Morgunblaðið - 08.04.2008, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.04.2008, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 526 526   $% $% 7 7 526 .86   $% % 7 7 9&:;& <  =     % &% 7 7 9 6    $% $% 7 7 526/ 5260    $% $% 7 7          !  " #$ %&''( 12 3 43  )& "&@-# 8 (/"&@-# ?A ) -# 4"&@-# " ) B -# C#? @ #. !   DE   "&@-# F @+ !8 -# 4  B    -# 2  -# GH5< )  I8 *  *#B-# > J -# K -# 6  2 7 89  -# # E -# ) ) E : J ) ) EG )&  G  ? 8  ! "&@-# L&J 8 DE   E"&@-# <M-  -#  @) -# >J!! !  )/ -# 3  )/ -# 1 0 7 :  N )J   N& C8"  -# C @  -# ;9< = 9 %   %  %  % %  %  %  % %   %    %  %    %   %                                                         3  @)  ! > B&,&  ! O F @                    I   I I  I I  I I                      I I  I I   I                      I   I      / (  @)                I   I   I I  I I  I I 9 ! ) (  (                               Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is ERLENDIR hlutabréfamarkaðir vísuðu mestmegnis upp á við í gær. FTSE 100-vísitalan í London hækk- aði um 1,1% og náði sínu hæsta gildi í fimm vikur. Með síhækkandi hrá- vöruverði höfðu námafyrirtæki þar sitt að segja, sem og á evrópskum mörkuðum. Þannig hækkaði FTSEurofirst 300 vísitalan að um 0,8% og allir 18 markaðir í Vestur- Evrópu samkvæmt Bloomberg. Á móti þessu kveður við myrkan tón í Bretlandi. Mikið verðfall á hús- næðismarkaði þar er sagt það mesta síðan árið 1991. Búist er við að breski seðlabankinn muni lækka stýrivexti sína enn frekar, úr 5,25% í 5% næsta vaxtaákvörðunardag, fimmtudaginn næstkomandi. Bankinn hefur tvisvar lækkað vexti síðan í desember, en þrátt fyrir það hafa t.a.m. HSBC, Nationwide Building Society og Ro- yal Bank of Scotland, hækkað vexti á fasteignalánum og dregið ýmis tilboð til baka vegna lausafjárkreppunnar. Samkvæmt Bloomberg hefur fram- boð á fasteignalánum dregist saman um 21% á síðustu tveimur vikum. Margir hafa viljað benda á Alan Greenspan, fyrrum seðlabanka- stjóra Bandaríkjanna, sem sökudólg kreppunnar. Hann hafi valdið bólu á fasteignamarkaði með of lágum stýrivöxtum í of langan tíma. Greenspan svarar fyrir sig í Financi- al Times í gær og undrast að svo margir kenni bandaríska seðlabank- anum um, aðrir seðlabankar hafi séð viðlíka verðhækkanir á húsnæði. T.a.m. þrefaldaðist húsnæðisverð í Bretlandi síðasta áratuginn. Að sögn Greenspan er líklegasta skýringin afdrifarík lækkun raunvaxta, sem hafi orsakast af of miklum sparnaði. Greenspan segir rót húsnæðis- lánavandans liggja í röngu mati fjár- festa. Engar aðgerðir eða regluverk yfirvalda hefðu getað unnið á móti vextinum sem varð í þessum geira. Húsnæðisáhyggjur skyggja á hækkanir Í HNOTSKURN »Hlutabréf í Bandaríkj-unum hækkuðu í byrjun dags þegar lánasjóðnum Washington Mutual var spáð 5 ma. dala fjárfestingu. Gengi félagsins hækkaði um 29%. »Á móti varð lækkun ámörkuðum þegar spáð var samdrætti í tæknigeiranum. Örflöguframleiðandinn AMD lækkaði um 44% eftir neikvætt uppgjör. Ásamt samdrætti hjá Alcoa leiddi það til þess að vísitölur stóðu