarandi“ framlag til friðar og samvinnu Jawaharlal Nehru

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.