Morgunblaðið - 08.04.2008, Page 31

Morgunblaðið - 08.04.2008, Page 31
hann gaman af því að stríða og ögra fólki með skoðunum og orðum en það var bara til að lífga upp á umræðuna og brjóta ísinn. Fyrir vikið var Sveinn kannski ekki allra við fyrstu kynni en þegar komið var inn fyrir harðgerða skelina var þar góður og gegnheill maður, traustur vinur vina sinna. Það hefur verið gaman að fylgjast með og vera þátttakandi í lífi rauð- hausanna þriggja í Arnarsíðunni, hver á sinn hátt lík pabbanum, og nú síðustu árin afadrengnum Gunnari sem er lifandi eftirmynd afa síns. Stóri og sterki maðurinn getur stoltur flogið á braut og kvatt þessa tilvist. Áshildur. Ég hef átt því láni að fagna að um- gangast sjómenn meira og minna frá unga aldri. Þess vegna tel ég mig þekkja talsvert það umhverfi sem þeir lifa í og hef alltaf talið að skip- stjórn á fiskiskipi sé mest krefjandi allra starfa. Skipstjórinn ber ábyrgð á skipi og skipshöfn, en hann þarf einnig að vera sífellt á vaktinni eða á tánum eins og oft er sagt, því ef hann kemur ekki með viðunandi afla að landi á hann ekki framtíðarmögu- leika. Þannig hefur orðatiltækið „Að skipta um karlinn í brúnni“ orðið til. Vinur minn Sveinn Hjálmarsson skipstjóri er látinn langt um aldur fram. Við vorum samstarfsmenn hjá ÚA þar sem góður kunningsskapur tókst með okkur, sem smám saman leiddi til vináttu. Hann var maður sem stóð undir þeim kröfum, sem minnst er á hér að ofan, kom alltaf með skip sitt heilt til hafnar og var aflamaður með afbrigðum. Sagt hef- ur verið að líf sem vel er nýtt sé langt líf og ef það er þannig þá hefur Svenni þrátt fyrir allt verið langlífur því þetta á einstaklega vel við hann. Hann nýtti líf sitt vel. Það lýsir Sveini vel að hann var all- an sinn sjómennskuferil hjá sama fyrirtækinu, ÚA, þar sem hann byrj- aði á nýsköpunartogaranum Harð- bak með Áka Stefánssyni um miðjan 7. áratuginn. Hann varð síðar 1. stýri- maður á Kaldbak hjá vini sínum Þor- steini Vilhelmssyni, og síðan skip- stjóri eftir að Þorsteinn fór í eigin útgerð. Traust og tryggð eru orð sem hæfa honum vel og hann var einn af þessum mönnum sem enskir kalla „company man“, en það er sá maður sem hugsar alltaf um hag fyrirtæk- isins sem hann vinnur hjá. Hann naut mikils álits Vilhelms Þorsteinssonar framkvæmdastjóra og eru það mikil meðmæli, því ein sterkasta hlið Vil- helms var hversu vel hann skynjaði hverjir ættu framtíð fyrir sér í brúnni. Kaldbakur fór í viðamikla klössun í Póllandi haustið 1994. Ég ákvað að sigla með þeim og þótt ég hafi farið margar ferðir til hinna ýmsu staða og heimshorna er þetta ein sú eftir- minnilegasta. Eftir að hafa spilað „Undir bláhimni“ á hæsta styrk við suðurodda Noregs komum við til Gdansk eftir 5 sólarhringa siglingu. Fyrsta kvöldið fór áhöfnin í land og dreifðist í ýmsar áttir. Við Svenni komum snemma til baka. Ég gekk til náða, en vaknaði síðan að áliðinni nóttu og fór niður í borðsal. Þar var skipstjórinn fyrir og hafði ekki enn hallað sér, sagðist ekki gera það fyrr en allir hefðu skilað sér til skips. Síð- asti maður kom svo stuttu síðar og þá fór Sveinn loks í koju. Þessi litla saga sýnir í hnotskurn ábyrgðartilfinningu og er lýsandi fyrir mann, sem ekki að- eins bar ábyrgð á skipshöfn sinni, heldur sýndi henni líka mikla um- hyggju. Eftir að Svenni kom í land fyrir nokkrum árum höfum við hist reglu- lega og