nánast í stað. ● UM þriðjungi starfsmanna Glitnis í Lúx- emborg verður sagt upp er bank- inn mun draga sig út úr fasteigna- lánastarfsemi þar í landi. Starfs- menn eru nú um 60 talsins. Stór hluti lánasafnsins er skammtíma brúarlán og munu lán- in ýmist endurgreidd eða þau seld. Þannig mun losna um allt að 100 milljarða króna í lausafé. Glitnir í Lúxemborg mun framvegis leggja áherslu á eignastýringu en breytingarnar eiga að ná fram hag- ræðingu og auka kostnaðarsam- legð. Þá er markmiðið að styrkja lausafjárstöðu og efla kjarna- starfsemi bankans, samkvæmt upp- lýsingum frá Glitni. Hætta fasteignalán- um í Lúxemborg Höfuðstöðvar Glitnis ● EXISTA er nú komið með yfir 94% hlutafjár í Skiptum, eftir að yfirtöku- tilboð hefur verið í gildi í hálfan mán- uð. Af því tilefni ákvað stjórn Skipta í gær að óska eftir því við íslensku kauphöllina að hlutabréf félagsins verði tekin úr viðskiptum, þar sem félagið uppfyllti ekki lengur skilyrði sem sett eru um lágmarksdreifingu á eignarhaldi. Skipti fari af markaði ● YAHOO hefur í annað sinn hafn- að yfirtölutilboði Microsoft, eftir að hafa fengið þriggja vikna frest til að svara. Tilboðið hljóðaði upp á 41 milljarða dollara, jafnvirði um 3.000 milljarða króna. Microsoft kvaðst myndu leita beint til hluthafa, að sögn Steve Ballmer, forstjóra, yrði boðinu ekki svarað. Tilboðið var fyrst lagt fram í lok janúar síðastliðnum en því var hafnað af stjórn Yahoo sem taldi það of lágt. „Skoðun okkar er óbreytt. Gengi bréfa ykkar hefur lækkað, og til- boðið því minna virði.“ Yahoo hafnar Micro- soft í annað sinn Steve Ballmer hjá Microsoft. ARÐBÆR rekstur Nyhedsavisen reyndist ómögulegur með þeim kostnaði sem viðgekkst. Þetta segir eigandi danska fríblaðsins, Morten Lund, í samtali við viðskiptablaðið Börsen. Nyhedsavisen hafi verið mannað á við Politiken, en ekki hafi verið þörf fyrir svo marga blaða- menn. Nú taki við stíf sparnaðar- áætlun. Lund kveðst hafa margar hugmyndir, „en nú skulum við sýna að við ráðum við verkefnið sem þegar er fyrir höndum“. Óvíst er hvenær tekjur ná að mæta kostn- aði, en Lund sér ekki af hverju reksturinn gæti ekki orðið arðbær. „Við erum mest lesna blað lands- ins. Það tekur bara að tíma að síast inn að auglýsendur sannfærist um að við verðum það áfram.“ Nyhedsavisen í sparnaðaráætlun ÞETTA HELST ... ● ÁFRAM lækkar skuldatrygg- ingarálag íslensku bankanna. Kaup- þing fór niður um 70 punkta í 780, Glitnir lækkaði um 60 niður í 790 og Landsbankinn um 45 í 555 punkta. Þá styrktist krónan um 2,3%. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,7% í gær og lauk henni í 5.392 stigum. Bréf Spron hækkuðu langmest, eða um 9% og bréf Existu hækkuðu um 6,2%. Mesta lækkunin, um 7,6%, var hins vegar á bréfum Flögu. Heildarvelta nam rúmum 53 millj- örðum, þar af 44,6 milljarðar með skuldabréf. Mest var verslað með bréf fjármálafyrirtækja, Kaupþing dró vagninn með 1,1 milljarða viðskipti. Álag bankanna lækkar RÍKISSTJÓRNIR heims þurfa að grípa til aðgerða til að bregðast við lánsfjárskorti á alþjóðlegum