Morgunblaðið - 08.04.2008, Síða 25

Morgunblaðið - 08.04.2008, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 25 Ég veit ekki hvort mér leyfist að hafa skoðun á Reykjavík- urflugvelli sem íbúa á Suðurlands- undirlendi þar sem við notum flugvöllinn kannski ekki eins mikið og landar okkar fyrir norðan, vestan og austan. Reykjavík er höfuðborg okkar Ís- lendinga og því fylgir mikil ábyrgð fyrir höf- uðborgina gagnvart öðrum þegnum þessa lands, aukinheldur sem Reykjavík hefur alþingi og stjórnsýslu, styrkustu stoðir heil- brigðiskerfisins og svo mætti lengi telja, eins og höfuðborg sæmir. Umræðan um flugvöllinn í Vatnsmýri finnst mér um langa hríð hafa verið út og suður og tímabært að fara að taka af skarið um framtíð hans og tel ég það mjög mikilvægt líka þar sem stutt er í endanlega ákvörðun um fram- tíð nýs hátæknispítala. Ég dreg enga dul á þá skoðun mína að ef Reykjavík á áfram að vera höf- uðborg með öllu sem því fylgir, þá verður Reykjavíkurflugvöllur áfram í Vatnsmýri með kostum þess og göllum og hvergi annars staðar. Kannski má eitthvað þrengja að honum og nýta rými í kringum hann betur líkt og við getum séð í stórborgum erlendis þar sem flugvelli er að finna innan um stórhýsi og íbúðarbyggð. Vissulega erum við hér fyrir austan fjall líkt og félagar okkar suður með sjó alveg til í að taka við innanlandsflugvellinum, t.d. á Selfoss, og með honum þeim 400 störfum sem vellinum fylgja beint og óbeint. Þar með er ekki sagan öll, því ef Reykvíkingar hrekja flugvöllinn burt þá veikja þeir að mínu mati í leiðinni stöðu höfuðborgar landsins og þá sjálfgefið að það sem flugvellinum fylgir, hin sterka heilbrigðisþjónusta steinsnar frá, færi með. Ég veit að ég á mér skoðanabræður en klárlega marga líka sem ekki eru mér sammála, ég hef til að mynda heyrt borgarfulltrúann Dag Eggertsson segja að það muni kosta borgina tugi milljarða að flytja flugvöllinn ekki. Er hann þá búinn að reikna inn í ef borgin tapar einhverju af því sem flug- vellinum fylgir; sterkum sam- félagsstoðum sem elta munu flug- völlinn að kröfu þeirra sem nota þurfa þjónustu vallarins þegar neyðin er stærst og mest? Ég held að nú sé tími ákvarðana runninn upp, byggja skal sæmandi aðstöðu á Reykjavíkurflugvelli fyrir flugið og stjórn borgarinnar gæti athug- að með íbúðarbyggð á Löngu- skerjum og á Hólmsheiði. Ekki meiri vangaveltur, tími þeirra er liðinn og menn verða að horfast í augu við stórt og mikið hlutverk flugvallarins sem lyk- iltengingu höfuðborgar og lands- ins alls. Í lokin langar mig að vitna í ágætan eldri mann sem bjó á hin- um fallega stað Vopnafirði þar sem hann stundaði róðra á bát sínum part úr ári og hinum hlut- anum varði hann í sumarbústað sínum hér fyrir austan fjall. Hann kom reglulega til okkar á rakara- stofuna á Selfossi og þegar til tals kom í útvarpi umræða um Reykjavíkurflugvöll sagði þessi hógværi maður að sér hrysi hugur við tilhugsuninni um hjartaáfall eða eitthvað álíka heima á Vopna- firði, að bíða þá eftir sjúkraflugi frá Egilsstöðum, flugi til t.d. Keflavíkur nú eða Selfoss og svo akstri þaðan á sjúkrahús í Reykjavík. Hann taldi daga sína líklega talda þegar á áfangastað yrði komið. Þessi hógværi maður snerti strengi í hjarta mér þegar hann mælti þetta og æ síðan hef- ur mig langað að segja eitthvað um málefni Reykjavíkurflugvallar. Hann hefur fyrir nokkru kvatt okkur þessi heiðursmaður en hann vakti mig til umhugsunar um flugvöllinn og mál hans sem ég ekki hafði áður gert svo neinu nam. Höfuðborgin Reykjavík og flugvöllurinn Kjartan Björnsson skrifar um Reykjavíkurflugvöll »… ef Reykjavík á áfram að vera höf- uðborg með öllu sem því fylgir, þá verður Reykjavíkurflugvöllur áfram í Vatnsmýri með kostum þess og … Kjartan Björnsson Höfundur er rakari á Selfossi. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Vilnius 30. apríl frá kr. 49.990 Frábær 4 nátta helgarferð! Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum í fjögurra nátta helgarferð til Vilnius 30. apríl. Upplagt tækifæri til að njóta vorsins í þessari fallegu borg og dekra við sig í aðbúnaði. Fararstjórar okkar kynna þér sögu borgarinnar og heillandi menningu. Bjóðum frábær sértilboð á Hotel Europa City *** og Hotel City Park ****. Vorið í Vilnius er komið á fleygiferð á þessum tíma og þetta er því einstakur tími til að heimsækja borgina. Ath. aðeins fá herbergi í boði á þessum kjörum. Verð kr. 49.990 - *** gisting Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 4 nætur á Hotel Europa City *** með morgunmat. Verð kr. 54.990 - **** gisting Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 4 nætur á Hotel City Park **** með morgunmat. M bl 9 89 89 5 Síðustu sætin! * Verð í auglýsingunni er án virðisaukaskatts. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Aukabúnaður á mynd af Transit er samlitur á stuðara og grilli og þokuljós í framstuðara. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar. „Standard“ heitur alla morgna Nýtt útlit. Nýtt innlit. Ný vél. Nýtt stöðugleikastýrikerfi. Komdu. Skoðaðu nýjan Ford Transit. Kannaðu aðstæður. Vinnuaðstöðunni hefur verið breytt til hins betra í nýjum Transit.Reyndu nýju vélina í Transit: 2,2 l dísil Duratorq TDCi. G C I G R O U P píáääíì=âäìââìå~=~ð âî∏äÇá=çÖ=þ∫ Äóêà~ê=Ç~Öáåå=ÜÉáíìê=~ð=ãçêÖåáK q∞ã~ëíáää~åäÉÖ=çä∞ìãáðëí∏ð Éê ëí~ð~äÄ∫å~ðìê ∞ qê~åëáí ëÉåÇáÄ∞äìã Ñê•=cçêÇ=J ë¨êëí~âäÉÖ~ Ñóêáê ∞ëäÉåëâ~ê ~ðëí‹ðìêK hçãÇì=∞ _êáãÄçêÖK hóååíì=þ¨ê åýíí ëí∏ðìÖäÉáâ~ëíýêáâÉêÑá=cçêÇ qê~åëáí ëÉã Éê ëí~ð~äÄ∫å~ðìêK Vertu í hópi þeirra bestu. Komdu í Brimborg. Veldu Ford Transit í dag. sÉêð Ñê• OKSOSKRMS âêK=•å îëâGK hóååíì=þ¨ê ë¨êí‹â~=þàμåìëíì ^íîáååìÄ∞ä~=cçêÇ=Üà• _êáãÄçêÖ hóååíì=þ¨ê ë¨êí‹â~=þàμåìëíì ^íîáååìÄ∞ä~=cçêÇ=Üà• _êáãÄçêÖ Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.ford.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.