Morgunblaðið - 08.04.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
„REYKJAVIK Energy Invest (REI)
var stofnað til að vera í útrás og á
meðan fyrirtækið er til þá sinnir það
því hlutverki sínu,“ segir Kjartan
Magnússon, stjórnarformaður REI,
en hann er á ferð um Afríku ásamt
Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra
REI, Össuri Skarphéðinssyni iðnað-
arráðherra og föruneyti.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Kjartan markmið ferðarinnar að
ræða við ráðamenn í Jemen, Djíbúti
og Eþíópíu þar sem REI sé að skoða
samstarf við heimamenn um nýtingu
jarðvarma. Forsvarsmenn REI und-
irrituðu sl. sunnudag viljayfirlýsingu
um áframhaldandi viðræður og sam-
starf milli REI og rafveitunnar í Jem-
en, en viðræður hafa staðið yfir síðan
í september sl. Segir Kjartan stefnt
að því að viðræðum verði lokið fyrir
ágúst á þessu ári og að þá liggi ljóst
fyrir hvort farið verði út í forkönnun á
borunum á jarðhitasvæði í Jemen.
Aðspurður segir
Kjartan ekki
ósennilegt að for-
svarsmenn REI
undirriti sams-
konar viljayfirlýs-
ingu við ráða-
menn í Eþíópíu
síðar í vikunni. Að
sögn Kjartans eru
viðræður hins
vegar lengra komnar í Djíbútí, en þar
eru menn að skoða möguleika þess að
undirrita samning um hagkvæmnis-
athugun sem felur í sér jarðhitarann-
sóknir og tilraunaboranir.
Ekki á móti útrásinni
Spurður hvort fyrrgreind útrás-
aráform REI samræmist hugmynd-
um sjálfstæðismanna svarar Kjartan
því játandi. „Við tókum alltaf fram að
við værum ekki á móti útrásinni í
sjálfu sér. Það sem skipti máli í henni
var að það færu ekki tugmilljarðar
króna af almannafé í áhættusamar
fjárfestingar víða um heim. Stefna
okkar er alveg óbreytt, við erum ekki
að fara að taka fé úr OR til að setja í
áhættufjárfestingar í þriðja heimin-
um,“ segir Kjartan og tekur fram að
starf núverandi meirihluta miði að því
að lágmarka áhættu í þeim verkefn-
um sem eru fyrir hendi án þess þó að
glata verðmætum í einstökum verk-
efnum.
Kjartan bendir á að þó búið sé að
fjárfesta fyrir nokkurn hluta þess 2,6
milljarða kr. hlutafjár sem lagt var
inn í REI við stofnun fyrir ári þá sé
enn töluvert fé eftir í sjóði. Tekur
hann jafnframt fram að þegar og ef
mál komist á það stig að hægt sé að
byggja virkjanir þá megi ljóst vera að
REI ætli sér ekki að fjármagna jarð-
hitaboranir í löndunum þremur held-
ur verði leitað til alþjóðlegra fjár-
festa.
Lágmarka áhættuna án
þess að glata tækifærum
Kjartan
Magnússon
ÖSSUR Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra átti í
gær fund með forsætis-
ráðherra Jemen, Ali
Mojawar, í höfuðborg-
inni Sanaa. Ráðherrarn-
ir ræddu framboð Ís-
lands til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna og
samvinnu Íslendinga og
Jemena um nýtingu
jarðhita, jarðskjálfta-
rannsóknir, samstarf og
þjálfun á sviði fiskveiða
og fiskvinnslu. For-
sætisráðherrann fagnaði
aukinni samvinnu og hét
stuðningi við hana á öll-
um sviðum. Hann sagð-
ist myndu ræða framboð
Íslands við utanrík-
isráðuneyti sitt með það
í huga að Jemen myndi
styðja Ísland.
Í heimsókninni til
Jemens hefur iðn-
aðarráðherra átt einka-
fundi með níu ráðherr-
um, þar á meðal
utanríkisráðherra, orkumálaráð-
herra, olíumálaráðherra, sjávar-
útvegs-, umhverfis- og við-
skiptaráðherra landsins.
Í gær flutti ráðherra erindi um
jarðskjálftarannsóknir og virkjun
jarðhita við opnun á fimmtu Flóa-
ráðstefnunni um jarðvísindi sem
haldin er þessa dagana.
Í máli sínu vakti ráðherra sér-
staka athygli á þeim viðvör-
unarkerfum sem íslenskir vís-
indamenn hafa þróað til þess að
segja fyrir um yfirvofandi jarð-
skjálfta og flóð undan jökli af
völdum eldgosa.