fyrir það er ég þakklátur. Hann lifir í minni mínu sem einn heil- steyptasti maður sem ég hef átt sam- leið með. Ég sendi Guðrúnu og dætrunum þremur innilegar samúðarkveðjur svo og dóttursyninum, sem sér nú á eftir afa sínum. Megi góður guð styrkja þau. Guð blessi minningu Sveins Hjálm- arssonar. Gunnar Ragnars. Sveinn Hjálmarsson hefur lokið ævistarfi sínu til sjós og kvatt sam- ferðafólk sitt langt fyrir aldur fram. Hann helgaði Útgerðarfélagi Akur- eyrar, sem nú heitir Brim, starfs- krafta sína óslitið í fjóra áratugi og var stýrimaður og skipstjóri á togar- anum Kaldbak samfleytt í meira en þrjátíu ár. Slíkt er nánast einstakt og á milli hans og vinnuveitenda hans ríkti ávallt mikið traust. Við Sveinn kynntumst ungir þegar við vorum saman til sjós á gamla Harðbak og bundumst þar traustum vináttuböndum enda þótt oft væri tekist á. Sveinn hafði hleypt heim- draganum úr Skagafirði og ráðið sig sem háseta þegar síldarævintýrið var í algleymingi. Vinnuharkan var gíf- urleg og í áhöfn skipanna á þessum árum voru oft misjafnir sauðir í mörgu fé sem síst hlífðu þeim sem voru að byrja. Það er ekki ólíklegt að óharðnaður unglingurinn, og að- komumaður að auki, hafi verið í þeim hópi. Gefist menn á annað borð ekki upp við slíkar aðstæður er viðbúið að skrápurinn harðni hratt. Ég held að sú hafi einmitt orðið raunin hjá Sveini og að þessi fyrstu ár hans á sjó hafi mótað hann á margan hátt. Við urðum samferða í Stýrimanna- skólann ásamt nokkrum félögum frá Akureyri og Sveinn skilaði því verk- efni með miklum sóma eins og öðru sem hann tókst á hendur. Hann var dugnaðarforkur, harður við sjálfan sig og eflaust líka þá sem hann setti til verka á sjó, orðheppinn og glaðvær í góðum hópi, traustur vinur vina sinna og mikill fjölskyldumaður. Sveinn sótti Kaldbak nýjan til Spánar sem 2. stýrimaður og þar urð- um við aftur samskipa stuttu síðar, ég sem skipstjóri og hann 1. stýrimaður. Við vorum ungir og til okkar voru gerðar miklar kröfur. Sveinn tók svo við skipstjórastöðu 1983 þegar ég fór á annað skip. Vinátta okkar hélst og áttum við mikil samskipti á sjónum. Sveinn var farsæll skipstjóri. Hann missti aldrei mann, fiskaði vel og fór ávallt vel með áhöfn sína, skip og veiðarfæri. Hann var alltaf tilbúinn til að prófa ný veiðarfæri og bæta við þekkingu sína og reynslu. Aðrir nutu góðs af. ÚA sendi hann meðal annars í nokkra túra á togurum sínum í Þýskalandi þar sem hann kenndi þar- lendum áhöfnum heppilegustu hand- tökin á nýjustu veiðarfærunum. Sveinn sagði mér nýlega, þá orðinn langt leiddur af þeim sjúkdómi sem dró hann til dauða, að síðasta ferð hans á sjóinn hefði verið þegar hann bauð mér og Stefáni syni mínum með í siglingu um Eyjafjörð. Við fórum ásamt tveimur öðrum á bátnum Húna, sem öðru hvoru er leigður út til skemmtiferða í nágrenni Akureyrar. Sveinn fór sem skipstjóri í nokkra slíka túra eftir að hann hætti á Kald- bak. Í þessari síðustu ferð hans renndum við að sjálfsögðu fyrir fisk en afraksturinn varð ekki nema einn þorskur. „Þetta var eini þorskurinn sem eftir var í firðinum,“ sagði Sveinn við mig á leiðinni í land og bætti brosandi við – „og þú fékkst hann“. Ég kveð góðan vin með söknuði og bið honum Guðs blessunar. Við Þóra vottum Gurru, dætrum, tengdasyni og dóttursyni innilega samúð og biðj- um Guð að styrkja þau í sorginni. Þorsteinn Vilhelmsson.  