Morgunblaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf          !"#$% &'( #)% # *#!  +,,# -$ ## -,$' ## . "# ,  # /'(#0(1'2% 34 %5! /'#! %          6 7 7 7 6 7 6 7                  !  " #$ %  " #$     !"#$%  8%9#! #9 :!! # #9 ;< % /= #9  % #              .> ; 0! >? +@ # #9 1  ="! A#                     &BC*- &%#0#D:#, E$0 F#            *AG & H9I J9K /E&; *AG  - !!                     L K 9! ( 1# ,' ' >" 0# #  '#  (      ) *+,  - + ,"   E   #  E   #  E   #  E   #                            H  A  A 7 7 6  H  A  A 7 7  6   H  A  A 7  7 6    H  A  A 7  7 6 ' >" 0# #  ' >" 0# #  ' >" 0# #  ' >" 0# #        Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ATBURÐIR undanfarinna missera á fjármálamarkaði kunna að kalla á breyttar reglur um lágmarkseigin- fjárhlutfall bankastofnana, að mati Charles Goodheart, fyrrverandi stjórnarmanns í bankastjórn Eng- landsbanka. Í viðtali á BBC World Service útvarpsstöðinni sagði Go- odheart að skoða mætti hvort ekki væri ástæða til að taka upp strangari, en um leið sveigjanlegri reglur um lausafjárstöðu banka. Samkvæmt núgildandi reglum eiga bankar að halda eftir í beinhörðum peningum ákveðnum hluta eigna sinna og er þetta hlutfall gjarnan kallað CAD (capital adequacy) hlut- fall. Hér á landi er lágmarks CAD hlutfall 8%, en það er breytilegt eftir löndum. Í einföldu máli er þetta hlut- fall eigin fjár á móti skuldum, en í til- viki bankastofnana er útreikningur- inn flóknari. Hærra hlutfall í góðæri Goodheart telur að núverandi reglur stuðli ekki að jafnvægi á fjármála- mörkuðum, heldur geti jafnvel ýkt upp- og niðursveiflur. Þegar vel gangi og bankar græði mikið veitist þeim það afar létt að halda CAD hlutfallinu yfir lágmarkinu, en taki markaðir dýfu, eins og nú hefur gerst, reynist krafan um lágmarks CAD hlutfall hins vegar hemill á útlán bankanna. Leggur Goodheart það því til að reglum verði breytt þannig að þegar vel ári sé bönkum skylt að viðhalda hærra CAD hlutfalli en þeir þurfa nú, án þess að nefna sjálfur hvert hið nýja lágmark á að vera. Segir hann að með því að binda meira af eigin fé bankanna með þessum hætti sé fleiri böndum komið á bóluhegðun á mörk- uðum og uppsveiflur því dempaðar. Á móti segir hann að þegar að niður- sveiflu í efnahagslífinu komi sé heppi- legt að slaka á kröfum um eiginfjár- hlutfall og losa þar með um hluta eigin fjár bankastofnanna. Eitt af því sem nú hrjái fjármálamarkaði sé tregða banka til að lána fé, einkum hver til annars, og það mætti bæta með því slaka á áðurnefndum kröfum. Breyttar reglur um eiginfjárhlutfall Reuters Olía Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði í gær, í rúma 118 dali á fatið, eftir að fréttir bárust af því að bensínbirgðir í Bandaríkjunum hefðu minnkað. ÁSTRALSKI fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch hefur stigið enn eitt skrefið í þá átt að auka áhrif sín á bandarískum fjölmiðlamarkaði. Hann hefur lagt fram 580 milljóna dollara tilboð í dagblaðið Newsday. Þá mun hann jafnframt innan tíðar tilnefna nýjan ritstjóra á Wall Street Journal (WSJ), eftir að fyrrverandi ritstjóri sagði upp í fyrradag. Verði af kaupum Murdochs á Newsday mun hann þar með stýra þremur af tíu stærstu dagblöðum Bandaríkjanna, en hann á fyrir New York Post auk WSJ. Samkomulag um kaup Murdochs á Newsday er samkvæmt frétt í New York Times (NYT) langt frá því að vera í höfn. Meðal annars er talið að Mortimer B. Zuckerman, eigandi The Daily News, muni svara tilboði Murdochs í næstu viku. Þá er von á tilboði frá Observer Media Group, sem gefur út New York Observer. Einnig er talið að kaup Murdochs á Newsday myndu hugsanlega stangast á við fjölmiðla- lög. Afsögn Marcus W. Brauchli, fyrrverandi ritsjóra WSJ, þykir ekki koma á óvart, enda var hann ráðinn til starfa áður en Murdoch keypti Dow Jones, sem gefur WSJ út, fyrir 5,2 milljarða dollara í fyrra. Tilboð Murdochs í Newsday og ritstjóraskiptin á WSJ vekja óhug hjá keppinautum hans á bandarísk- um fjölmiðlamarkaði og einnig á rit- stjórnarskrifstofum hans eigin fjöl- miðla, samkvæmt frétt í NYT. Murdoch vill fleiri blöð SKEYTASENDINGAR frá stærsta námafyrirtæki heims, BHP Billiton, í garð helsta keppinautarins, námu- og álfyrirtækisins Rio Tinto, hafa orðið sífellt fjand- samlegri að