Morgunblaðið - 08.04.2008, Síða 22

Morgunblaðið - 08.04.2008, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. STÓRIÐJUSTEFNA Í UPPNÁMI Stóriðjustefna annars stjórnar-flokksins, Samfylkingarinnar,er augljóslega í uppnámi. Þórunn Sveinbjarnardóttir um- hverfisráðherra hefur horfzt í augu við þá staðreynd að hún getur ekki komið í veg fyrir byggingu álvers í Helguvík og ætla má að Samfylk- ingin standi frammi fyrir hinu sama á Húsavík. Þessi veruleiki gengur þvert á yf- irlýsta stefnu Samfylkingarinnar gagnvart stóriðjuverkefnum. Flokksforystan þarf að útskýra fyr- ir kjósendum sínum hvað valdi því að hún geti ekki staðið við gefnar yfirlýsingar. Umhverfisráðherra hefur boðað lagabreytingar og jafnvel breyting- ar á stjórnarskrá sem eiga að gera Samfylkingunni kleift að standa við gefin loforð í umhverfismálum. Hef- ur Sjálfstæðisflokkurinn samþykkt þær lagabreytingar og stjórnar- skrárbreytingar fyrir sitt leyti? Það er augljóst að Samfylkingin, sem ræður yfir bæði iðnaðarráðu- neyti og umhverfisráðuneyti í rík- isstjórninni, þeim tveimur ráðu- neytum sem mest koma við sögu í stóriðjumálum, hefur enga stjórn á þróun og uppbyggingu álvera á Ís- landi. Og reyndar fer ekki á milli mála að ráðherrar flokksins eru tví- stígandi í þessum málaflokki. Þeir geta ekki upplýst almenning um það hvað þeir vilja. Hefur Samfylk- ingin breytt um stefnu frá því fyrir kosningar og er nú hlynnt byggingu álvera eða er stefna flokksins óbreytt að ekki eigi að byggja hér fleiri stóriðjuver að sinni? Það er ekki ósanngjörn krafa til Samfylkingarinnar að forysta henn- ar upplýsi bæði flokksmenn sína og aðra um stefnu flokksins í þessum málum þegar hér er komið sögu en svör við þeim spurningum liggja greinilega ekki á lausu. Á undanförnum árum hafa um- ræður um umhverfismál fyrst og fremst snúizt um vatnsaflsvirkjanir en ekki um iðjuverin sjálf. Nú er augljóst að stefnt er að því að knýja hin nýju álver með jarðvarmavirkj- unum. Þá má búast við því að orku- framleiðslan verði ekki jafn umdeild og verið hefur en að álverin sjálf komizt í brennidepil umræðna. Þá vakna spurningar um hvert framlag álveranna er til þjóðarbús- ins, hvers konar vinnustaðir þau eru og hvernig mengun er frá þeim í samanburði við mengun frá ann- arri atvinnustarfsemi. Um þetta hefur lítið verið rætt hin síðari ár vegna þess að áherzlan hefur öll verið á umræður um vatnsaflsvirkj- anir og áhrif þeirra á umhverfið. Það er sjálfsagt að þessar um- ræður fari fram og þá jafnframt hver afstaða þeirra sem búa í næsta umhverfi fyrirhugaðra álvera er. Svo virðist sem meirihluti Suður- nesjamanna sé hlynntur álveri í Helguvík. Með sama hætti sýnist mikil samstaða vera um álver á Húsavík. Er forysta Samfylkingarinnar kannski tvístígandi af þeim sökum? RÝMUM TIL FYRIR GANGANDI FÓLKI Gísli Marteinn Baldursson, formað-ur umhverfis- og samgönguráðs miðborgarinnar, sagði á borgarstjórn- arfundi í síðustu viku að sigið hefði á ógæfuhliðina hvað vandamál vegna bíla varðar í miðborginni. Í Morgun- blaðinu í gær var haft eftir honum að „æ fleiri bílum sé lagt á gagnstéttar, á torgum miðborgarinnar og víðar, þar sem þeir trufla umferð gangandi fólks“. Fundur lögreglunnar, Bílastæða- sjóðs og Reykjavíkurborgar um þenn- an vanda sem fyrirhugaður var í gær er löngu tímabær. Það er fullkomlega óviðunandi að jafnmargir bílstjórar og raun ber vitni skuli ekki geta virt rétt annarra til að komast leiðar sinnar hvort heldur sem þeir eru gangandi, hjólandi, í hjólastólum eða með barna- vagna. Svo virðist sem þessi hegðun sé enn ein birtingarmynd þess agaleysis sem ríkir í umgengni í miðborginni, agaleysis sem borgaryfirvöld og lög- reglan hafa heykst á að takast á við fram til þessa. