Morgunblaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 21 BOLLI Thoroddsen, varaborg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er skrifaður fyrir grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 1. apríl. Í greininni átelur hann formann Sam- fylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrir að kasta steinum úr glerhúsi og segir hana ekki þess umkomna að gagnrýna klækina sem einkenndu atburða- rásina sem kom Sjálf- stæðismönnum aftur í Ráðhús Reykjavíkur. Að mati Bolla á hún ekki innistæðu fyrir því vegna þess að sams konar lúalegir klækir hafi viðgengist þegar valdaskipti urðu í Reykjavíkurborg í kjölfar REI-málsins. Sjálfstæðismaðurinn Bolli setur sig á furðu- lega háan hest gagn- vart konu sem sótti lýðræðislegt umboð sitt til borg- arbúa í þrennum kosningum í röð. Ekki síst vegna persónulegs trausts og trúverðugleika sem hún naut í borgarstjóratíð sinni. Ég veit vel að borgarbúar gera sér grein fyrir því að reginmunur er á myndun meirihluta Tjarnarkvart- ettsins annars vegar og myndun meirihluta Ólafs F. Magnússonar og Sjálfstæðismanna hins vegar. En Bolli virðist ekki gera sér fyrir hon- um og af þeim sökum er mér bæði ljúft og skylt að fara í gegnum mála- vöxtu. Mikið í húfi Í aðdraganda REI-málsins var með öllu óvært í Reykjavíkurborg. Djúpstæður klofningur hafði komið upp á meðal Sjálfstæðismanna í borgarstjórn og í þeim darraðar- dansi birtist gríðarlegur skoðana- ágreiningur innan flokksins, óvönd- uð vinnubrögð þáverandi borgar- stjóra og trúnaðarbrestur milli félaga sem náði hápunkti í stefnu- móti ,,sexmenninganna“ við flokks- forystuna. Borgarbúar voru órólegir yfir málinu enda stærsta fyrirtæki borgarinnar í húfi. Fyrirtæki í eigu Reykvíkinga sem sér okkur fyrir vatni og rafmagni, fyrirtæki sem er milljarðavirði og á að sjálfsögðu að vera í samfélagslegri eigu, hvort sem verkefni þess eru hér á landi eða á okkar vegum erlendis, og vaxa þannig um ókomna tíð. Þetta var slagur um almanna- hagsmuni. Og hann stóð tæpt. En þá er ótalinn þáttur Fram- sóknarflokksins. Á borgarstjórn- arfundi tveimur dögum fyrir stjórn- arslitin fylgdust landsmenn með umræðum úr borg- arstjórn í beinni út- sendingu þar sem klofningur milli sam- starfsflokkanna krist- allaðist í ræðustól. Fulltrúi Framsókn- arflokksins vildi ekki sjá á eftir verðmætum jarðvarmans undir fót- um okkar sem við öll eigum í sameiningu. Hann vildi ekki heldur afsala borginni þeirri þekkingu á jarðvarma og reynslu sem byggst hefur upp í Orkuveitu Reykjavíkur í hendur einkaaðilum. Um ókomna framtíð. Það stefndi allt í eina átt. Daginn eftir var mynduð ný borg- arstjórn. Stjórn félagshyggju og varðstöðu um almannahagsmuni. Skerið sem hin gamla stjórn steytti á var hvorki lítið né ómerkilegt. Klofningurinn varðaði meðal annars eignarhald á auðlindum, eitt stærsta álitamál okkar tíma, hvorki meira né minna. Nýja borgarstjórnin naut stuðn- ings frá fyrsta degi. Flokkurinn sem hlaut mesta fylgið í kosningum fékk borgarstjórastólinn. Öðrum stólum var skipt niður í mesta bróðerni og voru fulltrúar F-lista harla sáttir, þar með talinn guðfaðir nýja meiri- hlutans, núverandi borgarstjóri. Sjálfstæðismenn sleiktu sárin og áttu mikið verk fyrir höndum að berja í brestina, vinna traust sinna umbjóðenda og róa öldurnar innan flokksins. Að hundrað dögum liðnum var blásið til blaðamannafundar á Kjar- valsstöðum. Nýr meirihluti hafði verið myndaður og borgarbúar spurðu í forundran: Hver var stóri klofningurinn nú? Var oddviti F- listans skyndilega orðinn óhress með sinn hlut? Ekki voru flokks- systur hans á sama máli enda datt þeim Margréti Sverrisdóttur og Guðrúnu Ásmundsdóttur ekki í hug að fylgja Ólafi yfir í hið vanhelga hjónaband hans og Vilhjálms Þ. Engir atburðir höfðu skekið borg- arkerfið, teppt fréttatíma kvöld eftir kvöld né skapað djúpstæðan ágrein- ing innan flokkanna í nýja meirihlut- anum. Það er reginmunur á klofningi og klækjum. Það er reginmunur á því að hrökklast frá völdum – og að hrifsa til sín völdin. En á þessu tvennu sér Sjálfstæðisflokkurinn engan mun, enda hefur hann prófað hvort tveggja í vetur. Stuðningur við þennan meirihluta er lítill, vel undir kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins. Traust landsmanna til borg- arstjórnar segir meira en þúsund orð, níu