undanförnu, en Billiton lagði fyrr á þessu ári fram fjandsamlegt yfirtökutilboð í Rio Tinto upp á 147 milljarða Bandaríkjadollara. Forstjóri Billiton, Marius Kloppers, sagði í samtali við Asíuútgáfu Financial Times í gær, að afkoma Rio Tinto sé langt frá því að vera viðunandi og að áætlanir fyr- irtækisins séu einnig alls fjarri raunveruleikanum. Þá sagði hann að Rio Tinto hefði misst af tækifærum í Kína. Rio Tinto keypti Alcan Inc. seint á síðasta ári og er því móðurfélag álversins í Straumsvík. Árásir BHP Billiton harðna Reuters Árás Rio Tinto stendur ekki vel segir forstjóri BHP Billiton. Myndin er úr kolanámu Rio Tinto í Ástralíu. VÖXTUR var í veltu þjón- ustugreina í Evrópu í marsmánuði en búist hafði verið við samdrætti. Vísitala Royal Bank of Scotland sem mælir einmitt veltuna hækkaði úr 51,6 stigum í febrúar í 51,8 stig í mars en meðalspá sérfræðinga sem Bloomberg ræddi við gerði ráð fyr- ir að vísitalan myndi lækka í 51,4 stig. Bloomberg hefur eftir Robert Lind hjá hollenska bankanum ABN Amro að niðustaðan sé til marks um að þrátt fyrir að ef til vill hafi dreg- ið úr efnahagslegri virkni sé hún enn mikil í Evrópu og að evrópska hagkerfið sé enn öflugt þótt Banda- ríkin séu á barmi niðursveiflu. „Út- flutningsmarkaðir, utan Bandaríkj- anna, eru enn öflugir og margt bendir til þess að innri kraftur hag- kerfisins sé að aukast,“ segir Lind. Þróunin er sögð auka líkurnar á því að Seðlabanki Evrópu hækki stýrivexti. Velta þjónustu- greina jókst TALIÐ er lík- legt að rekstur Credit Suisse, stærsta banka Sviss samkvæmt Forbes, muni skila tapi á fyrsta fjórðungi ársins en uppgjör bank- ans verður gert opinbert í dag. Ástæðan er, eins og hjá svo mörgum öðrum bönkum, erfiðleikar á fjármálamörkuðum. Meðalspá greinenda sem spáð hafa fyrir Bloomberg hljóðar upp á 594 milljóna franka, 44 milljarða króna, tap en á sama fjórðungi í fyrra var bankinn rekinn með 2,7 milljarða franka hagnaði. Talið er að Credit Suisse hafi af- skrifað um 5 milljarða franka á fjórðungnum. Reiknað með tapi hjá CS Höfuðstöðvar CS eru í Zürich. FRAMLEIÐSLA á hrástáli jókst um 5,8% í mars miðað við sama mánuð í fyrra ef marka má fram- leiðslu þeirra 66 ríkja sem tilkynna framleiðslu sína til alþjóðlegu járn- og stálstofnunarinnar, IISI. Á fyrstu þremur mánuðum ársins jókst framleiðslan um 5,6% miðað við sama tímabil í fyrra. Í tilkynn- ingu frá IISI kemur fram að sam- anlögð stálframleiðsla ríkjanna 66 hafi verið 119,5 milljónir tonna í marsmánuði en 340,7 milljónir tonna á fyrsta ársfjórðungi. Kína er langmesta stálfram- leiðsluland heims samkvæmt til- kynningu IISI en þar í landi voru í marsmánuði framleidd tæplega 45 milljón tonn af hrástáli, þ.e. um 37,5% af allri framleiðslunni. Næst stærsti framleiðandinn er Japan og í þriðja sæti eru Bandaríkin. Stærstu stálframleiðslulönd Evr- ópu eru Þýskaland, 4,2 milljónir tonna, og Ítalía, 2,9 milljónir tonna. Reuters Stálfram- leiðsla eykst NOREGSBANKI hækkaði í gær stýrivexti sína um 0,25 prósentustig og eru þeir því 5,5%. Ástæðan er sú að þenslu- og verðbólgumerki eru til staðar í hagkerfinu. Verðbólga er þó enn undir markmiði Nor- egsbanka. Norðmenn hækka vexti ERLENDAR hlutabréfavísitölur hækkuðu nær undantekningalaust í gær, en hækkanirnar voru hóflegar og segir í frétt Wall Street Journal að ákveðinnar óvissu gæti meðal markaðsaðila vegna misvísandi uppgjörsfrétta. Á annan bóginn megi nefna gott uppgjör Boeing, sem eins og mörg önnur risafyr- irtæki hafa getað nýtt sér stöðu sína í mörgum ríkjum til að vega upp á móti niðursveiflunni í Banda- ríkjunum. Hins vegar skilaði skuldabréfa- tryggingafélagið Ambac Financial Group afleitu uppgjöri og minnti fjárfesta á að enn sér ekki fyrir endann á hremmingum á fjár- málamarkaði. Dow Jones vísitalan hækkaði um 0,34% en Nasdaq hækkaði um 1,19%. Í Evrópu hækkaði breska FTSE vísitalan um 0,81%, þýska DAX um 0,99% og franska CAC um 1,48%. Á Norðurlöndum var svipaða sögu að segja, samnorræna vísital- an hækkaði um 1,2%, sænska vísi- talan um 1,47%, sú danska um 0,55% og sú norska um 0,1%. Hóflegar hækkanir ÞÝÐINGAR RÁÐSTEFNUTÚLKANIR 130 TUNGUMÁL Við tölum íslensku! Í HJARTA KAUPMANNAHAFNAR WWW.TOLKEGRUPPEN.DK SÍMI: 0045 43 71 61 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.