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að sektir fyrir að leggja ólöglega væru miklum mun lægri hér á landi en í ná- grannalöndum okkar – eða um 1.500 kr. (900 ef greitt er innan þriggja daga) á móti um 10.000 annars staðar. Ef miðað er við hvað það kostar að borga í stöðumæli getur nánast „borg- að sig“ að leggja ólöglega yfir daginn. Ekki síst ef lögreglan lætur sér nægja að sekta fólk í stað þess að láta um- svifalaust draga sökudólgana í burtu á þeirra kostnað, eins og ætti að gera. Í þessu sambandi verður að hafa í huga að hlutfall bílastæða í miðborg Reykjavíkur er miklum mun hærra en í öðrum Evrópulöndum og í Banda- ríkjunum. Tölurnar eru sláandi og tala sínu máli; hér eru 800 stæði á hver 1.000 störf en í Evrópu 270 á móti 500 í Bandaríkjunum. Ökumenn hafa því yf- ir litlu að kvarta. Gísli Marteinn bendir á að bráðlega bætist við 1.600 til 1.800 ný stæði í kjallara Tónlistar- og ráðstefnuhúss- ins og heldur því fram að borgin hafi sofið á verðinum „því ekki hafi enn verið gert ráð fyrir að fækka stæðum á yfirborðinu þegar þessi fjöldi stæða bætist við“. Þessum orðum hans er ástæða til að fagna. Það er kominn tími til að breikka gagnstéttar í mið- borginni og fækka bílastæðum til hagsbóta fyrir gangandi vegfarendur. Mörg gömul borgartorg hafa til að mynda verið lögð undir bílastæði sem nú geta vikið ef marka má orð Gísla Marteins. Á þeim gæti þrifist upp- byggjandi mannlíf, svo sem markaðir eða leikvellir fyrir börn gesta mið- borgarinnar. Hvernig væri að núver- andi borgarstjórn, með Gísla Martein í broddi fylkingar, bretti upp ermarnar eftir að hafa vaknað til vitundar um vandann og hefjist handa við að sópa bílum inn í bílastæðahús og rými götur og torg svo fjölbreyttara og skemmti- legra miðborgarlíf fái þrifist? Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Ólympíuloginn var slökkt-ur nokkrum sinnum á försinni um París í gærvegna mótmæla gegn framferði kínverska alþýðuhersins í Tíbet. Kínverskir skipuleggjendur kyndilhlaupsins gáfust á endanum upp er kyndillinn hafði verið borinn með hléum um helming ráðgerðrar leiðar og létu aka honum í bíl sér- sveitar lögreglu á áfangastað við höfuðstöðvar frönsku ólympíu- nefndarinnar í suðvesturhluta borgarinnar. Kyndilhlaupið hófst við Eiffel- turninn klukkan 12:30 og ráðgerð 28 kílómetra leið hans lá um önnur helstu kennileiti Parísarborgar. Bú- ist hafði verið við mótmælum og því höfðu ráðstafanir verið gerðar til að kyndillinn kæmist óhindrað leiðar sinnar. Um 3.000 lögreglumenn og slökkviliðsmenn vörðuðu leiðina; lögregluþyrlur sveimuðu yfir og víkingasveitir flotans voru til taks á hraðbátum á Signu en leiðin lá að stórum hluta eftir bökkum hennar. Nokkrir tugir sérsveitarmanna frönsku lögreglunnar, skokkandi eða á línuskautum, og nokkrir kín- verskir öryggisverðir klæddir íþróttagalla, slógu öllum stundum skjaldborg um kyndilberann. Oft- ast hvarf hann í hersinguna en und- an henni og á eftir – og jafnvel til hliðar á breiðgötum – óku tugir lög- reglubíla. Var gæsla eldsins mun umfangsmeiri og öflugri en þegar forseti Frakklands ekur í opinni bif- reið um Ódáinsvelli á þjóðhátíðar- daginn, 14. júlí. Vart voru nema 200 metrar af 28 kílómetrum að baki er nema varð staðar vegna mótmæla. Og sagan endurtók sig hvað eftir annað en lögregla hafði yfirburði og yfirbug- aði fljótt þá