fjár- málamörkuðum. Þetta kemur fram í samtali Dominique Strauss-Kahn, yfirmanns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við Financial Times. Til viðbótar við peningamálastefnu seðlabanka og efnahagsstefnu, myndu opinber af- skipti mynda þriðja vígið og hafa bein áhrif á bankageirann, skulda- bréfa- og húsnæðismarkaði. Sjóðurinn mun lækka hagvaxtar- spár sínar nú í vikunni. Að sögn Strauss-Kahn verða þær ekki mjög bjartsýnar. Greiningar sjóðsins áætla að Bandaríkin og nokkur lönd sem svara til 20-25% heimshagkerf- isins, geti veitt fjárhagsinnspýtingu ef þörf krefur. Flest Evrópulönd séu hins vegar ekki í þeirri stöðu. Inntur eftir viðbrögðum sagði Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra of snemmt að segja til um hvort gripið yrði til aðgerða af hálfu ríkisstjórnarinnar, eða hvers eðlis þær yrðu. Ekki væri tilefni til frekari viðbragða að svo stöddu. Vill opinber afskipti SAMKVÆMT tölum frá Seðla- bankanum nam velta með gjald- eyri á millibanka- markaði 1.212 milljörðum króna í marsmánuði sem er met í ein- um mánuði. Í Morgunkorni Glitnis er bent á að veltan hafi meira en tvöfaldast frá fyrri mánuði þegar hún nam um 500 milljörðum króna. Á fyrsta ársfjórð- ungi nam gjaldeyrisveltan um tvö þúsund milljörðum sem er svipuð velta og allan fyrri hluta síðasta árs. Þá var veltan á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs sú sama og í marsmánuði sl. Til samanburðar nam veltan í mars árið 2007 um 413 milljörðum króna. Í Morgunkorni segir að sam- hliða aukinni þátttöku á íslenskum gjaldeyrismarkaði og tengslum við alþjóðlega markaði muni umsvif og dýpt gjaldeyrismarkaðarins vaxa líkt og endurspeglist í aukinni veltu á milli ára. Metvelta með gjaldeyri BRESKA fyrirtækjaskráin hefur sent ítrekun til Baugs sem hefur látið hjá líðast að skila ársreikn- ingum dótturfélaga sinna. Fjórir mánuðir eru liðnir síðan frestur a.m.k. 22 fyrirtækja rann út, sem flest tengjast tískufélaginu Mosaic. Talsmaður Baugs segir seink- unina vera af tæknilegum ástæðum og að henni verði kippt í liðinn inn- an mánaðar, en á breska frétta- vefnum This is Money þykja tíð- indin óheppileg fyrir ímynd félagsins í ljósi efnahags heima- landsins, Íslands. Þau gögn sem þó eru til staðar þykja sýna slaka frammistöðu fyrirtækjanna. Baug- ur hafnar því að hafa orðið illa úti vegna stöðu efnahags Íslands. Hafa ekki skilað ársreikningum ♦♦♦ ● HAGNAÐUR Alcoa, stærsta ál- framleiðanda Bandaríkjanna, dróst saman um 54% á fyrsta fjórðungi ársins. Fyrirtækið lýsti erfiðu efna- hagsástandi og sagði samdrátt í eft- irspurn á áli á heimsmarkaði vera væntanlegan. Hagnaðurinn nam 303 milljónum dala, eða tæpum 22 milljörðum króna, samanborið við 662 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Tekjur lækkuðu úr 7,91 millj- arði dala í 7,38 milljarða. Stjórnarformaður Alcoa sagði hærra orkuverð og veikari dollara hafa unnið á móti hækkandi álverði. Bréf Alcoa lækkuðu um 4%. Hagnaður Alcoa dregst saman um 54%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.