Fleiri minningargreinar um Svein Hjálmarsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 31 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Hvolpar til sölu, Ungverskur Vizsla. Vizsla er frábær veiði- og fjölskylduhundur. Ættbók frá HRFÍ, örmerktir og bólusettir. Verð 160.000 kr. Upplýsingar í s. 6920279/6915034 vizsla.blog.is Húsnæði í boði Til leigu strax! efri hæð í einbýlishúsi svæði 108, 3 herbergja og eldhús, 70 fm. Uppl í síma 553-5916. Íbúð til leigu í Hveragerði Tveggja herbergja íbúð, á annarri hæð, til leigu. Uppl. í gsm 891 7565. Atvinnuhúsnæði Atvinnuhúsnæði óskast. Húsnæðiðið þarf að rúma einn til þrjá bíla.ætlumin er að nota það til filmu ísetíga öruggar greiðslur, banka ábyrð ef með þarf upplýsingar í síma 662-5844 eða sendið skila boð á bv@vortex.is Sumarhús Sumarhús - orlofshús . Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Tómstundir Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is. Til sölu Tékkneskar og slóvenskar handslípaðar kristal- ljósakrónur. Mikið úrval. Frábært verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Þjónusta Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., símar 567 1130 og 893 6270. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Teg. Darcey - flottur og sumarlegur í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.995,- Teg. Iona - mjúkur og yndislegur, styður samt vel í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.995,- Teg. Saskia - mjög sérstakur og smart í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.990,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is. GreenHouse vor-sumarvaran er komin. Verið velkomin að sækja frían bækling. Opið í dag, þriðjudag 13-19. GreenHouse, Rauðagerði 26. Arcopédico hinir einu sönnu komnir aftur í Rauðagerði 26. Alltaf góðir. Varist eftirlíkingar. Opið í dag, þriðjudag, 13 - 19. Veiði Veiðferðir til S-Grænlands í sumar. Stangveiði, sauðnaut og hreindýr. Leitið upplýsinga Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf. S.: 511 1515 www.gjtravel.is Bílar Subaru Forester Luxury, árgerð 03.´03. Ekinn aðeins 54 þús. km. Sjálfskiptur, topplúga, álfelgur, dráttarkrókur. Topp bíll. Verð 1.790 þús. Ath. skipti á ódýrari. Upplýsingar í síma 690 2577. Nissan Terrano SE 08/99 7 manna, 5 gíra bensín. Ek 148 þ km. Topplúga álfelgur auka dekkjagangur á felgum. Bíll í sérflokki einn eig! Verð 1.090 þús, ath sk á ódýrari. Upplýsingar í síma 690 2577. Hjólbarðar Álfelgur og dekk, Landcruiser Glænýjar og ónotaðar Toyota álfelgur og Michelin 265/65 R17. Af Landcrui- ser 120, passa líka á LC 90 o.fl. Kosta ný 130þ.kr. Tilboð 80þ.kr. S.824-5290. Einkamál Til félaga minna í ISTE Ég bið hér með alla félaga mína ISTE innilega afsökunar á að hafa verið fjarverandi á árshátíðinni síðastliðna helgi. Bestu kveðjur, Sveinn. Þjónustuauglýsingar 5691100 ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, BJÖRGVINS A. JÓNSSONAR, Sólvangsvegi 1, áður Hörðuvöllum 4, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 4. hæðar hjúkrunarheimilisins Sólvangi, Hafnarfirði, fyrir kærleiksríka og hlýja umönnun. Rakel Guðmundsdóttir, Sigurlína Björgvinsdóttir, Ögmundur Karvelsson, Jón Már Björgvinsson, Guðrún M. Jónsdóttir, Guðmundur Björgvinsson, Stefana B. Gylfadóttir, Sigríður G. Björgvinsdóttir, Randver Þ. Randversson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.