Morgunblaðið - 08.04.2008, Síða 36

Morgunblaðið - 08.04.2008, Síða 36
Því þegar best lætur er þetta algerlega magnað stöff - og alveg orginal … 40 » reykjavíkreykjavík Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is KRISTÍN Björk Kristjánsdóttir, öðru nafni Kira Kira, hefur verið ráð- in í starf listræns stjórnanda listahá- tíðarinnar Sequences. „Ég hef verið að leika mér að því að hugsa um 300 ára gamlan kall sem rís úr gröf sinni og upplifir eitthvað af þeim verk- efnum sem hafa verið á Sequences, þessar kviku listir. Hann kann ekki að skýra hvers vegna þetta gerist eða hvernig, það eina sem hann kann er að hrífast. Þetta er það sem mig lang- ar alltaf svolítið í, að skynfærin end- urfæðist svo við getum gleymt okkur í barnslegri undrun, leyft upplif- uninni að hellast yfir okkur óþynntri.“ Hátíðin fer fram á hverju hausti á sama tíma og Airwaves-tónlistarhá- tíðin. Í ár var fyrirkomulagi hennar breytt og listræn stjórn skipuð en fram að þessu hefur framkvæmda- stjóri séð um skipulag hátíðarinnar. Í framhaldinu var listrænn stjórnandi ráðinn í fyrsta sinn. Kristín Björk út- skrifaðist úr Listaháskóla Íslands ár- ið 2005 og gaf út fyrstu sólóplötu sína Skottu árið á eftir undir listamanns- nafninu Kira Kira. Hún er líka einn af stofnendum listahópsins Kitchen Motors eða Tilraunaeldhússins sem vinnur að því að brjóta niður múra milli ólíkra listgreina. Kira Kira stýrir Sequences Kira Kira Listrænn stjórnandi hefur verið ráðinn á Sequences-hátíðina í fyrsta sinn og varð Kristín Björk Kristjánsdóttir fyrir valinu.  Rúmur mán- uður er nú í stór- tónleika Páls Rósinkranz og Jet Black Joe sem haldnir verða í Höllinni föstudaginn 16. maí. Margir af vin- sælustu tónlistarmönnum þjóð- arinnar munu stíga á svið með sveitinni en þar má m.a. nefna KK, Hreim í Landi og sonum, Guð- mund Jónsson úr Sálinni og síðast en ekki síst Sigríði Guðnadóttur en hún skaust upp á stjörnuhim- ininn í nokkrar vikur árið 1993 þegar hún söng lagið „Freedom“ með Jet Black Joe í upphafi tíunda áratugarins. Þá munu félagar úr Gospelkór Reykjavíkur einnig verða rokkurunum til fulltingis á tónleikunum. Gamlir vinir troða upp með JBJ í Höllinni  Fullt var út úr dyrum í stóra sal Borgarleikhúss- ins á föstudags- kvöldið þegar leikverkið Komm- únan var sett þar upp í síðasta skipti í bili, en að- standendur verksins héldu til Mexíkó í gær þar sem verkið verður sett upp sex sinnum. Eins og fram hefur komið gerist verkið á meðal hippa í kommúnu nokkurri árið 1975, og er frjálsræðið á sviðinu eftir því. Þannig er töluverð nekt í verkinu, og fara leikararnir Atli Rafn Sig- urðarson, Gael Garcia Bernal og Nína Dögg Filippusdóttir nánast úr hverri spjör. Hið sama gildir um Ilmi Kristjánsdóttur sem hefur tekið við hlutverki Elenu Anaya í sýningunni, en það var ekki nóg með að Ilmur sýndi töluvert af beru holdi á meðan á sýningunni stóð, heldur „múnaði“ hún á meðan á uppklappi stóð, við mikla kátínu viðstaddra. Sýndi óæðri endann Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is ÞÆR breytingar voru á dögunum gerðar á keppnishópi Íslands í Evr- óvisjón að í stað fjögurra dansara komu fjórir bakraddarsöngvarar. Bakraddirnar eru ekki af verri endanum; Hera Björk Þórhalls- dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Pét- ur Örn Guðmundsson og sjálfur Grétar Örvarsson. Páll segir ástæðu breytinganna þá að á æfingu hafi verið prófað að flytja lagið með bakröddum og hafi það gjörbreytt ásýnd lagsins svo söngvararnir Friðrik Ómar Hjör- leifsson og Regína Ósk Ósk- arsdóttir fá að njóta sín mun betur: „Samkvæmt reglum keppninnar mega að hámarki vera sex þátttak- endur á sviði frá hverju liði og urð- um við því að láta dansarana fara út í staðinn fyrir bakraddirnar. Ef ég hefði mátt það, hefði ég leyft öllum hópnum, dönsurum og ba- kröddum að taka þátt. Ég hefði ekki heldur getað hugsað mér að gera upp á milli dansaranna, halda sumum þeirra en láta aðra fjúka og því fór sem fór.