sem höfðu sig harðast í frammi og reyndu að slökkva eld- inn. Alls tók lögregla 20 manns fasta sem harðast gengu fram. Vart var hersingin lögð af stað aftur er ný fyrirstaða tafði för. Mótmælend- ur lögðust jafnvel á götuna til að trufla för kyndilsins. Athöfn í ráðhúsinu aflýst Spenna ríkti einnig milli frönsku lögreglunnar og hinna kínversku skipuleggjenda hlaupsins. Þrátt fyrir liðssafnað sinn vildi lögreglan fljótlega hætta hlaupinu og aka kyndlinum til Charletyvallar. Greip hún til þess ráðs við fyrirstöðu að fara með kyndilinn inn í rútu og slökkva á honum. Kínverjar vildu hins vegar halda hlaupi áfram og náðu sínu fram. Aftur var kveikt á kyndlinum en vegna mótmæla slokknaði á honum nokkrum sinnum til viðbótar. Og margsinnis var leitað skjóls með kyndilinn inni í rútu vegna andófs- ins, m.a. einu sinni er mótmælendur náðu honum úr hendi fatlaðrar íþróttakonu. Skömmu áður en ólympíueldur- inn átti að koma að ráðhúsi Parísar var tilkynnt að aflýst hafi verið hálf- tíma kyndilathöfn sem þar átti að fara fram. Að frumkvæði Bertrand Delanoe borgarstjóra hékk uppi á framvegg ráðhússins stór borði þar sem sagði, að Parísarborg tali máli mannréttinda, bæði í Frakklandi sem um heim allan. Þá hengdu borgarráðsmenn flokks græningja fána Tíbets og svartan borða með handjárnum sem látin voru tákna ólympíuhringina. Var það mótmæ- lafáni samtakanna Fréttamenn án landamæra en liðsmenn þeirra komust framhjá öryggisverði og festu slíkan fána í 75 metra hæð á Eiffelturni og hlekkjuðu sig þar við. Delanoe sagði við fréttamenn að hann hefði viljað fá ólympíueldinn að ráðhúsinu en kínverskir for- svarsmenn kyndilhlaupsins og kín- verska sendiráðið hafi á síðustu stundu aflýst för hans þangað. Þar var saman kominn fjöldi fólks til stuðnings málstað Tíbeta. Þingmenn mótmæltu Frá Louvre-torginu var í staðinn tekin stefnan yfir Signu að þinghús- inu og hlaupaleiðin því stytt tals- vert vegna tafa. Rúmum tveimur stundum eftir að lagt var af stað frá Eiffelturni var hlaupið t.a.m. orðið klukkustund á eftir áætlun og seinkaði framgangi þess eftir það. Hlé var gert á þingfundi klukkan 16:30 þar sem þingmenn úr öllum flokkum yfirgáfu þingsalinn til að taka þátt í mótmælum gegn fram- ferði kínverska alþýðuhersins í Tíb- et. „Virðið mannréttindi í Kína“ stóð á mótmælaborða sem þing- menn höfðu hengt upp. Saman hrópuðu þeir taktfast „frelsi fyrir Tíbet“ og sungu síðan franska þjóð- sönginn í kór. Þegar hér var komið sögu átti kyndillinn að vera kominn á leið- arenda við Charletyvöll en aðeins 49 af 80 kyndilberum, núverandi og fyrrverandi íþróttastjörnur, búnir að skila sínu hlutverki. Va inu hætt við þinghúsið og kyndlinum ekið tæpan t metra sem eftir var. Fór stutt athöfn og tendraður e Mikil óánægja Spenna var mikil í Par kyndilhlaupsins. Megn ó garð Kínverja einkenndi a loftið. Það vakti sérstaka a varps- og sjónvarpsstöð fylgdust beint með kyndi hversu mikill mannsöfnu meðfram allri leiðinni. A mestu leyti Parísarbúar s ljós megna óánægju í garð vegna Tíbet en þar voru ei etar eða fólk sem þangað á rekja og búsett er í Fr Samtök þeirra lýstu ánæ með mótmælin; sögðu mál et hafa fengið kröftugar u ir. Fáni Tíbet var áberand borg og harðorðir mótmæ Á þeim hljómuðu m.a. s eins og „logi skammarin „viljið þið blóðveröld, velko ympíuleika í Kína.“ Á stöku stað voru einni komnir stuðningsmenn kí stjórnvalda, m.a. náms Ólympíuloginn París vegna gö Rimma Franskir lögreglumenn kljást við mann sem reyndi að hr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.