prósentustig. Sögulegt lág- mark í traustsmælingum Capacent- Gallup. Virðuleikinn þverr En stærstu tíðindin eru líklega þau að borgarstjóraembættið, hið virðulega og skapandi embætti, var sett á uppboð. Fulltrúi sem mælist í könnunum með nær ekkert fylgi – og hefur nær enga fylgismenn úr sínum röðum – fékk borgarstjóra- stólinn í býttum fyrir völd. Engin slík hrossakaup einkenndu meiri- hluta Tjarnarkvartettsins. Þar var enginn keyptur til fylgilags og eng- um flokkanna var gert að kokgleypa hugsjónir sínar og stefnumál. Stjórnsýsla borgarinnar og þjón- usta við borgarbúa hefur liðið vegna þessa enda hagnast enginn á klækja- stjórnmálum. Allra síst Bolli og flokkssystkin hans. Bolla svarað Oddný Sturludóttir svarar grein Bolla Thoroddsen » Sjálfstæðismaðurinn Bolli setur sig á furðulega háan hest gagnvart konu sem sótti lýðræðislegt umboð sitt til borgarbúa í þrennum kosningum í röð. Oddný Sturludóttir Höfundur er borgarfulltrúi. Á FYRSTA fundi leikskólaráðs haustið 2006 var samþykkt tillaga þess efnis að stofna skyldi til hvatn- ingarverðlauna leikskóla. Mark- miðið með verðlaun- unum er að veita leikskólum í Reykja- vík, starfsfólki þess eða öðrum hvatningu í starfi, vekja athygli á gróskumiklu starfi sem fram fer í leik- skólum borgarinnar og stuðla að auknu ný- breytni- og þróun- arstarfi. Hvatning- arverðlaunin eru jákvæð og afar verð- mæt fyrir reykvískt samfélag og framtíð yngstu Reykvíking- anna. Ólíkir skólar og ólík verkefni Fyrstu verðlaun voru afhent í Höfða í maí 2007 af þáverandi borgarstjóra Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Sex gróskumiklir leik- skólar fengu þá verð- laun. Þeir voru Dvergasteinn fyrir verkefnin ótrú- leg eru ævintýrin og samstarf Myndlistaskólans í Reykjavík, leik- skólinn Fellaborg fyrir verkefnið mannauður í margbreytileika, leik- skólinn Hamraborg fyrir vísinda- verkefni, leikskólinn Nóaborg fyrir verkefnið stærðfræði, leikskólinn Sólborg fyrir verkefnin sameig- inlegt nám fatlaðra og ófatlaðra barna og samvinna og fagstarf og síðast en ekki síst leikskólinn Steinahlíð fyrir verkefnið umhverf- isvernd. Miklu fleiri skólar fengu tilnefningar frá ólíkum aðilum og fyrir ólík verkefni. Þitt tækifæri til að hrósa Í skólum borgarinnar er suðu- pottur hugmynda, frjórrar umræðu og framkvæmd verk- efna sem tengjast reynslu og tilfinningum starfsfólks fyrir breyt- ingum í samfélaginu hverju sinni. Verðlaun- in veita kennurum og starfsfólki viðurkenn- ingu fyrir hug- myndauðgi og fram- kvæmdagleði og hvetur þá áfram til að láta hugmyndir sínar um umbætur og úrræði verða að veruleika og hafa þannig bein áhrif á aukin gæði skóla- umhverfisins. Nú fer hver að verða síðastur til að vekja athygli á fagstarfi í leikskólum borgarinnar. Hægt er að skila inn tilnefn- ingum til 15. apríl næstkomandi á heima- síðu Leikskólasviðs, www.leikskolar.is. Allir geta tilnefnt til verð- launanna, foreldrar, kennarar, skólar, starfsmenn og aðrar borgarstofnanir. Við val á verðlaunahöfum var haft til hlið- sjónar að verkefnið væri öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Tökum höndum saman og hrósum leikskólunum fyr- ir gott starf! Hrósum fyrir gott starf Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir segir mikla uppörvun felast í hrósi Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir » Allir geta til- nefnt til verðlaunanna, foreldrar, kenn- arar, skólar, starfsmenn og aðrar borg- arstofnanir. Höfundur er formaður leikskólaráðs. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 4 13 41 0 4/ 08 HLUNNINDI SEM FYRIRTÆKJASAMNINGUR VEITIR: • Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki • Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn - alla daga ársins • Afsláttur sem býðst á fargjöldum til áfangastaða Icelandair • Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum + Skráðu fyrirtækið þitt núna á www.icelandair.is ÞJÓNUSTA SEM SPARAR FYRIRTÆKJUM TÍMA OG PENINGA ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING? M A D R ID B A R C E LO N A PA R ÍS LO N D O N MANCH ES TE R GLASGOW MÍLANÓ AMSTERDAM MÜNCHEN FRANKFURT BERLÍN KAUPMANNAHÖFN BERGEN GAUTABORG OSLÓ STOKKHÓLMUR HELSINKI H AL IF AX BO ST ON OR LA ND O MINN EAPO LIS – ST . PAUL TOR ONT O NE W YO RK REYKJAVÍK AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.