“ Páll hlær þegar hann er spurður í gríni hvort Regína og Friðrik þurfi nokkuð að hafa áhyggjur af sínum plássum í liðinu: „Þau eru með okkar bestu söngvurum og lagið í góðum höndum hjá þeim.“ Bjartsýnn á árangur Þegar þessi grein birtist er enn rúmur mánuður í keppni og segir Páll nú unnið að því að hanna at- riði hópsins í smáatriðum. Hann er mjög bjartsýnn á frammistöðu hópsins, sérstaklega eftir tilkomu bakraddarsöngvaranna. „Það er samt engin trygging fyrir því að við komumst upp úr undankeppi og ljóst að róðurinn er þungur og keppnin hörð í ár,“ segir Páll sem síðustu daga hefur kynnt sér fram- lög annarra þjóða til keppninnar. Í mörgu að snúast Nóg er um að vera. Tökum á myndbandi við lagið er nýlokið og hópurinn tekur þátt í Evr- óvisjónveislu í Lundúnum í apríllok á vegum aðdáenda- og fréttasíð- unnar ESCToday.com. Þar mæta fleiri keppendur til leiks og kynna lögin sín. Aðspurður segist Páll ekki hafa miklar áhyggjur af hættum í Serb- íu en varað hafði verið við ferðum samkynhneigðra þangað til lands þar sem hommahræðsla er alvar- legt vandamál í landinu. Allir keppendur verða undir náinni vörslu lögreglu og kallar Páll raunar ekki allt ömmu sína í þess- um málum og minnist sprengjuhót- ana IRA þegar hann tók þátt í söngvakeppninni í Dyflinni árið 1997. „Ég held að yfirvöldum í Serbíu sé mikið í mun að þetta líti eins vel og hægt er út á við, enda er öll Evrópa að fara að mæta. Þeir kappkosta því að allt gangi snuðru- laust fyrir sig og keppendur jafnt sem aðdáendur verði ekki fyrir neinu hnjaski,“ segir Páll. „Það eina sem þeir hafa tekið fram er að gestir bryddi ekki upp á pólitík í samræðum við innfædda, því slíkt getur endað illa.“ Vegas-stemning í Laugardal Auk þess að vinna að kappi við undirbúning Eurovision er Páll með hugann þessa dagana við 15 ára tónlistarafmælishátíð sína sem haldin verður í Laugardalshöll í september auk þess sem hann vinn- ur að tvöfaldri safnplötu. „Tónleikarnir í september verða með allt öðru sniði en sambæri- legir tónleikar síðustu ár. Áherslan verður fyrst og fremst á „sjóið“ og má segja að það verði Las Vegas- stemning í höllinni.“ Lagið í góðum höndum  Bjartsýnn á gengi lagsins eftir að stórskotalið bakraddarsöngvara bættist við Evróvisjónhópinn  Lofar Vegas-stemningu í Höllinni í september Reynslubolti Páll Óskar er eldri en tvævetur þegar það kemur að Evr- óvisjón og öruggt má telja að hann kasti ekki til hendinni við undirbúning- inn fyrir keppnina í Serbíu í næsta mánuði. ■ Fim. 10. apríl kl. 19.30 - uppselt Síðbúin meistaramessa Heimsóknir heiðursstjórnanda hljómsveitarinnar, Vladimir Ashkenazy, eru alltaf stórviðburður. Að þessu sinni stjórnar hann flutningi á Missa Solemnis eftir Beethoven. Stjórnandi: Vladimir Ashkenazy Einsöngvarar: Joan Rodgers, Sesselja Kristjánsdóttir, Mark Tucker og Ólafur Kjartan Sigurðarson. Íslenski óperukórinn, kórstjóri Garðar Cortes. ■ Fim. 17. apríl kl. 19.30 Söngfuglar hvíta tjaldsins Söngleikjadívan Kim Criswell flettir söngbókum helstu lagahöfunda Bandaríkjanna frá gullöld söngvamyndanna og fetar í fótspor sönggyðja á borð við Judy Garland, Marilyn Monroe og Doris Day. ■ Lau. 19. apríl kl. 14.00 Bíófjör - Tónsprotatónleikar Öll fjölskyldan skemmtir sér konunglega á þessum tónleikum þar sem tónlist úr kvikmyndum á borð við Stjörnustríð, Harry Potter, Mary Poppins og Simpsons hljómar. Trúðurinn Barbara kynnir tónlistina á sinn einstaka hátt.Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.