Iðnaðarráðherra var ásamt
orkuráðherra Jemena, Mustafa
Bahran, viðstaddur undirritun
viljayfirlýsingar milli Reykjavík
Energy Invest og Rafveitu Jem-
ena um rannsóknir á Dahmar-
svæðinu í nágrenni við höfuðborg-
ina Sanaa vegna 100 megavatta
jarðhitavirkjunar.
Í Jemen er mikill orkuskortur
og hafa stjórnvöld verulegan
áhuga á að virkja óbeislaðan jarð-
hita sem þar er í miklum mæli.
Forsætisráðherra Jemens telur að
Jemenar geti fetað í fótspor Ís-
lands við nýtingu jarðhita, segir í
tilkynningu frá ráðuneytinu.
Össur hitti níu
ráðherra að
máli í Jemen
Samvinna Össur Skarphéðinsson og forsætis-
ráðherra Jemens, Ali Mojawar.
JÓHANNA Sigurðardóttir, félags-
og tryggingamálaráðherra, undirrit-
aði í gær reglugerð sem kveður á um
hækkun húsaleigubóta frá og með 1.
apríl 2008. Húsaleigubætur hafa
ekki hækkað frá árinu 2000. Einnig
mun ríkið nú í fyrsta skipti koma að
greiðslu sérstakra húsaleigubóta,
segir í frétt frá ráðuneytinu.
Samkvæmt reglugerðinni hækka
grunnbætur húsaleigubóta um 69%,
úr 8.000 krónum í 13.500 krónur,
bætur vegna fyrsta barns hækka um
100%, úr 7.000 krónum í 14.000 krón-
ur og bætur vegna annars barns
hækka um 42%, úr 6.000 krónum í
8.500 krónur. Hámarkshúsaleigu-
bætur hækka þar með um 15.000
krónur eða um 48% og geta hæstar
orðið 46.000 krónur í stað 31.000
króna áður.
Í samkomulagi við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga um hækkun
húsaleigubóta er einnig kveðið á um
þátttöku ríkisins í greiðslu sérstakra
húsaleigubóta. Sveitarfélög eru
hvött til að taka upp sérstakar húsa-
leigubætur og rýmka skilyrði fyrir
sérstökum húsaleigubótum svo þær
nái til fleiri heimila. Hámarks-
greiðsla almennra og sérstakra
húsaleigubóta gæti þar með orðið
70.000 krónur í stað 50.000 króna áð-
ur. Ríkið kemur nú í fyrsta sinn að
greiðslu sérstakra húsaleigubóta.
Áætlaður árlegur viðbótarkostn-
aður vegna þessara aðgerða er um
620 milljónir króna vegna húsaleigu-
bóta og um 100 milljónir króna
vegna sérstakra húsaleigubóta.
Samkomulag er um að ríkissjóður
greiði 60% af heildarkostnaði vegna
hækkunarinnar og sveitarfélögin
40%.
Húsaleigubætur
hækka í fyrsta sinn
síðan árið 2000
Heilsuvika Hrafnistu
vikuna 7. til 11. apríl
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Fylltar paprikur
með geitarosti,
steiktum hrísgrjónum
og speltbrauði
Tenerife
11.-27. maí
Í BEINU FLUGI FRÁ AKUREYRI
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu
sætunum í frábæra 16 nátta vorferð til Tenerife, í
beinu leiguflugi frá Akureyri. Gríptu þetta einstaka
tækifæri og njóttu lífsins í vorblíðunni á þessum
vinsæla áfangastað við góðan aðbúnað.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta og
íbúða í boði.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
3
0
0
9
Heimsferðir Akureyri • s: 461 1099 • Geislagata 12 • akureyri@heimsferdir.is
frá kr. 49.990 Verð kr. 49.990 – m.v. 4 í íbúðFlug. skattar og gisting, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð með 1 svefnherbergi á Granada Park í 16 nætur.
Netverð á mann.
Verð kr. 64.990 – m.v. 2 í íbúð
Flug. skattar og gisting, m.v. 2 saman í íbúð á Granada
Park í 16 nætur. Netverð á mann.
Granada Park
Granada Park íbúðahótelið er við Las Americas golfvöllinn, um
1 og ½ km. frá Los Cristianos og Las Ameritas ströndunum.
Í litríkum garðinum eru tvær sundlaugar, barnalaug, góð sól-
baðsaðstaða, bar, lítil matvöruverslun, minigolf, barnaleiksvæði
og fleira. Íbúðir eru með 1 eða 2 svefnherbergjum, stofu með
svefnsófa, vel búnu eldhúsi, m.a. með örbylgjuofni, brauðrist,
ísskáp og frysti og baðherbergi með hárþurrku. Gervihnattasjón-
varp og öryggishólf eru á öllum íbúðum. Verönd eða svalir með
húsgögnum við hverja íbúð.
Vel búnar íbúðir á rólegum og fjölskylduvænum stað.
ÓTRÚLEGT SÉRTILBOÐ
16 nætur